Vísir - 10.10.1980, Síða 1

Vísir - 10.10.1980, Síða 1
r™ FramsðkíiarimSnSTium "efnahágsliiálTn"" fí I .Jlorfum með hroiii i I lll öldunnar 1. des.”| ■ - segíp Tómas flpnason, viðskiptaráðherra ■ „Við framsóknarmenn horfum með hrolli til þeirrar verðbólguöldu, sem skellur yfir fyrsta desember, og getum illa hugsað okkur að hún verði látin ganga yfir án þess að reynt sé að sporna við. Það er ekkert launungarmál, að við erum margir hverjir orðnir órólegir vegna þessara mála’ ’. Þannig komst Tómas Arnason, viðskiptaráðherra, að orði þegar blaðamaður Visis spurðist fyrir um hversu langan frest hann teldi rikisstjórnina hafa, til þess að grípa til aðgerða i efnahagsmál- unum. Hann sagði að stjórn- inni hefði tekist vel til með ýmis- legt og nefndi þar sérstaklega rikisfjármálin, „enda býr hún varðandi þau að þeim fjárlögum, sem ég setti saman árin 1978 og 1979”. „Baráttan við verðbólguna hefur hins vegar ekki borið mik- inn árangur og er þaö fyrst og fremst vegna þess, að ekki hefur verið byrjað á þeirri niðurtaln- ingarleið sem Framsóknar- flokkurinn mótaöi. Það er ekki hægt að framkvæma niðurtaln- ingarleiðina án þess að takmark- anir verði einnig settar á verð- bætur á laun, og það er stefna okkar framsóknarmanna að það veröi gert. Okkar tillögur i þess- um efnum hafa ekki beðið neitt skipbrot, þær hafa einfaldlega ekki verið reyndar énnþá”, sagði Tómas Arnason. Unnið var aö undirbúningi þingsetningar f þinghúsinu viö Austurvöll i morgun. M.a. var Sigrún Einarsdóttir aö fægja forsetabjölluna f Sameinuöu þingi, þegar ljósmyndari Visis kom þangaö imorgun. Vfsismynd: GVA. Ekkert mark var teklð á talningu hreindýranna fyrlr austan: Fjðldi hreindýranna var ákveðinn í ráðuneytinu! „fcg sá ekki tiigang i þessu lengur, þegar þeir I ráöuneytinu vissu alltaf betur um fjöldann,” sagöi Agúst Guömundsson um ástæöur þess aö hann hætti aö gefa kost á sér viö talningu hreiridýra. Agúst Guðmundsson land- mælingamaður tók við talning- unni þegar nafni hans Böðvars- son hætti, en talningin var gerö að mestu meö myndatökum úr lofti. Þeir nafnar eru sammála um að ekki finnist öruggari aðferð við talningu dýranna, enda hafi enginn bent á aðra leið betri. Þeir telja að menntamálaráðu- neytiö, sem hefur yfirumsjón meö hreindýrastofninum, taki litið mark á talningunni, en meti þeim mun meira ágiskanir veiöimanna og annarra. sem hagsmuna eiga að gæta, og veiti skotleyfi i samræmi við það. Agúst Guömundsson sagöi m.a. frá að eitt sinn þegar hann var staddur á Egilsstaöaflug- velli, hafði lent þar i talningar- flugi, heyröi hann i útvarpi frá- sögn af veitingu skotleyfa, með mjög nákvæmri tölu, sem end- aði á sjö. Þá hlógu viöstaddir. Agúst Böðvarsson endaði starf sitt viö talningu meö bréfi til ráðuneytisins, þar sem segir m.a.: „Þar eð ákveðiö hafði verið, áð- ur en talning fór fram, að hrein- dýrin væru 5000 aö tölu, sé ég enga ástæðu fyrir þvi aö ég haldi áfram að telja dýrin, úr þvi að menn vita fyrirfram hve dýrin eru mörg.” Siðan segist hann hafa taliö dýrin i 9 ár sam- fleytt, ásamt Birni Pálssyni flugmanni og greinir siðan frá niöurstöðum talningarinnar öll árin og sýnir fram á að sam- svörun með fjölgun dýranna sé eölileg. Siöan segir i bréfinu: „Ég verð þvl aö benda á að þaö er furöulegt að viö skulum aldrei á 9 ára timabili hafa fyrirhitt hjarðir, sem gætu raskaö þessari samsvörun að verulegu leyti, ef þaö væri rétt að dýrin væru helmingi fleiri en talningin sýnir.” SV Lásinn, sem opna þurfti til afi koma vörunum út úr Frihöfninni. Visismynd GVA. ..Nvia" fpí- hafnarmálið: Enginn hefur viöurkennt pjófnað! „Þeir segjast hafa greitt fullt verð fyrir það sem þeir tóku, og i þessum yfirheyrslum hefur hvergi komiö fram að um þjófnað hafi veriö að ræða” upplýsti ólafur I. Hannesson, aöalfulltrúi lögreglustjóra.er Visir innti hann eftir þvi' hvort viðurkenningar i „þjófnaðarmálinu” svokallaða, skýri þá rýrnun sem átt hefur sér stað i Frihöfninni undanfarið. Eins og viöurkenningar liggja fyrir, virðist þvi vera um toll- lagabrot aö ræöa, en ekki þjófn- aðarmál. Þeim sem siðast var i gæslu vegna málsins hefur nú veriö sleppt úr haldi. Frásögn af heimsókn Visis- manna i Frihöfnina er i opnu Visis i dag. -AS. Hótel Borg veröur hráð- lega seid „Það er líklegt, að fyrir- tækið verði selt bráðlega", sagði Aron Guðbrandsson stjórnarformaður Hótel Borgar, en Vísir spurði hann hvort nú stæði til að selja Borgina. „Þessu hefur veriö hreyft á fundi i félaginu, sagði Aron enn fremur, en það hefur ekki verið samþykkt neitt umboö til min til aðselja fyrirtækið. Mér heyrist á öllum, að þetta verði samþykkt, og ákvöröun um söluna getur ver- ið tekin hvenær sem er”. Aðspurður um, hvers vegna fyrirtækið yrði selt, sagöi Aron, að á sinum tima heföu fjórir aöil- ar stofnað hlutafélag til kaupa og rekstrar á Hótel Borg. Tveir af þeim er að hlutafélaginu stóöu, væru nú látnir. „Við tveir sem eftir erum, erum orönir gamlir menn. Og þetta er lögmál lifsins, aö þeir yngri taki viö að hinum eldri”, sagöi Aron Guöbrandsson. Sjá nánar viðtal á morgun. -JSS

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.