Morgunblaðið - 25.06.2002, Síða 12

Morgunblaðið - 25.06.2002, Síða 12
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 12 ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ BREYTING verður á fyrir- komulagi sorphreinsunar í Kópavogi á næsta ári, nái til- lögur framkvæmdadeildar bæjarins fram að ganga. Er lagt til að sorp frá heimilum verði hirt með tíu daga milli- bili í stað sjö frá og með 1. apr- íl 2003. Þá er lagt til að bærinn hætti að hirða sorp frá fyrir- tækjum og stofnunum í bæn- um frá næstu áramótum og þeim bent á að snúa sér til einkafyrirtækja með sorp- hirðumál. Í bréfi framkvæmdadeild- arinnar, sem lagt var fram í bæjarráði í síðustu viku, kem- ur fram að samningur við Gámakó, sem hefur annast sorphirðu fyrir bæinn síðast- liðin fimm ár, rann út 1. maí síðastliðinn og fyrirtækið sagði honum formlega upp. Í dag er heimilissorp hreinsað vikulega eða 52 sinnum og er lagt til að það verði óbreytt fram til 1. apríl árið 2003 en þá verði tekin upp sorphreinsun með tíu daga millibili sem ger- ir 39 hreinsanir á ári. Í greinargerð með tillögun- um er bent á að í nágranna- sveitarfélögunum Garðabæ, Seltjarnarnesi, Hafnarfirði og Mosfellsbæ sé hreinsað eftir slíku tíu daga kerfi og hafi það gefist vel. „Ljóst er að fækkun á hreinsunum mun valda ein- hverri óánægju meðal íbúa til að byrja með, en miðað við reynslu nágrannasveitarfélag- anna eru íbúar sáttir í dag.“ Segir að þessi breyting muni leiða til betri nýtingar íláta á fámennari heimilum og auka flokkun frá heimilum. Í einhverjum tilfellum muni íbúar kjósa að kaupa auka- tunnu en samkvæmt reynslu nágrannasveitarfélaganna verði sú fjölgun óveruleg. Bæjarstofnunum verði skylt að flokka sorp Þá er lagt til að hætt verði að hreinsa sorp frá fyrirtækj- um og stofnunum í bænum um næstu áramót og þeim beint til þeirra aðila sem sinna þessari þjónustu á almennum markaði en fyrirtækin hafi hingað til átt kost á að kaupa þessa þjón- ustu af bænum. Að auki verði stofnunum á vegum Kópavogs gert skylt að flokka sorp. Í greinargerðinni kemur fram að í dag hreinsi Kópa- vogur aðeins frá hluta fyrir- tækja og stofnana í bænum. Segir að við það að hætta þjónustu við fyrirtæki verði frekar litið á sorphreinsun sem hluta af rekstri þeirra. „Eins og sorphreinsun er háttað hjá Kópavogsbæ er ekki fjárhagslegur ávinningur fyrir fyrirtæki af að flokka sorp en eftir breytinguna bjóðast fleiri valkostir og hag- kvæmara verður fyrir fyrir- tæki og stofnanir að minnka sorpmagn og flokka.“ Þá kemur fram að við sam- anburð á gjaldskrá Kópavogs og fyrirtækja, sem veita þessa þjónustu, komi í ljós að gjald- skrá Kópavogs sé mun lægri „og er því hægt að fullyrða að Kópavogsbær niðurgreiðir þessa þjónustu til þeirra fyr- irtækja og stofnana sem hann hreinsar hjá,“ segir í greinar- gerðinni. Bæjarráð frestaði af- greiðslu málsins til næsta fundar, sem haldinn verður í byrjun júlí. Tillögur um breytt fyrirkomulag sorphirðu lagðar fram í bæjarráði Sorp verði hreinsað á tíu daga fresti Kópavogur ÞAÐ vantar ekki stórhug í íbúana við Jörfabakka 2–16 því að árlega efnir hús- félagið þar til ólympíuleika í garðinum hjá sér. Er þar keppt í ýmsum íþrótta- greinum en ólíkt öðrum ól- ympíuleikum enda þeir jafnan á því að allir sem keppa fá verðlaunapening og viðurkenningarskjal. Ólympíuleikar Jörfa- bakka voru að þessu sinni haldnir síðastliðinn laug- ardag í blíðskaparveðri. Að sögn Guðmundar Ólafs- sonar, gjaldkera húsfélags- ins, er þetta ellefta árið sem leikarnir eru haldnir. „Þetta er bundið við Jörfa- bakkann en aðrir krakkar úr nágrenninu koma svo- sem líka. Þetta hefur oft vakið stormandi lukku.