Morgunblaðið - 28.05.2002, Page 16
SJÖFN Þórðardóttir á kosningaskrifstofu sjálfstæð-
ismanna á Seltjarnarnesi leysti þá út með blómum á
kosningavökunni, þá Sigurgeir Sigurðsson, fráfarandi
bæjarstjóra, og Jónmund Guðmarsson sem leiddi lista
flokksins og tekur nú við af Sigurgeiri eftir áratugasetu
hans við stjórnvölinn á Nesinu.
Morgunblaðið/Jón Svavarssson
Bæjarstjóraskipti á Seltjarnarnesi
25.maí2002
16 B ÞRIÐJUDAGUR 28. MAÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
„ÞEGAR litið er á
heildina er ég mjög
sáttur við niðurstöð-
una. Við vinnum víða
á og bætum okkar
stöðu. Á nokkrum
stöðum er hún lakari,
en mér finnst Fram-
sóknarflokkurinn í
heild sinni koma
ágætlega út úr þess-
um kosningum,“
sagði Halldór Ás-
grímsson, formaður
Framsóknarflokksins,
um niðurstöðu sveit-
arstjórnarkosning-
anna.
Halldór sagði sér-
staklega ánægjulegt að Fram-
sóknarflokkur skyldi vera að
bæta stöðu sína í nokkrum
sveitarfélögum á höfðuborg-
arsvæðinu. Það benti til þess að
flokkurinn væri í sókn á því
svæði.
Framsóknarflokkurinn bætti
við sig fylgi í Kópavogi, Garða-
bæ, Borgarbyggð, Akranesi,
Ísafirði, Seyðisfirði, Hornafirði,
Árborg, Hveragerði og Þorláks-
höfn, svo nokkur af stærri
sveitarfélögum landsins séu
nefnd.
Mikill sigur í Reykjavík
„Niðurstaðan í Reykjavík er í
samræmi við skoðanakannanir
að undanförnu. Þetta er mikill
sigur fyrir þá flokka sem að
Reykjavíkurlistanum standa en
sérstaklega er þetta þó per-
sónulegur sigur Ingibjargar
Sólrúnar Gísladóttur borg-
arstjóra. Það er enginn vafi á
því að hún á mikinn heiður af
þessari nið-
urstöðu.“
Halldór var
spurður um álit á
útkomu Sjálfstæð-
isflokksins í
Reykjavík.
„Þrátt fyrir að
Sjálfstæðisflokk-
urinn hafi lagt gíf-
urlega mikið undir
hefur þetta ekki
borið mikinn ár-
angur. Ég held að
þeir geti fyrst og
fremst kennt því
um að það var
verulegt hringl hjá
þeim í sambandi
við forystuna í Reykjavík. Þeim
tókst aldrei að vinna þann
skaða upp,“ sagði Halldór.
Fylgi VG ofmetið
í skoðanakönnunum
Halldór sagði að þegar horft
væri til landsins alls væri fróð-
legt að skoða útkomuna á
vinstri væng stjórnmálanna.
„Mér finnst athyglisverðasta
niðurstaðan vera að sameining-
arferli Samfylkingarinnar hefur
tekist á allmörgum stöðum en
Vinstri grænir eru nánast ekki
á blaði. Það sýnir að mínu mati
verulega skekkju í þeim skoð-
anakönnunum sem hafa á síð-
ustu misserum sýnt mikið fylgi
hjá þeim. Það kemur annað í
ljós þegar þeir fara að stilla
upp listum á viðkomandi svæð-
um eða stöðum. Ég geti ekki
ráðið annað af þessu en að fylgi
Vinstri grænna sem ofmetið í
skoðanakönnunum á landsvísu,“
sagði Halldór.
Halldór Ásgrímsson
formaður Framsóknarflokksins
Halldór
Ásgrímsson
Er nokkuð sáttur
við útkomu Fram-
sóknarflokksins
,,SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
kemur ágætlega út úr kosning-
unum á landsvísu,“ segir Davíð
Oddsson, forsætisráðherra og for-
maður Sjálfstæðisflokksins. Davíð
bendir á að Sjálfstæðisflokkurinn
haldi sínu fylgi á heildina litið og
fái víða mjög góða kosningu, að
Reykjavík frátalinni en þar hafi
klofningsframboð valdið því að
flokkurinn fái aðeins lakari út-
komu.
