Morgunblaðið - 28.05.2002, Side 15
25.maí2002
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2002 B 15
STEINGRÍMUR J. Sigfússon, for-
maður Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs, sagðist telja að úr-
slit sveitarstjórnarkosninganna væru
á nokkrum stöðum viss vonbrigði fyr-
ir flokkinn. Þrátt fyrir að hann hefði
ekki alls staðar náð settu marki sagð-
ist hann telja að Vinstrihreyfingin
væri sterkari eftir þessar kosningar
en fyrir þær. Flokkurinn hefði þurft
að byggja sig upp frá grunni og kosn-
ingarnar væru liður í því uppbygg-
ingarstarfi.
Steingrímur sagði að sigur Reykja-
víkurlistans væri mjög ánægjulegur.
Vinstri grænir ættu sinn hlutdeild í
þessum glæsilega sigri. Flokkurinn
hefði þarna eignast tvo borgarfull-
trúa og efsti maður listans væri
vinstri grænn.
„Víðar þar sem við erum þátttak-
endur í sameiginlegum framboðum
unnust ánægjulegir sigrar. Ég hlýt
að nefna sögulegan atburð á Húsavík
þar sem Húsavíkurlistinn heldur
hreinum meirihluta gegn sameig-
inlegu hræðsluframboði Sjálfstæð-
isflokks og Framsóknarflokks. Þetta
er því sérlega glæsileg útkoma. Ég
minni á að þessi meirihluti hefur var-
ið þetta bæjarfélag í gegnum gríð-
arleg áföll í atvinnumálum, eins og
gjaldþrot Kaupfélags Þingeyinga og
fleira.
Rótgróinn meiri hluti sjálfstæð-
ismanna í Ólafsfirði féll. Á Siglufirði
vannst sigur en þar og víðar eigum
við okkar stóra hlut í því.
Við sjálfir náðum sumstaðar góð-
um árangri eins og glæsilegur sigur
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs í Skagafirði sýnir þar sem
við fáum rúmlega 20% fylgi og tvo
menn kjörna. Í Grundarfirði fengum
við 16% fylgi. Akureyri skilar okkur
bæjarfulltrúa, en því er ekki að leyna
að þar höfðu menn gert sér vonir um
meira. Það eru viss vonbrigði að það
skyldi ekki skila okkur meiru, en bar-
áttan þróaðist með nokkuð óvæntum
hætti þar sem viðbótarframboð Odds
Halldórssonar náði markverðum ár-
angri. Aðrir flokkar áttu ekki svör við
því. Sérstaklega virðist það hafa bitn-
að á okkur.“
Hársbreidd frá því
að ná inn manni
Steingrímur sagði að um sunnan-
og vestanvert landið hefði U-listinn á
nokkrum stöðum verið hársbreidd
frá því að ná inn manni. Í Kópavogi
hefði U-listann aðeins vantað um
1,5% til að ná inn manni. Þetta væru
vonbrigði. Sama staða
hefði komið upp í Ár-
borg, á Akranesi og Ísa-
firði. Þar hefði litlu
munað að flokkurinn
næði inn manni. Í
Hafnafirði hefðu vinstri
grænir eiginlega aldrei
komist inn í baráttuna
því hún hefði snúist upp
í slag milli tveggja fylk-
inga. Skoðanakannanir
hefðu haft sitt að segja
um að vígstaðan þar
varð mjög erfið.
„Við erum nýr flokk-
ur og erum að byggja
þetta upp frá grunni.
Við erfum enga flokks-
vél, skrár, félagatöl, skipulag, hús eða
annað því um líkt. Við áttuðum okkur
því alveg á því að sveitarstjórn-
arkosningarnar gætu orðið okkur
erfiðar í þeim skilningi að við hefðum
ekki sama bakgrunn til að heygja
þær og hinir rótgrónu flokkar. Það
skilur mikið á milli okkar og Samfylk-
ingarinnar, sem í aðalatriðum erfir
allt skipulag gömlu flokkanna. Við
þurftum því að hefja uppbygging-
arstarf. Í sumum tilfellum vorum við
að stofna flokksfélög, svo seint sem
fyrir nokkrum mán-
uðum.
Þó að það hljómi
mótsagnarkennt þá er
enginn vafi í mínum
huga að við erum
sterkari eftir þessar
kosningar en fyrir þær.
