Morgunblaðið - 25.06.2002, Page 16
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
16 ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÍSLAND er, ásamt Finnlandi, efst
Norðurlandanna í mælingu á efna-
hagslegu frjálsræði sem unnin hef-
ur verið á vegum Fraser-stofnun-
arinnar í Kanada, Cato-
stofnunarinnar í Bandaríkjunum
og neti 54 óháðra stofnana í öðrum
löndum. Þeirra á meðal er Hag-
fræðistofnun Háskóla Íslands sem
er tengiliður þessa verkefnis hér á
landi.
Ísland er í 11. sæti á listanum
með 7,7 stig og hefur þar með
hækkað um sjö sæti á milli áranna
1995 og 2000, en það var í 18. sæti
árið 1995. Að meðaltali heldur
frjálsræði í efnahagsmálum áfram
að aukast í heiminum. Fyrir árið
2000 er meðaltalið 6,39, en var 5,99
fimm árum áður. Frjálsræðið fór
minnkandi á áttunda áratug síð-
ustu aldar og var komið niður í
5,32 árið 1980, en hefur farið vax-
andi síðan.
123 löndum raðað á mælikvarða
efnahagslegs frjálsræðis
Þessar upplýsingar koma fram í
ársskýrslu Fraser-stofnunarinnar,
sem ber heitið Frjálsræði í efna-
hagsmálum heimsins og kemur nú
út í sjötta sinn. Fyrsta skýrslan
var gefin út árið 1996 eftir tíu ára
rannsóknir sem rúmlega 100
fræðimenn komu að, meðal annars
nokkrir nóbelsverðlaunahafar. Í
nýjustu skýrslunni er 123 löndum
raðað eftir frjálsræði í efnahags-
málum og er litið til 37 atriða sem
könnuð hafa verið frá árinu 1970. Í
tilkynningu frá Hagfræðistofnun
segir að frjálsræði byggist á vali
einstaklinga, frjálsum viðskiptum,
samkeppnisfrelsi og verndun ein-
staklinga og eigna. Þetta krefjist
laga, séreignarréttar, takmarkana
opinberra afskipta, frelsis til við-
skipta og heilbrigðs peningakerfis.
Litið til fleiri þátta nú en áður
Í tilkynningunni segir einnig að
í þessari skýrslu sé tekið tillit til
fleiri þátta við útreikninga á stiga-
fjölda en áður hafi verið gert. Þar
muni mestu um að nú hafi verið
bætt við þáttum sem taka tilllit til
frjálsræðis á vinnumarkaði auk
frelsis til að hefja atvinnurekstur.
Auk þess hafi mælikvarðar á frelsi
varðandi uppbyggingu dómskerfis
og öryggis séreignarréttar annars
vegar og frelsi til að eiga viðskipti
við útlönd hins vegar verið end-
urbættir.
Samkvæmt skýrslunni eru þeir
þættir sem valda bættri stöðu Ís-
lands einkum aukið sjálfstæði
dómskerfisins og öryggi séreign-
arréttar, lægri jaðarskattar, minni
lagalegar hömlur á viðskipti við
útlönd, aukið eignarhald almenn-
ings á bönkum, aukin samkeppni
innlendra banka við erlenda, minni
miðstýring kjarasamninga, minni
áhrif atvinnuleysisbóta og aukið
frjálsræði að því er varðar stofnun
nýrra fyrirtækja. Staða Íslands
hefur versnað með tilliti til nokk-
urra þátta. Þeir eru einkum aukin
umsvif hins opinbera, aukinn vöxt-
ur peningamagns, meiri verðbólga,
aukinn breytileiki tollahlutfalla á
milli vörutegunda, aukin hætta á
neikvæðum raunvöxtum og aukin
áhrif lágmarkslauna á markaðs-
laun.
Hong Kong áfram í efsta sæti
Hong Kong er í efsta sæti
listans nú eins og áður með 8,8
stig af 10 mögulegum. Næst kem-
ur Singapúr með 8,6 stig og
Bandaríkin með 8,5 stig. Bretland
er með 8,4 stig, Nýja Sjáland 8,2
og Sviss með sömu einkunn.
