Morgunblaðið - 21.08.2002, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.08.2002, Blaðsíða 1
194. TBL. 90. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 21. ÁGÚST 2002 GRÍMUKLÆDDIR þýzkir sér- sveitalögreglumenn brutu sér í gærkvöldi leið inn í íraska sendiráð- ið í Berlín og leystu tvo sendiráðs- starfsmenn úr gíslingu. Var þar með endi bundinn á gíslatöku sem stóð yfir í fimm tíma. Fyrr um dag- inn höfðu gíslatökumennirnir sleppt öðrum starfsmönnum sendiráðsins. Hér hrópar einn þeirra slagorð og heldur á lofti mynd af Saddam Hussein Íraksforseta, eftir að að- gerðum lögreglu lauk í gærkvöldi. Að sögn lögreglu voru fimm manns handteknir, meðlimir lítt þekkts hóps andstæðinga Saddams Husseins og ríkisstjórnar hans, en þeir höfðu efnt til gíslatökunnar í þeim yfirlýsta tilgangi að hvetja til „frelsunar föðurlands“ þeirra und- an stjórn Saddams. „Hinum grunuðu gafst ekkert færi á að veita mótspyrnu [við hand- tökuna],“ sagði Ehrhart Körting, innanríkisráðherra í borgarstjórn Berlínar, á blaðamannafundi. „Greinilegt er að hér var að verki nýstofnaður hópur [íraskra stjórn- arandstæðinga]. Hann var ókunnur yfirvöldum hér,“ bætti hann við. Það sem virðist hafa vakað fyrir gíslatökumönnunum, sem sögðust meðlimir „Lýðræðislegu írösku stjórnarandstöðunnar í Þýzka- landi“, er að fá Þjóðverja til að láta af andstöðu við að Bandaríkjamenn fari fyrir herför gegn Írak í þeim tilgangi að koma Saddam Hussein frá völdum. Þýzkir stjórnmálamenn hafa verið óragir við að lýsa efa- semdum um að skynsamlegt sé að gera innrás í Írak. Endi bundinn á gíslatöku í Berlín Berlín. AP. Reuters Rumsfeld segir al- Qaeda-liða í Írak Washington. AFP. DONALD Rumsfeld, varnarmála- ráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær að liðsmenn al-Qaeda-hryðjuverka- samtakanna nytu hælis í Írak. Tók hann fram á blaðamannafundi í Washington að það væri „fjarstæðu- kennt“ að ætla annað en að íröskum stjórnvöldum væri kunnugt um það. „Í grimmri einræðisstjórn sem svífst einskis og heldur eigin þjóð í heljargreipum er mjög erfitt að ímynda sér að ríkisstjórnin sé ekki upplýst um það sem gengur á í land- inu,“ sagði hann. Þetta er í annað sinn á innan við mánuði sem Rumsfeld heldur því op- inberlega fram að al-Qaeda-liðar sem flúðu frá Afganistan hafi leitað hælis í Írak. En hann lagði ekki fram neinar frekari upplýsingar sem sýnt gætu fram á tengsl al-Qaeda-manna og Íraksstjórnar Saddams Husseins. Bandaríkjastjórn hefur ítrekað vísað til tengsla milli skipulagðra hryðjuverkahópa og „þrjótaríkja“, sem ráða yfir gereyðingarvopnum, sem réttlætingar fyrir „fyrirbyggj- andi hernaðaraðgerðum“. Það sem hingað til hefur skort eru þó skýrar sannanir fyrir fullyrðingum um að tengsl séu milli Íraksstjórnar og al- Qaeda-hreyfingarinnar.  Efna- og lífefnavopn/23 Fjarstýrð- ir veiði- hundar Helsinki. AP. FINNSKIR veiðimenn munu nota nýja tegund farsíma á óvenjulegan hátt á veiðitíma- bilinu í haust. Farsíminn, sem einnig er búinn GPS-staðsetn- ingarbúnaði, gerir veiðimönnun- um kleift að fylgjast með veiði- hundum sínum á tölvuskjá og gefa þeim skipanir í gegnum farsíma. Hundarnir verða þjálf- aðir í að gefa mismunandi gelt eftir því hvaða dýrategund þeir hafa fundið og veiðimaðurinn, sem heyrir það í gegnum sím- ann, mun svo geta gefið hund- inum fyrirmæli með sama hætti. „Við erum með beina teng- ingu við hundinn og vitum sam- stundis á hælum hvaða dýrs hann er,“ segir veiðimaðurinn Asko Makinen, meðan hann klappar hundinum Retu, sem er með farsíma bundinn á bak sér. Samtök veiðimanna hafa prófað búnaðinn í eitt ár við margvíslegar aðstæður og segja hann reynast vel. „Þetta er eðli- leg þróun þess staðsetningar- búnaðar sem við höfum notað sl. 25 ár,“ segir Klaus Ekman, tals- maður samtaka finnskra veiði- manna. „Það sem breytist nú er að við getum átt samskipti við hundana þótt margir kílómetrar skilji okkur að.“ Rússlands, Sergei Ivanov, sem skoð- aði slysstað í gær. „Þrjátíu og þrír lifðu slysið af.