Það hefur myndast
liðssveit sem hefur
þjappað sér saman og
það eru allir staðráðnir
í því að byggja á þess-
um grunni. Ég er því
öðrum þræði bjartsýnn
og vígreifur, en ég er
þó ekkert að leyna því
að útkoman í vissum
tilvikum er ákveðin
vonbrigði.“
Steingrímur sagðist almennt telja
að útkoma flokkanna í þessum kosn-
ingum breytti ekki miklu í vígsstöð-
unni á landsvísu að neinu ráði. Sjálf-
stæðisflokkurinn hefði víða heldur
látið undan síga. Framsóknarflokkur
og Samfylkingin héldu sínu nokkuð
vel og gætu nokkuð vel við unað.
Sjálfstæðisflokkurinn og Vinstri-
hreyfingin hefðu síður ástæðu til að
fagna. Frjálslyndi flokkurinn gæti
einnig vel við unað.
Steingrímur J. Sigfússon formaður Vinstrihreyfingarinnar
Steingrímur J.
Sigfússon
Erum að byggja upp nýjan flokk frá grunni
„ÞETTA er hreint ótrúlegur sig-
ur. Þegar tvær stórar fylkingar
takast á er mikil hætta á að aðrir
klemmist á milli,“ sagði Sverrir
Hermannsson, formaður Frjáls-
lynda flokksins, um úrslitin í
Reykjavík. Hann sagðist afar
ánægður með að F-listinn hefði
náð inn manni í Reykjavík.
„Við unnum í Reykjavík geysi-
lega verðmætan sigur og fáum
þarna viðspyrnu. Ólafur vinnur
þarna persónulegan sigur, en allt
þetta unga fólk sem í fyrirsvari
var vinnur sigur. Ég vil sér-
staklega nefna Margréti, dóttur
mína, en á henni hvíldi hitinn og
þunginn af baráttunni. Hún hefur
fengið þarna verð-
mæta reynslu þegar
hún fer fram í alþing-
iskosningunum að
vori.“
Rignir niður
vitlausum skoð-
anakönnunum
Sverrir sagði að sá
mikli fjáraustur sem
stóru framboðin í
Reykjavík hefðu staðið
fyrir í kosningabarátt-
unni gengi ekki leng-
ur. Ekki síst í ljósi
þess að flokkarnir
vildu síðan ekkert gefa
upp um kostnaðinn
við baráttuna. „Eins
gengur ekki lengur
að menn geti látið
rigna niður vitlaus-
um skoðanakönn-
unum fram á kjör-
dag.“
Frjálslyndi flokk-
urinn stóð ásamt
óháðum að fram-
boðum í þremur
sveitarfélögum, í
Reykjavík, Skaga-
firði og Ísafirði.
Sverrir sagði að það
hefði munað hárs-
breidd að listinn í
Skagafirði næði kjöri, en mark-
miðin hefðu náðst í Reykjavík og á
Ísafirði. F-listinn gæti því vel við
unað.
„Ef litið er á heildarútkomuna
má segja að Samfylkingin hafi
komið bærilega út og vinstri
grænir undarlega illa. Svo blöskr-
ar manni að allt þetta fólk skuli
vera að kjósa Framsóknarflokk-
inn. Hjá Sjálfstæðisflokknum
skyggir útkoman í Reykjavík á
allt annað, en að öðru leyti þarf
hann ekki mikið að barma sér. Í
Reykjavík reiddi flokkurinn svo
hátt til höggs og því er fallið hátt
og þungt og það skyggir á allt
annað,“ sagði Sverrir.
Sverrir Hermannsson formaður Frjálslynda flokksins
Ótrúlegur sigur í Reykjavík
Sverrir
Hermannsson
„ÞETTA er stórkost-
legur sigur í Reykjavík,
en jafnframt hefur
Samfylkingin fest ræt-
ur sínar tryggilega.
Hún kemur fram sem
þroskaður stjórn-
málaflokkur sem er
bersýnilega mjög trú-
verðugur í augum kjós-
enda. Við festum okkur
í sessi sem næststærsti
flokkurinn í landinu,“
sagði Össur Skarphéð-
insson, formaður Sam-
fylkingarinnar um úr-
slit kosninganna.
