Vísir - 11.09.1980, Blaðsíða 13
um.
Fimmtudagur IX. september 1980
12
vtsm
Fimmtudagur
11. september 1980
L
Ibntæknistofnun tslands gegnir
fjölþættu hlutverki I þágu islensks
iönabar. Henni er ætlab ab
stubia ab hagkvæmri nýtingu fs-
lenskra aublinda til ibnabar og
vinna ab tækniþróun og aukinni
framleibni meb þvl ab veita ibn-
abinum sem heild, einstökum
greinum hans og ibnfyrirtækjum
sérhæfba þjónustu á svibi tækni
og stjórnunarmála. Ibntækni-
stofnun varb til meb sameiningu
Ibnþróunarstofnunar tslands og
Rannsóknastofnunar ibnabarins
fyrir tveimur árum og starfar
undir stjórn ibnabarrábuneytis-
ins. Stofnunin annast samskipti
vib hlibstæbar erlendar stofnanir
og hefur meira eba minna form-
legt samstarf vib marga abila
innanlands og utan. Mebal þeirra
eru rannsóknaráb rfkisins,
Sjtjórnunarfélag tslands, Bygg-
ingaþjónustan, Norræna stöbl-
unarrábib, Alþjóbastöblunarsam-
bandib og Evrópusamtök fram-
leibnistofnana.
Starfslib Ibntæknistofnunar
telur rúmlega fjörutfu manns, en
i starfs- og fjárhagsáætlun stofn-
unarinnar fyrir næsta ár er lagt
til, ab starfsfólki verbi fjölgab I
tæplega sextiu manns. Gerb hefur'
verib tillaga um, ab á fjárlögum
næsta árs verbi veitt til stofn-
unarinnar tæpum 750 milljónum
króna. Aætlab er ab gjöld verbi
rúmur milljarbur, en tekjur tæp-
lega 300 milljónir. i ár var veitt
426 milljónum á fjárlögum til
starfsemi stofnunarinnar, gjöld
eru áætlub tæplega 470 milljónir
og tekjur tæpar 44 milljónir.
Verkefnaskipting
milli deilda
Verkefni Iðntæknistofnunar
flokkast I fimm deildir, það er
Fræðslu- og upplýsingadeild,
Þróunardeild, Tæknideild,
Trefjadeild og Staðladeild. Visis-
menn brugðu sér nýlega I heim-
sóknir á allar deildir með það
fyrir augum að gefa i máli og
myndum örlitla hugmynd um hin
margvislegu viðfangsefni þess-
arar stofnunar. Frásögnin verður
i tveimur hlutum, og birtist annar
hlutinn fljótlega. 1 upphafi heim-
sóknarinnar hittum viö að máli
Svein Björnsson, forstjóra, og gaf
hann okkur stutt yfirlit yfir verk-
efnaskiptingu milli deildanna.
Fræöslu- og upplýsingadeild
er ætlað að gegna i senn forystu-
og þjónustuhlutverki varöandi
fræðslu og starfsþjáifun á vegum
stofnunarinnar allrar.
Meginmarkmiö Þróunar-
deildar er aö vinna að aukinni
nýsköpun i starfandi iðnaði og aö
nýiönaöarathugunum. Þá er
stefnt aö þvi, að hún veiti I
auknum mæli þjónustu við kera-
mikiðnað, trefjaplastiönað og
steinefnaiönað, sem fælist meðal
annars I gæðaeftirliti.
Tæknideild gegnir heföbund-
inni þjónustu á sviöum efnagrein-
inga, mengunarrannsókna og
málmtækni. Ætlunin er, aö hún
láti einnig vél-, efna- og fjölliða-
tækni til sin taka I vaxandi mæli.
Trefjadeild starfar fyrst og
fremst i þágu prjóna- og sauma-
stofa i ört vaxandi ullariðnaöi
viðs vegar um land. Verkefni
hennar eru einkum fólgin i starfs-
þjálfun og ráðgjöf á sviði fram-
leiðslutækni og hönnunar.
Staðladeild sér um samningu
og útgáfu allra nýrra íslenskra
staðla og endurskoðun eldri
staðla. Einnig útvegar hún inn-
lendum aöilum þá staöla, sem
ekki eru til i Islénskri útgáfu.
