Vísir - 02.08.1980, Blaðsíða 5

Vísir - 02.08.1980, Blaðsíða 5
vísm Laugardagur 2. ágúst 1980. hennar meöan undirskriftin var gerö, tók skjaliö og lét á borö Björns Sveinbjörnssonar. Forseti Hæstaréttar stóö upp og sagöi: „Forseti Islands, Vig- dfs Finnbogadóttir”. Útá svalirnar Vigdis stóö nú upp og gekk fyrir forseta Hæstaréttar, sem afhenti henni kjörbréfiö meö árnaöaróskum. Svalahuröin var siöan opnuö og Vigdis gekk fram á svalir þinghússins meö kjörbréfiö i hendinni. Mikill manngrúi haföi nú safnast saman á Austurvelli og fagnaöi forsetanum nýja innilega er hann birtist á svölum þinghúss- ins. Vigdis minntist fósturjarö- arinnar og hrópaö var ferfalt húrra, svo undir tók i miöbæn- um og lúörasveit lék. Aö þvi búnu sneri Vigdis aftur inn i sal- inn og þótti mörgum stans henn- ar stuttur á svölunum. //Frelsi krefst aga" 1 ræöu sinni, sem hún flutti þessu næst, var henni tiörætt um Islenska tungu og menningu, listir og frelsi. Um frelsiö fórust henni m.a. svo orö: „En allt frelsi, jafnt frelsi þjóöa sem einstaklinga krefst aga. Agi hvers einstaklings, i hugsun og hátterni, getur aldrei leitt til annars en farsældar aflr- ar þjóöarinnar. Viö megum aldrei ganga svo lengi á sjóöi, hvorki andlega né veraldlega, aö ekkert sé lengur eftir aö gefa. Viö höfum þegiö góöar gjafir, frá fyrri kynslóöum og öörum þjóöum. Mesta gæfa okkar væri aö gefa ekki minna”. Og Vigdis sagöi ennfremur: „En hvaö höfum viö aö segja okkur sjálfum um mannlega veikleika okkar, sem viö neitum af nokkru stolti aö bera á torg? Viö lifum á erfiöum timum, vist er þaö, og veröum aö gera okkur ljósa þá ábyrgö, sem viö hljót- um aö axla i samtiöinni til aö búa I haginn fyrir framtiöina. Niöjar okkar, sem nú lifum manndómsár okkar, eiga tilkall til aö viö séum þeim til fyrir- myndar, án þess aö viö heftum þá I okkar viöjar”. 1 niöurlagi ræöu sinnar fór hún fögrum oröum um fyrir- rennara sina i starfi og minntist aö siöustu Jóns Sigurössonar, sem „fyrstur naut þess heiöurs aö vera nefndur forseti af þjóö sinni”. „Lif hans og starf”, sagöi Vigdis, „fyrir land og þjóö veröa okkur alla daga hugstæö fyrir þann skerf sem hann lagöi til sjálfstæöis okkar og frelsis. Þó er ennþá betra til þess aö vita, aö Jón Sigurösson var góöur Islendingur af þvi aö hann var mikill maöur. Grafskrift hans vildi ég, aö allir Islending- ar geröu aö einkunnaroröum sinum, hvar sem þeir eru stadd- ir: aö vera ávallt sómi íslands, sverö þess og skjöldur”. Tók ein undir þjóðsönginn Dómkórinn söng þjóösönginn aö lokinni ræöu forsetans og vakti athygli aö Vigdis Finn- bogadóttir ein tók undir þjóö- sönginn og mátti sjá blika tár á brá hennar. Björn Sveinbjörnsson forseti Hæstaréttar og Vigdis Finn- bogadóttir forseti tslands, gengu saman úr salnum er siö- asti tónn þjóösöngsins var horf- inn. Vigdis tók sér stööu á neöri palli I kringlu Alþingishússins og árnuöu gestir henni þar heilla hver af öörum, þ.á.m. keppinautar hennar i forseta- kosningunum, Guölaugur Þor- valdsson og Albert Guömunds- son. Kampavin var boriö fram og skálaö fyrir nýkjörnum for- seta. Skömmu siöar, eöa laust eftir klukkan sautján, yfirgaf forset- inn Alþingishúsiö og enn fagnaöi mannfjöldi fyrir utan húsiö, sem þó var farinn aö grisjast nokkuö. Fyrsta embættisverkið Fyrsta embættisverk Vigdis- ar veröur framkvæmt á morgun vestur á Hrafnseyri viö Arnar- fjörö. Þar veröur safn Jóns Sig- urðssonar opnaö og vigö kapella. Vigdis mun þar flytja minni Jóns Sigurðssonar. —Gsal \\ 1 l J I'JI 1 íf IfÍ M 1 1 i|J !|L Gestir viöembættistökuna i Alþingishúsinu sátu og stóöu I hálfhring I aöalsainum og var Vigdis I hringnum miðjum. Dómkirkjan var fullsetin viö upphaf embættistökunnar I gær, þar sem hr. Sigurbjörn Einarsson stjórnaöi guösþjónustu. Margt presta var I kirkjunni auk annarra boösgesta. m jfíSr * lir * i i Guölaugur Þorvaldsson rikissáttasemjari og höfuökeppinautur Vigdisar i forsetakosningunum óskar henni hér til hamingju meö kjöriö. Mikill mannfjöldi var saman kominn á Austurvelli er Vigdis var sett í embætti forseta tslands i gær. Gott veöur var en nokkur væta og margar regnhlifar á lofti. Texti: Gunnar Salvarsson Myndir: Þórir Guömundsson Forseti Islands, Vigdis Finnbogadóttir, gengur frá kirkju ásamt Gunnari Thoroddsen forsætisráöherra Birni Sveinbjörnssyni forseta Hæstaréttar og fleirum. Kristján Eldjárn hefur látiö af störfum eftir tólf ár á forsetastóli. Mannfjöldinn hyllti hann og frú Halldóru aö lokinni emha>«tic»Ki/.. Vigdisar og hann tók eftirminniiega undir. I

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.