Morgunblaðið - 28.05.2002, Side 12
25.maí2002
12 B ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Austur-Hérað
Eyþór Elíasson B-lista
Spjótum beint
að Framsókn
EYÞÓR Elíasson, efsti maður á lista
Framsóknarflokks í Austur Héraði,
segir fylgistap B-lista að hluta til
skýrast af því að minnihlutinn hefði
kosið að beina gagnrýni sinni að
Framsóknarflokki en ekki D-lista,
samstarfsaðila í meirihluta.
„Við höfðum gjarna viljað halda
fjórða manninum en það tókst ekki.
Minnihlutinn kaus að beina spjótum
sínum að okkur en ekki samstarfs-
aðilanum. Það er ein skýringin,“
segir Eyþór um kosningaúslitin.
„Við vorum auðvitað í erfiðum
málum á kjörtímabilinu þar sem allir
voru ekki á eitt sáttir. Það var einnig
töluvert útfall af fulltrúum Fram-
sóknar frá síðustu kosningum. Ef-
laust hefur það haft einhver áhrif.“
Eyþór segir að samkvæmt nið-
urstöðum kosninganna haldi meiri-
hlutinn. Á næstu dögum verði hins
vegar skoðað hvaða aðilar séu til-
búnir í samstarf.
„Ég held að það sé ekkert óvenju-
legt að menn skoði hvaða mögu-
leikar séu eðlilegastir miðað við nið-
urstöðuna,“ segir Eyþór.
Haukur Ómarsson D-lista
Mikill munur
kemur á óvart
„NIÐURSTÖÐUR kosninganna
eru mjög mikil vonbrigði,“ segir
Haukur Ómarsson, oddviti Sjálf-
stæðisflokks á Siglufirði. Flokk-
urinn fékk þrjá menn kjörna en
hafði fjóra í síðustu kosningum og
myndaði meirihluta í samstarfi með
Framsóknarflokki. „Við stefndum
að því að halda okkar fjórum mönn-
um, en það tókst ekki, við töpuðum
fylgi og það var sárt.“
Haukur segir niðurstöðuna alls
ekki þá sem hann hafi búist við.
„Við vorum nokkuð bjartsýnir og
höfðum fengið mjög jákvæð við-
brögð í okkar kosningabaráttu og
góðar undirtektir. Okkur fannst
sveiflan frekar vera í átt til okkar
en frá okkur, svo þetta kom eig-
inlega á óvart. Sérstaklega kom á
óvart hvað varð mikill munur á
Samfylkingunni og okkur þegar upp
var staðið.“
Haukur segist ekki getað svarað
því hver skýringin á minnkandi
fylgi Sjálfstæðisflokks í bænum sé.
„Við höfum fundað, farið yfir stöð-
una og reynt að finna einhverjar
skýringar. Þær eru ýmsar en þó
engin sem stendur upp úr.“ Haukur
segir úrslitin því hafa umtalsverðar
breytingar í för með sér. „Sam-
starfið hafði gengið vel en það var
engin skuldbinding um að það
myndi halda áfram, þó að það hefði
ekki verið óeðlilegt. Það má heldur
ekki gleyma því að þeir ná meiri-
hluta með 45% atkvæða svo Sjálf-
stæðisflokkur og Framsókn-
arflokkur eru með meirihluta
atkvæða.
Við erum sátt við okkar kosninga-
baráttu sem okkur fannst heiðarleg.
Við höfðum ekki fengið neina gagn-
rýni á okkur sem við getum sagt að
sé orsökin fyrir fylgistapinu. Það
var einnig lítill munur á stefnu-
málum okkar og Samfylkingar.“
Siglufjörður
Magni Kristjánsson D-lista
Vill stjórn
minnihluta
flokkanna
„VIÐ sjálfstæðismenn erum þokka-
lega sáttir við þessa niðurstöðu,“
segir Magni Kristjánsson, oddviti
Sjálfstæðisflokks í Fjarðabyggð sem
fékk 23,2% atkvæða og tvo menn
kjörna. „Það kom fram nýtt framboð
sem sópaði að sér atkvæðum og við
eins og hinir flokkarnir töpuðum
fylgi þangað. En að við getum haldið
okkar hlut og aukið aðeins við okkur
þrátt fyrir það er sigur út af fyrir
sig.
Ég átti erfitt með að átta mig á
stöðunni fyrirfram. Um er að ræða
þrjá byggðakjarna. En ég skynjaði
það að Fjarðalistinn myndi tapa
miklu.
