Morgunblaðið - 25.06.2002, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 25.06.2002, Qupperneq 39
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚNÍ 2002 39 FARIÐ verður í kvöldgöngu í Við- ey þriðjudaginn 25. júní. Viðeyj- arferja flytur þátttakendur til eyj- unnar kl. 19.30 og hefst gangan hjá Viðeyjarkirkju. Gengið verður meðfram túngarði Skúla Magnússonar og að norður- strönd Viðeyjar. Þaðan verður haldið á slóðir Jóns Arasonar bisk- ups, á þann stað sem hann háði baráttu gegn Dönum fyrir því að endurreisa kaþólskt klaustur frá 13. öld sem hafði verið lagt niður við siðskiptin. Endar ferðin við rústir klaustursins, sem fannst við fornleifauppgröft, og saga þess sögð í stuttu máli. Áætlað er að ferðin taki rúmlega klukkutíma. Eins og alltaf er fólk beðið um að klæða sig eftir veðri og nauðsyn- legt er að vera í góðum skóm, segir í fréttatilkynningu. Ekkert gjald er tekið fyrir leið- sögnina, en hins vegar er ferjutoll- ur, 500 kr. fyrir fullorðna og 250 kr. fyrir börn. Kvöldganga um Viðey ORKUVEITAN efnir til göngu- og fræðsluferðar í Elliðaárdal undir leiðsögn Guðmundar Halldórsson- ar skordýrafræðings og Odds Sig- urðssonar jarðfræðings í kvöld, þriðjudagskvöldið 25. júní, kl. 19.30. Gengið verður um mismun- andi gróðurlendi dalsins og hugað að þeim smádýrum sem þar búa. Þátttakendur eru hvattir til að hafa með sér stækkunargler. Bókin Dulin veröld – smádýr á Íslandi eftir þá Guðmund Halldórs- son, Odd Sigurðsson og Erling Ólafsson kemur fyrir sjónir al- mennings í fyrsta sinn þetta kvöld, segir í fréttatilkynningu. Gangan mun standa í um tvær klukku- stundir. Smádýr skoðuð í Elliðaárdal TALSVERT annríki var hjá lögreglu um helgina. Tilkynnt var um 36 um- ferðaróhöpp en engin al- varleg slys urðu á fólki. Um helgina voru 10 ökumenn grunaðir um ölvun við akstur en 42 um of hraðan akstur. Einn var stöðvaður á Suðurlandsvegi á leið norður að Vesturlandsvegi á 103 km/klst. og annar á Breiðholtsbraut á leið vestur að Elliðaám á 111 km/klst en hámarkshraði er 70 km/klst. á þessum vegarköflum. Margir voru stöðvaðir af lögreglu um helgina fyrir að nota ekki öryggisbeltin og alls 27 eiga von á sekt fyrir að spenna ekki beltin. Um klukkan 15.30 á föstudag fór kaldavatnsæð í sundur við Húsa- smiðjuna í Skútuvogi en þar var öku- maður á vinnuvél að störfum. Smá- vægileg óþægindi urðu af völdum þessa á meðan viðgerð stóð yfir. Á sama tíma gerði ungur viðskiptavinur sér lítið fyrir og fékk sér kaffipásu inni í stórverslun í miðbæ Reykjavík- ur. Drakk gos og borðaði snakk og skildi svo áteknar vörurnar eftir inni í versluninni og fór út án þess að borga. Starfsmenn verslunarinnar uppgötv- uðu þessa sjálfsbjargarviðleitni og eins og endranær var lögreglan köll- uð til og haft samband við foreldra. Barnið læst inni Lögreglan aðstoðaði móður fyrir utan stórverslun í miðborginni að komast inn í bifreið sína. Hún hafði óvart læst bifreið sinni með lyklana í kveikjulásnum en ungt barn hennar var bundið í barnabílstól inni í bifreið- inni. Greiðlega gekk að opna bifreið- ina. Þá leitaði eigandi bifreiðar eftir aðstoð lögreglu og sagði að bíl hans hefði verið stolið af bifreiðastæði við götu vestur í bæ. Skömmu síðar til- kynnti hann að bifreiðin væri fundin en ungir piltar höfðu verið