Næstu ríki eru Írland, Ástralía,
Kanada og Holland, en Ísland og
Finnland eru saman í 11. sæti eins
og áður segir. 13. sæti verma Dan-
mörk og Lúxemborg, þá kemur
Austurríki, Belgía, Chile og
Þýskaland. Af öðrum löndum má
nefna Svíþjóð í 19. sæti, Noreg og
Spán í 24. sæti, Taívan í 30. sæti,
Ítalíu í 35. sæti, Frakkland í 38.
sæti og Grikkland í 45. sæti. Meðal
neðstu landa má nefna Alþýðulýð-
veldið Kína í 101. sæti og Rússland
í 116. sæti, en neðsta sætið hlýtur
Alþýðulýðveldið Kongó. Í tilkynn-
ingu Hagfræðistofnunar er hins
vegar bent á að fyrir fjölda landa
séu ekki tiltæk gögn en þar kunni
frjálsræði í efnahagsmálum að
vera minna, til dæmis í Norður-
Kóreu og á Kúbu.
G8-ríkin efli frjálsræði
í efnahagsmálum heimsins
Í tilkynningu Hagfræðistofnun-
ar kemur fram að í tilefni af fundi
átta stærstu iðnríkja heims, G8-
ríkjanna, sem hefjist á morgun í
Kanada, segi nóbelsverðlaunahaf-
arnir Milton Friedman og Gary
Becker að sé G8-ríkjunum alvara í
því að berjast gegn fátækt í heim-
inum og hryðjuverkum þurfi þau
að efla frjálsræði í efnahagsmálum
heimsins. Þá er haft eftir Michael
Walker, forstöðumanni Fraser-
stofnunarinnar, sem ásamt Milton
Friedman er upphafsmaður að
þessum mælingum á frjálsræði í
heiminum, að aukið frjálsræði í
heiminum hafi leitt til aukinnar
velmegunar, minni fátæktar og
verulegrar minnkunar ójafnaðar,
eins og margar rannsóknir hafi
sýnt.
Í tikynningu Hagfræðistofnunar
segir að í rannsóknum hafi verið
leitast við að svara spurningunni
um hvort auður leiði af sér frjáls-
ræði í efnahagsmálum eða hvort
frjálsræðið leiði af sér auð og hag-
vöxt. Þessar rannsóknir hafi sýnt
að frjálsræði í efnahagsmálum
leiði af sér betri efnahagslega
stöðu. Viðvarandi fátækt í Afríku
sé ekki til komin vegna skorts á
erlendri aðstoð, þjóðir Afríku fái
mjög mikla erlenda aðstoð, heldur
vegna skorts á frjálsræði í efna-
hagsmálum í heimsálfunni.
Í tilkynningunni kemur einnig
fram að hjá þeim þjóðum sem séu
meðal 20% efstu hvað stigafjölda
varðar séu meðaltekjur á mann
23.450 Bandaríkjadalir og hag-
vöxtur að meðaltali 2,6% á ári. Til
samanburðar séu meðaltekjur á
mann 2.560 Bandaríkjadalir og
hagvöxtur neikvæður um 0,9% að
jafnaði á ári hjá þeim þjóðum sem
séu meðal lægstu 20% á listanum.
Ný skýrsla Fraser-stofnunarinnar um frjálsræði í efnahagsmálum heimsins
Ísland hækkar úr 18. í 11. sæti
Hong Kong er enn í toppsætinu. Ekk-
ert Norðurlandanna ofar en Ísland
VALGERÐUR Sverrisdóttir við-
skiptaráðherra segir að ráðuneyt-
ið hafi vísbendingar um að athuga-
semdir yrðu gerðar við það ef
Íslendingar settu sérreglu inn í
lög þess efnis að hver hluthafi í
viðskiptabanka gæti ekki farið
með meira en 5% atkvæða en
þannig er málum háttað í spari-
sjóðunum.
Í 37. grein laga um viðskipta-
banka og sparisjóði segir m.a.: „Í
samþykktum sparisjóðs sem
breytt hefur verið í hlutafélag
samkvæmt ákvæðum þessarar
greinar skal kveðið á um atkvæð-
isrétt sem fylgir hlutum í spari-
sjóðnum og um meðferð hans.