Mér finnst skilaboðin frá kjós-
endum ákaflega skýr, Fjarðalistinn
tapar miklu fylgi milli kosninga. Það
skýrist fljótlega hvort minni-
hlutaflokkarnir fari saman í stjórn
eða hvort Fjarðalistinn kippir ein-
hverjum yfir til sín. Þetta gæti farið
á báða vegu.
Það er alveg ljóst að ég og minn
flokkur viljum samstarf minni-
hlutaflokkanna, enda værum við að
bregðast kjósendum að okkar mati
ef við myndum ekki gera það.“
Smári Geirsson F-lista
Sameining
sveitarfélaga
vanþakklátt
verk
Í FJARÐABYGGÐ féll meirihluti
Fjarðalistans. Fjarðalistinn missti
15,5% af fylgi sínu, fékk nú rúm
37% og fjóra menn kjörna en hafði
sjö áður. Þess ber þó að geta að
bæjarfulltrúum í Fjarðabyggð var
fækkað úr 11 í 9 í þessum kosn-
ingum.
„Fyrir okkur Fjarðalistafólk er
niðurstaðan vonbrigði,“ segir Smári
Geirsson, fyrsti maður á Fjarðalist-
anum. „Þegar úrslitin eru skoðuð
tel ég að skýringin felist í þrennu. Í
fyrsta lagi að kosningaúrslitin 1998
voru Fjarðalistanum mjög hagstæð
og varla hægt að gera ráð fyrir því
að sá leikur yrði endurtekinn. Í
öðru lagi höfðum við sem meirihluti
í bæjarstjórn unnið að sameiningu
þessara þriggja sveitarfélaga sem
sameinuðust í Fjarðabyggð 1998.
Það verk hefur verið nokkuð snúið
og vanþakklátt, en það var nauðsyn-
legt verk. Í þriðja lagi kemur nú
fram nýtt framboð ungs fólks, Bið-
listinn, og það virðist hafa töluverð
áhrif, einmitt á okkar stöðu því það
verður tiltölulega lítil breyting á
fylgi hinna flokkanna.“
Vinstrimenn hafa haft hreinan
meirihluta í Neskaupstað frá árinu
1946 og alveg til ársins 1998 þegar
Fjarðabyggð verður til, að sögn
Smára. „En hitt er annað mál að ef
þéttbýliskjarnarnir þrír sem mynda
Fjarðabyggð eru teknir, er varla
hægt að telja að hátt í 40% fylgi sé
slæm útkoma, miðað við styrk
vinstrimanna á svæðinu öllu.“ Smári
segir nokkuð víst að fylgi vinstri-
manna sé enn mest í Neskaupstað.
Smári segir að nú sé verið að
skoða meirihlutasamstarf milli
flokkanna. „Viðræður á milli manna
eru hafnar. Við í Fjarðalistanum
munum láta reynsluna leiða í ljós
hver útkoman verður í þeim efn-
um.“
SJÁLFSTÆÐISMENN í Snæfellsbæ voru kampakátir yfir að hafa haldið
meirihluta sínum í bæjarstjórn, fjórum fulltrúum af sjö, þrátt fyrir að hafa
misst einn fulltrúa frá síðustu kosningum. Þá buðu þrír listar fram en tveir
nú. Þeim Ásbirni Óttarssyni, Ólafi Rögnvaldssyni og Jóni Þór Lúðvíkssyni
þótti í öllu falli ástæða til að taka Ólínu Kristinsdóttur í fangið í fögn-
uðinum.
