Morgunblaðið - 21.08.2002, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 21.08.2002, Qupperneq 6
FRÉTTIR 6 MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ NAUÐSYN ber til að gerður sé samningur milli Reykjavíkurborgar og lögreglunnar í Reykjavík um hvernig staðið skuli að undirbúningi og framkvæmd hátíða líkt og Menn- ingarnætur, að því er fram kemur í bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokks frá fundi borgarráðs í gær. Í bókuninni kemur fram að þeir dapurlegu atburðir, sem hafi orðið vegna óláta og ofbeldis að lokinni flugeldasýningu á Menningarnótt, staðfesti nauðsyn þess að gerður sé slíkur samningur þannig að tryggt sé að eðlilegt tengsl séu á milli skipulags hátíðarinnar og öryggis- ráðstafana. Jafnframt verði að líta til þess að borgarsjóður kunni að þurfa að greiða kostnað vegna lög- gæslu, setji borgaryfirvöld fram sérstakar óskir um öryggisráðstaf- anir. Staðfestir gagnrýni meirihlutans Í bókun R-lista segir að í heild hafi Menningarnótt í Reykjavík tek- ist afskaplega vel og verið skipu- leggjendum, borgarbúum og gest- um til mikils sóma. Ennfremur segir þar að athyglisvert sé að D- listi skuli leggja fram bókun sem staðfesti þá gagnrýni sem meirihlut- inn hafi haldið uppi á skorti á sýni- legri löggæslu. Ljóst sé að ríkið, í þessu tilfelli dómsmálaráðuneytið, vanræki skyldur sínar um að upp- fylla skyldur borgaranna. „Það er því sérkennilegt að borg- arráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggi til að borgin greiði þá þjónustu sem ríkinu ber að sinna,“ segir í bókun R-lista. Borgin og lögregla geri samning vegna und- irbúnings Bókun D-lista vegna Menningarnætur Buttercup og fleira tónlistarfólk kom á svið á Ingólfstorgi sem var þétt skipað áheyrendum. Morgunblaðið/Jón Svavarsson 70 FJÁR var smalað úr Esjunni í gærmorgun í þeirri viðleitni Skógræktarfélags Reykjavíkur að binda enda á plöntuskemmdir sem féð hefur valdið í skógrækt- arreitum í Esjuhlíðum. Fenginn var smali úr Borgarfirði með sér- þjálfaða smalahunda og var fénu safnað saman í Kollafjarðarrétt. Féð mun tilheyra bænum Varma- dal og segir Vignir Sigurðsson, framkvæmdastjóri Skógræktar- félags Reykjavíkur, að bráða- birgðalausn hafi fundist á málinu með því að féð verði tekið í heimahaga. Smalamennskan í Esjunni í gær endaði með stimpingum milli Sig- valda Ásgeirssonar, fram- kvæmdastjóra Vesturlandsskóga, og Ólafs Hólm Guðbjartssonar, bónda á Sjávarhólum, sem kom á móti smalamönnum. Ólafur var ósáttur við smalamennskuna þar sem hann taldi að smalamenn hefðu ekki leyfi til að reka féð inn í rétt nema með leyfi viðkom- andi sveitarstjórnar. Hann segist hafa lesið í Morgunblaðinu í gær að smala hafi átt fé í Esjunni og hann hafi viljað kanna hvort hann ætti fé í þeim hópi, þegar hann kom að smalamönnum, þar sem hann búi alltaf við þá hættu að féð sleppi á þjóðveginn. Hann telur hins vegar að skógræktar- félagið hafi brotið gildandi fjall- skilareglur og félagið hafi ekki verið að smala fé í landi Mógils- ár. Ólafur segist hafa orðið fyrir árás Sigvalda og hafa leitað á slysadeild Landspítalans