Vísir - 11.09.1980, Blaðsíða 8
8
VÍSIR
Fimmtudagur XI. september 1980
Utgefandi: Reykjaprent h.f.
Framkvæmdastjóri: Oavfó Guömundsson.
Ritstjórar ólafur Ragnarsson og Ellert B. Schram.
Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson. Elías Snæland Jónsson. Fréttastjóri er-
lendra frétta: Guðmundur G. Pétursson. Blaðamenn: Axel Ammendrup, Arni Sig-
fússon, Ásta Björnsdóttir, Fríða Astvaldsdóttir, lllugi Jökulsson, Kristin Þor-
steinsdóttir, öskar Magnússon, Páll Magnússon, Sveinn Guðjónsson og Sæmundur
Guðvinsson. Blaöamaöur á Akureyri: Gisli Sigurgeirsson. iþróttir: Gylfi
Kristjánsson, Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Bragi Guðmundsson, Gunnar V.
Andrésson, Einar Pétursson.
Útlit og hönnun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson, Magnús Olafsson
Auglýsingastjóri: Páll Stefánsson. on'
Dreifingarstjóri: Siguröur R. Pétursson.
Ritstjórn: Siðumúla 14 slmi 8661X 7 linur. Auglýsingar og skrifstofur: Siðumúla 8
simar 86611 og 822Ó0. Afgreiösla: Stakkholti 2-4 simi 86611.
Askriftargjald er kr.SSOO á mánuöi innanlands og verö i Iausasölu300 krónur ein-
takiö. Visirer prentaður i Blaöaprenti h.f. Síöumúla 14.
MIGLYSMGABRELLUR OLAFS
AlmannatengslasérfræOingur Alþýðubandalagsins, Ólafur Ragnar Grimsson hefur
reglulega staðið fyrir uppákomum meö stóryrðum, en þessar „bombur” hans hafa yfir-
leitt reynst vera reykbombur sem þ'íið veröur úr eftir að þær springa.
Það er íhugunarefni hve lítið
hefur orðið úr þeim „sprengj-
um", sem Ölafur Ragnar Gríms-
son formaður þingf lokks Alþýðu-
bandalagsins, hefur varpað inn í
íslenskt þjóðlíf undanfarin miss-
eri. Hann hef ur hvað eftir annað
rokið upp með stóryrðum og
bægslagangi og þjóðin hefur
haldið að allt væri af göflunum
að ganga. En svo líður þetta frá
og mönnum fer að verða rórra,
en þá gerir hann nýtt áhlaup með
nýtt stórmál.
Það gekk ekki svo lítið á í sam-
bandi við Jan Mayen-samning-
ana við Norðmenn í sumar. Svo
stóryrtur var ölafur að menn
áttu allt eins von á að Alþýðu-
bandalagið gengi úr ríkisstjórn-
inni. En til þess kom þó ekki.
Ráðherrastólarnir mjúku komu í
veg fyrir það, nema þá að Ólaf ur
hafi ekki meint neitt af því sem
hann var að segja, heldur hafi
þetta einungis verið ein þeirra
auglýsingaherferða, sem hann
hefur staðið fyrir varðandi sjálf-
an sig.
Þegar frá líður og þjóðin er
farin að hugsa um eitthvað annað
ryðst þessi sérfræðingur Alþýðu-
bandalagsins i almannatengslum
fram í fjölmiðlunum með nýtt
stórmál. Að þessu sinni er það
raunar sígilt umræðuefni Al-
þýðubandalagsins þegar það er í
ríkisstjórn: grunurinn um að
kjarnorkuvopn séu geymd á
Keflavíkurflugvelli. Það verður
að halda herstöðvaandstæðing-
um vakandi, láta þá ekki halda
að forystumenn bandalagsins
séu með hernum, þótt þeir eigi
sæti í ríkisstjórn, sem styður að-
ild íslands að Atlantshafsbanda-
laginu og veru varnarliðsins hér.
