Morgunblaðið - 28.05.2002, Side 2
25.maí2002
2 B ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri segist að vonum afar
ánægð með niðurstöðu borg-
arstjórnarkosninganna en Reykja-
víkurlistinn hlaut 53% atkvæða og
átta borgarfulltrúa. Ingibjörg skip-
aði áttunda sætið. „Ég er ánægð
með að hafa fengið skýrt umboð,“
segir hún, „við vildum fá hreinan
meirihluta og fengum hann. Ég er
mjög sátt, ánægð og þakklát fyrir
það traust sem í þessu felst.“
Ingibjörg segir að fjöldi manns
hafi komið að kosningabaráttu R-
listans og að stemmningin hafi verið
góð. Þá hafi kosningavaka R-listans
á laugardagskvöld og aðfarnótt
sunnudags verið skemmtileg og að
stemmningin hafi minnt á stemmn-
inguna á kosningavöku listans í
kosningunum árið 1994. „Ég vil
koma á framfæri þökkum til alls
þess fjölda sem vann að kosning-
unum og átti ríkan þátt í sigrinum,“
segir hún.
Spurð að því hvort hún ætli að
vera borgarstjóri næstu fjögur árin
segir Ingibjörg: „Ég vona að borg-
arstjórnin kjósi mig til þess.“ En
ætlar þú að sitja næstu fjögur árin,
þ.e. sem borgarstjóri? „Já, ég sé
ekkert í spilunum sem breytir því.“
Á tímabili var ekki marktækur
munur samkvæmt skoðanakönn-
unum á fylgi R- lista og D-lista. Hef-
ur þú einhverja skýringu á því? „Ég
held það skýrist að hluta til að því að
Sjálfstæðisflokkurinn byrjaði kosn-
ingabaráttuna miklu fyrr en R-
listinn. Við vissum það alveg að við
þyrftum að bíða; við hefðum ekki
fjármuni til að fara á fullt í kosninga-
baráttu sem væri lengri en mán-
uður.“
Voruð þið á einhverjum tíma-
punkti í kosningabaráttunni hrædd
um að missa meirihlutann? „Vissu-
leg setti það vissan beig í fólk þegar
dró saman með R- og D-lista, skv.
skoðanakönnunum. Ég fann það að-
allega hjá stuðningsfólkinu að það
var skelkað. Mér sjálfri fannst það
hins vegar ekki liggja í loftinu að við
misstum meirihlutann miðað við þau
viðbrögð sem ég hafði fengið á þeim
fundum sem ég hafði farið á. En ég
veit þó að hlutirnir geta gerst hratt
þannig að ég var aldrei sigurviss.“
Síðustu vikuna breikkaði bilið aft-
ur á milli stóru fylkinganna í
Reykjavík skv. skoðanakönnunum.
Hvað olli því að þínu mati? „Ég held
að margt hafi þar lagst á sveig með
okkur. Við vorum t.d. með mjög öfl-
uga kynningu á okkar stefnumálum
og ég held að við höfum komið þeim
vel til skila. Við fórum t.d. mjög víða
á fundi. Auk þess held ég að það
skýrist að einhverju leyti af við-
brögðum fjármálaráðherra, for-
sætisráðherra og Björns Bjarnason-
ar við viljayfirlýsingunni.“ Vísar
Ingibjörg þarna til viljayfirlýsingar
um fjölgun hjúkrunarrýma í borg-
inni sem hún og Jón Kristjánsson
heilbrigðisráðherra rituðu undir um
miðjan maí.
Spurð að því hvað hún telji að
Reykjavíkurlistinn hafi varið mikl-
um fjármunum í kosningabaráttuna
segist hún telja að það sé á bilinu 25
til 30 milljónir kr.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri og leiðtogi R-lista
Ánægð með að fá skýrt umboð
Morgunblaðið/Sverrir
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri sagði þegar hún kom á kosningavöku R-listans á tólfta tímanum á laugardagskvöld að
flest benti til þess að R-listinn hefði unnið stórsigur í Reykjavík.
BJÖRN Bjarnason, oddviti sjálf-
stæðismanna í borgarstjórn
Reykjavíkur, segir að hann hefði
vissulega viljað sjá aðra niðurstöðu
í borgarstjórnarkosningunum. D-
listi sjálfstæðismanna hlaut rúm
40% atkvæða og sex borgarfulltrúa.
