Vísir - 10.10.1980, Blaðsíða 2

Vísir - 10.10.1980, Blaðsíða 2
2 Föstudagur 10. október 1980 Er veturinn kominn? IH Þorgrimur Þráinsson, nemi: Já, þa6 held ég. Kjartan ólafsson, atvinnulaus: Já, ég gæti trúað þvi. Grétar Þorsteinsson, sjómaftur: Nei, ég á nú ekki von á þvi, að hann sé kominn. Grétar Pálsson, nemi: Ja, i það minnsta i þann veginn að koma. Sigurveig Þórisdóttir, nemi: Já, ég held þaö. vtsm Jón Sigurðsson forstlöri Þjö ðhagsstof nu n ar tekur við nýju siarii iil 2]a ára: „Ég hygg gott til þessa nýja verkefnis og er viss um að sú reynsla sem ég hef fengið i starfi minu hér, kemur mér að gagni I hinu nýja starfi. Eins og oft vill verða þegar menn skipta um starf og starfssvið, blandast mér i brjósti eftirsjá og eftirvænting”, sagði Jón Sigurðsson forstjóri Þjóðhagsstofnunar, er Visir ræddi viö hann í tilefni af þvf, aö hann lætur af þvi starfi um 2ja ára skeið frá og með 1. nóvember n.k. Jón Sigurðsson forstjóri Þjóðhagsstofnunar. Hið nýja starf, er Jón tekur við eftir þann tima er embætti aðal- fulltrúa i framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldey rissjóðsins i Washington, Var Jón kjörinn til þess starfs á ársfundi sjóðsins, sem haldinn var 1. október sl. og hefur honum nú verið veitt leyfi til 2ja ára. Ólafur Daviðsson hag- fræðingur mun gegna starfi forstjóra Þjóðhagsstofnunar i fjarveru Jóns. í hverju starfið er fólgið. Aðspurður um, i hver ju hið nýja starf væri fólgið sagði Jón að framkvæmdastjórn Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins færi með dag- lega stjórn á málefnum sjóðsins. Viöfangsefni hans væri að vera vettvangur aðildarrikjanna, sem eru 141 talsins, til samstarfs og samráðs á sviði alþjóðagjald- eyris- og gengismála. Auk þess sem sjóðurinn væri lánastofnun fyrir aðildarrikin, til að auðvelda þeim að komast yfir timabundna örðugleika i utanrikísviðskiptum. „Framkvæmdastjórnin er skipuð 22 mönnum. Þar af eru 6 tilnefndir beint af stærstu aðildarrikjunum sex, sem eru Bandarikin, Bretland, Þýskaland, Frakkland, Japan og Saudi-Arabia, Alþýðulýöveldið Kina, sem nýlega gerðist þátttakandi i sjóðnum, hefur nú nægilegt atkvæðamagn til að kjósa eigin mann i stjórn. Hinir fimmtán eru kosnir af 135 rikjum öðrum Þau skiptast i einskonar kjördæmi, sem þó eru óformleg, þ.e.a.s. hópar rikja sem hafa valið að standa saman að málum á vettvangi Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins kjósa saman i þessum kosningum.” Norðurlöndin saman „Þannig er um Norðurlöndin, fimm”, hélt Jón áfram, „sem standa saman á þessum vettvangi og beita atkvæðamagni sinu saman við kosningu i þessa stjórn. Ég er þvi kosinn með atkvæðum Norðurlanda. „Hvert er verkefni þessarar stjórnar?” „Það er að annast daglega yfir- stjórn og ábyrgð á starfi sjóðsins. Stjórnin velur sér framkvæmda- stjóra sem jafnframt er formaður hennar. Þessu starfi gegnir nú Frakki að nafni de Larosiére. Viðfangsefnin eru fyrst og fremst að fjalla um efnahagsmál aðildarrikjanna i tengslum við viðskipti þeirra við sjóðinn, sérstaklega þegar þau leita eftir lánafyrirgreiðslum hjá honum. en einnig i heildarsamhengi, þvi sjóðurinn fjallar mikið um alþjóðaefnahagsmál. Það er -verkefni hans að reyna að koma á þeirri skipan i gjaldeyrismálum að stuðlað sé að stöðugleika i efnahagsmálum og framförum i aðildarrikjunum. ,Og þú litur björtum augum til nýja starfsins?” „Já, vissulega geri ég það, en mun jafnframt sakna margs héðan, ekki sist góðs samstarfs við þá menn sem ég hef unnið með. En ég vil einnig benda á að ég er ekki að hverfa til fasts starfs hjá þessari alþjóðastofnun eða i öðru landi. Ég verð fulltrúi Islands og annarra Norðurlanda og hverf að þvi starfi