,,Öfugt við það sem hefði mátt
ætla af umræðunum á kosn-
inganótt, hefur flokkurinn staðið
þetta mjög vel af sér og fengið
sums staðar mjög fína útkomu,
síðan eru staðbundnar skýringar á
öðru,“ segir Davíð.
R-listi vann varnarsigur
en ekki stórsigur
Davíð sagði að sér fyndist ein-
kennilegt að menn skuli lýsa því
sem sigri að R-listinn hefði tapað
einu prósentustigi í höfuðborginni.
Hann hafi kannski unnið varn-
arsigur en ekki neinn stórsigur.
Davíð benti á að Sjálfstæð-
isflokkurinn væri að vinna sigra
enn á ný í ýmsum sveitarfélögum
þar sem hann hefði sigrað í und-
anfarandi kosningum og náð góð-
um árangri, s.s. á Seltjarnarnesi, í
Garðabæ, Bessastaðahreppi, Snæ-
fellsbæ og Vesturbyggð. Sjálfstæð-
ismönnum hefði
einnig gengið vel á
Ísafirði og ágætlega
á Akureyri, því þótt
flokkurinn hafi tap-
að þar einum manni
þá bæri að hafa í
huga að sjálfstæð-
ismenn hefðu fengið
sérstaklega góða út-
komu á Akureyri í
seinustu kosningum.
Sjálfstæðismönnum
hefði einnig gengið
ágætlega í kosning-
unum á Héraði, í
Höfn í Hornafirði,
og í sveitarfélögum í
Rangárvallasýslu en
fengið lakari útkomu í Árnessýslu
og Vestmannaeyjum en á því væru
ýmsar skýringar, m.a. staðbundn-
ar.
Glæsileg úrslit í Mosfellsbæ
og Reykjanesbæ
,,Svo erum við með mjög glæsi-
lega kosningu og mikla sveiflu í
Mosfellsbæ, þar sem fylgið fer úr
því að vera undir 40% og yfir 50%.
Hið sama gerðist í Keflavík, mjög
glæsilega. Við fengum einnig góða
kosningu í Hafnarfirði þó að meiri-
hlutinn þar héldi ekki vegna þró-
unar sem varð innbyrðis á milli
annarra flokka. Þetta hefur því
verið mjög ánægjulegt
og ég er afskaplega
þakklátur öllu þessu
fólki sem hefur unnið
svona vel og óska því til
hamingju,“ segir Davíð.
Áfall fyrir borgina
Aðspurður hvort
hann liti á úrslitin í
Reykjavík sem áfall
fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn, sagði Davíð að
menn hafi séð fyrir af
könnunum að und-
anförnu hvert stefndi.
,,Mér finnst það áfall
fyrir borgina. Þetta eru
auðvitað pólitísk von-
brigði fyrir Sjálfstæðisflokkinn en
þetta er áfall fyrir borgina sér-
staklega vegna þess að hin efn-
islegu og málefnalegu rök voru
augljóslega til staðar hjá borg-
arfulltrúum Sjálfstæðisfokksins og
frambjóðendum hans en málefni
voru þæfð og kæfð hinum megin,“
segir Davíð.
Hann segir að kosningabarátta
Reykjavíkurlistans hafi snúist upp
í algjöra persónukosningu, ,,með
hræðsluáróðri um að viðkomandi
væri að detta út úr borgarstjórn-
inni,“ segir hann. ,,Og mér fannst
þetta því miður halda áfram eftir
kosningarnar. Mér fannst sig-
urvegarinn ekki vera mjög stór í
sigri sínum er hann hélt áfram að
vera með köpuryrði í garð and-
stæðinganna, þótt kosningunum
væri lokið. Það er miður að þannig
skyldi haldið áfram.“
Að sögn Davíðs hefur engin
breyting orðið á skipun borg-
arstjórnar frá því sem var síðustu
mánuðina fyrir kosningarnar. Ólaf-
ur F. Magnússon hafi fyrir nokkru
yfirgefið Sjálfstæðisflokkinn sem
var eftir það með sex borgarfull-
trúa, þ.e. sama fjölda og hann hef-
ur nú, og R-listinn með átta full-
trúa eins og áður.