“ Hershöfðingi rekinn Ivanov vék hershöfðingjanum Víta- líj Pavlov úr embætti í gær vegna þess að öryggismálum í þyrluflugi á svæðinu hefði verið ábótavant en Pav- lov var yfirmaður flugmála í rússn- eska hernum. Þá bannaði Ivanov allt flug Mi-26 þyrlna í Tsjetsjeníu. FULLLJÓST þykir að rússnesk her- flutningaþyrla af gerðinni Mi-26, sem hrapaði nærri einu úthverfa Grosní, höfuðborgar Tsjetsjeníu, hafi verið skotin niður af tsjetsjneskum upp- reisnarmönnum. Að minnsta kosti 114 rússneskir hermenn létu lífið þeg- ar þyrlan fórst. Er þetta mesta áfall sem rússneski herinn hefur orðið fyr- ir á þeim 35 mánuðum sem borgara- stríðið í héraðinu hefur staðið yfir. Í upphafi var ekki ljóst hvað olli því að þyrlan hrapaði og sögðu embætt- ismenn rússneska hersins að vélarbil- un hefði verið um að kenna. Vladímír Ústínov, ríkissaksóknari Rússlands, sagði hins vegar í gærkvöldi að líkleg- ast þætti að þyrlunni hefði verið grandað. Interfax-fréttastofan hafði eftir heimildarmönnum innan rússn- eska hersins að fundist hefði eld- flaugabyssa af gerðinni Strela nærri slysstað. Þá hefði flugmaður þyrlunn- ar sagst hafa heyrt dynk í hlið vél- arinnar rétt áður en eldur braust út í henni. ITAR-TASS-fréttastofan vís- aði til þess að „fjölmörg vitni“ hefðu séð þyrluna verða fyrir annaðhvort léttri eldflaug eða kúlnahríð úr stórri vélbyssu. Þykir þetta renna stoðum undir fullyrðingar uppreisnarmanna um að þyrlan hafi verið skotin niður. „Nýjustu upplýsingar okkar herma að 147 menn hafi verið um borð í þyrl- unni,“ sagði varnarmálaráðherra Talsmaður tsjetsjneskra uppreisn- armanna, Mayarbek Vachagayev, sagði að árásir sem þessi myndu halda áfram þar til síðasti rússneski hermaðurinn hefði sig á brott úr land- inu. „Það er ekki hægt að flokka þessa árás undir hryðjuverk vegna þess að við eigum í stríði,“ sagði Vachagayev. „Hernaðaraðgerðir munu halda áfram þar til Rússar eru tilbúnir að setjast að samninga- borðinu.“ Skæruliðar grönduðu rússnesku þyrlunni AP Úr sjónvarpsmynd frá slysstað í Tsjetsjeníu í gær. Hér sjást rússneskir hermenn við flak Mi-26-þyrlunnar. 114 félagar þeirra fórust með henni. Moskvu. AP, AFP. ÍSRAELSKIR hermenn skutu í gær til bana bróður fangelsaðs for- sprakka herskás hóps Palestínu- manna. Tveir aðrir Palestínumenn og einn ísraelskur hermaður biðu bana í aðskildum skærum, sem áttu sér stað þrátt fyrir að nýtt öryggismálasam- komulag milli hinna stríðandi fylk- inga hefði tekið gildi. Mohammed Saadat, 22 ára gamall bróðir Ahmads Saadats, foringja Al- þýðufylkingarinnar til frelsunar Pal- estínu, PLFP, var skotinn sjö skotum er dulbúnir ísraelskir sérsveitamenn reyndu að handtaka hann fyrir utan heimili hans í Ramallah á Vestur- bakkanum. PLFP heitir hefndum Saadat varð var við mennina sem nálguðust hann og tók þegar upp byssu. Upphófst þá skotbardagi sem endaði með því að hann lá í valnum með sjö kúlur í líkamanum. Nokkrir ísraelskir hermenn særðust í skot- hríðinni. Talsmenn PLFP, sem hefur aðalbækistöðvar sínar í Damaskus, hétu þegar hefndum. Ahmed Saadat hefur verið í haldi í Jeríkó frá því í byrjun maímánaðar. Ísraelar halda því fram að hann hafi staðið á bak við morðið á ísraelskum ráðherra í októ- ber í fyrra. Hin manndráp dagsins áttu sér stað er Ísraelsher hélt áfram skipulagðri leit að eftirlýstum meint- um öfgamönnum í byggðum Palest- ínumanna, en samhliða henni hóf her- inn að draga sig til baka frá vissum svæðum á Vesturbakkanum, sem höfðu verið hernumin á ný. Í fyrsta sinn í meira en tvo mánuði gat palestínska lögreglan sinnt eft- irliti á götum Betlehemborgar á Vesturbakkanum, en í samræmi við samkomulag sem fulltrúar heima- stjórnar Palestínu gerðu við Ísra- elsstjórn á hún einnig að skila Gaza- svæðinu undir palestínska öryggis- málalögsögu á næstu dögum. Samkvæmt samkomulaginu heita Ísraelar frekari tilslökunum ef það tekst að halda ofbeldisverkum í skefjum. Ísraelski herinn yfirgefur Betlehem Mannfall þrátt fyrir samkomulag Ramallah. AP, AFP. ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.