Morgunblaðið - 28.05.2002, Page 5
25.maí2002
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2002 B 5
Ölfus
Hjörleifur Brynjólfsson
D-lista
Skiptast á
skin og skúrir
ÞAÐ skiptast á skin og skúrir í
pólitík,“ segir Hjörleifur Brynj-
ólfsson, oddviti D-lista í sveitarfé-
laginu Ölfusi en hreinn meirihluti
Sjálfstæðisflokksins féll í kosning-
unum á laugardag.
Hjörleifur segir flokksmenn
stefna að því að mynda meirihluta
í sveitarstjórn, viðræður um það
séu hafnar en hann vill ekki gefa
upp við hvaða flokk hefur verið
rætt. Hann minnir á að Sjálfstæð-
isflokkurinn hafi í fyrsta skipti í
síðustu kosningum komist í hrein-
an meirihluta. Ástæðan fyrir fylg-
istapinu nú sé m.a. sú að fram kom
nýtt framboð sem hafi tekið tals-
vert af D-listanum og Þ-lista Sam-
fylkingar og óháðra. „Miðað við
hvernig staðan var, er ég nokkuð
sáttur við niðurstöðuna,“ segir
Hjörleifur. Þá hafi Framsókn-
arflokkurinn náð afar góðum ár-
angri en hann hlaut aðeins fjórum
atkvæðum minna en Sjálfstæð-
isflokkurinn.
Baldur Kristjánsson B-lista
Óformlegar
viðræður um
meirihluta
FYLGI Framsóknarflokksins í
Sveitarfélaginu Ölfusi er í sögu-
legu hámarki, a.m.k. í seinni tíð,
segir Baldur Kristjánsson, oddviti
B-listans.
35,5% kjósenda kusu B-listann
sem fær 2 fulltrúa í sveitarstjórn
og munaði aðeins 4 atkvæðum á
fylgi B- og D-lista. Í kosningunum
1998 hlaut B-listinn á hinn bóginn
rúmlega 22% atkvæða. Baldur
segir að vel hafi verið skipað á
framboðslistann og það hafi fært
framsóknarmönnum þennan góða
sigur.
Aðspurður um viðræður um
meirihluta segir hann að menn
hafi rætt óformlega saman. Þar
sem meirihlutinn í sveitarstjórn
hafi fallið hyggist framsókn-
armenn kanna hug þeirra fram-
boða sem ekki áttu aðild að bæj-
arstjórn síðast.
Stykkishólmur
Rúnar Gíslason D-lista
Hreinn
meirihluti í
áttunda sinn
RÚNAR Gíslason, oddviti D-lista
segist mjög ánægður með úrslitin
enda ekki annað hægt. „Þetta er í
áttunda sinn í röð sem við höldum
hreinum meirihluta. Það þökkum
við samheldni og hversu vel var
staðið að kosningabaráttunni hér.
Hólmarar eru orðnir vanir hrein-
um meirihluta Sjálfstæðismanna
og Óhaðra hér í bæjarstjórn.
Sturla Böðvarsson var bæjarstjóri
hér í 17 ár og þá myndaðist það
traust sem bæjarbúar hafa haft á
þessu framboði síðan,“ segir Rún-
ar.
D-listi bætti heldur við sig fylgi
frá síðustu kosningum, fékk 52,3%
atkvæða í stað 49,5% síðast. Rún-
ar er að hefja sitt þriðja kjör-
tímabil í bæjarstjórn. Hann segir
helstu verkefni næsta kjörtímabils
vera frágangur á götum í gamla
bænum og bygging leikskóla en
leikskóli bæjarins hefur verið í
leiguhúsnæði. „Þetta eru tvö stór-
mál sem unnið verður í á kjör-
tímabilinu, leikskólinn á seinni
hlutanum og göturnar á undan. Að
öðru leyti verður reksturinn með
svipuðu sniði og verið hefur.“
Davíð Sveinsson L-lista
Renndum
nokkuð
blint í sjóinn
VIÐ erum sæmilega sáttir enda
renndum við nokkuð blint í sjóinn
með sameininguna,“ segir Davíð
Sveinsson, oddviti L-lista.
Framsóknarflokkur og Stykk-
ishólmslistinn, sem á sínum tíma
var stofnaður af Alþýðuflokki og
Alþýðubandalagi, buðu í fyrsta sinn
fram sameiginlegan lista undir
merkjum L-listans. Samanlagt fylgi
framboðanna var 50,4% í síðustu
kosningum en 47,7% í kosning-
unum nú. Davíð segir að óneit-
anlega hefði verið betra að vinna,
ekki síst í ljósi þess að lítið vantaði
upp á. Áður hafi munað enn meiru
en smátt og smátt hafi saxast á
forskot D-lista. „Þetta kemur lík-
lega næst,“ segir hann.