að kaupa bifreið af öðrum í sömu götu og tekið óvart ranga bifreið. Misskilningurinn var því leiðréttur og allir skildu sáttir. Rétt fyrir sjö á föstudag hafði lög- regla afskipti af bifreiðastjóra á flutn- ingabifreið þar sem hann var bæði að reykja undir stýri og tala í farsíma án handfrjáls búnaðar. Rætt var við öku- manninn en ekkert aðhafst frekar í málinu þar sem engin sektarheimild er fyrir hendi. Hættan sem af þessari háttsemi stafar er augljós. Ölvaður og rammvilltur Um hálfellefuleytið á föstudag þurfti lögreglan að hafa afskipti af ölvuðum manni í vesturborginni sem bankaði stöðugt á hinar og þessar dyr í götunni. Hafði maðurinn þá farið bæði húsa- og götuvillt, var honum ekið til síns heima. Um hálftvöleytið aðfaranótt laugardags var ekið á konu í Hafnarstræti og stakk ökumaður bifreiðarinnar af. Lögregla ók kon- unni á slysadeild Landspítalans vegna eymsla í fæti og mjöðm. Skrán- ingarnúmer bifreiðarinnar náðist og er málið í rannsókn. Lögreglan stöðv- aði mann undir morgun á laugardag en maðurinn var að gangsetja trillu ölvaður, var hann handtekinn vegna brots á siglingalögum. Honum var sleppt eftir að tekið hafði verið úr honum blóðsýni. Talsvert var óskað eftir aðstoð frá lögreglu vegna ölvun- ar um helgina, tilkynnt var um nokkr- ar minniháttar líkamsárásir og að venju fór lögregla í fjölmörg hávaða- útköll og sem fyrr enduðu sumir gleð- skapinn með því að gista fanga- geymslur lögreglu. Nokkur innbrot í bifreiðar voru um helgina og vill lög- reglan enn minna fólk á að skilja ekki sýnileg verðmæti eftir í bifreiðum sínu. Í sumum tilfellum virtist sem um ólæstar bifreiðar hafi verið að ræða þar sem engar skemmdir voru sjáanlegar og slíkt býður hættunni heim. Úr dagbók lögreglu 21.–24. júní Reykti og talaði í farsíma meðan hann ók flutningabíl FARIÐ verður í hina árlegu sumarferð kvennadeildar Reykja- víkurdeildar Rauða kross Íslands fimmtudaginn 27. júní. Mæting í Umferðarmiðstöðinni kl. 8.30 og lagt af stað kl. 9. Að þessu sinni verður ekið til Skagastrandar. Hressing verður í Kántrýbæ og síðan verður Skaga- strönd skoðuð. Frá Skagaströnd verður haldið að Heimilissafninu á Blönduósi og Halldórustofa skoðuð. Frá Blönduósi verður ek- ið til Þingeyrarkirkju og hún skoðuð. Boðið verður upp á léttar veit- ingar í Hamarsbúð og síðan ekið í Bifröst og snæddur kvöldverður. Verð fyrir ferðina er 3.900 kr. og tilkynna þarf þátttöku. Sumarferð kvennadeildar RKÍ í Reykjavík MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Grétari Berndsen, framkvæmdastjóra Óðals við Austurvöll: „Vændi, eiturlyfjasala, rekstur spilavíta og margs konar önnur ólög- leg starfsemi þrífst á Íslandi. Kyn- ferðislegt ofbeldi og misnotkun þeirra sem minna mega sín þrífst því miður einnig hér á landi. Stundum er slíkt gert samkvæmt lögum, sbr. spila- kassarekstur góðgerðarfélaga og fleiri aðila en oftast er eymdin í undir- heimum og neðanjarðarhagkerfi höf- uðborgarsvæðisins. Mannréttindi eru fótum troðin og það er ánægjulegt að kastljósi sé um þessar mundir beint að aðstæðum þeirra kvenna sem mis- rétti eru beittar hér á landi sem ann- ars staðar í heiminum. Alhæfingar á borð við þær að vændi þrífist í Reykjavík í skjóli næturklúbba eru hins vegar út í hött og enn á ný vilja forsvarsmenn næturklúbbsins Óðals við Austurvöll mótmæla slíkum mál- flutningi harðlega. Eðlilega erum við einungis í stakk búnir til þess að full- yrða um okkar eigin rekstur en ekki annarra, enda geta næturklúbbar væntanlega verið jafn mismunandi eins og til dæmis ólíkir veitingastaðir eða mismunandi bílategundir, án þess að hér sé sérstaklega gert ráð fyrir að svo sé um næturklúbba á Íslandi. Óðal hefur starfað sem næturklúbbur í u.