Ekki leikur vafi á því að mati
Davíðs að Ólafur F. Magnússon
hafi tekið fylgi frá Sjálfstæð-
isflokknum í borginni. ,,Ólafur hef-
ur verið borgarfulltrúi og vara-
borgarfulltrúi fyrir
Sjálfstæðisflokkinn í ein 16 ár og
við hljótum að gera ráð fyrir því
að hann hafi átt sinn hlut sem
frambjóðandi í stöðu flokksins síð-
ast. Hann fær ekkert nema þann
hlut og tekur það frá okkur.“
Telur Björn hafa vaxið mjög
af verkum sínum
Davíð var spurður hvort hann
teldi að Björn Bjarnason myndi
leiða borgarstjórnarflokk sjálf-
stæðismanna næstu fjögur árin.
,,Hann hefur talað um það. Hann
setti ekki kjósendum stólinn fyrir
dyrnar og hótaði að fara og sinna
ekki borgarmálum ef hann fengi
ekki það sem hann vildi. Þvert á
móti sagðist hann myndu vinna í
þeim málum. Mér finnst hann hafa
vaxið af verkum sínum. Hann var
heilsteyptur maður fyrir en mér
finnst hann hafa vaxið mjög af
þessum verkum sínum. Þó menn
séu að reyna að koma á hann
höggi núna eftirá í kjaftadálkum,
þá gengur það ekki upp,“ svaraði
Davíð.
Segir menn vanmeta
styrk Vinstri grænna
Davíð var að lokum spurður
álits á afleiðingum kosningaúrslit-
anna á stjórnmálin í landinu og
stöðu flokkanna. ,,Ég tel að Sam-
fylkingin komi ekki vel frá þessum
kosningum, þótt menn séu að
reyna að tala það upp. Eftir sjö
ára samstarf halda stjórnarflokk-
arnir alveg sínu en Samfylkingin
nær engum árangri. Mælingin á
Vinstri grænum er ekki rétt,“ seg-
ir Davíð og bendir á að allt aðrar
forsendur séu til staðar þegar
gengið er til Alþingiskosninga en í
núverandi kerfi sveitarstjórna.
,,Menn eru að ofmeta veikleika
Vinstri grænna. Þeir munu verða
öflugri í kosningunum,“ segir Dav-
íð.
Davíð Oddsson forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins
Ánægður með árangur flokksins á landsvísu
Davíð
Oddsson
SIGURGEIR Sigurðsson, bæj-
arstjóri Seltjarnarneskaupstaðar,
lætur senn af störfum hjá sveitarfé-
laginu, en hann hefur verið bæj-
arstjóri á Seltjarnarnesi í rúmlega
37 ár og í hreppsnefnd í rúmlega 40
ár.
Hjónin Sigurgeir Sigurðsson og
Sigríður Gyða Sigurðardóttir tóku
þátt í sveitarstjórnarkosningunum
um helgina og greiddu atkvæði í
Valhúsaskóla. „Ætli ég hafi ekki
hugsað að nú væri farsælum ferli að
ljúka og tími kominn til að snúa sér
að öðru,“ sagði Sigurgeir spurður
hvað hefði farið um hugann við
þetta tækifæri.
Sigurgeir tók sæti í hreppsnefnd
á vegum Sjálfstæðisflokksins í maí
1962 og varð bæjarstjóri í janúar
1965. Hann segir að fyrir fjórum ár-
um hafi hann tekið þá ákvörðun að
hætta núna en óvíst sé hvað taki
við. Hann hafi verið á vaktinni í 40
ár og ljóst að hann fari loks á frí-
vaktina og sinni áhugamálunum
frekar en launuðu starfi. „Mér
finnst að ég eigi rétt á því,“ segir
Sigurgeir og bætir við að nóg verði
að gera í sumarbústað þeirra hjóna.
Fyrsti fundur nýrrar bæj-
arstjórnar verður 12. júní og þá
verður ákveðið hvenær nýr bæj-
arstjóri tekur við, en Sigurgeir ger-
ir ráð fyrir að hætta í lok næsta
mánaðar.
Sigurgeir fer á frívaktina
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bæjarstjórahjónin Sigurgeir Sigurðsson
og Sigríður Gyða Sigurðardóttir greiða
atkvæði í Valhúsaskóla á laugardag.