i timabundið leyfi til 2ja ára”. — JSS Margir vilja ræða við for- setann. Umselinn iorseli Vigdis Finnbogadóttir forseti hefur nánast verið umkringd erlendum fréttamönnum blaða, út- varps og sjónvarps siðan hún tók við embætti. Þaö er þakkarvert að forsetinn skuli gefa sér tima til aö sinna erindum hinna erlendu frétta- manna og leggja þannig fram sinn skerf tii að kynna iand og þjóð út um heim. En vonandi fer ásókninni að utan að linna svo islenskir fjölmiðiar komist að. Blessuð stjórnin Davið Oddsson borgar- fulltrúi krafði Guðrúnu Helgadóttur um skýringu Sæmundur Guðvinsson blaöamaöur skrifar. á þeim ummælum hennar að núverandi meirihluti borgarstjórnar hefði stutt uppbyggingu matsölu- staða I borginni. Davið fékk hins vegar engin svör. Auðvitað er það bara rugl i Guðrúnu að borgar- stjórn hafi stutt við mat- sölustaðina. Það er rfk- isstjórnin sem á allan heiðurinn. Siðan þessi alþýðu- stjórn lók völdin hefur hagur almennings nefni- lega batnað svo að meö ólikinduin má teljast. Kaupmátturinn hefur rokið upp og lýðurinn veit ekkert hvað hann á við peningana að gera, ekki sist eftir að verðbólgan var talin niður á nokkrum vikum. Af þessum sökum þarf engin að snudda i elda- mennsku heima hjá sér, heldur geta allir farið með fjölskylduna út að borða tvisvar á dag. Er það mikil breyting frá þvl er lýðurinn þóttist góður að eiga fyrir soðningu á timum kaupránsstjórnar Geirs. Þökk sé Guðrúnu alþing- ismanni og co fyrir verts- húsin. / )?§ „Hvaö þarftu mikið, flug- stjóri góöur?” Bankastjóri og ráðherra Sú ákvörðun Steingrims Her- mannssonar að skipa Seðlabankanum að lána vissum starfsmönnum Flugleiöa allt aö 209 milljónum króna hefur að vonum vakið mikla at- hygli. Eftir að Visir birti frétt um málið hringdu margir til blaðsins og voru illorö- ir I garð ráöherrans, töldu óhæfu aö hann færi að skipa bönkum að lána hinum en ekki þessum stórfé á sama tima og bankarnir væru nánast lokaöir almenningi og at- vinnufyrirtækjum. Það sem er kannski at- hyglisveröast i þessu ináli er, aö á sama tima skipar ráðherrann Flug- leiðum að selja stóran hluta eigna sinna og er það skilyrði þess að rlk- isstjórnin aöstoði félagið. Sem sagt: Vissum hópi manna er boðið hundruð milljóna lán til að auka eigur sinar en öörum skipaðaðrýra eigur sinar til að tryggja atvinnu hinna fyrrnefndu! Er ein- hver sem skilur þetta? Réttindi á ritvói Prentarar munu halda fast við þá kröfu slna að það þurfi fjögurra ára iðnnám og sveinspróf I prenti til að geta skrifaö á ritvél ef hún er tengd tölvu. Viðsemjendum þeirra gengur illa að skilja þessa röksemd enda hafa prentarar ekki tekið i mál til þessa að setja á tölvuritvél. Kannski að prentarar sjái að sér ef það verður ofan á að hafa vitið með á samningafundi eins og framkvæmdastjóri ASl telur nú nauðsynlegt. Nýi biilinn Óli litli var ljómandi af stolti einn morguninn þegar hann kom I skólann: — Pabbi er búinn að eignast nýjan bil og hann var i alla nótt að mála hann og skipta um númer á honum. Samkvæmt læknisráöi — Hvers vegna lokarðu illtaf augunum þegar þú iýpur á? — Það er vegna þess að læknirinn bannaði mér að kikja of djúpt I glasið. Hver kemur þá I staö Asmundar? Sáttavit óskast Asmundur Stefánsson framkvæmdastjóri Aiþýðusambandsins segir iVIsiigæraðþeir hjá ASI vilji „viðræður af viti”. Greinilega eru uppiein- hverjir tilburðir i þá átt að verða við þessari.ósk. I sama Visisbiaði er nefni- lega haft eftir Guölaugi Þorvaldssyni sáttasemj- ara, aö sáttanefndar- menn fundi bara sjálfir þessa dagana. Eru þeir eflaust aö bræða meö sér hvernig koma megi á við- ræðum af viti og þá meö þátttöku hverra.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.