„Við stefndum að öðru en þessari
niðurstöðu. En þetta er sú stað-
reynd sem við stöndum frammi fyr-
ir og í samræmi við hana munum
við vinna á næsta kjörtímabili,“ seg-
ir Björn. Hann ítrekar þakklæti til
allra sem lögðu kosningabaráttu
sjálfstæðismanna lið. „Það var mjög
mikil eining og góður hugur hjá
okkur frambjóðendunum. Við höfð-
um ánægju af því að kynna okkar
góðu stefnu. Sjálfstæðismenn um
alla Reykjavík unnu mjög vel sam-
an í þessari baráttu.“ Björn segir að
D-listinn hafi þó staðið frammi fyrir
því að einn borgarfulltrúi flokksins,
Ólafur F. Magnússon, bauð fram
undir merkjum Frjálslyndra og
óháðra. Það hefði því verið klofn-
ingur innan Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík. „Sagan hefur kennt okk-
ur að við þær aðstæður nær flokk-
urinn ekki þeim árangri sem ella
væri og það gerðist líka í þessum
kosningum.“ Aðspurður segir Björn
að Ólafur hafi að sjálfsögðu tekið
fylgi frá D-listanum, þótt enginn
geti fullyrt, hve mikið, hitt sé óum-
deilt, að hann hafi klofið sig frá
Sjálfstæðisflokknum. Hann segist
vera sjálfstæðismaður. Sömu sögu
sé að segja af kjarnanum í kringum
F-listann.
Ætlar þú að sitja í borgarstjórn í
fjögur ár? „Ég bauð mig fram til að
vera í fjögur ár. Ég hef ekki tekið
ákvörðun um neitt annað.“
Á tímabili var ekki marktækur
munur á milli R- og D-lista sam-
kvæmt skoðanakönnunum. Hvers
vegna heldur þú að bilið hafi
breikkað aftur á milli listanna síð-
ustu vikuna? „Þegar kom í ljós að
við hefðum náð svona miklum ár-
angri kom frétt um að nú væri svo
komið að Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir væri að falla; ekki fyrir okkur
heldur Ólafi F. Magnússyni. Við-
brögð R-listans við þessari frétt
voru skýr. Öllum málefnum var ýtt
til hliðar og hafin markviss auglýs-
inga- og áróðursherferð í þeim
anda, að Ingibjörg Sólrún væri að
falla. Ég tel að þetta hafi haft sterk
áhrif á kosningabaráttuna. Fylgi
kvenna færðist aftur yfir á R-
listann. Þegar rætt er um áhrif
skoðanakannana á kosningaúrslit,
skiptir auðvitað máli að skoða hver
viðbrögð framboða eru við þeim.“
Skiptu athugasemdir sjálfstæð-
ismanna við viljayfirlýsingu Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísladóttur borg-
arstjóra og Jóns Kristjánssonar
heilbrigðisráðherra um fjölgun
hjúkrunarrýma í Reykjavík, sem
undirrituð var um miðjan maí, ein-
hverju máli í kosningabaráttunni?
„Það er greinilega skoðun margra,“
segir Björn. Hann telur þó að það
hafi komist til skila í gegnum það
moldviðri sem skapaðist í kringum
viljayfirlýsinguna að sjálfstæð-
ismenn hefðu haft frumkvæði að því
að móta stefnu um fjölgun hjúkr-
unarrýma í kosningabaráttunni.
„Við áttum allt frumkvæði í þessu
máli í kosningabaráttunni og við
stefnu okkar var brugðist með yf-
irboði með vilja heilbrigðisráðherra
og síðan auglýst, að hann hefði
samið við Reykjavíkurlistann! Auð-
vitað var óhjákvæmilegt að vekja
athygli á því, að ráðherrann hefði
ekkert umboð frá ríkisstjórn til að
rita undir þessa yfirlýsingu, en
kannski þýðir ekki að taka slík
stjórnsýslumál upp í kosningabar-
áttu, jafnvel þótt þau ráði úrslitum
um það, hvort viðkomandi vilja-
yfirlýsing hafi meira en áróð-
ursgildi.“
Spurður að því að lokum hvað
hann telji að sjálfstæðismenn hafi
lagt mikla fjármuni í kosningabar-
áttuna í Reykjavík segist hann ekki
hafa upplýsingar um það. Það sé
hvorki á verksviði frambjóðenda að
afla fjár né ákveða útgjöld.
Björn Bjarnason oddviti sjálfstæðismanna í Reykjavík
Morgunblaðið/Golli
Björn Bjarnason var hylltur af frambjóðendum D-listans og stuðningsmönnum hans þegar hann kom á kosningavöku sjálfstæðismanna í Reykjavík á laugardag ásamt eig-
inkonu sinni Rut Ingólfsdóttur.
Hefði viljað sjá aðra niðurstöðu