Vísir - 10.10.1980, Side 12

Vísir - 10.10.1980, Side 12
12 BÍL4L£IG4 Skeifunni 17, . _ Sjmar 81390 ’ ÞAÐER VISS PASSI! 86611 |UMFERÐAR Nei takk ... ég er á bílnum vtsm Föstudagur 10. október 1980 Það er mikilvægt aft barniö grúfi sig ekki um of ofan i bókina. Rétt f jarlægö milli augna og bókar getur skipt öllu máli um lestrargetu barnsins. Sllthvað lll athugunar fyrir foreldra yngstu nemendanna: Ýmis vandamál við upphaf skólagöngu Nú eins og endanær, eru fjöldamörg börn að setjast i fyrsta sinn á skóla- bekk. Það sem liggur fyrst fyrir á verkefnaskránni, er að læra að lesa. En það er ekki bara kennarans að sjá til þess að barnið læri, þar eiga foreldr- arnir einnig stóran hlut að máli. Það er nefnilega ekki nóg að barnið læri bókstafina. Það þarf til dæmis einnig að tileinka sér góðar lestrarvenjur. Og þar er einmitt komið að þarfri leiðsögn aðstandenda. Hér fara á eftir ýmsar ábendingar, sem fram komu á dögunum i dönsku heilbrigðistimariti og eiga án efa lika vel við hér á landi. Þórunn Gestsdóttir, blaðamaöur. Þegar barnið er 6-7 ára, er sjón- skynið nær fullþroska. Oftast lær- ir barnið að þekkja bókstafina, þegar þaðhefur náð þessu aldurs- skeiði. Mjög algengt er, að barnið haldi blaðinu, eða bókinni mjög nærri augunum, þegar það er að lesa. Ef þvi er ekki leiðbeint i Ráðstefna um neytendamál Bandalag kvenna i Keykjavik efnir til ráöstefnu um neytenda- mál fyrir aöildarfélög sin á morg- un laugardag (11. október). Ráö- stefnan hefst í Kristalssal Hótel Loftleiöa klukkan 9. Fyrirlestrar veröa fluttir og hópumræöur fara fram. Fyrirlestrar verða fluttir fyrir hádegi og verða þeir meðal annars um „heimilisstörfin fyrr og nú”, er Vigdis Jónsdóttir skólastjóri flytur. Sigriður Kristjánsdóttir ráðunautur K.t. mun greina frá leiðbeiningastöð húsmæðra, Magnús Finnsson, framkvæmdastjóri Kaupmanna- samtaka Islands ræðir um „verslunina fyrr og nú”. Ólafur Daviðsson, hagfræöingur hjá Þjóöhagsstofnun, mun ræða vægi helstu nauðsynjavara i innflutn- ingi og Ólafur Ottósson fram- kvæmdastjóri hjá Álafoss hf. um verðmyndunarferill ullarvara. Einnig mun Sigriöur Haraldsdóttir deildarstjóri skýra frá athugunum á endingu heimilistækja á tslandi. Hópumræður munu siöan fara fram eftir hádegi og er efni þeirrar áhugavekjandi fyrir neyt- endur. Efni Hópumræðna verða. 1. Hvers virði eru heimilisstörfin og áhrif þeirra á afkomu heimila og þjóðarbú? 2. Hvaða þættir hafa áhrif á neysluvenjur fólks? 3. Hvaða áhrif hefur verslunin á afkomu heimila og þjóðarbú? 4. Hvaða áhrif hefur neyslan á af- komu heimila og þjóðarbú? 5. Hvaða hlutverkum gegnir framleiðsla okkar á innlendum markaði? tima, getur þetta orðið vani, sem þreytir barnið mjög þegar til lengdar lætur. Meðal annars get- ur þetta orsakað höfuðverk og augnþreytu. Æskileg lengd milli lesanda og bókar er um 40 senti- metrar. Þá er ekki siður mikilvægt að gefa gaum að lesbirtunni. Barnið hefur engan skilning á þvi að dauf birta getur skemmt augun, auk þess sem hún veldur undantekn- ingarlaust lesþreytu. Aftur á móti eru áhyggjur vegna mikils lesturs hreint óþarfar. Þótt barnið lesi mikið á hverjum degi, gerir þaö þvi ekkert til. Vandamál En þrátt fyrir að alls þess sem að ofan er nefnt sé gætt, getur átt sér stað, að barnið eigi við vanda- mál að etja varðandi lesturinn. Oft getur læknisrannsókn komiö i veg fyrir að þessi vandamál skapist, þar sem þau stafa oft af nærsýni, fjarsýni og fleiru. Ef augnvöðvar spennast til dæmis óvenjulega mikið við lest- ur, getur verið nóg að nota augn- dropa, til að slaka á þeim aftur. í framhaldi af þvi, er auðveldlega hægt að athuga, hversu sterk gleraugu barnið þarf, sé um slikt að ræða. Þá getur vandamálið verið i þvi fólgið, að barnið eigi i erfiðleikum með að setja stafina saman i orö, og jafnframt aö skilja merkingu orðsins. Þá kemur aftur til kasta foreldranna. Þau verða að leggja talsverða vinnu af mörkum, til að hægt sé aö kenna barninu að lesa, — en það er vel þess virði. •• r BORGINAg SÍMI V 85060

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.