En jafnvel þótt fréttastofa út-
varpsins spilaði af fullum krafti
undir kjarnorkusönginn hjá Ólafi
Ragnari Grímssyni þá hljóðnaði
hann smátt og smátt eftir þvi
sem meira af upplýsingum barst
í málinu.
Þeir, sem hafa fylgst með
þessum reglulegu uppákomum
aðalauglýsingamanns Alþýðu-
bandalagsins og reykbombum
hans, voru farnir að undrast það
nú á dögunum, hve hann hafði
haft hægt um sig upp á síðkastið,
ekki síst þar sem eitt aðaláhuga-
mál hans, samdráttur Flugleiða,
hefur verið í kastljósi fréttanna.
En viti menn, á þriðjudaginn
vaknar kappinn eldhress eftir tíu
tíma samráðsfund með liði sínu í
Alþýðubandalaginu daginn áður.
Og ekki eru frekar en fyrri dag-
inn spöruð stóru orðin.
Gerð skýrslu endurskoðenda
Flugleiða fyrir samgönguráðu-
neytið varðandi fjárhagsstöðu
fyrirtækisins segir hann ómerki-
lega auglýsingabrellu, sem
byggð sé á fölskum forsendum.
Um það leyti sem síðdegisblöðin
koma á göturnar með þessum og
öðrum yfirlýsingum er svo flutt
viðtal við lærisvein hans, Baldur
Öskarsson, svonefndan eftirlits-
mann Flugleiða, samhljóða yfir-
lýsingum Ólafs.
Það er eflaust rétt hjá blaða-
fulltrúa Flugleiða, að þarna sé
um pólitískar ofsóknir gegn
fyrirtækinu að ræða, en yfirlýs-
ingagleði Ólafs Ragnars Grims-
sonar og auglýsingamennska
hans á sjálfum sér vega senni-
lega jafnþungt eða þyngra í
þessu tilviki eins og öðrum. Hon-
um ferst að tala um auglýsinga-
brellur, eða hitt þó heldur!
/fyA' £
Pi
VID SKULUM
BEYGJfl
„DrepiJ hann — drepiö
hann!”, hrópaði trylltur múgur-
inn. Maöur var leiddur í salinn
af hettuklæddum böölum. Hann
streittist á móti en viö ofurefli
var aö etjaa. Manninum var
komiö fyrir uppi á tunnu og
snöru brugöiö um háls honum.
Hann baöst vægöar, múgurinn
fagnaöi — tunnunni var sparkaö
undan grátandi manninum, sem
spriklaöi smá stund en lognaöist
siöan út af. Hann var borinn út i
kistu — aftökunni var fullnægt.
Maöurinn haföi veriö lfflátinn
BUSfl”
öörum til viövörunar!
Hvaöan berast slikar lýsing-
ar? Frá íran? Frá fundi Ku
Klux Klan i Bandarikjunum?
Frá miöalda rannsóknarrétti?
Nei, frá Menntaskólanum viö
Hamrahliö anno 1980. Þaö fóru
nefnilega fram jamberingar i
gær, þaö er: busar voru teknir
inn i samfélag eldri nemend-
anna. Busarnir eru niöurlægöir
á hrikalegasta hratt, þeir eru
stimplaöir i andlitin, gerö hróp
aö þeim, gamalli súrmjólk hent
i þá — og þaö versta af öllu, þeir
Jamberlngar
í Mennta-
sKðlanum vlð
Hamrahlíð
í gær
veröa aö beygja sig I duftiö fyrir
böölunum (elstu nemendunum,
sem skemmta sér konunglega).
Þaö skal reyndar tekiö fram,
aö allar likur benda til þess, aö
aftakan hafi veriö sett á svið og
aö likiö sé nú um þaö bil aö rétta
úr kútnum eftir bálfjörugt busa-
ball i gærkvöldi. —ATA