þ.b. sex ár án þess að viðskiptavin- ir, starfsfólk, dansmeyjar eða yfirvöld hafi nokkru sinni gert athugasemdir við rekstur staðarins eða þjónustu. Staðurinn grundvallar starfsemi sína að öllu leyti í takt við íslensk lög og reglugerðir. Ekkert vændi fer fram á Óðali og engin þeirra stúlkna sem þar hefur dansað á undanförnum árum hefur komið þar á öðrum forsendum en sínum eigin. Flestar þeirra hafa komið til landsins á fullgildum at- vinnuleyfum íslenskra stjórnvalda og notið um leið allrar þeirrar trygginga- verndar og öryggis sem atvinnuleyf- um fylgja. Með einni undantekningu hefur engin stúlka frá Eistlandi né öðrum baltneskum ríkjum dansað á Óðali á undanförnum árum. Gagnvart u.þ.b. 35 íslenskum starfsmönnum Óðals og metnaðarfullum dansmeyj- um staðarins sem margar hverjar eru í fremstu röð á sínu sviði, er alhæfing um tengsl næturklúbba á Íslandi við vændi afar ósanngjörn. Fullyrðingar um að svokallaður einkadans sé enn frekari ávísun á vændi innan nætur- klúbba eru sömuleiðis byggðar á al- hæfingum sem afar erfitt er að sitja þegjandi undir. Forsvarsmenn Óðals munu gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að hreinsa staðinn af þeim álitshnekki sem hann og starfs- fólk hans hefur beðið af umræðu und- anfarinna daga.“ Yfirlýsing frá Óðali SUNNUDAGINN 23. júní kl. 14 var opnuð sýning sem ber titilinn „Sauðfé í sögu þjóðar“ í félags- heimilinu Sævangi sem stendur 12 km sunnan við Hólmavík á Strönd- um. Þar er sagt frá sauðfjárbú- skap fyrr og nú í máli og myndum. Margvíslegar minjar sem tengjast sauðfjárbúskap eru einnig til sýn- is. Sýningin er opin frá kl. 10–18 alla daga vikunnar frá 15. júní til 31. ágúst. Fyrir framtakinu stendur Félag áhugamanna um Sauðfjársetur á Ströndum og sýningin er sett upp í samstarfi við Byggðasafn Hún- vetninga og Strandamanna á Reykjum í Hrútafirði. Á sýningunni er lögð áhersla á að allir aldurshópar fái nokkuð fyrir sinn snúð og töluvert er gert til þess að höfða til fjölskyldufólks. Til að mynda verða heimalningar í girðingu utan við Sævang og þeim verður gefið tvisvar sinnum á dag með hjálp gestanna (kl. 10.15 og 17.30). Þá er sérstakt barnahorn á sýningunni og einnig svokallað vís- indahorn, þar sem meðal annars má fræðast um aðskiljanlegustu hluti sem snúa að sauðkindum og skoða tölvuforrit. Jafnhliða sýningunni verður opnuð kaffistofa í Sævangi þar sem svangir ferðalangar geta sop- ið á kaffi eða mysudjús og gætt sér á heimilislegu meðlæti, óháð því hvort þeir skoða sýninguna eða ekki, segir í fréttatilkynningu. Kaffihlaðborð verður með reglu- legu millibili í sumar og ýmsar uppákomur. Eins verður hand- verksbúð í Sævangi þar sem á boð- stólum verða margvíslegir munir sem tengjast svæðinu og sauð- fjárbúskap yfirleitt. Sýning um sauðfjárbú- skap Stranda- manna

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.