Morgunblaðið - 28.05.2002, Síða 13
25.maí2002
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2002 B 13
Húsavíkurbær
Friðfinnur Hermannsson
Þ-lista
Niðurstaðan
sár vonbrigði
FRIÐFINNUR Hermannsson, sem
skipaði fyrsta sætið á lista Fram-
sóknar og Sjálfstæðisflokks í Húsa-
víkurbæ, segir niðurstöðu kosning-
anna sár vonbrigði.
„Við gerðum það sem við gátum.
Ég er mjög ánægður með það starf
sem við höfum unnið. Við rákum
mjög faglega, skemmtilega og mál-
efnalega baráttu. Það bara dugði
ekki til,“ segir Friðfinnur.
Hann segist ekki álíta að sam-
starf Framsóknar- og Sjálfstæð-
isflokks hafi sett mark sitt á úrslit-
in.
„Það hefur orðið breyting í bæn-
um og menn hafa farið. Hvort það
hefur frekar verið stuðningsfólk
okkar veit ég ekki.“
Friðfinnur segir samvinnu flokk-
anna hafi gengið vel og hnökralaust
fyrir sig.
„Það er kominn þarna mjög öfl-
ugur og skemmtilegur hópur með
sterkt bakland sem mun nátt-
úrulega halda áfram að vinna sam-
an.“
Sandgerðisbær
Höskuldur Heiðar
Ásgeirsson B-lista
Samkvæmt
markmiðum
HÖSKULDUR Heiðar Ásgeirsson,
1. sæti á lista Framsóknarflokks í
Sandgerðisbæ, segist ánægður með
úrslit kosninganna. Hann segir þau
í samræmi við þau markmið sem B-
listi hafi sett fyrir kosningabarátt-
una.
„Við erum að bæta við okkur
manni og náum að fella sitjandi
meirihluta. Ég get ekki annað en
verið mjög ánægður með úrslitin,“
segir Höskuldur Heiðar.
„Þennan árangur þakka ég góð-
um og samhentum hópi sem hefur
unnið mikla og góða vinnu. Þetta er
nákvæmlega markmiðið sem við
settum okkur.“
Höskuldur segir þreifingar í
gangi varðandi myndun meiri-
hlutastjórnunar. Rætt er um sam-
starf við Sjálfstæðisflokk eða Sand-
gerðislista.
Óskar Gunnarsson K-lista
Fólk vildi
breytingu
ÓSKAR Gunnarsson, efsti maður
lista Óháðra borgara og Samfylk-
ingar í Sandgerðisbæ, segist ekki
kunna neina skýringu á fylgistapi K-
lista. Vilji bæjarbúa hafi einfaldlega
verið annar.
„Málefnastaða okkar virðist vera í
góðu lagi en fólk vildi bara breyt-
ingu. Ég hef ekki heyrt að það hafi
verið nokkuð við málefnalista okkar
að athuga á meðan á kosningabar-
áttunni stóð.“
Óskar nefnir að fjórða framboðið
hafi breytt stöðunni hjá öllum fram-
boðslistum.
„Maður á í raun enga skýringu á
þessu. Það kemur þarna inn fjórða
framboðið og þá er bara meiri dreif-
ing á atkvæðum og fólkið fer ein-
hvers staðar frá.“
Vestmannaeyjar
Guðjón Hjörleifsson D-lista
Framsókn
sigurvegari
GUÐJÓN Hjörleifsson, bæj-
arstjóri í Vestmannaeyjum og
efsti maður á lista sjálfstæð-
ismanna í Eyjum, sagði það auð-
vitað mikil vonbrigði að sjálfstæð-
ismenn skyldu tapa meirihlutanum
í Vestmannaeyjum. Sjálfstæð-
isflokkurinn tapar einum bæj-
arfulltrúa og er meirihluti flokks-
ins þar því fallinn. Guðjón sagði
jafnframt að Framsóknarflokk-
urinn væri sigurvegari í Eyjum
því hann væri í oddastöðu.
„Ég hugsa að ákveðin mál hafi
verið erfiðari en önnur í þessari
kosningabaráttu og það er fyrst
og fremst forræðismál yfir Herj-
ólfi,“ segir Guðjón, spurður um
ástæður fylgistaps D-lista.
„Ég met það þannig nú að bolt-
inn sé hjá Framsóknarflokki sem
skapaði sér oddastöðuna,“ segir
Guðjón.
Lúðvík Bergvinsson V-lista
Úrslitin
stórsigur
LÚÐVÍK Bergvinsson, alþing-
ismaður og efsti maður á Vest-
mannaeyjalistanum, segir að-
spurður um niðurstöður
kosninganna í Vestmannaeyjum að
þær séu vitaskuld stórsigur, þar
sem meirihluti sjálfstæðismanna
til tólf ára hafi verið felldur.
Lúðvík bendir á að Vest-
mannaeyjalistinn hafi boðið fram
ásamt Framsóknarflokknum árið
1998, en í þessum kosningum
hefðu Framsóknarmenn ákveðið
að bjóða fram lista undir eigin
nafni.
