Morgunblaðið - 20.08.2002, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 20.08.2002, Qupperneq 4
KNATTSPYRNA 4 B ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ Rosenborg náði tveggja markaforystu í fyrri hálfleik gegn Molde á laugardag þegar Harald Brattbakk og Frode Johnsen skor- uðu með fjögurra mínútna millibili um miðjan hálfleikinn. Molde náði hins vegar að minnka muninn í síð- ari hálfleik og var þar á ferðinni Thomas Mork, en skot hans af um 20 metra færi breytti um stefnu þannig að Árni Gautur Arason náði ekki til boltans. Bjarni Þorsteinsson spilaði allan leikinn í vörn Molde og nældi sér í gult spjald en Ólafur Stígsson sat á varamannabekknum og kom ekki við sögu. Það gengur hvorki né rekur hjá Lyn þessa dagana. Frá því að Hrvoje Braovics tók við liðinu af Sture Fladmark, sem nú er aðstoð- arþjálfari, hefur það aðeins fengið fimm stig út úr síðustu sex leikjum. Í leiknum gegn Start í Kristjánssandi á sunnudag komust heimamenn í 2:0 en Lyn minnkaði muninn í 20 mín- útum fyrir leikslok. Það var svo Lars Engedal, leikmaður Start, sem varð fyrir því óláni að skora sjálfs- mark á 89. mínútu og bjargaði þann- ig Lyn frá tapi fyrir lærisveinum Guðjóns Þórðarsonar, en lánið lék ekki við Start frekar en fyrri daginn. Sigur hjá Lilleström Lilleström lyfti sér upp um eitt sæti úr næstneðsta sæti deildarinn- ar eftir 2:0 sigur á Moss í miklum botnslag. Þjóðverjinn Uwe Rösler og Arild Sundgot léku saman í fram- línu Lilleström og skoruðu hvor sitt markið en Ríkharður Daðason kom inn á á 83. mínútu fyrir Sundgot. Þá lék Gylfi Einarsson allan leikinn fyr- ir Lilleström en Indriði Sigurðsson sat á varamannabekknum allan tím- ann. Stabæk komst yfir á 2. mínútu gegn Brann með marki Mike Kjölö og þegar upp var staðið reyndist það sigurmark leiksins. Marel Baldvins- son og félagar hans í sókn Stabæk fengu reyndar nokkur dauðafæri undir lok leiksins til þess að gull- tryggja sigurinn en þeim brást bogalistin án þess þó að það kæmi að sök. Tryggvi Guðmundsson var ekki í liði Stabæk þar sem hann tók út eins leiks bann, en liðið er nú í fjórða sæti með 34 stig, jafnmörg og Molde, sem er í þriðja sæti en með hagstæðari markatölu. Lærisveinar Teits Þórð- arsonar í Brann eru hins vegar í botnbaráttunni og hafa aðeins feng- ið fjögur stig í síðustu sex leikjum. Viking og Vålerenga skildu jöfn, 0:0, en Hannes Sigurðsson var ekki í leikmannahópi Stafangursliðsins. FÓLK  JÓHANNES Harðarson sat allan leikinn á varamannabekk Groning- en, sem tapaði 2:1 fyrir Vitesse Arn- hem í hollensku úrvalsdeildinni.  ATLI Þórarinsson var í byrjunar- liði Örgryte í toppslag liðsins og Malmö í sænsku úrvalsdeildinni en var skipt út af á 81. mínútu. Guð- mundur Viðar Mete var ekki í leik- mannahópi Málmhaugaliðsins en liðin skildu jöfn í leiknum, 2:2, og eru því jöfn á toppi sænsku deildarinnar, bæði með 31 stig en Malmö er með hagstæðari markatölu.  HJÁLMAR Jónsson lék fyrstu klukkustundina með Gautaborg, sem tapaði fyrir Elfsborg, 2:1, í sænsku knattspyrnunni, en Gauta- borg er nú í sjöunda sæti deildarinn- ar.  HELGI Kolviðsson lék allan tím- ann fyrir Kärnten, sem gerði markalaust jafntefli fyrir Salzburg í austurrísku 1. deildinni. Stefán Gíslason lék hins vegar ekki með Grazer, sem gerði 1:1 jafntefli við Rapid Vín. Kärnten er í 5. sæti með 9 stig eftir sex umferðir en Grazer er í 10. og neðsta sæti með 3 stig.  KATRÍN Jónsdóttir lék í fremstu víglínu í fyrri hálfleik og á miðjunni í síðari hálfleik hjá Kolbotn, sem lagði Larvik 4:0 í norsku kvennaknatt- spyrnunni. Með sigrinum jók Kol- botn enn forystu sína á toppi deild- arinnar og er nú með 30 stig en næst kemur Asker með 23.  HARALDUR Ingólfsson var í liði Raufoss sem sigraði Haugasund á útivelli, 2:1, í 1. deild norsku knatt- spyrnunnar. Raufoss er í fjórða sæti deildarinnar með 40 stig, fjórum stigum minna en topplið Sandefjord.  OLIVER Kahn, markvörður Bayern München og þýska lands- liðsins í knattspyrnu, dró sig út úr landsliðshóp Þjóðverja fyrir vináttu- leik gegn Búlgörum á morgun vegna meiðsla sem hann hlaut í leik Bayern og Arminia Bielefeld á laug- ardag. Það kemur í hlut Jens Leh- manns, markvarðar Dortmund, að fylla skarð Kahns, sem var valinn besti leikmaður heimsmeistara- keppninnar í knattspyrnu fyrr í sumar.  