Morgunblaðið - 28.05.2002, Page 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
25.maí2002
Einar Sveinbjörnsson
B-lista
Sjálfstæðis-
flokkurinn í
Garðabæ hálf-
ókleifur múr
„ÉG get ekki verið annað en sáttur
fyrir hönd B-listans í Garðabæ. Við
erum að bæta við okkur rúmlega tíu
prósentustigum, förum úr 16% í 26%
og það er ekki hægt að fara fram á
meira í fylgi,“ segir Einar Svein-
björnsson oddviti B-lista óháðra og
framsóknarmanna.
Hann segir að hins vegar hafi ver-
ið stefnt að því eins og alltaf að fella
meirihluta Sjálfstæðisflokksins og
það hafi ekki tekist. „Sjálfstæð-
ismenn unnu varnarsigur og þessar
kosningar sýna það öðru fremur að
Sjálfstæðisflokkurinn í Garðabæ er
hálf-ókleifur múr,“ segir hann og
bendir jafnframt á að Sjálfstæð-
isflokkurinn hafi tapað nokkru fylgi,
sem og Garðabæjarlistinn. „Við
bættum við okkur tíu prósenta fylgi
og við getum ekki verið annað en
sátt við það.“
Ásdís Halla Bragadóttir
D-lista
Markmiðið
náðist um
forystu áfram
„ÉG er mjög ánægð með nið-
urstöðu þessarar kosningar. Sjálf-
stæðismenn halda öruggum meiri-
hluta í Garðabæ. Við höldum
fjórum bæjarfulltrúum af sjö og
fögnum þeirri niðurstöðu mjög,“
segir Ásdís Halla Bragadóttir, odd-
viti Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ.
Hún segir að markmiðið hafi verið
að bæjarbúar veittu listanum
áframhaldandi umboð til þess að
vera í forystu í bæjarstjórn Garða-
bæjar, því hafi verið náð og vill
hún færa bæjarbúum bestu þakkir
fyrir það traust sem þeir hafi sýnt
Sjálfstæðisflokknum með þessu
kjöri.
Að sögn Ásdísar Höllu fékk list-
inn nokkrum prósentum færra en í
síðustu kosningum, en í þeim kosn-
ingum var töluverð uppsveifla frá
því sem áður hafði verið, þannig að
kosningin nú er aðeins betri en
1994. „Þetta er mjög glæsileg nið-
urstaða fyrir Sjálfstæðisflokkinn í
Garðabæ.“
Hún segir, aðspurð hvort Sjálf-
stæðisflokkurinn sé orðinn óvinn-
andi afl í Garðabænum, að það sé
aldrei svo, hvorki í Garðabæ né
annars staðar og bendir á að kosn-
ingaúrslit séu aldrei fyrirfram gef-
in. Ásdís Halla lítur á það sem heil-
mikinn áfanga að hafa notið þessa
trausts og segir að listinn muni
vinna næstu fjögur árin eftir þeirri
stefnuskrá sem sett hafi verið fram
og hafi nú fengið stuðning bæj-
arbúa.
Hún segir erfitt að segja til um
hvað réð því að fulltrúi fór frá
Samfylkingunni yfir til Framsókn-
arflokksins. „Það gerist sjálfsagt
með því að Framsóknarflokkurinn
var með mun harðari kosningabar-
áttu en Samfylkingin og það hefur
greinilega skilað sér í einhverju
fylgi á milli þessara flokka. Það er
athyglisvert að sjá að vinstrimenn í
Garðabæ hafa aldrei fengið jafn
slaka útkomu í kosningum.“
Garðabær
Sigurður Björgvinsson
S-lista
Hélt að heið-
arleg kosn-
ingabarátta
skilaði meiru
„ÉG er auðvitað ekki ánægður og
reyndar svolítið hissa. Ég hélt að
kosningabarátta sem væri mál-
efnaleg og byggð á heiðarleika og
sanngirni skilaði meiru,“ segir
Sigurður Björgvinsson, oddviti
Garðabæjarlistans.
Hann segir, aðspurður hvort
Sjálfstæðisflokkurinn væri óvinn-
andi vígi, svo ekki vera, það hafi
sést í kosningunum. Hann bendir
á að Sjálfstæðisflokkurinn hafi
tapað nærri fimm prósentum frá
síðustu kosningum. „Við töpuðum
jafnmiklu yfir til B-lista, en þetta
segir manni að það á auðvitað að
vera hægt að vinna Sjálfstæð-
isflokkinn hér eins og annars stað-
ar. Það er ekkert náttúrulögmál
að hann sé stærstur og mestur.
Ég safna mínum vopnum og við
erum ekkert í neinu vonleysi,“
segir Sigurður.
