Morgunblaðið - 01.08.2002, Síða 25
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2002 25
STJÓRN Ísraels samþykkti frum-
varp til fjárlaga næsta árs í fyrra-
kvöld en tveir stórir stjórnarflokkar
greiddu atkvæði gegn frumvarpinu
þar sem þeir eru andvígir áformum
um að minnka útgjöldin til velferð-
armála. Líklegt þykir að frumvarpið
verði fellt á þinginu verði því ekki
breytt.
Andstæðingar frumvarpsins segja
að sparnaðaráformin komi harðast
niður á láglaunafólki og atvinnulaus-
um. Yfir 10% vinnufærra Ísraela eru
án atvinnu og efnahagur landsins
hefur versnað mjög vegna uppreisn-
ar Palestínumanna, sem hefur m.a.
orðið til þess að dregið hefur úr fjár-
festingum, og samdráttar í hátækni-
geiranum sem var meðal vaxtar-
broddanna í atvinnulífi landsins.
Ráðherrar Verkamannaflokksins
og Shas, flokks heittrúaðra gyðinga,
greiddu atkvæði gegn frumvarpinu
sem var þó samþykkt með fjórtán at-
kvæðum gegn tólf. Shas nýtur mikils
stuðnings meðal lágtekjufólks og
hefur eins og Verkamannaflokkur-
inn lagt áherslu á velferðarmál.
Samstarfinu við Sharon slitið?
Andstaða Verkamannaflokksins
við fjárlagafrumvarpið þykir benda
til þess að hann hyggist leggja
áherslu á efnahagsmálin í næstu
kosningum, sem fara eiga fram í nóv-
ember á næsta ári, og jafnvel not-
færa sér deiluna um fjárlögin til að
slíta samstarfinu við Ariel Sharon
forsætisráðherra. Nýlegar skoðana-
kannanir benda til þess að Verka-
mannaflokkurinn myndi missa helm-
ing fylgis síns ef kosningar færu
fram nú og margir félagar í flokkn-
um hafa beitt sér fyrir því að hann
gangi úr stjórninni, einkum vegna
óánægju með harðlínustefnu Shar-
ons í átökunum við Palestínumenn.
Binyamin Ben Eliezer, leiðtogi
Verkamannaflokksins og varnar-
málaráðherra, hefur hins vegar sagt
að flokkurinn eigi að vera áfram í
stjórninni til að milda stefnu hennar.
Ísraelska dagblaðið Haaretz spáir
því að 79 þingmenn af 120 greiði at-
kvæði gegn fjárlagafrumvarpinu
verði því ekki breytt. Verði fjárlög
næsta árs ekki samþykkt fyrir 1.
apríl fellur stjórnin og boða þarf til
kosninga.
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir því
að tveir þriðju sparnaðarins náist
með því að minnka útgjöldin til vel-
ferðar- og varnarmála þrátt fyrir at-
vinnuleysið og kostnaðarsamar að-
gerðir hersins í átökunum við
Palestínumenn.
Efnahagur Ísraels stóð með blóma
áður en uppreisn Palestínumanna
hófst í september 2000. Á því ári var
hagvöxturinn 6,4% en hann minnk-
aði í 0,6% 2001.
Gengi gjaldmiðils landsins, sikils-
ins, hefur lækkað um 20% gagnvart
Bandaríkjadollar á árinu og vextir
hafa verið hækkaðir um 3,9 pró-
sentustig.
Ríkisstjórn Ísraels samþykkir
umdeilt fjárlagafrumvarp
Líkur á að þing-
ið hafni sparn-
aðaráformunum
Jerúsalem. AP, AFP.
Tjöld Svefnpokar D‡nur Tjaldhúsgögn Prímusar
Tilbo›!
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
1
83
71
08
/2
00
2
Smáralind - Glæsibæ
Simi 545 1500 og www.utilif.is
Vel heppnu› útilega hefst í Útilífi !
High Peak
Texel Pro
3ja manna kúlutjald,
me› fiber bogum
og álímdum saumum.
fiyngd 4,4 kg
Ver›: 6.990
TILBO‹: 5.990
Meindl
Malasya
Léttir og flægilegir göngu-
skór frá Meindl, tilvaldir
í léttar göngur og útivist.
Ver›: 12.990
TILBO‹: 9.990
N‡jung!
Tvöföld vindsæng me›
innbygg›ri, rafknúinni
pumpu og velúr áfer›.
Stær› 134x183 cm
Ver›: 9.990
TILBO‹: 7.990
High Peak
Yellow Stone, 35 l
Bakpoki me› gó›um vösum
og bur›arólum, hentugur
í dagsfer›ir og styttri fer›alög.
Ver›: 5.990
TILBO‹: 4.990
High Peak
Phoenix 2
fiyngd 1.830 g
Kuldaflol - 130 C
Gó›ur alhli›a svefnpoki
Ver›: 10.990
TILBO‹: 7.490
Stór og glæsileg Tommy Hilfiger íþróttataska fylgir
með ef keyptur er 50 ml ilmur fyrir dömur
eða herra frá Tommy Hilfiger*
* Meðan birgðir endast.
Tilboðið gildir í
eftirfarandi verslunum:
Lyfju Lágmúla, Lyfju Laugavegi,
Lyfju Smáralind, Lyfju Smáratorgi,
Lyfju Spöng, Lyfju Garðabæ,
Lyfju Hafnarfirði, Lyfju Grindavík.
VERSLUNARMANNA-
HELGARTILBOÐ