til þess að láta huga að áverkum sínum. Samkvæmt frásögn Sigvalda byrjuðu átökin með því að Ólafur tók í hann og var því svarað með hælkrók svo Ólafur féll í jörðina. Ofanbyggðagirðing, sem sett var upp á vegum Samtaka sveit- arfélaga á höfuðborgarsvæðinu, í þeim tilgangi að hindra lausa- göngu búfjár, er á köflum orðin ónýt og því hefur féð átt greiðan aðgang að Esjuhlíðum. „Viljum ekkert stríð“ „Við viljum ekkert stríð við ná- granna okkar heldur er óvið- unandi að hið nýskipulagða úti- vistarsvæði borgarinnar skuli vera þakið fé sem bítur hér og skemmir,“ segir Vignir. Haraldur Jónsson, bóndi í Varmadal, segir að féð verði í heimahögum fram eftir vikunni en síðan verði það rekið aftur upp í afrétt. Hann segist vera sér þess meðvitandi að skógræktar- girðingin sé ekki hluti af upp- rekstrarlandinu þótt Esjan í heild sé það. Hann segist aðspurður ekki sáttur við aðgerðir Skóg- ræktarfélagsins en segir að ein- hvern veginn verði að leysa mál- ið. Örn Sigurðsson, deildarstjóri hjá umhverfis- og heilbrigðisstofu Reykjavíkurborgar, segir að ver- ið sé að vinna í málinu af fullum krafti og vonir séu bundnar við að drög að samþykkt um bann við lausagöngu búfjár verði sam- þykkt á fundi heilbrigðis- og um- hverfisnefndar á morgun, fimmtudag. Fari svo verður málið sent borgarstjórn til umfjöllunar og samþykktar sem þarf síðan að hljóta staðfestingu landbúnaðar- ráðherra. Haraldur í Varmadal segir að Reykjavíkurborg hafi enga heim- ild til þess að breyta upprekstrar- og afréttarmálefnum upp á sitt eindæmi enda skuli reglur um þau gilda eins og var fyrir sam- einingu sveitarfélaga. 70 fjár rekin úr Esjuhlíðum Til beinna átaka kom að lokum milli Sigvalda og Ólafs undir Esjunni. Morgunblaðið/Jim Smart Ólafur Hólm Guðbjartsson bóndi gekk á móti smalamönnum og fénu er reksturinn var komið niður á láglendið. Harka færðist í atburðarásina,en myndin er tekin skömmu áður en þeim Ólafi og Sigvalda Ásgeirssyni laust saman. VEGAGERÐ ríkisins hefur kynnt samgönguráðherra hugmyndir stofnunarinnar um hvernig standa megi að framkvæmdum við jarð- göng milli Reyðarfjarðar og Fá- skrúðsfjarðar annars vegar og Siglufjarðar og Ólafsfjarðar hins vegar. Eru þessar hugmyndir byggðar á að hvor tveggja göngin verði boðin út í einu lagi og samið við einn verktaka um borun þeirra en að sögn Jóns Rögnvaldssonar aðstoðarvegamálastjóra er mat stofnunarinnar að með þessu móti megi best nýta fjármagn til fram- kvæmdanna. Hann tók þó skýrt fram að hér væri aðeins um hugmyndir að ræða og engar ákvarðanir hefðu verið teknar. Samkvæmt þessum hugmyndum yrði byrjað á Austfjarðagöngunum og framkvæmdir við jarðgöng á Norðurlandi hæfust nokkru síðar. ,,Ef þetta er allt boðið út í einum pakka, þá teljum við að heppileg- ast væri að verktakinn notaði bor- tækin fyrst fyrir austan og sprengdi í gegn og færi svo með tækin norður og byrjaði þar á meðan verið væri að styrkja göng- in og ganga frá vegum fyrir aust- an. Hitt er svo annað mál að það er hægt að haga þessu á ýmsa vegu,“ segir Jón. Fimm verktakar valdir eftir forval í byrjun næsta mánaðar Vegagerðin