Vísir - 11.09.1980, Síða 24
vtsm
Fimmtudagur 11. september 1980
síminnerðóóll
Loki segir
„Annar fór I stjórnina. en
hinn sagði af sér,” segir i frétt
i Þjóðviljanum um „fyrri
eftirlitsmenn með rekstri
Flugieiða”. Nú bíöa menn
bara eftir þvi að Baldur
Óskarsson fylgi i spor forvera
sins og taki við stjórnartaum-
unum f fyrirtækinu!
Veörið hér og har
Klukkan 6 i morgun:
Akureyri alskýjað 7, Bergen
léttskýjað 8, Helsinki létt-
skýjaö 13, Kaupmannahöfn
léttskýjaö 12, Osló alskýjað 7,
Reykjavik skýjað 5, Stokk-
hólmur skýjað 13, Þórshöfn
alskýjað 7.
í gær klukkan 18.
Aþena heiðskirt 23, Bergcn
skýjað 16, Chicago heiðskirt
22, Feneyjar hálfskýjað 19,
Frankfurt rigning 16, Nuuk
léttskýjað 8, London skýjað
17, Luxemburg rigning 13,
Las Palmas alskýjað 24,
Maliorka skýjað 22, New York
léttskýjað 27, Paris rigning
18, Róm léttskýjaö 22, Maiaga
léttskýjað 22, Vin skýjað 13.
Gef kost á mér
- segir Kjartan
Gunnarsson
,,Ég mun gefa kost á mér 1
embætti framkvæmdastjóra
Sjálfstæðisflokksins,” sagði
Kjartan Gunnarsson I samtali við
Vfsi i morgun. „Það er ljóst, að
það mun verða gerð tiiiaga um
mig á fundinum, en á þessari
stundu liggur ekki fyrir opinber-
iega að tillaga verði gerð um ein-
hvern annan.”
Kjartan var formaður Heim-
dallar fyrir nokkrum árum og var
þá kosinn I það embætti með
miklum meirihluta. Nú á hann
sæti i miðstjórn flokksins.
Aðspurður sagðist Kjartan
ekkert vilja segja um yfirlýsingu
Jóns Magnússonar formanns
SUS, iDagblaðinu i gær, þar sem
sá siðarnefndi mótmælir þeirri
fyrirætlan Geirs Hallgrimssonar
að ráða Kjartan, sem er lögfræð-
ingur að mennt, i áðurnefnt starf.
—KÞ.
„Ensin streita
er miiti okkar
Balflurs”
- segir Birgir
Guðjónsson
,,Þótt það sé mjög mikilvægt I
stöðunni að átta sig á þessari
skýrslu þá held ég að stefnumót-
un i viðræðunum við Luxem-
borgara standi ekki og falli með
álitsgerð okkar Baldurs, sem við
höfum ekki lokið við” sagöi Birgir
Guðjónsson deildarst jóri og
annar eftirlitsmanna með Flug-
leiðum I samtali við VIsi i morg-
un.
Birgir og hinn eftirlitsmaður-
inn, Baldur óskarsson, áttu i gær
fund með þeim Siguröi Helgasyni
forstjóra Flugleiða og Erni ó.
Johnson stjórnarformanni. Birgir
sagði að þeir hefðu spurt þar
ýmissa spurninga varðandi
skýrslu Flugleiða. 1 gær var einn-
ig haldinn stuttur fundur ráðherr-
anna Gunnars Thoroddsen, Stein-
grims Hermannssonar og Svav-
ars Gestssonar með þeim Flug-
leiðamönnum.
Visir spuröi Birgi Guöjónsson,
hvort þeir Baldur mundu leggja
fram sameiginlega álitsgerð um
fjárhagsstöðu Flugleiöa.
„Það er engin streita á milli
okkar Baldurs, þótt okkur greini
kannski á varðandi það, hvað
segja má við fjölmiðla,” svaraði
Birgir. Hann kvaðst ekki geta
sagt til um það nákvæmlega.hve-
nær þeir legðu fram álit sitt.
—SG
Veðurspá
Yfir suðaustur strönd Græn-
lands er 1000 mb lægð og önnur
um 1004 mb djúp á sunnan-
verðu Grænlandshafi, báðar
þokastsuðaustur. Hiti breytist
litiö.
Suðurland og Breiðafjörður:
Suðaustan gola, viða skýjað og
sumstaðar dálitlar skúrir.
Vestfirðir: Suðvestan og
vestan gola, sumstaðar skúrir
einkum sunnan til.
Strandir og Norðurland eystra
og vestra: Suðvestan gola, dá-
litlar skúrir.
