Morgunblaðið - 25.06.2002, Page 34

Morgunblaðið - 25.06.2002, Page 34
MINNINGAR 34 ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Sigríður BílddalFreymóðsson fæddist á Siglufirði 27. febrúar 1930. Hún lést á Villa Bella, hjúkrunar- heimili fyrir Alz- heimer-sjúklinga í Santa Barbara, Kali- forníu, 3. mars síð- astliðinn. Foreldrar Sigríðar voru hjónin Eugenia Guðmunds- dóttir Bílddal (f. 16. mars 1904, d. 6. apríl 1967) og Gunnar Gunnlaugsson Bíld- dal (f. 4. ágúst 1902, d. 20. apríl 1980), kaupmaður á Siglufirði og síðar verkstjóri hjá Pípugerð Reykjavíkurborgar. Eugenia var dóttir Lovísu (f. 20. maí 1878, d. 2. desember 1940) Grímsdóttur læknis og bónda á Minni-Reykjum í Flókadal og Guðmundar (f. 31. mars 1871, d. 13. júlí 1950) b. á Laugalandi í Fljótum, Ásmunds- sonar , Eiríkssonar bónda í Nes- koti í Flókadal. Gunnar var sonur Valgerðar (f. 3. apríl 1877, d. 7.okt. 1952) Sigurðardóttur b. á Þóru- stöðum í Kaupangssveit Eyjafirði og Gunnlaugs Daníelssonar (f. 20 júlí 1868, d. 12. júlí 1952) b. í Svarf- aðardal. Fósturfaðir Gunnars var Guðmundur Bílddal (f. 1. janúar 1857, d. 22. maí 1946) kennari og síldarmatsmaður á Siglufirði. Systkini Sigríðar eru Jóna Ríkey Bílddal (f. 11. ágúst 1926, d. 11. mars 1994), Valgerður G. Bílddal (f. 21. júní 1928), Guðmundur (f. 9. júlí 1931, d. sama ár), Lovísa B. Ru- esch (f. 15. desember 1935) og Katrín Bílddal (f. 21. febrúar 1938) Eftirlifandi eiginmaður Sigríðar er Bragi Freymóðsson, f. 27. febr- úar 1920, rafmagnsverkfræðingur 1985), James Mixen Danley (f. 8. september 1987) og Sarah Sigrid Danley (f. 26. október 1989). Sigríður ólst upp ásamt systrum sínum í foreldrahúsum á Siglu- firði. Hún lauk gagnfræðaprófi frá Héraðsskólanum í Reykholti 1947 og útskrifaðist frá Hjúkrunarskóla Íslands 1953. Eftir útskrift hóf hún störf á Fjórðungssjúkrahúsi Akur- eyrar. Sigríður fór til framhalds- náms við Presbyterian St. Luke Hospital í Chicago 1955–56 ásamt Sigríði Jóhannsdóttur vinkonu sinni en þangað fóru þær á vegum American Scandinavian Founda- tion. Hún lagði stund á sálfræði og félagsfræði um tíma við háskóla bæði í Kaliforníu og í Indiana ásamt því að sækja margvíslega endur- og símenntun í grein sinni þ.á m. í barnahjúkrun. Sigríður var alla tíð meðlimur í Félagi ís- lenskra hjúkrunarfræðinga. Árið 1990 var hún heiðruð með því að vera skráð í Who’s who in Americ- an nursing. Hún starfaði í samtök- um foreldra og kennara í Riviera School í Torrance í Kaliforníu í mörg ár og var virkur félagi í ýms- um samtökum vestan hafs og lagði þar m.a. mikla áherslu á að kynna íslenskar bókmenntir. Hún var í eðli sínu náttúruverndandi og dýravinur og var virkur meðlimur í The Audubon Society og The Sierra Club. Um tíma var hún fulltrúi Íslands í bandaríska Rauða krossinum, hún var öflugur stuðningsmaður í Félagi Íslendinga í Suður-Kali- forníu og The American Scand- inavian Foundation. Sigríður mat mikils að geta komið fram í ís- lenska þjóðbúningnum fyrir hönd Íslands við margvísleg tækifæri, og þá ekki síst við setningarhátíð Ólympíuleikanna 1984 í Los Ang- eles í hópi 25 stoltra kvenna. Minningarathöfn um Sigríði fór fram í Santa Barbara 8. apríl sl. en útför hennar verður gerð í dag frá Fossvogskirkju og hefst athöfnin klukkan 13.30. og fv. varaforseti Magnavox Govern- ment and Industrial Electronics Company. Þau gengu í hjóna- band 31. desember 1955. Bjuggu þau fyrstu fimm hjúskap- arárin í Chicago. Eftir það áttu þau heimili í Kaliforníu og