Morgunblaðið - 20.08.2002, Side 10
KNATTSPYRNA
10 B ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Aðstæður á Akureyri voru ljóm-andi góðar fyrir væntanlegt
uppgjör neðstu liða deildarinnar.
Þórsarar byrjuðu af
miklum krafti og
slógu varnarmenn
Fram út af laginu.
Jóhann Þórhallsson komst inn í send-
ingu á 4. mínútu og lék inn í vítateig
fram en reyndi að senda á Orra
Hjaltalín í stað þess að þruma á mark-
ið. Mínútu síðar náðu Framarar
skyndisókn og Þorbjörn Atli Sveins-
son var á auðum sjó en Atli Már Rún-
arsson bjargaði með úthlaupi. Jóhann
Þórhallsson átti síðan ágætt skot úr
aukaspyrnu á 7. mínútu en Gunnar
Sigurðsson varði. Hann varði aftur
vel á 14. mínútu eftir óvenju glæsilega
sókn Þórs sem Orri Hjaltalín hóf og
lauk. Markið lá í loftinu og ekki kom á
óvart þegar Jóhann skeiðaði inn í teig
á 19. mínútu og þrumaði boltanum í
netið.
Þórsarar voru sprækari og sýndu
mun skemmtilegri sóknartakta en
oftast í sumar. Löngu sendingarnar
voru ekki eins áberandi og áður og
stutta spilið heppnaðist býsna vel.
Reyndar voru varnarmenn Fram líka
æði mistækir. Gestirnir áttu sín færi
úr skyndisóknum en þeir reyndu yf-
irleitt að stinga boltanum inn á Þor-
björn Atla. Hann fékk ágæta stungu
frá Andra Fannari á 25. mín. en varn-
armenn Þórs björguðu á síðustu
stundu. Þórsarar fengu síðan nokkur
færi. Þeir pressuðu stíft á 35. mín. og
áttu tvö góð skot að marki og mínútu
síðar varði Gunnar mjög vel skot Jó-
hanns Þórhallssonar.
Staðan í leikhléi var 1:0 og heima-
menn kannski óheppnir að hafa ekki
náð að bæta við mörkum. Eins og við
mátti búast sóttu Framarar meira í
seinni hálfleik en heldur byrjaði hann
dauflega og fátt markvert gerðist fyrr
en undir lok leiksins. Allt spil datt úr
Þórsliðinu. Framarar stjórnuðu
leiknum og Þórsarar voru í stöðugum
eltingarleik. Hins vegar gekk ekkert
hjá gestunum að skapa sér færi.
Hlynur Birgisson stöðvaði flestar til-
raunir þeirra til að brjótast inn í víta-
teig og einu markskotin voru langskot
frá Ágústi Gylfasyni. Samt sem áður
voru Framarar mun líklegri til að
jafna en Þórsarar að bæta við marki.
Á 90. mínútu skoruðu Þórsarar
hins vegar harla óvænt eftir að Páll
Gíslason framlengdi þversendingu
inn á Þórð Halldórsson og hann vipp-
aði yfir Gunnar í markinu. Við þetta
hrukku Framarar loks almennilega í
gang og gerðust sífellt ágengari, sér-
staklega þó Kristján Brooks, sem
hafði komið inn á sem varamaður.
Hann skoraðimeð góðum skalla á 90.
mínútu og skallaði síðan rétt yfir
Þórsmarkið tveimur mínútum síðar
eftir mikla pressu Framara. En Þórs-
arar héldu velli og fögnuðu langþráð-
um sigri.
Hlynur Birgisson lék eins og her-
foringi í vörn Þórs og þótt hinn ungi
Ármann Ævarsson stæði fyrir sínu
var Hlynur tveggja manna maki. Páll
Gíslason var líka traustur hægri bak-
vörður, Jóhann að vanda duglegur og
skeinuhættur frammi og Ingi Hrann-
ar Heimisson, Kristján Örnólfsson og
Þórður Halldórsson bjuggu til betra
miðjuspil en Þórsarar hafa sýnt í
sumar, þ.e.a.s. í fyrri hálfleik.
Hjá Fram átti Gunnar Sigurðsson
afar góðan leik í markinu. Hann varði
sjö skot og sum úr dauðafærum.
Haukur Snær Hauksson og Andri
Fannar Ottósson áttu snaggaralega
spretti og Þorbjörn Atli er alltaf
hættulegur. Kristján Brooks var þó
hvað beittastur í framlínunni en hann
kom ekki inn á fyrr en á 83. mínútu og
heyrðust margir Þórsarar prísa sig
sæla yfir því að hann skyldi ekki hafa
skorist fyrr í leikinn.
$
"# /#
# #'
>!#!
#
@
=
&%!
/!
)
#
!
. %
$ #
=
!
$G@E
*1
8 L,
7!@E
'
" )
%B
D1
0*!
--
J
/!
)
0
$ )/#
;
"# /#
(9:;<;<A = )!1 9 1))>.; $,7
"
)?+,,+
$!5! '
> E
' )+ 8#
):?;,
2 3
<;
$!
!) 3
J"
* !
$ )3"
' ,
D
0
$!
-A
8E*
5
B
2!*! )
$ )0
/
4 7 $,
+!*!
-A
9 @ 7! <
<
<
.;
;
B
(9:;<;<A
K#
2
@
597
' "1!$ 59+7
'C
@
59;7
G $ 5*,7
*9 7):
@!9 7): 1 .:&5)*7
A:&5*,7
A:.5*,7
C
A
;
Morgunblaðið/Kristján
Jóhann Þórhallsson skorar fyrra mark Þórs með góðu hægri fótar skoti á nærstöngina hjá Gunnari Sigurðssyni, markverði Fram.