„Samfylkingin kem-
ur ákaflega sterk út úr
þessum kosningum. Þar sem við
bjóðum fram sér lista erum við að
meðaltali með yfir 30% fylgi. Við
vinnum ótrúlegan kosningasigur í
Hafnarfirði og fara þarf alla leið aft-
ur til ársins 1932 til að finna jafn
stóran sigur. Þetta er mjög glæsi-
legur sigur.
Kórónan á þessari góðu útkomu
okkar er sigurinn í Reykjavík, en þar
lagði Samfylkingin sig mikið fram. Í
mínum hugum er sigur Reykjavíkur-
listans ákaflega sætur vegna þess að
Sjálfstæðisflokkurinn lagði svo mikið
undir. Hann tefldi fram sérstökum
kandídat flokksforyst-
unnar sem lét ryðja
borðið fyrir hann. Það
var ótrúlega miklum
fjármunum eytt í kosn-
ingabaráttu Sjálfstæð-
isflokksins og það er
ekki hægt að segja ann-
að en að hún hafi verið
feikilega vel skipulögð
og hart rekin. Eigi að
síður vinnur Reykja-
víkurlistinn, undir for-
ystu Ingibjargar Sól-
rúnar Gísladóttur,
þennan glæsilega sig-
ur. Ég get ekki sagt
annað en að útkoma
Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavíkurborg standi nærri af-
hroði.“
Össur sagði að útkoma Samfylk-
ingarinnar í einstökum sveit-
arfélögum væri mjög góð. Í Árborg
bætti flokkurinn við sig 14% og fékk
40% fylgi. „Þarna var rekin glæsileg
kosningabarátta og þarna kom fram
nýtt fólk sem ég held að eigi eftir að
láta lengi að sér kveða í stjórn-
málum.
Við fá um 35% fylgi í Reykjanesi
sem er prýðileg útkoma. Við erum
við 30% markið í Kópavogi, um 35%
fylgi á Akranesi. Við vinnum mjög
góðan sigur í Hveragerði og eigum
aðild að því að fella meirihlutan í
Vestmannaeyjum.“
Össur sagði bersýnilegt að Sam-
fylkingin væri í mikilli sókn á Suður-
og Suðvesturlandi. Árangur flokks-
ins á Norðurlandi væri einnig glæsi-
legur. Meirihlutanum á Húsavík
hefði tekist að halda velli. Siglufjarð-
arlistanum hefði tekist að ná meiri-
hluta á Siglufirði, en Samfylkingin
ætti aðild að honum. Sama hefði
gerst á Ólafsfirði þar sem sameign-
legur listi hefði náð hreinum meiri-
hluta.
Össur sagðist telja að Samfylk-
ingin á Akureyri hefði náð að vinna
varnarsigur. Þar hefði verið spáð af-
ar illa fyrir flokknum og honum ekki
einu sinni spáð manni. 14% fylgi væri
því ágæt niðurstaða.
Merkileg pólitísk niðurstaða
í Hafnarfirði
Össur sagðist ekki hafa átt von á
því að Ólafur F. Magnússon næði
kjöri í Reykjavík. Hann sagðist hins
vegar vilja óska honum til hamingju
með árangurinn.
Össur sagði að útkoma Vinstri
grænna í kosningunum kæmi sér
nokkuð á óvart. Hann sagðist hins
vegar ekki vilja fella neina dóma um
hvers vegna niðurstaðan hefði verið
þessi. „Þeir eru með margt gott fólk í
framboði og við erum víða í góðu
samstarfi við þá. Um útkomu VG má
hins vegar segja að menn mega ekki
gleyma því að skoðanakannanir eru
allt annað en niðurstaða kosninga.
Það tekur enginn út sinn kosninga-
sigur fyrirfram,“ sagði Össur.
„Í pólitísku tilliti finnast mér úr-
slitin í Hafnarfirði merkilegust. Ekki
bara fyrir þá sök að Samfylkingin
nær þar hreinum meirihluta, heldur
vegna þess að hin pólitíska barátta
var þar skýrust. Þar var tekist á um
grundvallaratriði í íslenskum stjórn-
málum. Tekist var á um stefnu Sjálf-
stæðisflokksins sem birtist í einka-
framkvæmd við byggingu skóla og
einkavæðingu á kennslu. Við í Sam-
fylkingunni erum algerlega á móti
því að einkavæðing sé innleidd með
þessum hætti. Við viljum beita henni
þar sem hún á við, en hún á ekki við í
félagslegri þjónustu og skólamálum.