Byggingaframkvæmdir
fyrirhugaðar
að Keldnaholti
Iöntæknistofnun er til húsa á
þrem stööum, og I Skipholtinu eru
bækistöövar aðalskrifstofu,
Fræöslu- og upplýsingadeildar og
Staðladeildar. Jón Bjarklind,
skrifstofustjori, sem við hittum
fyrir á aðalskrifstofunni, sagöi
okkur, að margvislegt óhagræði
hlytist af þvi, hve starfsemin væri
dreifð. ,,Ráöagerðir eru uppi um
að byggja yfir stofnunina alla aö
Keldnaholti, þar sem Tæknideild
er nú til húsa” sagði Jón. „Hluti
af tekjum Happdrættis Háskólans
A Tæknideild Ibntæknistofnunar er veitt hefbbundin þjónusta á svibum efnagreininga og mengunar-
rannsókna. Helgi F. Magnusson, efnaverkfræbingur, er hér abstörfum á rannsóknastofnunni.
samræmir störf þeirra, sem að
sams konar verkefnum vinna”
sagði Snorri Pétursson, fram-
kvæmdastjóri deildarinnar.
„Einnig safnar hún fyrirmyndum
erlendis frá um námskeiðahald
og veitir aðstoð við að útvega
kennslugögn á ýmsum sviðum”.
Sigurður Guðmundsson,
viðskiptafræðingur, er forstöðu-
maður námskeiðahalds, en hann
gengdi áður sams konar starfi hjá
stofnun i Danmörku. Fræðslu- og
upplýsingadeild hefur aðeins
verið starfrækt síðan I fyrra og er
deildin enn I mótun. Starf
Sigurðar hefur þvi að verulegu
íeyti veriö fólgið i skipulagningu
og undirbúningi undir væntanlegt
námskeiöahald.
Sigurður á sæti I Eftirmennt-
unarnefnd iðnaðarráðuneytisins,
sem skipuð var til að gera tillögur
um eftirmenntun, námskeiöahald
og starfsþjálfun I iönaöi með tilliti
til stefnumörkunar Iöntækni-
stofnunar á sviöi fræðslumála.
Nefndin hefur gert tillögur um
forgangsnámskeið á sviöum
byggingariðnaðar, málmiðnaðar
og verksmiðjuiönaðar og kynnt
hugmyndir að mörgum fleiri.
„Talsverður kostnaður mun
hljótast af vinnu tengdri nám-
skeiöahaldinu, en okkur i nefnd-
inni finnst minni ástæöa til að
horfa I þann kostnað en til að
skoða hið augljósa samhengi,
sem er milli bættrar verk-
kunnáttu og aukinnar framleiöni
atvinnuveganna” sagði Siguröur.
„Þess er einnig að gæta, að stór
hluti þessarar vinnu mun koma til
góða I öllum þeim framhalds-
skólum, sem fást við verklega
frummenntun”.
Svala Kristjánsdóttir, rannsóknamabur, efnagreinir fitusýni. Mest
hefur verib hingab til um greiningar fyrir rikisstofnanir og sveitar-
félög, en nú er efnagreiningarþjónusta vibibnfyrirtæki mjög ab færast I
aukana. öbrum, sem eftir leita, er veitt þjónusta ef timi og abstæbur
leyfa.
rennur til væntanlegra byggingar
framkvæmda, og þegar hefur
eitthvað safnast i sjóð, en tals-
verð bið veröur enn á að fram-
kvæmdir hefjist, ef aö likum
lætur”.
Fræðslu- og upplýsingadeild er
aö hluta þjónustudeild fyrir aörar
deildir stofnunarinnar, til dæmis
meö öflun og miðlun upplýsinga
til starfsmanna, útgáfustarfsemi
fyrir allar deildir og faglega
aðstoð við gerö kennsluefnis og
námskeiðahald. Jafnframt hefur
deildin nána samvinnu viö ein-
stök fyrirtæki, samtök i iðnaði,
ráöuneyti og stofnanir, sem
starfa I þágu iðnaðar.” Deildin
safnar upplýsingum um mennt-
unarþarfir I einstökum starfs-
greinum, leggur á ráðin um að
hvaða verkefnum skuli unnið og
er
ab
Þessi vél
notub til
rannsaka
efnasam-
setningu stáls.