WAYNE Rooney, leikmaður enska liðsins Everton, varð um helgina einn af yngstu leikmönnum á Englandi til þess að taka þátt í leik í úrvalsdeildinni en hann var í byrj- unarliði Everton sem gerði 2:2 jafn- tefli við Tottenham í Liverpool. Rooney verður 17 ára í október, en hann þykir einn af efnilegustu sókn- armönnum Englands og hefur verið líkt við Alan Shearer og Michael Owen. Flestir hafa spáð því að BayernMünchen muni standa uppi sem sigurvegari í þýsku úrvalsdeildinni í vor og miðað við frammistöðu liðsins á laugardag er erfitt að sjá hvaða lið getur stoppað þá í vetur. Nýju mennirnir Michael Ballack og Ze Roberto, sem komu frá Bayer Lev- erkusen fyrir leiktíðina, áttu skín- andi leik gegn Bielefeld en stjarna dagsins var Brasilíumaðurinn Giov- ane Elber sem opnaði markareikn- ing sinn í þýsku deildinni á þessari leiktíð með fernu auk þess sem hann lagði upp eitt mark fyrir Ballack, en Claudio Pizarro skoraði sjötta mark Bæjara. Þrátt fyrir mörkin fjögur er Elb- er ekki markahæstur í deildinni því Daninn Thomas Christianson, fram- herji Bochum, skoraði þrennu í 5:0 sigri Bochum á Energie Cottbus og er því kominn með fimm mörk eftir tvær umferðir. Þórður Guðjónsson lék allan tímann í liði Bochum og fékk góða dóma í þýskum fjölmiðl- um fyrir frammistöðu sína. Friedrich bjargaði Herthu Liðin tvö sem talið er að muni veita Bayern München hvað harð- asta keppni í vetur, Dortmund og Bayer Leverkusen, mættust á laug- ardag og þegar upp var staðið máttu þau sætta sig við jafntefli, 1:1. Lev- erkusen var mun betri aðilinn í fyrri hálfleik og kom Argentínumaðurinn Diego Placente liðinu yfir á 21. mín- útu en tékkneski risinn Jan Koller jafnaði fyrir meistarana fjörutíu mínútum síðar. „Við lékum vel og hefðum átt að vinna leikinn en Dortmund er með gott lið og sýndi það þegar liðið skoraði úr einu sókinni sem það fékk í leiknum,“ sagði Carsten Ramelow, leikmaður Leverkusen, eftir leikinn en liðið sýndi að það getur vel plum- að sig án Ballacks og Ze Robertos. Varnarmaðurinn Arne Friedrich, leikmaður Hertha Berlín, bjargaði liði sínu á heimavelli gegn Stuttgart þegar hann skoraði jöfnunarmark liðsins á 85. mínútu, en Sean Dund- ee hafði komið Stuttgart yfir á 14. mínútu. Með þessu fagnaði hann því að hann var valinn í fyrsta sinn í þýska landsliðið í knattspyrnu í síð- ustu viku, en hann spilaði sinn fyrsta leik í þýsku deildinni fyrir rúmri viku og því er frami þessa 23 ára pilts ótrúlega skjótur. Eyjólfur Sverrrisson var ekki í leikmanna- hópi Herthu í leiknunm. Schalke og Hansa Rostock byrja tímabilið vel en þau eru einu liðin ásamt Bochum sem hafa unnið fyrstu tvo leiki sína. Schalke lagði Kaiserslautern 3:1 og Rostock sigr- aði Nürnberg 2:0. Effenberg til Wolfsburg Wolfsburg fagnaði því hins vegar á sunnudag að Stefan Effenberg er genginn til liðs við félagið með því að leggja Borussia Mönchenglad- bach að velli 1:0. Effenberg hafði lýst því yfir í síðustu viku að hann væri hættur knattspyrnuiðkun en á föstudag tilkynnti Wolfsburg að samningar hefðu náðst við miðju- manninn umdeilda sem vann fjöl- marga titla með Bayern München. Hann lék þó ekki með liðinu um helgina en mun verða klár í slaginn um næstu helgi og sagði við und- irritun samningsins að markmið hans með Wolfsburg væri að hrista upp í þýsku deildinni. Í hinum sunnudagsleiknum vann Werder Bremen Hamburg 2:1 og skrifast sigurmark Brimarborgara eflaust á reikning Martins Piecken- hagens, markvarðar Hamburg, sem missti boltann milli fóta sér eftir skot Helgers Wehlage. AP Leikmenn Bayern München fagna einu af sex mörkum sínum í 6:2 sigri á Arminia Bielefeld í þýsku knattspyrnunni um helgina. Bras- ilíumaðurinn Giovane Elber, sem er lengst til hægri á myndinni, gerði sér lítið fyrir og skoraði fjögur mörk í leiknum. Elber með fernu Leikmenn Bayern München sýndu hvað í þeim býr þegar þeir tóku Arminia Bielefeld í kennslustund á Ólympíuleikvanginum í Münch- en í annarri umferð þýsku knattspyrnunnar á laugardag. Lyktir leiksins urðu 6:2 og skoraði Giovane Elber fjögur marka Bæjara. Nýliðarnir í Bochum, liði Þórðar Guðjónssonar, voru einnig á skot- skónum um helgina og lögðu Energie Cottbus 5:0 og eru efstir í þýsku deildinni. ROSENBORG jók forystu sína á toppi norsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu um helgina þegar liðið lagði Molde 2:1. Lyn, sem er í öðru sæti, er hins vegar alveg heillum horfið og mátti þakka fyrir jafntefli gegn botnliði Start, 2:2. Heppnin með Lyn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.