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Kampakát í Snæfellsbæ
Þorbergur Níels Hauksson
B-lista
Nýtt framboð
hefur mikil
áhrif
„NIÐURSTAÐAN er viðunandi fyrir
okkur, þó að við hefðum kosið að fá
meira fylgi,“ segir Þorbergur Níels
Hauksson, efsti maður á lista Fram-
sóknarfélags Fjarðabyggðar sem
fékk tvo menn kjörna. „Það gefur
auga leið að nýja framboðið hefur
mikil áhrif á úrslitin, ef það hefði ekki
komið til hefðum við ef til vill verið
með mun betri stöðu.“
Framsóknarfélagið fékk 22,5% at-
kvæða en Þorbergur segir að vonast
hafi verið eftir 25% fylgi. „Það hefði
verið mjög viðunandi og allt umfram
það gott.“
Þorbergur segir að óformlegar við-
ræður milli flokkanna um meirihluta-
samstarf hafi þegar átt sér stað og
von á formlegri viðræðum í framhald-
inu. „Við erum í sjálfum sér opnir
bæði fyrir því að fara í meirihluta
samstarf með Fjarðalistanum eða
Sjálfstæðisflokki og Biðlista. Nú er
bara að sjá hvaða viðbrögð maður fær
þegar spilin hafa verið lögð á borðið.“
Þorbergur telur ljóst að Sjálfstæð-
isflokkur og Fjarðalisti gangi ekki til
samstarfs, en telur hugsanlegt að
hann gangi til samstarfs við ann-
aðhvort Framsóknarfélagið eða Bið-
listann. „Það er ekki tímabært að
segja hvernig þetta fer. Auðvitað hef
ég mínar skoðanir á því hvað ég vildi
frekar, en við útilokum ekki neitt í
þessum efnum.“
Helgi Seljan Á-lista
Sigur að fella
meirihlutann
HELGI Seljan, oddviti Biðlistans í
Fjarðabyggð, segir mikla ánægju
innan flokksins með niðurstöður
kosninganna, en Biðlistinn fékk einn
mann kjörinn. „Við vorum við það að
ná öðrum manni inn, sem hefði auð-
vitað verið mjög gott, en þetta er
niðurstaðan og við erum sátt við
hana,“ sagði Helgi. „Við náðum að
fella meirihlutann, sem hefur ekki
tekist í áratugi svo það er sigur út af
fyrir sig.
Við renndum svolítið blint í sjóinn
til að byrja með, en svo fundum við
fljótt fyrir því að fólk var engan veg-
inn nógu ánægt með starfandi meiri-
hluta en virtist ánægt með það sem
við höfðum fram að færa. Þessu
fundum við sérstaklega fyrir síðustu
dagana fyrir kosningar.“
Helgi segir að í kosningabarátt-
unni hafi Biðlistinn lagt áherslu á að
eitthvað yrði að gert til að koma í
veg fyrir meiri fólksflótta úr byggð-
arlaginu. „Við vorum ekki að bjóða
upp á neinar einfaldar lausnir við
neinu, en við vildum hins vegar
marka skýra stefnu í atvinnumálum
og öðru í samstarfi við íbúana. Þann-
ig vildum við hugsa öll mál út frá að-
eins nýrri hlið, við settum á oddinn
að vinna að málum í góðu samstarfi
við íbúana, að það væri ekki ein-
göngu níu manna bæjarstjórn sem
tæki allar ákvarðanir.“
Biðlistinn bauð fram í fyrsta skipti
í nýafstöðnum kosningum. Hann
skipar, að sögn Helga, aðallega ungt
fólk úr byggðarlaginu. „Við erum
með ólíkar skoðanir en sameiginleg
markmið. Við höfum haldið þeirri
skoðun okkar á lofti að okkur finnst
flokkapólitík ekki eiga heima í bæj-
arstjórnarmálum, hún þvælist fyrir
og ég held að við höfum nú náð að
sanna okkar mál.“
Meirihlutaviðræður standa nú yfir
í Fjarðabyggð. „Við stefnum á að
komast í meirihluta, en ef það verð-
ur okkar hlutskipti að vera í minni-
hluta munum við vinna að okkar
málum í samræmi við það.“
Snæfellsbær
Ásbjörn Óttarsson D-lista
Fylgi umfram
væntingar
ÁSBJÖRN Óttarsson, sem skipar 1.
sæti á lista Sjálfstæðisflokks í Snæ-
fellsbæ, þakkar sterkri stöðu og öfl-
ugum lista góðan árangur í kosning-
unum. Sjálfstæðisflokkur hélt
hreinum meirihluta, 4 bæj-
arfulltrúum, og bætir töluvert við
sig í fylgi.
„Við mátum stöðuna þannig að
þar sem hinir listarnir fóru saman
gætu úrslitin oltið á mjög litlu,“ seg-
ir Ásbjörn. Hann segir úrslitin vera
vel umfram væntingar. D-listi hafi
vonast eftir rúmlega 50% fylgi en
fengið yfir 60%.
„Staða okkar hefur verið mjög
sterk á síðasta kjörtímabili og við
höfum átt málefni að verja. Þetta er
sama fólkið sem heldur áfram og
hefur unnið gott starf. Ég held að
það sé það fyrst og fremst sem ræð-
ur úrslitum.“
Fjarðabyggð