„En þrátt fyrir að Framsókn-
arflokkurinn nái inn manni höld-
um við þessum þremur fulltrúum
sem við höfðum. Það er augljóst
að það hlýtur að vera góður sigur
fyrir framboð sem gengur til leiks
á þessum forsendum að halda
sínu,“ segir Lúðvík.
Elín Magnúsdóttir B-lista
Í samræmi við
það sem
stefnt var að
„VIÐ getum ekki verið annað en
sátt. Við ætluðum alltaf að ná
þremur mönnum inn og við náðum
þremur. Niðurstöðurnar eru í sam-
ræmi við það sem stefnt var að,“
segir Elín Magnúsdóttir, oddviti
B-lista framsóknarmanna í sveitar-
félaginu Hornafirði, og bendir á að
Framsóknarflokkurinn sé ennþá
stærsti flokkurinn, en hann fékk
39,80% atkvæða.
Spurð um framhaldið segir hún
að ekkert hafi verið farið út í
meirihlutamyndanir ennþá, en það
gerist á næstu dögum. „Boltinn er
hjá D-listanum, meirihlutinn held-
ur ennþá velli,“ segir hún. Hún
segir að B-listinn hafi lýst því yfir
að hann sé tilbúinn til viðræðna ef
til hans verður leitað. „Við erum
opin fyrir öllu og gengum óbundin
til þessara kosninga, það lá alltaf
fyrir.“
Hornafjörður
Halldóra Bergljót
Jónsdóttir D-lista
Stuðningur
við verkefni
sem listinn
hefur unnið að
„VIÐ erum náttúrlega mjög
ánægð með niðurstöðuna. Við auk-
um við fylgið, vorum með rétt rúm
30% í síðustu kosningum og erum
nú með 38,2%,“ segir Halldóra
Bergljót Jónsdóttir, oddviti D-lista
sjálfstæðismanna í sveitarfélaginu
Hornafirði.
Hún segist, aðspurð hvað hafi
ráðið að listinn bætti við sig þessu
fylgi, ekki þora að segja til um
það en ef til vill sé þetta stuðn-
ingur við þau verkefni, sem listinn
hefur unnið að. „Annars er al-
mennt góð sátt í bæjarstjórninni
og menn hafa unnið vel saman.
Þannig að ágreiningsefnin eru nú
ekki mörg milli bæjarfulltrúa al-
mennt,“ nefnir Halldóra.
Að hennar sögn er verið að
skoða framhaldið og telur hún enn
of snemmt að segja til um það,
ekkert sé í gangi enn sem komið
er. Hún segir listann vera opinn
fyrir öllu, allir flokkar hafi gengið
óbundnir til kosninga og í fram-
haldi af því ræðist menn við og
þreifi fyrir sér áður en þeir boði
til viðræðna um meirihlutamynd-
anir.
Kristín G. Gestsdóttir
H-lista
Skilaboð frá
bæjarfélaginu
til okkar
KRISTÍN G. Gestsdóttir, oddviti
H-lista Kríunnar, samtaka óháðra
og félagshyggjufólks, segist ósátt
við niðurstöður kosninganna enda
hafi fylgi listans minnkað til muna í
þessum kosningum. „Þó svo að
meirihlutinn standi, þá virðist fylgi
hafa flust frá okkur yfir á flokkinn
sem starfaði með okkur. En þetta
eru einhver skilaboð frá bæj-
arfélaginu til okkar og við þurfum
að endurmeta stöðu okkar,“ segir
hún.
Hún segir, aðspurð hvað orsaki
þetta fylgistap, að margt spili inn í.
„Einhver var að segja mér að þetta
væri ef til vill vegna þess að tveir
efstu menn á lista væru aðfluttir.
Það er náttúrlega ekki pólitík en
kannski hefur það eitthvað að
segja,“ nefnir Kristín og bendir
jafnframt á að fyrsti maður á lista
Kríunnar á síðasta kjörtímabili sé
ekki lengur á listanum, en hann
hafi átt gríðarlega mikið persónu-
legt fylgi í bæjarfélaginu.
Að hennar sögn tefldu sjálfstæð-
ismenn fram sínum efsta manni,
starfandi bæjarstjóra, á síðustu
dögunum fyrir kosningar og telur
hún það skýra það mikla fylgi sem
þeir hafi fengið. „Þeir sögðu að
fengju þeir ekki brautargengi í
kosningunum byðu þeir ekki fram
bæjarstjórann sinn.“
Kristín segir framhaldið óljóst og
á ekki von á að listi Kríunnar komi
neitt nálægt meirihlutavinnu, sök-
um mikils fylgistaps. Hún gerir
ekki ráð fyrir því þó svo að listinn
sé kominn í oddaaðstöðu. Hún seg-
ir jafnframt að verði til þeirri leitað
séu þau tilbúin til að skoða alla
möguleika.
Reinhard Reynisson H-lista
Höfum unnið
á réttum
nótum
REINHARD Reynisson, bæj-
arstjóri í Húsavíkurbæ og efsti
maður á Húsavíkurlistanum, segir
niðurstöðu kosninganna skilaboð
um að Húsavíkurlistinn hafi verið
að vinna á réttum nótum.