“ Guðmundur bætir því við að að þessu sinni hafi mæt- ingin verið sérlega góð enda hafi veðurguðirnir verið íbúunum hliðhollir. Á leikunum nú var keppt í hefðbundnum íþrótta- greinum á borð við sprett- hlaup og langstökk, sem og öðrum óhefðbundnari eins og pokahlaupi. Þá var hoppkastali á svæðinu og fleiri leiktæki til að hafa ofan af fyrir yngstu þátt- takendunum. Að lokinni keppninni var svo grillað í boði Jörfabakka þannig að íbúar gátu horfið saddir og ánægðir heim að leikunum loknum. Morgunblaðið/Jim Smart Einbeitingin skín úr andliti þessa keppanda þegar hann reynir að koma boltanum í dekk sem liggur á jörðinni í dágóðri fjarlægð frá honum. Krakkarnir í Jörfabakka og vinir þeirra úr hverfinu kunna vel að meta Ólympíu- leikanana og hið sama má segja um fullorðna fólkið í blokkinni. Ólympíuleikar í ellefta sinn Breiðholt LÍF og fjör var á sum- arhátíð krakkanna á leik- skólanum Sólborg sem haldin var í Nauthólsvík á dögunum í glimrandi góðu veðri. Leikskólinn er stað- settur í Suðurhlíðunum og var gengið fylktu liði yfir Öskjuhlíðina og niður í víkina þar sem börnin sungu og síðan léku smáir og háir sér í góða veðrinu. Foreldrafélag Sólborgar afhenti leikskólanum um- ferðaröryggisvesti að gjöf sem sjálfsagt á eftir að koma að góðum notum á vetri komandi. Morgunblaðið/Jim Smart Kátir krakkar á sumarhátíð Sólborgar Suðurhlíðar RÚMLEGA 90 fleiri hafa sótt um vinnu hjáVinnuskóla Mos- fellsbæjar í ár en á sama tíma í fyrra. Um 200 manns starfa því hjá vinnuskólanum í sumar sem ætlaður er nemendum 8., 9. og 10. bekkjar grunnskóla. Að sögn Eddu R. Davíðs- dóttur tómstundafulltrúa er aukningin mest hjá eldri nem- endum sem margir voru í ann- arri vinnu í fyrrasumar. Þá var skortur á starfsfólki hjá skól- anum en í ár fá allir vinnu sem sækja um. Bæjarráð samþykkti á dög- unum beiðni um aukafjárveit- ingu vegna ráðningar á fjórum flokksstjórum til viðbótar við þá átta sem fyrir eru. Edda segist aðspurð álíta að næg verkefni séu fyrir hendi í sumar handa svo stórum hópi. Krakkarnir vinna bæði á golf- völlunum og hesthúsasvæðinu og þá eru 8. bekkingar í skóg- ræktarvinnu í Helgadal. Fjölmargar umsóknir hjá Vinnu- skólanum Mosfellsbær ♦ ♦ ♦ FISKBÚÐIN Vör við Höfða- bakka hefur tekið upp á þeirri nýjung að bjóða viðskiptavin- um sínum upp á svokallaða „gleðipinna“ – fiskpinna á grillið með allrahanda fisktegundum á borð við keilu, rauð- sprettu og steinbít. Að sögn Eiríks A. Auðuns- sonar, annars rekstraraðila verslunarinnar, er fiskurinn marineraður í ólíkum sósu- tegundum og honum síðan raðað upp á „gleðipinnana“. Hann segir skemmtilegt til þess að hugsa að keilan skuli vera jafn vinsæl og raun ber vitni þar sem hún sé vannýtt- ur fiskur sem venjulega sé saltaður og fluttur út. Með þessu hafi sala á keilu hins vegar tífaldast í versluninni á stuttum tíma. Gleðipinnar á grillið Ártúnshöfði

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.