Indiana allt til ársins 1993 að þau settust að í Santa Barbara til að vera í nálægð við dóttur sína, tengdason og barnabörn. Heimili þeirra var alla tíð rómað fyrir smekkvísi, gestrisni og rausnar- skap og voru þau þekkt að frænd- rækni og tryggð við vini sína og þá Íslendinga er að garði bar. Móðir Braga var Steinunn Mar- grét (f. 31. janúar 1894, d. 9. sept- ember 1982) Jónsdóttir Guðjóns- sonar bónda á Ytra-Kálfskinni, Árskógsströnd, kona Jóns og móð- ir Steinunnar var Arndís Sigvalda- dóttir. Faðir Braga var Freymóð- ur Jóhannsson listmálari og lagahöfundur. Steinunn og Frey- móður skildu. Systkini Braga eru Árdís Jóna Freymóðsdóttir (f. 25. júlí 1922), Fríða Freymóðsdóttir (f. 23. janúar 1925) og Heimir (f. 30. nóvember 1929, d. 25. janúar 1930). Hálfsystkini Braga sam- feðra eru Stefán Heimir Frey- móðsson (f. 1. mars 1948, d. 31. ágúst 1968) og Berglind Frey- móðsdóttir (f. 17. október 1951) Sigríður og Bragi eignuðust tvö börn, þau Baldur Arnar (f. 28. júlí 1956, d. 9. júní 1979) og Steinunni Freyju Danley (f. 15. janúar 1958) BSc í félagsfræði. Steinunn er gift Michael Danley og eru börn þeirra Stephen Bragi Danley (f. 27. júlí Þótt þú langförull legðir sérhvert land undir fót, bera hugur og hjarta samt þíns heimalands mót. (Steph. G. Steph.) Elsku Sigga mín. Þú hefur ætíð verið mikla ljósið í mínu lífi – vitinn sem brann. Nú ertu horfin frá mér. Sál þín er komin til himnaríkis; í nærveru Guðs, ásamt syni okkar Baldri og foreldrum þínum Eugeniu og Gunnari. Þegar ég horfi um öxl og hugsa um hjónabandsferil okkar rifjast upp margt sem er mér minnisstætt. Ég minnist þess að þegar ég var túlkur fyrir breska herliðið á Siglu- firði sumarið 1940 tók ég eftir tíu ára stúlku sem bjó í næsta húsi við bækistöð Bretanna. Hún var hrædd við hermennina og leyndi því ekki og leit hornauga þennan Íslending sem hafði gengið í lið með innrásarmönn- unum. Þegar við hittumst í Chicago snemma árs 1955, þar sem þú stund- aðir framhaldsnám í hjúkrun við Presbyterian St. Luke sjúkrahúsið ásamt vinkonu þinni og bekkjarsyst- ur Sigríði Jóhannsdóttur, kom í ljós að þú varst tíu ára stúlkan frá Siglu- firði 1940. Því var ekki að leyna að í fyrstu athugaðir þú mig með nokkr- um fyrirvara en þegar í ljós kom að við áttum sama afmælisdag – 27. febrúar – var eins og örlögin hefðu hér hönd í bagga. Hugarfar þitt breyttist og í árslok 1955 gengum við í heilagt hjónaband sem var far- sælt í nærri hálfa öld. Ég minnist þess að sem móðir barna okkar, Baldurs og Steinunn- ar, sýndir þú einstaka umhyggju þegar þú varst að ala þau upp, fyrst í Chicago og síðar í Kaliforníu og In- diana. Allir þeir sem umgengust okkur voru einróma um hve prúð börnin væru í allri framkomu sinni og hversu snyrtilega þau væru ein- att klædd og það sem var meira virði, hve mikla aðgætni þú sýndir við að varðveita heilsu þeirra. Þessi umhyggjusemi var endur- tekin þegar barnabörnin okkar komu í heiminn. Þá fór öll þín orka í að aðstoða dóttur okkar Steinunni við að ala upp börn hennar. Margar voru flugferðirnar milli Fort Wayne í Indiana og Santa Barbara í Kali- forníu sem þú fórst á þessum árum. Ég minnist þess að enda þótt hlut- verk þitt sem móður sæti ætíð í fyr- irrúmi sinntir þú hjúkrun og hjúkr- unarmálum eins lengi og heilsa þín leyfði. Þú starfaðir um nokkurn tíma hjá „The Little Company of Mary Hospital“ í Kaliforníu við góð- an orðstír. Eftir það sóttir þú end- urhæfingarnámskeið og stóðst við- eigandi próf til að halda réttindum