Vísir - 10.10.1980, Qupperneq 16
16
vísm
Föstudagur 10. október 1980
Hressari Morgunpðst
ÁR hringdi:
„Ég varö fyrir miklum von-
brigðum ;neð Morgunpóstinn siö-
ustu dagana. Hann er mun leiöin-
legri en þátturinn var á siöast-
liönum vetri, sennilega fyrst og
fremst vegna þess, aö flutt eru
lengri atriöi i þættinum og um
efni, sem almenningur hefur
engan áhuga á. Einkennandi var
langlokuviötal við einhvern þjóö-
verja um þaö hvernig væri aö búa
i Berlin!
Ég vil hvetja umsjónarmenn
þáttarins til að hressa sig svolitiö
og flytja okkur stutt og skemmti-
leg viötöl og stuttar frásagnir. Og
þegar fengnir eru stjórnmála-
menn i heimsókn, hvernig væri þá
aö spyrja þá beittra spurninga i
staðinn fyrir að tönglast á spurn-
ingum, sem spyrjendur segja
sjálfir, að séu „klisjur”?
„GAMLINGINH VAR
STÖÐUGT AÐ NÖLDRA”
- Bréfi „rosklns
manns” svarað
G.G. hringdi vegna
bréfs „Roskins manns”
hér á siðunni á dögun-
um:
Ég sé aö gamli karlinn sem var
að pirra mig og fleiri við sjoppu i
Austurbænum um daginn er far-
inn aö þenja sig i Visi svo mér
finnst rétt að upplýsa hvaö raun-
verulega gerðist.
Ég var i biðröö viö sjoppuna
rétt fyrir klukkan hálf tólf og var
hvorki undir áhrifum áfengis né
klæddur i garma. Nokkrir félagar
minir voru þarna meö mér og við
vorum aö ræöa sameiginleg
áhugamál okkar en höfðum þó
alls ekki hátt, einsog öldungurinn
segir.
Meöan viö biöum kom gamli
karlinn og reyndi strax að troða
sér fram fyrir okkur i röðinni en
við vorum ekki á þvi. Þá fór hann
að væla um að hann væri likam-
legur aumingi og ætti rétt á að
vera fyrstur. Við hlustuðum auð-
vitaö ekki á þetta og hann fór á
endanum aftur fyrir okkur. Þar
var hann sifellt að nöldra eitthvaö
og vola og var farinn að klæmast
við okkur á heldur leiðinlegan
hátt. Þá var ég búinn að fá nóg og
sagði honum að hætta þessu.
Hann gerði það ekki svo ég spurði
hann hvab hann væri að æsa sig,
lkamlegur auminginn einsog
hann hafði sjálfur sagt.
Þá trylltist hann alveg og réðist
á mig svo ég varð að taka á móti.
Vinir minir reyndu að halda
manninum en hann var bandóður
ojfslefandi og reyndi eins og hann
gat að berja mig. Við þessi læti
færðist hann út úr röðinni og
þegar okkur tókst að stilla hann
var hann búinn að koma sér svo
illa við alla i röðinni að hann varð
að fara aftast og var það honum
mátulegt. Hann hélt samt áfram
að garga einhverjar móðursýkis-
legar svivirðingar á eftir okkur,
alveg þangað til við vorum búnir
að kaupa og farnir burtu.
Kannski á maður ekki að taka
röfliðisvona gamlingja alvarlega
en fyrst hann fór með það i blöðin
fannst okkur rétt að segja sann-
leikann i málinu.
Bréfritara finnst alveg nóg um hrossaskrifin f blaöinu.
Gerið meira fyrir alvðru ípróttir
Ég sá i Visi um daginn aö ein-
hver ruglustampur, sem kallar
sig hestunnanda var að þakka
fyrir hrossaskrifin i blaöinu. Ég
veit ekki hvað Visir er að gera
meö að vera aö viöra sig upp viö
þessar fáeinu fyllibyttur, sem eru
að þenja sig á hrossum um allar
koppagrundir. Þessi ófögnuður er
slikur þyrnir i augum allra al-
mennilegra manna, að þaö ætti að
banna þetta, þvi fyrr þvi betra.
Og svo kóróna þeir vitleysuna
með þvi að reyna aö telja sak-
lausu fólki trú um að þessi ósköp
séu iþrótt.
Nei, Visir hefur annað og betra
hlutverk en að eltast við svona
dellu. Geriö heldur meira fyrir al-
vöru Iþróttir, eins og fótbolta og
handbolta, af þvi er aldrei of
mikið.
Einn meö ofnæmi fyrir bikkjum
Sjálfstæöishúsiö margumtalaöa.
