Morgunblaðið - 01.08.2002, Side 58
FÓLK Í FRÉTTUM
58 FIMMTUDAGUR 1. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FERJAN Lagarfljótsormurinn sigl-
ir alla daga á Lagarfljótinu um
sumartímann. Á fimmtudögum
lendir ferjan við Húsatanga í Fljóts-
dal þar sem er grillað og Hákon
bóndi á Húsum fer með gamanmál í
bundnu og óbundnu máli.
Þessar grillferðir eru vinsælar
og eru starfsmannahópar duglegir
að sækja ferðirnar ásamt hinum al-
menna ferðamanni. Grillin eru í
skógarjaðri við samatjald, að
finnskri fyrirmynd, gert af íslensku
lerki.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteins
Guðrún Benediktsdóttir og Helga Jónsdóttir taka sig vel út við grillin meðan farþegarnir spjalla saman og
teyga skógarilminn í góða veðrinu. Lagarfljótsormurinn bíður heimferðar, rólegur á ferjulæginu.
Það er ekki amalegt að krækja sér í ljúffenga grillsteik til að snæða með
góðum vinum í skógarjaðrinum á Húsatanga. Hinn eini sanni Lagar-
fljótsormur lá bundinn við tangann á meðan mennirnir átu og drukku.
Grillferð á
fimmtudögum
Norður-Héraði. Morgunblaðið.
Lagarfljótsormurinn lifir fyrir austan
ÞÝSKA ofurfyrirsætan
Claudia Schiffer á von á sínu
fyrsta barni en hún gekk í
hjónaband með breska kvik-
myndaframleiðandanum
Matthew Vaughn fyrr í sum-
ar. „Við getum staðfest að hún
er ólétt og er komin meira en
þrjá mánuði á leið. Matt og
Claudia eru yfir sig ánægð
með þetta,“ sagði talsmaður
fyrirsætunnar í London.
Talsmaðurinn vildi ekki
gefa neitt nánar upp um málið
og sagði ekki nákvæmlega
hversu langt Claudia, sem er
31 árs, væri gengin með barn-
ið, að því er fram kemur á
fréttavef Sky.
Parið gifti sig hinn 25. maí í
enskri sveitakirkju nærri
Coldham Hall, herragarði
hjónanna, í þorpinu Lawshall í
Suffolk. Viðstaddir brúðkaup-
ið voru m.a. þýska tennis-
stjarnan Boris Becker og
hönnuðurinn Valentino.
Erfingja
að
vænta
Hin íðilfagra Schiffer á
góðri stund.
LEIK- OG söng-
konan Jennifer
Lopez hefur
sótt um skilnað
frá eiginmanni
sínum Chris
Judd eftir tæp-
lega árs hjóna-
band. Lopez
kynntist Judd,
sem er dansari,
er þau unnu
saman að gerð
myndbands og giftist honum eftir
nokkurra mánaða kynni. Hún var
áður gift Ojani Noa í nokkra
mánuði.
Lopez hefur verið orðuð við
leikarann Ben
Affleck en þau
léku saman í
gamanmyndinni
Gigli og munu
leiða saman
hesta sína í
myndinni Jers-
ey Girl sem
leikstjórinn
Kevin Smith er
með í bígerð.
Talsmenn
þeirra Lopez og Affleck segja
samband þeirra eingöngu vera á
vinsamlegu nótunum þó að sést
hafi til þeirra í keleríi víðs vegar
um New York.
Jennifer Lopez sækir um skilnað
Knúsar Affleck
KANARÍFLAKKARAR héldu sum-
arfagnað sinn í Árnesi í Gnúpverja-
hreppi fyrr í mánuðinum og það í ní-
unda sinn.
Veðrið lék ekki alveg við flakkar-
ana í þetta sinn, en þeir létu það ekki
á sig fá.
Flakkararnir gerðu sér ýmislegt
til skemmtunar og á laugardeginum
var farið í rútuferð með Þorsteini
Valdimarssyni í Skálholt þar sem
skoðaður var uppgröftur. Eftir það
var haldið að reykhúsinu Útey við
Laugarvatn, þar sem Skúli Hauks-
son og Elsa Pétursdóttir tóku á móti
fólkinu. Slegið var upp balli bæði
kvöldin þar sem viðstaddir sungu og
dönsuðu við undirspil.
Flakkararnir stefna á að ferðast
saman til Kanaríeyja í lok sumars en
klúbburinn fagnar tíu ára afmæli á
næsta ári.
Ljósmynd/Hjalti Þorvarðarson
Sigurður Hannesson tekur lagið við góðar undirtektir Flakkaranna.
Flakkaraferð í Árnesi
N jun
g!