þínum sem „Registered Nurse (RN)“. Mér er sérstaklega minnisstæð þrautseigja þín þegar þú stóðst strembið endurhæfingarpróf með ágætum enda þótt önnur hönd þín væri í fatla vegna beinbrots. Árið 1990 varstu heiðruð með því að vera skráð í „Who’s who in Am- erican nursing“. Það var viðurkenn- ing sem þú mast mikils. Hjúkrunar- mál á Íslandi voru þér ætíð hugleikin. Þú varst meðlimur í Fé- lagi íslenskra hjúkrunarfræðinga alla þína ævi. Einnig hélst þú traust- um tengslum við bekkjarsystur þín- ar sem útskrifuðust frá Hjúkrunar- skóla Íslands 1953. Góð vinkona þín og bekkjarsystir, Sigríður Jóhanns- dóttir, fv. skólastjóri Hjúkrunar- skóla Íslands, var tíður milligöngu- liður, því hún kom við og við til Bandaríkjanna og heimsótti okkur þá oftast. Þá minnist ég þess að í einni heimsókn okkar til Íslands vorum við gestir á heimili Hjördísar Briem, bekkjarsystur þinnar frá Hjúkrunarskólanum. Þar voru mættar allar bekkjarsystur þínar með mökum sínum. Þetta var rausn- arlegt gleðisamkvæmi, haldið þér til heiðurs. Ég minnist þess að hárfínn smekkur þinn með listræna blænum setti sinn sérstaka svip á sambúð okkar. Á heimili okkar í Kaliforníu og Indiana tókst þér að sjá um að réttir hlutir væru ætíð á réttum stað. Hvort sem um var að ræða út- saum þinn, borðbúnað, blóma- skreytingar eða val á forngripum og listmunum voru merki smekkvísi þinnar í augsýn. Alla ævi sýndir þú mikinn næmleika fyrir dýralífi, nátt- úrunni og umhverfinu. Þegar fugl var á flugi greindir þú á augnabliki hvaða tegund var um að ræða. Svan- urinn var sá fugl sem þú hafðir mestar mætur á. Hann prýddi alltaf heimili okkar á einn veg eða annan. Kisa – síamski heimiliskötturinn okkar – hafði sálartengsl við þig sem unun var að skynja. Áhugi þinn á bókmenntum og hljómlist var smit- andi. Eitt sinn er við vorum stödd í Pet- oski, í norðurhluta Michigan-ríkis- ins í Bandaríkjunum, hafðir þú upp á götunni, húsinu og herberginu þar sem Ernest Hemingway ritaði „Vopnin kvödd“ (A Farewell to Arms). Hjálpsemi var þér í blóð borin. Hjálparhönd þín var ætíð til reiðu öllum í fjölskyldunni. Hún teygði sig einnig til nágranna og vina, til að- stoðar við verk sem þörf var á að vinna, eða til ráðlegginga varðandi heilsugæslu og mataræði. Það er því ekki að undra að þeir sem umgeng- ust þig segðu oft að frá þér geislaði innri og ytri fegurð. Ég minnist þess að þegar við misstum Baldur son okkar skyndi- lega, 23 ára að aldri, voruð þið Stein- unn dóttir okkar máttarstólparnir í fjölskyldunni. Þetta lagðist sérstak- lega þungt á mig, vegna þess að mér varð þá ljóst að ég hafði glatað tæki- færi til að móta eins farsælt jafn- vægi milli föðurhyggju og starfs og ég hafði óskað. Þá kom skýrt í ljós jákvæða eðlið sem ætíð hefur búið í þér – að styrkja fremur en að álasa – að kveikja á kertum í stað þess að amast yfir myrkrinu. Ég minnist þess að þrátt fyrir nærri hálfrar aldar dvöl í Vestur- heimi var Íslendingurinn í þér ætíð glaðvakandi. Þú notaðir hvert tæki- færi sem gafst til að halda nafni Ís- lands á loft hvort sem það var með fyrirlestrum á félagsfundum eða í samtölum við einstaklinga. Þar fjall- aðir þú um sögu þjóðarinnar, bók- menntir, listir og þjóðarhag. Þú varst ötul við að styðja Íslendinga- félagið í Suður-Kaliforníu og Amer- ican Scandinavian Foundation þeg- ar íslensk málefni voru á dagskrá. Engir voru þér meiri aufúsugestir en Íslendingar; ættingjar, vinir eða aðrir sem staddir voru á okkar slóð- um. Þá er mér sérstaklega