Hann segir að Garðabæjarlist-
inn ætli sér að hefja hefja kosn-
ingabaráttuna strax aftur, með því
að vinna vel á kjörtímabilinu og
sýna bæjarbúum fram á það að
listinn sé góður kostur sem að
hægt sé að treysta. „Við munum
vinna vel á kjörtímabilinu og ná
betri árangri næst.“
Þröstur Karlsson B-lista
Kemur á óvart
að útkoman er
ekki betri
„VIÐ héldum okkar því sem næst,
reyndar slaknaði aðeins á fylginu en
við erum ennþá með tvo bæjarfull-
trúa. Þannig að við erum nokkuð vel
sáttir, fyrir utan það að við nátt-
úrlega misstum meirihlutann af því
að Samfylkingin og Vinstri grænir
misstu einn fulltrúa. Þannig að
þetta er svona súrsætur sigur,“ seg-
ir Þröstur Karlsson oddviti B-lista
Framsóknarflokksins í Mosfellsbæ.
Að hans sögn var stefnan að
halda meirihluta og börðumst
hreyfingarnar að hluta til saman að
því marki. Þröstur segir úrslitin
koma mjög á óvart, að útkoman sé
ekki betri ef miðað er við það
hvernig meirihlutinn hefur byggt
bæinn upp síðastliðinn átta ár. „Ég
hef enga skýringu á þessu. Það er
ekki út af því að við höfum ekki
unnið okkar heimavinnu síðustu
átta árin“ segir hann og bendir á að
B-listinn hafi haldið sínu fylgi. „Við
unnum einhvern glæsilegasta kosn-
ingasigur í kosningunum 1998 með
þessu fylgi þá. Þannig að við erum í
sjálfu sér ekki ósátt þó að aðeins
slakni á því við þessi kosning-
arúrslit.“
Jónas Sigurðsson G-lista
Persónulegur
sigur
Ragnheiðar
„VIÐ erum ekki sátt við úrslit
kosninganna. Við lækkuðum um
eitt prósentustig frá síðustu kosn-
ingum og misstum þannig einn
mann,“ segir Jónas Sigurðsson,
oddviti G-lista Samfylkingar og
vinstri grænna. Hann skýrir fylg-
istapið þannig að G-listanum hafi
ekki tekist að koma nægjanlega
vel til skila því sem hann hefur
verið að gera og vekja á því at-
hygli. Þess vegna hafi málin farið
á þennan veg hjá meirihlutanum.
„Ég held líka að kannski sé
þetta ekki sigur Sjálfstæðisflokks-
ins, heldur meira persónulegur
sigur Ragnheiðar, mér finnst
það,“ segir Jónas og bendir á að í
síðustu kosningum hafi fjórir list-
ar verið í framboði og virðist sem
Sjálfstæðisflokkurinn hafi meðal
annars náð til sín öllum þeim at-
kvæðum sem M-listinn fékk í síð-
ustu kosningum, en sá listi bauð
ekki fram í kosningunum nú. „Ég
held að persónulegar vinsældir
Ragnheiðar hafi átt stóran þátt í
því.“
Hann segir að G-listinn snúi sér
nú að því að verja þann árangur
sem hann telur að náðst hafi í
bænum með þeirri stefnu sem
hann hafi mótað, er lýtur að upp-
byggingu, þjónustu og fleiru. „Við
munum veita nýjum meirihluta
fast aðhald í hans störfum,“ segir
hann.
Mosfellsbær
MIKILL fögnuður braust út í herbúðum sjálfstæð-
ismanna í Mosfellsbæ þegar kosningasigur þeirra
varð ljós og hreinn meirihluti tryggður. Hér eru
efstu frambjóðendur listans blómum skrýddir og
skælbrosandi yfir árangrinum, f.v. þau Hafsteinn
Pálsson, Herdís Sigurjónsdóttir, Ragnheiður Rík-
harðsdóttir, sem leiddi listann, og Haraldur Sverr-
isson.
Morgunblaðið/Jón Svavarssson
Í sigurvímu í Mosfellsbæ
„ÉG er mjög sátt, þetta var alveg
frábært,“ segir Ragnheiður Rík-
harðsdóttir oddviti D-lista sjálf-
stæðismanna í Mosfellsbæ. Hún
vill koma á framfæri eindregnu
þakklæti til Mosfellinga fyrir að
veita frambjóðendum D-listans
það umboð sem þeir gerðu á laug-
ardaginn.