Um sjálfslæOlshús-
10 oa fjármál hess
Árni Kristjánsson
Reykjavik, skrifar:
1 framhaldi af þeim blaðaskrif-
um sem orðið hafa um sjálf-
stæðishúsið og fjármál þess
langar mig að leggja eitt orð i
belg.
Hvernig stendur á þessum
skuldum sem framkvæmdastjóri
flokksins hefur lýst á prenti opin-
berlega i VIsi að séu miklar, eða
eins og hann orðar það að „fjár-
hagur flokksins er ekki betri en
þetta”.
Nú er ég ekki kunnugur rekstri
stjórnmálaflokka en mig langar
þvi til að spyrja :
Hverjum skuldar flokkurinn
peninga? Hvað eru margir starfs-
menn á launum hjá flokknum og
við hvað? Er ekki hægt að spara
peninga i rekstrinum með þvi að
segja upp fólki eða ráöa ekki
alltaf tvo framkvæmdastjóra
þegar einn hættir?
F orystumenn Sjálfstæðis-
flokksins eru beðnir um að svara
þessu við tækifæri.
Lesendasiöan haföi samband
viö Kjartan Gunnarsson vegna
þessa máls. Hann vildi ekki svara
spurningunum á þessum vett-
vangi, en hins vegar væri Arna
Kristjánssyni, guövelkomiö og
vel þaö aö hafa samband viö sig á
skrifstofuna einhvern daginn
milli klukkan 9 og 5, þar sem þeir
gætu rætt málin f rólegheitum.
Þakklr fyrir
Itelmilis-
og fjölskyldu-
Uáltinn
G.R. Garðabæ hringdi:
Mig langar að koma á framfæri
þakklæti til Visis fyrir að hafa
endurvakið heimilisþáttinn, sem
var I blaöinu og endurbætt hann
svo sem sjá má.
Það sem af er sýnist mér að
Þórunn Gestsdóttir, umsjónar-
maður þáttarins sé á réttri braut
og þegar hefur komið þarna fram
margt forvitnilegt efni.
Fjölskyldur og heimilismálin
hafa stöðugt meiri þýðingu og
allar ábendingar og upplýsingar
um það sem betur mætti fara á
þeim vettvangi þyggjum 'við les-
endur með þökkum, ekki hvaö
sist tillögur um hvernig hægt sé
að gæta meiri hagkvæmni i inn-
kaupunum og rekstri heimilisins.
Ég óska Þórunni, sem bauö af
sér góðan þokka i „Vikulokun-
um”, góðs gengis á nýjum vett-
vangi og vænti þess aö heimilis og
fjölskylduþátturinn i verði sem
lengst i' Visi.
Svoem-
falt er
málið
Ólafur Páll skrifar:
Loksins. Loksins.
Ég hef lengi beöið eftir grein I
blööunum til varnar Siguröi
Helgasyni forstjóra Loftleiöa. Ég
tek undir með greinarhöfundi I
Visi. þ. 3. september s.l. Sigurður
eflist meö hverri raun. Þaö var
vitaö, þegar hann tók aö sér for-
stjórastarfiö, hvaöa erfiðleikar
voru framundan hjá félaginu.
Það þurtti sterkan mann-, reyndan
mann og framsýnan mann. Þess
vegna var Sigurður kosinn for-
stjóri. Svo einfalt er málið.
Ólafi Páli finnst Siguröur Helga-
son eflast viö hverja raun.
Því ekki að lána ðllum
til hiutabréfakaupa?
Kaupsýslumaður
slmar:
„Ég var aö lesa frétt Visis um
aö Steingrimur Hermannsson
hafi fyrirskipaö Seölabanka að
lána 200 milljónir til einstaklinga
sem vilja auka hlut sinn i Flug-
leiöum.
Sem venjulegum borgara finnst
mér aö ef rikið vill að fólk kaupi
bréf I Flugleiðum þá ætti að opna
bankana fyrir alla sem áhuga
hafa en ekki binda þetta einkum
viö flugstjóra, sem þarna hafa
veriö atkvæðamiklir.
Ég er búinn aö fljúga svo lengi
aö maöur fékk nafnið sitt i blööin
þegar maöur tók sér far til út-
landa með flugvél hér i gamla
bréfr't^*1'* aö 8era Flugleiöir aö almenningshlutafélagi? spyr
daga. Almenningur hérlendis
hefur mikinn áhuga á samgöng-
um i lofti og ef auka á hlutafé i
Flugleiöum væri þá ekki tilvaliö
aðopna félagiö alveg og gera þaö
aö almenningshlutafélagi? En
áður þyrfti auðvitaö að tryggja
hag þeirra sem eiga hlut fyrir.