Loks heimasigur
hjá Þórsurum
ÞÓRSARAR bitu frá sér þegar liðið fékk Fram í heimsókn sl. sunnu-
dag og unnu afar mikilvægan sigur, 2:1. Þar með hoppuðu Þórsarar
upp í 13 stig og náðu Fram og ÍBV en síðarnefnda liðið átti þá reynd-
ar leik til góða. Ljóst er að botnbaráttan verður æði spennandi í síð-
ustu umferðunum og næstu lið fyrir ofan þessi þrjú eru ekki úr fall-
hættu. Þetta var fyrsti heimasigur Þórs í sumar en liðið hefur
iðulega átt mikilli velgengni að fagna á heimavelli og hafði raunar
ekki tapað heima frá sumrinu 1999 og allt þar til KR-ingar fóru burt
með öll stigin af Akureyrarvelli í síðasta mánuði.
Stefán Þór
Sæmundsson
skrifar
Þetta var mjög kærkomið. Við er-um búnir að bíða eftir heima-
sigri í allt sumar. Reyndar stóð þetta
ansi tæpt í lokin og við vorum heppn-
ir að missa þetta ekki niður í jafntefli
annan leikinn í röð en jafntefli hjálpa
okkur ekkert í baráttunni,“ sagði Páll
Gíslason, hinn reyndi leikmaður
Þórs.
Hann sagði að staðan liti betur út
eftir þennan leik. Þórsarar væru bún-
ir að ná Fram og ÍBV og nú yrði hver
leikur afskaplega mikilvægur. En
hvað gerðist hjá liðinu í seinni hálf-
leik þegar Þórsarar voru nánast í því
hlutverki að elta Framara um allan
völl?
„Við vorum yfir og bökkuðum
ósjálfrátt of mikið. Þetta var ekki
með ráðum gert og við gerðum okkur
óþarflega erfitt fyrir. Það var ákveðin
örvænting í gangi, við vorum að bíða
eftir okkar fyrsta sigri í langan tíma
og til allrar hamingju hafðist þetta í
lokin, sagði Páll.
Ágúst Gylfason, fyrirliði Fram, var
engan veginn sáttur við leikinn. „Það
var hrikalegt að tapa þremur stigum í
svona ótrúlega mikilvægum leik. Mér
fannst vera ágætis barátta í liðinu og
við vorum miklu meira með boltann í
seinni hálfleik en náðum bara ekki að
skapa okkur nægilega góð færi. Þetta
féll ekki okkar megin og nú er allt í
hnút á botninum og hver leikur úr-
slitaleikur. Við hreinlega verðum að
fara að vinna leiki til að koma okkur
upp úr þessu, annars erum við í vond-
um málum,“ sagði Ágúst.
Stóð tæpt undir lokin
PÉTUR Hafliði Marteinsson nýtti
vel fyrsta tækifærið sem hann fékk
með enska liðinu Stoke City í 1. deild
á þessari leiktíð þgar liðið tók á móti
Bradford. Pétur gerði sér lítið fyrir
og skoraði seinna mark Stoke í leikn-
um á 34. mínútu, en Stoke sigraði
2:1. Pétur lék allan leikinn í vörn
Stoke og sama má segja um Brynjar
Björn Gunnarsson en Bjarni Guð-
jónsson mátti sætta sig við að leika
aðeins síðustu 11 mínútur leiksins.
ÍVAR Ingimarsson lék allan leik-
inn með Wolves sem lagði Burnley
örugglega 3:0 í 1. deildinni á Eng-
landi. Ívar nældi sér í gult spjald á
25. mínútu en Denis Irwin, félagi
hans og fyrrverandi leikmaður Man-
chester United, skoraði sitt fyrsta
mark fyrir félagið í leiknum. Ívar átti
mjög góðan leik og var til að mynda
valinn maður leiksins hjá Sunday
Mirror.
HERMANN Hreiðarsson var í liði
Ipswich Town á sunnudag sem tók á
móti Leicester City á Portman
Road. Ipswich valtaði yfir Leicester
í leiknum og lokatölur urðu 6:1.
HELGI Valur Daníelsson var
einnig allan tímann í liði Peterbor-
ough í 2. deild ensku knattspyrnunn-
ar þegar liðið tapaði 1:0 fyrir Hudd-
ersfield á heimavelli.
ARNAR Gunnlaugsson var hins
vegar ekki í leikmannahópi Dundee
United sem steinlá fyrir meisturum
Celtic í skosku úrvalsdeildinni, 5:0.
MICHAEL Ricketts, leikmaður
Bolton, skoraði fyrsta mark leiktíð-
arinnar í ensku úrvalsdeildinni gegn
Fulham á laugardag. Markið kom á
fjórðu mínútu úr vítaspyrnu sem
dæmd var þegar Frakkinn Alain
Goma braut á landa sínum Youri
Djorkaeff.
STEPHEN Wright varð hins veg-
ar þess vafasama heiðurs aðnjótandi
að fá fyrsta gula spjald leiktíðarinn-
ar í leik með sínum nýju félögum í
Sunderland gegn Blackburn Rov-
ers. Wright fékk áminninguna fyrir
að brjóta á Damien Duff.
STEPHEN Carr, varnarmaður úr-
valsdeildarliðsins Tottenham Hot-
spur, mun ekki leika með liðinu
næstu vikurnar þar sem hann
meiddist í fyrsta leik liðsins á laug-
ardag gegn Everton. Þetta er mikið
áfall fyrir Carr sem lék nánast ekk-
ert á síðustu leiktíð vegna meiðsla í
hné, en búist er við að hann verði frá
keppni í allt að sex vikur þar sem
vöðvi í aftanverðu læri rifnaði.
FÓLK