Þróunarátak
í fataiðnaði
Þegar er hafiö samstarf við
Félag Islenskra iðnrekenda um
sérstakt iðnþróunarátak i fata-
iðnaöi. Fræöslu- og upplýsinga-
deildin tók að sér að sjá um nám-
skeið fyrir framkvæmdastjóra og
verkstjóra i fataiðnaðarfyrir-
tækjum. Einnig annast hún að
hluta þjálfun starfsfólks I fram-
leiðslu, en erlendir ráðgjafar
koma þar einnig viösögu. Þá hafa
Texti: Anna Heiður Oddsdðttir
Myndir: Bragi Guðmundsson
„oteljandi
verkefni
bíða úrlausn-
ar en starfs-
aðstððu og
fjármagn
skortir”
- segir Fríörik Daníelsson, framkvæmdastjóri
Tæknideildar stofnunarinnar
veriö haldin á vegum deild-
arinnar almenn verkstjórnar-
námskeiö, námskeið I fram-
leiðslustýringu i tréiðnaði og
námskeið i viðgerð á
einangrunargleri, sem haldiö var
i samvinnu við Rannsóknastofnun
byggingariðnaðarins.
Nú I sumar voru sendir tveir
iðnskólakennarar til iðntækni-
stofnunar i Noregi til að kynna
sér starfsaðferðir og nýjustu tæki
við fagkennslufullorðinna. Ætlast
er til, að þessir kennarar muni
siðan geta starfað fyrir Iðntækni-
stofnun sem sérfræðingar i
uppbyggingu kennslu og gerð
námsgagna, og leiðbeint kennur-
um og starfsþjálfurum um
kennslufræöileg atriöi.
Aukin tækniþjónusta
við sælgætisiðnaðinn
Nokkrir ráðgjafar starfa á veg-
um Fræðslu- og upplýsinga-
deildar, og fást þeir helst við að
aðstoöa iðnfyrirtæki við val á
vélum og skipulagningu fram-
leiðslu og veita fyrirtækjum eöa
'einstaklingum ýmiss konar
upplýsingar, til dæmis um er-
lenda framleiöendur véla og hrá-
efnis og ástand markaða. Ráð-
gjafarnir hafa undanfarið unnið
aö þróunarverkefni I málmiönaöi
I samvinnu við Samband málm-
og skipasmiöja, og hafinn er
undirbúningur að aukinni þjón-
ustu við sælgætisframleiðendur. I
bigerð er að þjálfa ráðgjafa i
notkun talva, og veröur litil tölva
keypt I þvi skyni, sem einnig yrði
notuð viö ýmis verkefni stofn-
unarinnar.
Ráðgert er að ráðast á
næstunni i samningu og útgáfu
handbóka fyrir starfsfólk i iðnaði,
einkum stjórnendur og þá, sem
hyggja á atvinnurekstur. Nýlega
var hafin útgáfa fræöslurits fyrir
starfsmenn I málmiðnaði,
„Málmsíðu”. Vonir standa til, aö
seinna verði unnt að ráöast i út-
gáfu sams konar rits fyrir aðrar
iðngreinar og verður þá fyrst
hugað aö tréiönaði. Gefið er út
fréttabréf um starfsemi Iðn-
tæknistofnunar og málefni, sem
varða íslenskan iðnað. Þá er gefið
út timaritið Iönaðarmál, auk fjöl-
margra skýrslna um margvisleg
málefni.
Auður Sigurðardóttir, bóka-
safnsfræðingur, er forstöðu-
maður tæknibókasafns deildar-
innar, og Auður Gunnarsdóttir
hefur umsjón með kvikmynda-
safni. Þær nöfnurnar fræddu
okkur dálitið um starfsemina á
meðan við stöldruðum við i
safninu.
Bókasafniö er útlánasafn fyrir
almenning, en aðallega mun það
vera notað af starfandi og verö-
andi tæknifræðingum og verk-
fræöingum. Auöur sagðist vilja
benda á, að i safninu væri margt
bóka og timarita um viöskipta-
fræði og hagfræði, sem ekki væru
notuð sem skyldi. Rúmlega 8000
bækur eru alls i safninu, og þang-
aö eru keypt liðlega 130 innlend og
erlend timarit. Hægt er að fá ljós-
rit af efni send út á land. Kvik-
myndasafnið á tæpar 200 kvik-
myndir i fórum sinum, sem
sýndar eru á námskeiöum stofn-
unarinnar og lánaöar út, aðallega
til iðnskóla og fjölbrautaskóla.
Byggingaraðilar stundum
neyddir til að beita úrelt-
um aðferðum
Staðladeild hefur umsjón með
samningu og útgáfu allra nýrra
Islenskra staðla, endurskoðun
eldri staðla og þýðingu og aðhæf-
ingu erlendra staöla. Ennfremur
er hún áskrifandi að helstu
erlendum stöðlum, og getur þvi
útvegaö innlendum aöilum þá
staöla, sem ekki eru til i islenskri
útgáfu. Landsbyggöarbúar geta
fengið send ljósrit af stöðlum.