auglýsti eftir þátttak- endum í forvali vegna jarðganganna í maí sl. og rann frestur til að skila inn forvalsgögnum út 24. júní. Að sögn Jóns hafa ýmsir sýnt áhuga á að taka verkið að sér og er nú stefnt að því að valin verði úr fimm fyrirtæki í fyrri hluta næsta mán- aðar, sem fái að taka þátt í lokuðu útboði. Í framhaldi af því væri hægt að ganga frá endanlegum útboðs- gögnum, að sögn Jóns. Hann segir aðspurður óraunhæft að ætla að framkvæmdir gætu hafist fyrr en á næsta ári og minnir á að ekki hafi enn verið teknar ákvarðanir um hvernig framkvæmdum við fyrir- hugaðar jarðgangaframkvæmdir verður hagað. Jarðgöng milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar yrðu 5,9 km löng með vegskálum en milli Siglufjarð- ar og Ólafsfjarðar er gert ráð fyrir að byggð verði tvenn göng, alls rúmlega 10 km löng. Gert hefur verið ráð fyrir að framkvæmdir við göngin geti staðið í a.m.k. sex ár og heildarkostnaður við framkvæmd- irnar hefur verið áætlaður níu til tíu milljarðar króna. Sameiginlegt útboð og byrj- að á Austfjarðagöngum Vegagerðin kynnir ráðherra hugmyndir um jarð- gangagerð á Norður- og Austurlandi EKKI skiptir öllu hvort erlendir ferðamenn hafa skilað Íslending- um meiri gjaldeyristekjum en virkjanir heldur er aðalatriðið hvernig landinu er skilað til ferða- manna í framtíðinni. Þetta kemur fram í grein eftir Jonathan B. Tourtellot, einn af rit- stjórum ferðablaðs National Geo- graphic, í júlí/ágústblaði tímarits- ins. Hann segir að Ísland sé frábær ákvörðunarstaður og Gullfoss sé mest sótti ferðamannastaðurinn, en um 300.000 manns skoði fossinn árlega. Í því sambandi bendir hann á að þakka beri Sigríði Tómasdótt- ur fyrir að berjast fyrir verndun fossins, þegar auðugir Íslendingar hafi viljað virkja hann í samvinnu við fulltrúa erlendra orkuvera á fyrri hluta liðinnar aldar. Skammt frá séu Hveravellir þar sem landslagið sé einstakt í veröld- inni, fjársjóður í ferðamálum Ís- lendinga, en land í um 80 mílna fjar- lægð í austurátt frá Hveravöllum sé í hættu vegna áætlana um virkjun- arframkvæmdir. Ríkisstjórnin vilji koma upp Kárahnjúkavirkjun og enn komi áhugi erlendra manna við sögu en andstæðingar fram- kvæmda vilji sjá þjóðgarð á svæð- inu. Þeir segi að nýir vegir og virkj- anir eyðileggi einstakt vistkerfi og komi í veg fyrir að ferðamenn geti notið ósnortinna upplanda. Haft er eftir Árna Finnssyni, formanni Náttúruverndarsamtaka Íslands, að um sé að ræða stærstu óskertu óbyggðir Vestur-Evrópu, en þess getið að Siv Friðleifsdóttir um- hverfisráðherra hafi gefið grænt ljós á undirbúningsframkvæmdir í desember í fyrra. Höfundur segir að Gullfoss þoli mikla umferð ferðamanna en ekki Hveravellir. Því eigi ekki að bæta vegasamgöngur þangað og ráða- menn geri sér ekki grein fyrir mikilvægi Kárahnjúka í ferðamál- um. Verði virkjanir ofan á veltir hann fyrir sér hvort ferðamenn muni í framtíðinni koma til þess að sjá óbyggðir sem séu ekki eins óskertar, þaktar vegum, raf- magnslínum og virkjuðum ám. Ísland á valið Grein í National Geographic

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.