„Við erum mjög kát með úrslitin.
Við höldum meirihlutanum og ger-
um kannski gott betur. Ég held að
þetta séu skilaboð um að menn hafi
skilið það sem við höfum verið að
gera og ætlum að gera,“ segir
Reinhard.
Hann segir Húsavíkurlistann
hafa gert sér grein fyrir að slag-
urinn yrði harður og lítill munur
yrði á fylkingunum tveimur. Sam-
eiginlegt framboð sjálfstæðismanna
og framsóknarmanna hafi aug-
ljóslega verið sett fram í þeim til-
gangi að freista þess að fella meiri-
hlutann.
Talsverðar breytingar urðu á
Húsavíkurlistanum frá síðustu
sveitastjórnarkosningum og eru
þrír af fimm fulltrúum nýir á lista.
Lárus G. Valdimarsson
S-lista
Íhuga mína
pólitísku stöðu
ÚRSLIT kosninganna á Ísafirði
eru mikið áfall fyrir S-lista Sam-
fylkingarinnar að mati Lárusar G.
Valdimarssonar, oddviti listans.
Hann segist þurfa að íhuga vand-
lega sína pólitísku stöðu í fram-
haldinu og áframhaldandi setu í
bæjarstjórn.
Í síðustu kosningum bauð Sam-
fylkingin fram, ásamt fleirum,
undir merki K-lista, Bæjarmála-
félags Ísafjarðarbæjar. Hlaut list-
inn tæplega 40% atkvæða og fjóra
menn í bæjarstjórn. Vinstrimenn
buðu nú fram þrjá lista, A-lista
Nýs afls, S-lista Samfylking-
arinnar og U-lista Vinstrihreyfing-
arinnar – græns framboðs. „Þetta
eru mikil vonbrigði en við gerðum
okkur grein fyrir að við myndum
tapa manni en við vorum að
reikna með að halda þriðja mann-
inum inni í bæjarstjórn. Það hafði
mátt kalla varnarsigur,“ segir
Lárus. Því sé ekki til að dreifa og
ljóst að listinn hafi goldið afhroð.
Vitað hafi verið að Sjálfstæð-
isflokkur og Samfylkingin myndu
tapa mest á fjölgun framboða í
bænum, flokksmaskínu Sjálfstæð-
isflokksins hefði hins vegar tekist
að verja sig betur. Þá hefðu fram-
sóknarmenn haldið sínu. Það sé þó
ekki rétt að segja að vinstrimenn
hafi beðið mikinn ósigur í Ísa-
fjarðarbæ. Heildaratkvæðamagn
sem féll vinstrimönnum í skaut sé
ekki mikið minna en í síðustu
kosningum, klofningur valdi því
hins vegar að þau nýtast verr og
því tapist tveir menn.
Lárus segist hafa lagt áherslu á
vinnufrið innan bæjarstjórnar. Svo
virðist á hinn bóginn sem margir
kjósendur kunni ekki að meta slík
vinnubrögð. Með 6–3 meirihluta
Sjálfstæðisflokks og Framsóknar
megi búast við auknum deilum
innan bæjarstjórnar.
Ísafjörður
Halldór Halldórsson D-lista
Stuðnings-
yfirlýsing við
meirihlutann
HALLDÓR Halldórsson, bæj-
arstjóri Ísafjarðarbæjar og oddviti
D-lista, segir að úrslit kosninganna
séu stuðningsyfirlýsing við núver-
andi meirihluta Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks sem hafi styrkt
sig í sessi.
Sjálfstæðisflokkur hélt fjórum
bæjarfulltrúum þrátt fyrir tæplega
8% fylgistap og Framsóknarflokk-
urinn bætti við sig öðrum bæjarfull-
trúa þrátt fyrir aðeins 0,2% meira
fylgi en í síðustu kosningum. Hall-
dór segir að fylgistap D-lista komi
ekki óvart. „Ég lagði þetta upp sem
baráttu fyrir því að halda fjórða
manni inni. Ég gerði mér grein fyrir
því þegar við bætast þrír flokkar þá
hlyti það að hafa áhrif,“ segir Hall-
dór en sex framboð voru til bæj-
arstjórnar. Segir Halldór að hart
hafi verið sótt að Sjálfstæðiflokkn-
um í kosningabaráttunni.
Viðræður um áframhaldandi
meirihlutasamstarf við Framsókn-
arflokkinn ganga vel og vonast Hall-
dór til þess að samningar náist.
„Þetta hefur gengið vel og ég ber
mikið traust til framsóknarmanna.“
Halldór segir að mikil áhersla
verði lögð á skóla- og umhverfismál
og atvinnumálin. Þá verði unnið að
því að styrkja Ísafjarðarbæ sem
byggðakjarna.
SEX listar voru í kjöri á Ísafirði við
sveitarstjórnarkosningarnar á laug-
ardag. Þau Jónas Pétursson og Elín
Valgeirsdóttir mættu snemma á
kjörstað og voru meðal þeirra fyrstu
til að greiða atkvæði að þessu sinni.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns
Kosið á Ísafirði