Einstökum hluthöfum er aldrei
heimilt, fyrir sjálfs sín hönd eða
annarra, að fara með meira en 5%
af heildaratkvæðamagni í spari-
sjóði. Í samþykktum er þó heimilt
að kveða á um að sjálfseignar-
stofnun skv. 37. gr. B geti farið
með meira en 5% af heildarat-
kvæðamagni í sparisjóði.“
Valgerður segir að líklegt sé að
athugasemdir yrðu gerðar af hálfu
Evrópusambandsins eða EFTA
við slíka sérreglu sem myndi
hindra frjálsa för fjármagns ef
settar yrðu hömlur á hámarksat-
kvæðavægi í viðskiptabanka. „Við
höfum vísbendingar um að slíkt
gæti gerst. Í Noregi eru takmörk
við 10% og við vitum að Eftirlits-
stofnun EFTA [ESA] hefur haft
þessar takmarkanir Norðmanna
til skoðunar í nokkuð langan tíma.
ESA hefur gefið út þá skoðun að
þetta ákvæði Norðmanna brjóti í
bága við EES-samninginn.
Norska fjármálaráðuneytið hefur
núna ákveðið að leggja til að þess-
ar takmarkanir verði afnumdar
frekar en að málið fari fyrir
EFTA-dómstólinn,“ segir Val-
gerður.
Hún segir að athugasemdir hafi
hins vegar ekki verið gerðar af
hálfu Evrópusambandsins eða
EFTA við takmarkanir á at-
kvæðavægi í sparisjóðum. „Í
sparisjóðum í ESB-löndum eru
sparisjóðir hlutafélög og þar eru
þessi ákvæði án þess að gerðar
séu athugasemdir við það. Það
kemur til af því að sparisjóðir eru
annars eðlis en viðskiptabankar
almennt. Sparisjóðir eru yfirleitt
litlir og staðbundnar fjármála-
stofnanir sem leggja mesta
áherslu á heimili og lítil og meðal-
stór fyrirtæki. Það eru mestar lík-
ur á að það sé ástæða þess að ekki
eru gerðar við þetta athugasemd-
ir.“
Lækkun á markaðsverði
Nú stendur fyrir dyrum hluta-
fjárvæðing SPRON og ljóst er að
þetta lagaákvæði hafði áhrif til
lækkunar á því markaðsverði sem
SPRON var metinn á af Deloitte
& Touche. Þess má geta að Delo-
itte & Touche mat markaðsverð
SPRON 4,2 milljarða króna og er
það allt að 20% lægra en ef áð-
urnefnd ákvæði væru ekki fyrir
hendi. Markaðsverðið hefði þá
verið metið á 5,2–5,3 milljarða
samkvæmt því.
Guðmundur Hauksson, spari-
sjóðsstjóri SPRON, segir að þetta
ákvæði geti að sjálfsögðu átt við
um banka. „Spurningin er hvað
eigandinn vill gera og það er undir
löggjafanum komið hvaða mark-
miðum hann vill ná fram í einka-
væðingu. Þá er hægt að setja
ákvæði af þessum toga í sam-
þykktir. Ég hygg að það sé eðli-
legt að láta almennar reglur um
hlutafélög gilda um viðskiptabank-
ana að svo miklu leyti sem við
verður komið. Ef ríkissjóður sem
eigandi hefði viljað ná fram mark-
miðum um dreifða eignaraðild
með hliðstæðum hætti og gert er í
tilfelli sparisjóðanna hefði honum
að sjálfsögðu verið í lófa lagið að
haga framkvæmdinni með þeim
hætti. Að mínu mati hefði þá þurft
að huga að því strax því að það er
erfitt að víkja frá upphaflegu fyr-
irkomulagi eftir að lagt er af stað.
Það er þó alveg ljóst að takmark-
anir af þessum toga hafa áhrif á
markaðsverð hlutabréfa. Af þess-
um ástæðum var áætlað markaðs-
verð SPRON lækkað til að koma
til móts við þessi sjónarmið,“ segir
Guðmundur.
Hver hluthafi í sparisjóði má mest fara með 5% atkvæða
Athugasemdir ef
5% hámark væri
í viðskiptabanka
Á MORGUN verður
undirritaður fríversl-
unarsamningur á
milli EFTA og
Singapúr. Af þessu
tilefni hélt Verslun-
arráð Íslands, í sam-
vinnu við utanríkis-
ráðuneytið, kynn-
ingarfund í gær um
fríverslunarsamn-
inga EFTA. William
Rossier, fram-
kvæmdastjóri
EFTA, sagði samn-
inginn við Singapúr
lið í því að EFTA
vildi tryggja að
minnsta kosti jafngóðan aðgang
fyrirtækja innan EFTA að mörk-
uðum og fyrirtæki innan Evrópu-
sambandsins hefðu. Rossier sagði
að samningurinn við Singapúr væri
19. fríverslunarsamningur EFTA
og fleiri væru í burðarliðnum. Með-
al annars væri unnið að undirbún-
ingi á samningi við Japan og Suð-
ur-Kóreu.