Sveinn Kristinsson S-lista
Máluð dökk
mynd af fjár-
hagsstöðunni
„ÉG hefði gjarnan viljað fá fleiri at-
kvæði eins og flestir en ég er sáttur
við niðurstöðuna. Við héldum meiri-
hlutanum, töpuðum að vísu manni
en Sjálfstæðisflokkurinn sótti á
okkur með mjög harðri fjármála-
umræðu. Auðvitað hefur það haft
áhrif,“ segir Sveinn Kristinsson,
oddviti S-lista Samfylkingarinnar á
Akranesi. Hann bendir á að það
hafi verið máluð mjög dökk mynd
af fjárhagsstöðu Akraneskaup-
staðar sem hafi örugglega haft
áhrif á einhverja, en sú mynd sé of-
túlkun á ástandi. „Akraneskaup-
staður stendur mjög vel og er
sterkur fjárhagslega.“
Að sögn Sveins var einnig sótt að
þeim með framboði vinstri grænna
og var vitað að það myndi höggva
inn í raðir Samfylkingarinnar og
gæti jafnvel orðið til þess að Sjálf-
stæðisflokkurinn ynni mann af
þeim af þeim sökum enda var það
niðurstaðan.
Hann segir, aðspurður um fram-
haldið, að verið sé að vinna að mál-
efnasamningi og væntanlega verði
gengið frá honum bráðlega. „Við
reynum að hafa helstu drög klár
fyrir helgina. En við erum ekki
farnir að ræða skiptingu embætta
eða neitt slíkt,“ segir hann og telur
jafnframt að skiptingin verði með
svipuðum hætti og áður.
Gunnar Sigurðsson D-lista
Tími til kom-
inn að hlustað
verði á fólkið
„ÉG er mjög lukkulegur og þakk-
látur fyrir þessi úrslit,“ segir
Gunnar Sigurðsson, oddviti sjálf-
stæðismanna á Akranesi. Hann
segir að það sé kominn tími til að
hlustað verði á fólkið, en segist þó
jafnframt hafa haft það lengi á til-
finningunni að ekki verði hlustað á
niðurstöður kosninganna og engar
breytingar verði á meirihluta-
samstarfi Framsóknarflokks og
Samfylkingarinnar. „En ég er
mjög ánægður með þessa nið-
urstöðu í kosningunum,“ segir
Gunnar.
Akranes
Í NÓGU var að snúast á kosninganótt í Ráðhúsinu. Hér
er verið að fara með kjörkassa frá kjördeildinni í Árbæj-
arskóla til talningar í Ráðhúsinu. Vel er fylgst með öllu
eins og lög gera ráð fyrir.
Morgunblaðið/Sverrir
Atkvæðanna gætt
Finnbogi Rögnvaldsson
L-lista
Nýtt fólk í
öllum efstu
sætum
FINNBOGI Rögnvaldsson, efsti
maður á Borgarbyggðarlistanum –
lista óháðra kjósenda, Samfylking-
arinnar og Vinstrihreyfingarinnar
græns framboðs, segir fylgistap L-
lista ráðast meðal annars af því að
allir menn séu nýir á lista.
„Við fengum óvenju gott gengi
síðast sem skýrist af slæmri stöðu
Framsóknarflokks og Sjálfstæð-
isflokks þá. Síðan komum við ný inn
núna í öllum efstu sætunum og
kannski ekki alveg eins miklar
stjörnur og síðast,“ segir Finnbogi.
Hann telur að umræða um sam-
einingarmál hafi einnig sett strik í
reikninginn. Hann segir L-lista á
leið í viðræður við Sjálfstæðisflokk
um áframhaldandi meirihluta-
samstarf.
Borgarbyggð
Þorvaldur Tómas Jónsson
B-lista
Úrslitin kærð
„Við erum í þeirri sérkennilegu
stöðu að vita ekki hver úrslitin
eru. Það munar einu atkvæði og
vafamál um túlkun á því hvort ut-
ankjörfundaratkvæði hafa verið
gild. Hvort við náum fjórða mann-
inum veltur á því,“ segir Þorvald-
ur Tómas Jónsson, efsti maður á
lista Framsóknarflokks í Borg-
arbyggð. Hann segir flokkinn hafa
unnið töluvert á eftir að hafa verið
í minnihluta.
„Við erum að bæta við okkur
fylgi sem er í sjálfu sér ánægju-
legt. Ef við náum inn fjórða mann-
inum þegar allt kemur til skjal-
anna þá er okkar markmiðum
náð.“
Þorvaldur vill ekki spá um
meirihlutamyndun fyrr en úrslit
verða að fullu kunn.
„Við munum náttúrulega kæra
þetta og síðan tekur meðferð
málsins einhvern tíma. Vonandi
skýrist þetta á örfáum dögum.“
Helga Halldórsdóttir
D-lista
Höfum fundið
fyrir miklum
meðbyr
HELGA Halldórsdóttir, sem skip-
ar fyrsta sæti á lista Sjáfstæð-
isflokks í Borgarbyggð, segir ár-
angur flokksins mun betri en fólk
hafi gert sér vonir um.
„Við höfðum fundið fyrir miklum
meðbyr og áttum von á að ná
þriðja manni inn aftur sem við
töpuðum fyrir fjórum árum. Það
kom okkur verulega á óvart, þetta
mikla fylgi.“
Helga segir það mat sitt að
flokkurinn hafi sett málefni sín
fram á skýran og málefnalegan
hátt sem kjósendur hafi kunnað að
meta.
„Þegar maður horfir yfir listann
þá er þetta mjög sterkur hópur og
fólk sem er jafnvígt.“
Helga segir að áframhaldandi
meirihlutasamstarf D- og L-lista
verði rætt á næstu dögum. Hún
segir að ákvörðun Framsókn-
arflokks um að kæra kosningarnar
setji strik í reikninginn og beðið
verði niðurstöðu úr þeirri kæru.