minnis- stætt hve stolt þú varst þegar þú mættir í íslenskum þjóðbúningi sem einn af fulltrúum Íslands við setn- ingarathöfnina á Ólympíuleikunum í Los Angeles árið 1984. Ég minnist þess hve sárt það var fyrir dóttur okkar Steinunni, systur mína Árdísi og mig að horfa á þig vanmáttuga í klónum á alzheimer- sjúkdómnum á Villa Bella sjúkra- heimilinu í Santa Barbara. Þú barð- ist á móti eins og kraftar þínir leyfðu, en ekkert dugði, og engin lyf gátu bætt meinið. Jafnt og þétt rændi alzheimer-sjúkdómurinn frá þér hæfileikanum til að tjá þig. Fyrst lamaðist minnið. Þar næst glataðist fallega rithöndin þín. Þá hvarf tak þitt á enskri tungu sem þú hafðir rækt með ágætum. Síðasta virkið sem féll var íslenska tungan þín sem þú hafðir haldið ómengaðri þrátt fyrir nærri hálfrar aldar fjar- veru frá Íslandi. En eitt gat alzheim- er-sjúkdómurinn ekki tekið frá þér – það var brosið þitt ljúfa. Það hvarf aldrei. Þegar hún brosti blítt til mín breiddist ljómi um andlit og hár þó var ei hulið augnasýn að skuggi sveif yfir sál sem bar sár en brosið mótaði ljúfa mynd, ljósa mynd sem geymist ár eftir ár hún var, hún er, hún verður ætíð stúlkan mín sem brosti í gegnum tárin. (J. B. F.) Nú ert þú alkomin heim, eftir 47 ára útivist, til að aska þín megi leggjast í þá mold sem þér er helg- ust. Í Guðs friði. Þinn ætíð Bragi. Elskuleg systir mín, hún Sigga, er látin. Við systurnar vorum fimm og ólumst við upp á Siglufirði hjá ást- ríkum foreldrum okkar þeim Euge- níu og Gunnari Bílddal. Einn bróður áttum við sem dó á fyrsta ári. Elst okkar var Jóna Ríkey sem lést árið 1994, næst er svo Valgerður, sú er þetta ritar, Sigríður sem við kveðj- um nú í dag, Lovísa og Katrín. Æskuárin liðu alltof fljótt við glens og grín, störf og leik. Við Sigga deildum alltaf herbergi sam- an. Árið 1947 fluttu foreldrar okkar til Sauðárkróks og þaðan aftur um haustið 1949 til Reykjavíkur ásamt föðurömmu okkar. Sigga fór þá að vinna á vöggustofu Thorvaldsen við Langholtsveg eða þangað til hún hóf nám í Hjúkrunarskólanum í upphafi árs 1951. Að námi loknu vann hún á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri en fór síðan til framhaldsnáms til Chicago ásamt Sirrý vinkonu sinni. Þær sigldu með Helgafellinu og tók ferðin níu daga. Sigga kynntist fljótlega Braga Freymóðssyni og giftu þau sig 30. desember 1955. Þau eignuðust tvö börn, Baldur Arnar, sem er látinn, og Steinunni Freyju sem sjálf á nú þrjú börn. Sigga mín, það var alltaf svo mikil eftirvænting þegar þú varst að koma heim til landsins sem þú þráð- ir svo mikið, þá var nú gaman. Aldr- ei get ég fullþakkað þér öll gæðin þín og gjafir eða öll fínu fötin sem þú sendir börnunum mínum þegar þau voru lítil og efnin voru minni. Eða hve vel þið Bragi tókuð á móti okkur Halla þegar við komum að heim- sækja ykkur. Hve natin þið voruð við að sýna okkur umhverfi ykkar og keyra með okkur út og suður. Það var líka svo gaman þegar við ferð- uðumst saman um Ísland. Þú varst alltaf svo hress og sást það góða í öllum. Það var svo sárt hvernig alzheimer-sjúkdómurinn tók hugsun þína sem alltaf hafði ver- ið svo virk og ljúf. Síðast þegar þú komst heim sum- arið 1998 varstu orðin veik og gast lítið tjáð hug þinn, en þó stundum. Við ferðuðumst þá norður á Akur- eyri og í fjörðinn okkar kæra, Siglu- fjörð. Þegar við vorum komin í gegnum Strákagöngin reistir þú þig upp í sætinu og sagðir: ,,Þetta er sko bærinn minn.