Bee Kim, deildarstjóri í við-
skipta- og iðnaðarráðuneyti Singa-
púr, hefur unnið að samningnum
milli EFTA og Singapúr fyrir hönd
Singapúr og kallaði hún samning-
inn ESFTA. Hún sagði gerð slíkra
samninga tiltölulega nýlega í
Singapúr, en auk þess samnings
sem nú lægi fyrir til undirritunar
hefði verið gerður samningur við
Japan og Nýja-Sjáland. Sagði hún
reynsluna af þeim góða og viðskipti
við Nýja-Sjáland hefðu til að
mynda aukist um 10% eftir gerð
samningsins. Sagðist hún binda
miklar vonir við ESFTA-samning-
inn og þó að ekki væri um stórar
viðskiptablokkir að ræða væri hann
mikilvæg tenging á
milli Evrópu og Suð-
austur-Asíu og gæti
opnað dyr fyrir enn
frekari viðskipti.
Ole Lundby, aðal-
samningamaður Nor-
egs hjá EFTA, ræddi
um eðli fríverslunar-
samninga EFTA og
sagði þá ganga lengra
en samningur Alþjóða-
viðskiptastofnunarinn-
ar, WTO, gerði. Frí-
verslunarsamningar
væru í eðli sínu til þess
fallnir að mismuna, en
slíkt væri þó leyft innan
ramma WTO-samningsins, enda
væri um algera niðurfellingu tolla
að ræða. Meðaltal tolla á iðnaðar-
vörur væri hins vegar 3–4% innan
WTO. Talið væri jákvætt að lönd
gengju með þessum hætti lengra
og ryddu þannig brautina fyrir enn
frekari fríverslun. Samningarnir
mættu þó ekki fela í sér vernd-
arstefnu gagnvart öðrum ríkjum.
Lundby sagði ákveðna erfiðleika
hafa komið upp varðandi reglur um
uppruna vara í sambandi við samn-
inginn við Singapúr, því svo mikið
af þeim vörum sem lögð væri loka-
hönd á í Singapúr væri í raun að
stórum hluta framleiðsla frá nálæg-
um landsvæðum. Þetta vandamál
hefði þó tekist að leysa á endanum.
Lundby sagði menn oft líta frek-
ar til möguleika á útflutningi en
innflutningi þegar fríverslunar-
samningar væru gerðir, en hann
taldi að þetta væri á misskilningi
byggt. Ekki væri síður þýðingar-
mikið að fá ódýrar vörur frá Singa-
púr en að eiga aukna möguleika á
útflutningi þangað.
Fríverslunarsamn-
ingur milli EFTA
og Singapúr
Bee Kim
NORSKA sjávarútvegsráðuneytið
mun að öllum líkindum gefa út leyfi
til útflutnings á hvalkjöti til Íslands,
hið fyrsta í 14 ár. Eftir að hvalveiðar
hófust að nýju í Noregi árið 1993 hef-
ur krafa hvalveiðimanna um að hefja
útflutning verið endurtekin árlega,
að því er fram kemur á fréttavef Da-
gens Næringsliv.
Í byrjun síðasta árs aflétti norska
ríkið banni við útflutningi á hvalkjöti
en hingað til hefur útflutningurinn
ekki orðið að veruleika. Japanir eru
stærstu kaupendur hvalkjöts en út-
flutningur þangað er enn ekki haf-
inn.
Norskir hvalveiðimenn eru
ánægðir með áhuga Íslendinga á að
kaupa hvalkjöt sem og líklegt sam-
þykki norskra yfirvalda. „Þetta er
stór dagur. Að endurvekja hvalkjöts-
útflutning er stórt skref í átt að því
að koma hvalveiðum í eðlilegt horf,“
segir Ole Mindor Myklebust, hval-
veiðimaður og verðandi hvalkjötsút-
flytjandi.
Norskt hval-
kjöt til Íslands