Töluverður hluti starfsins er
unninn með aðkeyptri aðstoð sér-
fræðinga utan stofnunarinnar.
Vegna nýju byggingarreglu-
gerðarinnar er nú taliö brýnast að
sémja þá staðla, sem tengdir eru
reglugerðarkvæðum og ekki hafa
enn veriö gefnir út. Auk þess eru
margir útkomnir staölar orðnir
úreltir vegna ýmiss konar tækni--
breytinga. Er þörf á að endur-
skoða þá sem fyrst, þvl aö
byggingarreglugeröin krefst
notkunar margra þeirra, og getur
þannig neytt byggingaraðila til að
fara eftir úreltum aðferöum.
Tæknideild er til húsa að
Keldnaholti, en undir hana heyra
allnokkur verksvið. Hún er fjöl-
mennasta deild stofnunarinnar,
og starfa þar um tuttugu manns.
Friðrik Danielsson, efnaverk-
fræöingur, er framkvæmdastjóri
Tæknideildar. Hann sagði okkur
þaö helst I fréttum, að þar væri nú
i vinnslu frumáætlun um hugsan-
lega stofnun og starfrækslu verk-
smiðju til stálbræðslu. Einnig er
verið að gera athugun á, hvort
forsendur séu fyrir magnesium-
framleiöslu hér á landi.
„Meðal fyrstu frumáætlana,
Gluggað í verkefni löntæknístofnunar íslands:
Aubur Siguröardóttir, forstöbumaöur Tæknibókasafns Fræöslu- og upp lýsingadeildar Iöntæknistofnunar
safnsins. Þetta er útlánasafn fyrir almenning, og hægt er ab fó Hósrit af efni send út á land.
er þarna ab libsinna viöskiptavini
sem við höfum gert, er áætlun,
sem fylgdi i kjölfar athugunar á
vegum Iðntæknistofnunar og
iðnaðarráðuneytis á möguleikum
til að koma á fót og reka stein
ullarverksmiðju hérlendis” sagði
Friðrik. „Athugunin byggöist á
staðsetningu verksmiöju innan
Reykjavikursvæðisins, og var
miöuðvið kringumstæður á miðju
siðasta ári”.
Nýstárlegar aðferðir til
steinullarframleiðslu
Athugunin bendir, að sögn
Friðriks, til þess, að efnahags-
legar forsendur fyrir tilkomu
verksmiöju, sem gæti framleitt
15000 tonn af steinull á ári, séu
tryggar, vegna mikillar eftir-
spurpar eftir steinull I Vestur-Ev-
rópu og hins háa verölags á ein-
angrunarefnum á tslandi. Aætlað
er, að fyrsta framleiösluáriö yrði
unnt að selja 14400 tonn af stein-
ull. Taliö er, aö framkvæmanlegt
yröi að reka verksmiöjuna meö
meira en 10% afkastavöxtum af
fjárfestingu. Hagkvæmni verk-
smiðjunnar yröi, að sögn
Friöriks, viðkvæmust fyrir
flutnings- og raforkukostnaði.
Miðað við þær steinullarverk-
smiðjur, sem nú eru i gangi
erlendis, yröu margar nýjungar i
islensku verksmiðjunni. Sem hrá-
efni til steinullarframleiðslunnar
yrði notaður sandur, eins og hnn
kemur fyrir i náttúrunni, en
venjan er að nota malaö berg.
Verksmiöjan yrði ekki útbúin
venjulegum bræösluofnum, sem
nota koks sem eldsneyti, heldur
yrðu notaðir rafbræðsluofnar.
Meö þvl yrði hægt að notast víð
sand, og einnig yrði dregið úr
mengunarhættu. Hönnuö hefur
verið ný framleiösluaöferö til að
unnt væri að framleiöa léttari og
rykminni steinull en nú tiðkast.
Glerkúlur og nálar, sem skildar
myndu veröa úr steinullinni, yröu
endurbræddar. Loks yrði stefnt
að þvi aö nota hita frá hitaveitu-
vatni til aö þurrka hráefnið.
„Þegar þing kemur saman i
haust, verður væntanlega tekin
ákvörðun um, hvort byggð skuli
steinullarverksmiðja, og þá
hvar” sagði Friörik.
Ætlunin er, að efld veröi þjón-
usta Tæknideildar viö málningar-
og plastiðnað, svo og við tféiðnað.
