Morgunblaðið - 01.08.2002, Síða 51
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2002 51
Ættfræði-
þjónusta í
nýtt húsnæði
Morgunblaðið/Kristinn
Hér sjást Þór Magnússon, fyrrverandi þjóðminjavörður, Oddur Helga-
son ættfræðingur og eiginkona hans, Unnur Björg Pálsdóttir.
ORG-ÆTTFRÆÐIÞJÓNUSTAN,
sem áður var til húsa á Hjarðar-
haga 26, fluttist nýverið í hús þjón-
ustumiðstöðvar Íþrótta- og tóm-
stundaráðs Reykjavíkur við
Skeljanes í Skerjafirði, en Oddur
Helgason, ættfræðingur og fyrr-
verandi sjómaður, rekur ætt-
fræðistofuna.
Í tilkynningu frá ættfræðiþjón-
ustunni segir að með flutningnum
hafi hún fengið rýmra og betra hús-
næði og þar muni Oddur aðstoða
fólk við að afla upplýsinga um ættir
sínar og forfeður. Hann hafi nú
skráð nöfn meira en 520 þúsund
manna og ættartengsl þeirra. Þá sé
hjá ættfræðiþjónustunni einnig að
finna eitt besta safn ættfræðigagna
á landinu.
Vinnustofan er að jafnaði opin
frá klukkan 6 að morgni til klukkan
4 síðdegis alla daga vikunnar.
ÞINGFLOKKUR Vinstrihreyfing-
arinnar – græns framboðs sendi frá
sér fréttatilkynningu í gær þar sem
lýst er megnri andúð á tilraunum
sem yfir standa til að sölsa undir sig
Sparisjóð Reykjavíkur og nágrennis
í trássi við lög og ótvíræðan vilja Al-
þingis og í algerri andstöðu við eðli
og tilgang sparisjóðanna, eins og
segir í ályktun þingflokksins.
„Þingflokkurinn lýsir yfir vilja
sínum til samvinnu við aðra þing-
flokka um að Alþingi komi saman til
að setja lög sem tryggi framtíð
Sparisjóðanna. Þingmenn Vinstri-
hreyfingarinnar – græns framboðs
vöruðu við lagasetningu sem heim-
ilaði hlutafjárvæðingu sparisjóða á
sínum tíma og hvetja stofnfjáreig-
endur og stjórnir sparisjóða til að
hverfa frá öllum áformum um hluta-
fjárvæðingu eins og málum er nú
komið. Þar til viðbótar er ljóst að
setja þarf skýr ákvæði í lög sem
banna með öllu sölu stofnfjárhluta á
yfirverði. Það var vilji löggjafans og
þann vilja þurfa lögin að endur-
spegla.
Þingflokkur Vinstrihreyfingar-
innar – græns framboðs leggur til
að Alþingi verði kvatt saman, nú
strax í ágústbyrjun, til að endur-
skoða lagaákvæði um sparisjóði í
ofangreindum tilgangi. Reyndar er
full þörf á að Alþingi komi saman af
fleiri ástæðum og ber þar hæst stöð-
una í virkjana- og stóriðjumálum.
Náist ekki samstaða um það meðal
þingflokka að kalla Alþingi saman
er þingflokkur Vinstrihreyfingar-
innar – græns framboðs fyrir sitt
leyti tilbúinn til að skoða þann
möguleika að sett verði bráða-
birgðalög í þessu skyni enda um
brýnt mál að ræða sem varðar ríka
almannahagsmuni og samstaða virð-
ist vera um á þingi.“
Vilja að Al-
þingi tryggi
framtíð spari-
sjóðanna
SUNNUDAGINN 4. ágúst verður
haldinn kynningarfundur á fyrirtæk-
inu „Hágæða gullvörur“ í sal grunn-
skólans á Laugarvatni kl. 15. Allir
velkomnir, segir í fréttatilkynningu.
Kynningarfundur
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eft-
ir vitnum að umferðaróhappi sem
átti sér stað um klukkan 22 föstu-
dagskvöldið 26. júlí á gatnamótum
Bæjarháls og Höfðabakka. Þarna
var rauðri skutbifreið ekið af stað
áleiðis suður Höfðabakka og inn á
gatnamótin. Hins vegar var hvít lítil
fólksbifreið sem ók vestur Bæjarháls
og inn á gatnamótin. Þarna varð all-
harður árekstur og ber ökumönnum
ekki saman um stöðu umferðarljós-
anna.
Lýst eftir vitnum
UPPLAGSEFTIRLIT Verslunar-
ráðs Íslands hefur framkvæmt
samningsbundið eftirlit með upplagi
tímarita og kynningarrita varðandi
útgáfu frá janúar til apríl 2002 og
til samanburðar tímabilið septem-
ber 2001 til apríl 2002, en samn-
ingar eru í gildi um eftirlit með 18
titlum, segir í tilkynningu frá upp-
lagseftirliti Verslunarráðs Íslands.
Fram kemur að eftirlitið standi
öllum útgefendum til boða en sé
einungis framkvæmt hjá þeim út-
gefendum, sem hafa óskað eftir því
og gert um það tilheyrandi samn-
ing.
Dreifingartími misjafn
Í tilkynningunni kemur fram að
dreifingartími tímaritanna sé mis-
jafn og í sumum tilfellum á öðru
tímabili en prentun fór fram.
Fjöldi útgefinna tölublaða er mis-
munandi eftir tímaritum og er hann
allt frá einu upp í átta tölu blöð á
tímabilinu janúar til apríl.
Upplagseftirlit Verslunarráðs Íslands
18 tímarit og kynn-
ingarrit undir eftirliti