“ Við löbbuðum um bæinn og skoðuðum bernskuslóðir okkar. Þú hittir gamla skólabræður þína og varst svo glöð að tala við þá. Nú er Bragi kominn heim með öskuna þína svo þú getir hvílt í ís- lenskri mold eins og þú vildir, hjá Baldri þínum og foreldrum okkar. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Bragi minn, þakka þér hvað þú hugsaðir alltaf vel um Siggu mína. Guð veri með þér, systir góð. Valgerður. Fallega rósin okkar hefur lagt saman blöðin sín, en opnar aftur krónu sína á móti eilífðarljósinu á æðra tilverustigi, þar sem áður gengnir ástvinir, sonur, foreldrar, systir og nánir ættingjar og vinir breiða út faðminn og bjóða hana vel- komna. Mágkona mín, Sigga, eins og hún var ávallt kölluð, hefur lokið jarðvist sinni og er nú laus úr höftum hins óvægna sjúkdóms alzheimers, sem fór um hana ómjúkum höndum. Sigga og Bragi kynntust í Chi- cago í Bandaríkjunum og bjuggu þau vestan hafs öll sín hjúskaparár. Fyrst í Chicago, síðan fluttu þau til Kaliforníu, þar sem þau bjuggu í Hollywood Riviera, sem er suður af Los Angeles. Síðar fluttu þau, vegna vinnu Braga, til Fort Wayne í Indi- ana, komu síðan aftur til Kaliforníu og áttu þá heima í Palos Verdes, sem er einnig suður af Los Angeles. Aftur fóru þau til Indiana, þar til Bragi lauk sínum starfsferli, en þá fluttu þau til Santa Barbara í Kali- forníu, en þar hafði Steinunn dóttir þeirra sest að eftir sitt háskólanám. Við mamma bjuggum skammt frá heimili þeirra í Kaliforníu, enda mikill samgangur. Á heimili þeirra var alltaf gest- kvæmt, hvort sem litið var inn að ís- lenskum sið eða heimboð, Siggu til mikils sóma. Hún hafði mikla ánægju af og kunni að taka á móti gestum, enda vinsæl með afbrigðum og sérlega skemmtileg. Henni var svo margt til lista lagt, hún gat gert hvað sem hún vildi. Eitt sinn er við mamma vorum staddar uppi í húsi, en það kölluðum við heimili þeirra, hafði Sigga séð til- kynningu í blöðunum um keppni í borðskreytingum. „Það væri gaman að taka þátt í þessu,“ sagði hún. Við hvöttum hana til þátttöku, enda hæfileiki fyrir hendi. Sigga tilkynnti þátttöku og nú hófst undirbúning- urinn, hún átti matar- og kaffistell sem á voru málaðar baldursbrár. Ákvað hún að nota það. Að hennar áliti myndu flestir leggja á borð fyr- ir kvöld- eða hádegisverð, svo hún ákvað að leggja á borð fyrir morg- unverð. Sigga valdi hvítan borðdúk, teiknaði og saumaði baldursbrár í hornin og einnig í munnþurrkurnar, síðan bjó hún til hettu yfir brauð- ristina og gerði sömuleiðis baldurs- brár á hana og þetta var ljómandi fallegt. Keppnin stóð yfir helgi. Laugardagsmorguninn var aðeins fyrir dómnefndina að sinna sínum störfum. Um kvöldið að minni vinnu lokinni fórum við mamma að skoða, þetta var stór salur með um eða yfir 60 borðum, það var gaman að sjá hvað smekkur manna er misjafn. Við fundum borð Siggu, á því var við- urkenningarborði, sem á stóð önnur verðlaun. Fyrstu verðlaun hlaut þekkt fornmunaverslun, Castens La Tienda, sem Sigga og fleiri höfðu miklar mætur á. Við flýttum okkur upp í hús til að samgleðjast Siggu með þennan góða árangur af mikilli vinnu. Hún var að vonum ánægð og ákvað að vera með að ári liðnu. Nú hafði hún meiri tíma til undirbún- ings. Að ári liðnu fórum við mamma að skoða keppnina, sem mér fannst ennþá betri en sú fyrri. Við sáum gamalt sérkennilegt borð eða elsk- hugasæti með kringlóttum borðum á báðum endum, en sófinn var eins og S í laginu, sá endi sem við komum fyrst að var með borða sem á stóð SIGRÍÐUR BÍLDDAL FREYMÓÐSSON

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.