Morgunblaðið - 01.08.2002, Qupperneq 27
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2002 27
Reykjavík sími 580 0500
Selfossi sími 480 0800
www.blomaval.is
beint frá Mexíkó
30%
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
B
LO
1
83
31
07
/2
00
2
Útiarnar
afsláttur
25.900 kr.
18.130 kr.
19.900 kr.
15.549 kr.
10.884 kr.
9.900 kr.
6.930 kr.
12.990 kr.3 3
Ný
sendin
g
takma
rkað m
agn
Arinstandar eru ekki innifaldir í verði.
FREGNIR hermdu í gær að
lífverðir hryðjuverkaforingjans
Osama bin Ladens væru á með-
al fanga í banda-
rískri herstöð í
Guantanamo-
flóa á Kúbu.
Bandarískir
fjölmiðlar höfðu
eftir embættis-
mönnum í
Washington að
hafi lífverðir bin Ladens verið
handteknir bendi það til þess
að hann hafi fallið í árásum
Bandaríkjahers í Afganistan.
Ennfremur var skýrt frá því
að talið væri að einn sona bin
Ladens, Saad, tæki þátt í starf-
semi al-Qaeda en ekkert benti
til þess að hann væri á meðal
helstu leiðtoga samtakanna.
Hernaðar-
aðstoð lokið
BANDARÍSKIR hermenn
luku í gær þjálfun filippseyskra
hermanna og annarri hernað-
araðstoð við Filippseyinga í
baráttunni við íslömsku hryðju-
verkahreyfinguna Abu Sayyaf.
Um 1.200 bandarískir hermenn
tóku þátt í aðstoðinni, sem stóð
í hálft ár, og um 300 þeirra
verða áfram á Basilan-eyju til
að ljúka uppbyggingarverkefn-
um, svo sem lagningu vega.
Yfirmaður hermannanna
sagði að aðstoðin hefði borið til-
ætlaðan árangur, ringulreið
ríkti meðal liðsmanna Abu
Sayyaf og þeir væru á flótta.
Chang Sang
hafnað
CHANG Sang, sem forseti
Suður-Kóreu tilnefndi í emb-
ætti forsætisráðherra fyrir
þremur vikum,
sagði af sér í gær
eftir að þing
landsins neitaði
að staðfesta til-
nefninguna.
Chang er fyrsta
konan sem til-
nefnd hefur verið
í embætti forsætisráðherra í
Suður-Kóreu.
142 þingmenn greiddu at-
kvæði gegn Chang Sang en 100
studdu hana. Andstæðingar
hennar sökuðu hana m.a. um að
hafa logið til um menntun sína
og stundað óviðurkvæmileg
fasteignaviðskipti en hún bar af
sér allar ásakanir.
Flugræningj-
ar ætla heim
FJÓRIR Japanir, sem hafa
dvalið í Norður-Kóreu frá því
þeir rændu farþegaþotu árið
1970, hafa tilkynnt að þeir ætli
að snúa aftur til Japans. Fjór-
menningarnir, sem eru á aldr-
inum 54–57 ára, voru í róttækri
marxistahreyfingu í Japan og
var þeim tekið með kostum og
kynjum í Norður-Kóreu.
Þeir hafa dvalið þar í vellyst-
ingum og haft matreiðslumenn,
vinnukonur og bílstjóra í þjón-
ustu sinni.
Mennirnir verða að öllum lík-
indum handteknir við komuna
til Japans. Sérfræðingar í mál-
efnum Norður-Kóreu töldu að
stjórn landsins hefði ákveðið að
vísa flugræningjunum úr landi
til að sýna að hún styddi ekki
hryðjuverkamenn.
STUTT
Lífverðir
bin Ladens
í haldi
Bin Laden
Chang
Sang
FULLTRÚAR stjórnvalda í Banda-
ríkjunum segja ekkert til í því að
utanríkisráðuneytið bandaríska,
sem fram að þessu hefur borið hit-
ann og þungann af því að reyna
að móta ímynd Bandaríkjanna er-
lendis, telji að sér vegið með
stofnun nýrrar skrifstofu upplýs-
ingamála sem tilkynnt var um í
fyrradag. Segir Philip Reeker,
talsmaður utanríkisráðuneytisins,
að þvert á móti sé afar æskilegt
að Hvíta húsið komi beint að því
starfi að bæta ímynd Bandaríkj-
anna erlendis.
Ari Fleischer, talsmaður George
W. Bush Bandaríkjaforseta, til-
kynnti það á þriðjudag að forset-
inn hefði ákveðið að koma
„ímyndarskrifstofunni“ á fót. Tek-
ur skrifstofan við verkefnum upp-
lýsingaskrifstofu, sem sett var á
laggirnar sl. haust í því skyni að
svara meintum rangfærslum talib-
ana um hernaðaraðgerðir Banda-
ríkjamanna í Afganistan.
Skrifstofan nýja fær mun víð-
tækara hlutverk en sú gamla, að
sögn fulltrúa Bandaríkjastjórnar,
en stjórnvöld vestra eru sögð hafa
af því nokkrar áhyggjur, að ekki
aðeins hafi múslimalönd horn í
síðu Bandaríkjanna, heldur hafi
þess tekið að gæta í æ ríkari mæli
að íbúar Vesturlanda hafi einnig
neikvæða skoðun á Bandaríkj-
unum.
Eiga við bráðan ímyndar-
vanda að etja erlendis
Ímyndarskrifstofan mun vera
runnin undan rifjum Karen Hugh-
es, eins af helstu ráðgjöfum Bush,
en hún lét reyndar af störfum ný-
verið.
Sérfræðingar segja Bandaríkin í
æ ríkari mæli eiga við ímynd-
arvandamál að etja erlendis, ekki
síst vegna átakanna fyrir botni
Miðjarðarhafs og tregðu Banda-
ríkjamanna til samstarfs um ýmsa
samninga Sameinuðu þjóðanna,
s.s. Kyoto-sáttmálann og samning-
inn um stofnun alþjóðaglæpadóm-
stólsins í Haag.
Á mánudag hafði óháð ráðgjaf-
arnefnd um utanríkismál lýst því
mati sínu, að Bandaríkin ættu við
bráðan ímyndarvanda að etja.
„Neikvæð afstaða til stefnu
Bandaríkjanna er einnig áberandi
meðal þjóða, sem þátt taka í bar-
áttu okkar gegn hryðjuverkum, og
meðal okkar helstu bandamanna,“
sagði í skýrslu nefndarinnar, sem
fengið hafði virta fræðimenn,
fyrrverandi sendiherra og frétta-
menn til liðs við sig.
Bush vill bæta ímynd Bandaríkjanna
Washington. AFP, The Washington Post.