Austurland að Glettingi og
Austfiröir: Hægviðri og skýj-
að.
Suðausturland: Hægviðri,
viðast léttskýjað vestan til, en
skýjað austan til.
Busavigsla eöa „jambering” var I Menntaskólanum viö Hamrahliö I gær. Busarnir áttu aö sýna bööl
unum (eldri nemendunum) tilhlýöilega viröingu meö þvi aö beygja sig I duftiö I orösins fyllstu merk-
ingu, alltaötiu sinnum. Fór sú athöfn fram I öskjuhliöinni, en þangaö voru busarnir teymdir af böölun-
um. Aöur höföu busarnir veriö niöurlægöir á flestan hátt, svo sem meö háösglósum, skyrslettum og
barsmiöum. Sjá nánar á blaösiöu átta.
-ATA/VIsismynd: KAE.
Milljónatjðn í eldsvoða á Arskðgsstrðnd
Jýfarlnn úl pegar
sprenglngin varö"
sagðl Þorsteinn Marlnósson. annar elgandl verkslæðlsins sem brann
„Ég var nýfarinn út af verkstæðinu, þegar
sprengingin varð, þannig að það má segja, að ég
hafi verið heppinn, ef hægt er að tala um heppni i
þessu sambandi”, sagði Þorsteinn Marinósson,
annar eigandi bifreiðaverkstæðisins við Hliðar-
land á Árskógsströnd i Eyjafirði, sem brann til
kaldra kola i gær.
„Ég var að logsjóða undir
bilnum rétt áður en eldurinn
kom upp og sennilega hefur
neisti komist i bensinleiðslu
með þeim afleiðingum, að log-
suðutækin sprungu. Við Hjalti
hlupum þarna strax að og
reyndum að beita slökkvitækj-
um, en eldurinn var strax það
magnaður, að við réðum ekkert
við þetta”, sagði Þorsteinn enn-
fremur.
Þorsteinn sagði, að hann og
Hjalti Sigfússon, sem rekur
bilasprautun i hinum enda húss-
ins, hefðu þá strax farið þangað
og náð út tveimur bilum, sem
þar voru inni, en auk þess hefði
þeim tekist að bjarga dýrum
stillingatækjum, sem þar voru.
Allt annað brann og eftir standa
nú aðeins brunnir veggirnir.
Þorsteinn sagði, að hér væri um
að ræða milljóna tjón, en auk
hússins og tækjanna hefðu þrir
bilar gjöreyðilagst i brunanum
og fjórir, sem stóðu fyrir utan
verkstæðið, skemmdust mikið.
Slökkviliðið frá Dalvik kom á
vettvang fljótlega eftir að eldur-
inn kom upp, en fékk ekki við
neitt ráðið, svo magnaður var
eldurinn strax i byrjun. (Sjá
mynd á forsiðu) — Sv.G.
Samgönguráðherra um umsókn Cargolux:
EKKI BORIST HINGAÐ
EFTIR RETTUM LEIÐUM
Gelum ekkl neltað cargolux um leyfi ef
sllðrnvðld I Luxemborg óska eftlr pvi
„Þessi umsókn Cargolux hefur ekki borist hingað eftir réttum leiðum, og
þvi er ekki hægt að taka afstöðu til hennar sem slikrar”, sagði Steingrimur
Hermannsson, samgönguráðherra, þegar blaðamaður Visis spurði hann i
morgun álits á umsókn Cargolux um að fá að hefja fragtflutninga milli
Luxemborgar og Bandarikjanna með viðkomu á íslandi.
„Samkvæmt loftferöasamningi
okkar viö Luxemborg og önnur
lönd eru reglurnar þær, að rikis-
stjórn viðkomandi lands þarf að
tilnefna það flugfélag, sem nota
má þann rétt sem Cargolux fer
nú fram á. Sú tilnefning kæmi svo
i gegnum utanrikisráðuneytið til
okkar I samgönguráðuneytinu.
Staðreyndin er sú, að ef stjórn-
völd I Luxemborg myndu tilnefna
Cargolux til þessara hluta, þá er
ekkert sem við gætum gert til að
koma i veg fyrir að félagið tæki
upp þetta flug. Loftferðasamn-
ingurinn gerir ráð fyrir fullri
heimild stjórnvalda til slíkra til-
nefninga og það yrði nánast
formsatriöi hjá okkur að afgreiða
máliö”, sagði Steingrimur.
Það kom einnig fram hjá
honum að enginn munur væri á
farþega- og vöruflutningum i
þessu tilliti. -P.M.