Samfylkingin í Hafnarfirði gerði
þetta að kosningamáli og Hafnfirð-
ingar kváðu upp sinn dóm. Þeir höfn-
uðu þessari stefnu og þessari til-
raunastarfsemi sem
Sjálfstæðisflokkurinn stóð fyrir. Ég
tel að það verði til þess að í þeim bæj-
arfélögum þar sem Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur ítök muni hann hika við
að leggja út í svona ævintýri aftur.“
Össur Skarphéðinsson formaður Samfylkingarinnar
Trúverðugt afl í augum kjósenda
Össur
Skarphéðinsson
Siglufjörður
Ólafur Haukur Kárason
S-lista
Sigur vinstri-
manna
Á SIGLUFIRÐI féll meirihluti Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknarflokks.
Siglufjarðarlistinn fékk 5 fulltrúa af
9, eða 46,8% atkvæða. „Þetta er mik-
ill sigur fyrir vinstrimenn og þeirra
hreyfingu,“ segir Ólafur Haukur
Kárason, oddviti Siglufjarðarlistans.
„Við höfum notið þeirrar gæfu að
standa hér saman vinstrimenn og við
höfum nú uppskorið árangurinn eftir
því. Við vinnum einn mann af Sjálf-
stæðisflokknum og að sjálfsögðu eru
það skilaboð fólksins um að óánægja
hafi verið með störf fyrri meirihluta.“
Ólafur segir að Siglufjarðarlistinn
hafi allt eins búist við því fyrirfram
að fella meirihlutann. „Við vorum að
vonast til að þetta gæti farið svona og
það þurfti ekki mikla hreyfingu á
fylgi til að niðurstöðurnar færu á
þennan veg, þ.e. að hér yrði hreinn
meirihluti. Árangurinn þökkum við
samstöðu vinstrimanna í bænum og
svo vorum við með mjög góðan lista
og fína stefnuskrá.“
Ólafur segir að enn sé ekkert farið
að ræða bæjarstjóramál. „Við ætlum
ekki að ana að neinu í þeim efnum,
heldur gefa okkur góðan tíma. Nú er
komin upp ný staða, við þurfum ekki
lengur að leita til annarra, en við för-
um fljótlega að skoða þessi mál.“
Ólafur segir að ekki sé inni í mynd-
inni að bæjarstjórinn verði pólitísk-
ur.
Skarphéðinn Guðmundsson
B-lista
Óútskýranleg-
ar niðurstöður
„VIÐ BJUGGUMST alls ekki við að
missa meirihlutann,“ segir Skarphéð-
inn Guðmundsson, oddviti Fram-
sóknarflokks á Siglufirði sem hélt
einum manni, en var í meirihluta-
samstarfi við Sjálfstæðisflokk á síð-
asta kjörtímabili. „Við höfum verið að
vinna vel saman þetta kjörtímabil,
framsóknarmenn og sjálfstæðismenn
og mjög margt hefur áunnist, en það
var langt frá því að við reiknuðum
með að missa meirihlutann.“
Skarphéðinn segist ekki geta
ímyndað sér hvað orðið hafi til þess
að meirihlutinn var felldur. „Það er
óútskýranlegt og alveg ótrúlegt. Ég
held að fólk hafi almennt ekki áttað
sig á því að þetta myndi koma upp í
stöðunni. Þetta kom okkur virkilega á
óvart á kosningakvöldinu þegar úr-
slitin fóru að skýrast. Auðvitað gat
þetta gerst og ég varaði við því í
minni kosningabaráttu.“
Skarphéðinn segir framsókn-
armenn á Siglufirði svekkta. „Ég
held að þetta hafi verið afskaplega
slæmt fyrir bæinn. Í kosningabarátt-
unni fannst mér frekar vera straum-
ur í átt til okkar en frá okkur. Við er-
um að tapa innan við 1% atkvæða en
Sjálfstæðisflokkurinn missir mann. Í
því felast vonbrigðin, að missa meiri-
hlutann. Það hefði verið í lagi ef mað-
urinn hefði farið yfir til okkar, þá
hefði meirihlutinn haldist óbreyttur.“
Frá Siglufirði.