Hún telur að þetta séu skýr
skilaboð frá bæjarbúum um að
þeir vilji breytingar. „Okkur sjálf-
stæðismönnum hefur tekist að
koma okkar stefnuskrá þannig til
skila. Hún var trúverðug og einnig
við sjálf,“ bendir hún á.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir
D-lista
Bæjarbúar
vilja breyt-
ingar
Jónmundur Guðmarsson
D-lista
Sjálfstæðis-
mönnum
treyst til að
fara með völd
„VIÐ sjálfstæðismenn á Seltjarn-
arnesi erum afskaplega ánægðir
með þessa niðurstöðu,“ segir Jón-
mundur Guðmarsson, oddviti og
bæjarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins
á Seltjarnarnesi. Flokkurinn fékk
60,3% atkvæða og fjóra menn
kjörna, en var með fimm menn eftir
síðustu kosningar.
„Mér skilst að þetta sé einn besti
árangur Sjálfstæðisflokksins á
landsvísu, sem er gott. Ekki síst í
ljósi þess að miklar mannabreyt-
ingar hafa orðið hjá okkur. Sig-
urgeir Sigurðsson, sem verið hefur
bæjarstjóri lengi, er farinn og nýr
hópur að koma til starfa. Við getum
ekki annað sagt en að við séum mjög
sátt við þessa niðurstöðu. Við stefnd-
um að því að sigra í kosningunum og
gerðum það með glæsibrag. Við
höldum ekki fimmta manninum en
hann hefur verið flakkari, komið og
farið á milli kosninga. Í þetta sinn
munaði ekki nema fáeinum atkvæð-
um svo það var mjög mjótt á mun-
unum að við héldum honum inni.“
Jónmundur segir niðurstöðu
kosninganna sýna að bæjarbúar
treysti sjálfstæðismönnum til að
fara með völdin í bænum. „Við mun-
um nýta það traust til góðra verka
fyrir þeirra hönd.“
Guðrún Helga Brynleifs-
dóttir S-lista
Markmiðum
náð
SAMFYLKINGIN fékk 39,7% at-
kvæða og þrjá bæjarfulltrúa kjörna
á Seltjarnarnesi. „Markmið okkar
var að ná inn þremur mönnum og við
náðum því svo við erum sátt,“ segir
Guðrún Helga Brynleifsdóttir, odd-
viti lista Samfylkingarinnar á Sel-
tjarnarnesi.
„Við teljum að markmiðinu hafi
verið náð og niðurstöðurnar í þeim
anda sem við bjuggumst við. Kann-
anir sýndu nú á föstudaginn að við
myndum ekki ná þriðja manni inn og
því erum við sátt við niðurstöðuna
sem fékkst í kosningunum. Við vor-
um búin að finna að það var hreyfing
í þessa átt. Sjálfstæðismenn hafa
verið með 60% fylgi og verið við völd
í bænum í fjörutíu ár. Við höfum oft
haft tvo fulltrúa en þeir fimm og því
erum við mjög sátt að ná að jafna
hlutföllin, fá þrjá menn á móti þeirra
fjórum.“
Seltjarnarnes
Sigurður Magnússon
Á-lista
Ánægjulegt að
að ná saman
andstæðing-
um D-listans
„FYRST og fremst tel ég það
ánægjulega við kosningarnar vera
það að það tókst að ná þarna saman
öllum andstæðingum Sjálfstæð-
isfélagsins í hreppnum. Við munum
byggja á því að þetta er orðinn einn
hópur,“ segir Sigurður Magnússon,
oddviti Á-lista Álftaneshreyfing-
arinnar, mannlíf og umhverfi
Bessastaðahreppi.
Hann segir að margir hafi komið
að þessari vinnu og að framhaldið
leggist vel í hann. „Ég vonast til
þess að það verði framhald á þessu
starfi. Það var málefnaleg eining í
þessum hóp og mikill áhugi á að
vinna saman,“ bendir Sigurður á.
Hann segir að ef hann ætti að
túlka niðurstöðurnar þá sé það
skoðun hans að málefnalegur mun-
ur framboðanna lægi fyrst og
fremst í því að Sjálfstæðisflokk-
urinn hafi verið að selja fólki í kosn-
ingunum miklar framkvæmdir,
stækkun á skóla, sundlaug og fleira,
sem að sjálfsögðu séu vinsæl mál.
„Við sögðum fólki að við teldum að
fjárhagsstaða Bessastaðahrepps
væri það þröng og erfið að það yrði
að fara varlega í framkvæmdir á
næstunni og vinna að því að lækka
skuldir. Auðvitað kýs fólk að fá
þessar framkvæmdir, en ég spái því
að það muni koma í ljós að við höf-
um haft rétt fyrir okkur. Það verði
ekki farið út í framkvæmdirnar, þar
sem staðan leyfi það ekki,“ segir
hann.