Ráðinn hefur verið tækni-
fræöingur i Fræðslu- og
upplýsingadeild, sem mun starfa
aö tækniaðstoö og rekstrarráð-
gjöf við tréiðnaö á þessu ári, og
Þarna er Valborg Jónsdóttir ab efnagreina vikur og ösku úr Heklu, til
ab unnt sé ab ákvarba r'■*--------’■
leggja grundvöll að starfsemi
stofnunarinnar á þvi sviði.
Þessum starfsþætti er ætlaö rúm
innan Tæknideildar i framtíðinni.
Nýlega hratt iönaðarráðuneytið
af staö markaösátaki fyrir hús-
gagnaiönaö, og hafa Félag
islenskra iðnrekenda, Landssam-
band iðnaöarmanna, Útflutnings-
miöstöð iðnaöarins og Iðntækni-
stofnun samvinnu um fram-
kvæmd þess. Felst átakið i þvi, aö
haldin eru margs konar námskeið
fyrir húsgagnaframleiöendur og
starfsfólki húsgagnaframleiðslu-
fyrirtækja boöiö upp á starfs-
þjálfun. Markmiöið er að auka
samkeppnishæfni Islenskra fram-
leiðenda á innlendum markaði og
stefna á útflutning. Þróað verður
afkastahvetjandi launakerfi fyrir
húsgagnaiönaöinn. Um tuttugu
fyrirtæki taka þátt I þessu verk-
efni.
Blómapottar úr mó
A Tæknideild eru hafnar i sam
Undanfarib hafa verib uppi rába-
gerbir um framleibslu blóma- og
trjápotta úr mó á vegum þroska-
heftra. Nú eru hafnar tilraunir
meb slika framleibslu ab Keldna-
holti. Þessi trjápottur er búinn til
úr mó, sem hrærbur er út I vatni
og siban látinn harbna aftur.
ráði við Þróunardeild tiiraunir
tengdar ráðagerðum um fram-
leiðslu blómapotta úr islenskum
mó á vegum þroskaheftra. Þar
eru geröar tilraunir og athuganir
tengdar efnaiðnaði, matvæla-
iönaði og öðrum skyldum ferlis-
iðnaði, og ráðgjöf er veitt þeim,
sem starfa viö slfkan iönaö.
Þarna fer einnig fram efna-
greining. Mest hefur verið um
greiningar fyrir rikisstofnanir og
sveitarfélög, en nú er efna-
greiningarþjónusta við iðnfyrir-
tæki mjög að færast i aukana.
öðrum, sem eftir leita, er veitt
þjónusta ef timi og aöstæöur
leyfa.
Fengist er viö mengunarrann-
sóknir, og hafa helstu verkefnin
til þessa verið tengd loftmeng-
unarrannsóknum við Alveriö i
Straumsvik og Málmblendiverk-
smiöjuna á Grundartanga.
Aukin þjónusta viö
verkstæði og smiðjur
Eftirlit með málmsuðu fer
fram með röntgentækjum á
vegum deildarinnar, og er það
vaxandi þáttur I starfseminni.
Stærstu verkefnin hafa veriö
unnin við inntaksmannvirki viö
Hrauneyjarfossvirkjun, en auk
þess hefur mikið verið unnið fyrir
hitaveitur um allt land. Haldin
eru suðunámskeið fyrir starfs-
menn málmiðnaðarfyrirtækja, og
eru þar kenndar málmsuöu-
aöferöir af ýmsu tagi. Stefnt er aö
þvi, að á næstunni verði aukin
þjónusta Tæknideildar viö verk-
stæði og smiöjur, svo sem skipa-
smiöjur, að þvl er varöar lausn
vélaverkfræöilegra vandamála
og leiðbeiningar um framleiöslu-
aðferöir.
„Verkefni Tæknideildar, og
Iðntæknistofnunar yfirleitt, eru
óþrjótandi” sagði Friðrik
Danielsson, þegar við höfðum
lokiö hringferð um Tæknideild.
„Fjöldi verkefna er þegar I gangi,
en viö eigum I pokahorninu ótelj-
andi hugmyndir að verkefnum,
sem enn á eftir að hrinda i fram-
kvæmd. Því miöur skortir mikið
á, aö viö höfum nógu góöa starfs-
aðstööu og nægt fjármagn til aö
ráöast af krafti I þau verkefni,
sem biða úrlausnar. Vonandi
stendur það þó til bóta, þvi að nú
er á döfinni aö byggja húsnæði
fyrir Inðtæknistofnun alla aö
Keldnaholti og auk þess viröist
mér sem farið sé að örla á
auknum skilningi á nauðsyn þess
að efla iðngreinar I landinu”.