Morgunblaðið - 21.08.2002, Page 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2002 11
BJÖRGUNARSKIP Slysavarna-
félagsins Landsbjargar, Gunnar
Friðriksson frá Ísafirði, dró bátinn
Laxinn EA af strandstað síðdegis í
gær, samkvæmt tilkynningu sem
Landsbjörg sendi frá sér í gær-
kvöldi. Báturinn strandaði í stór-
grýttri fjöru við Gölt í Súganda-
firði í fyrrakvöld og er talinn furðu
lítið skemmdur, að sögn Valgeirs
Elíassonar, upplýsingafulltrúa
Landsbjargar. Farið var með bát-
inn strax inn til Ísafjarðar þar sem
hann var hífður á land.
Skipstjóri var einn um borð og
komst í land af sjálfsdáðum. Hann
var í yfirheyrslum hjá lögreglunni
á Ísafirði síðdegis í gær, en hann
er grunaður um ölvun. Var honum
sleppt að yfirheyrslum loknum.
Til þess að gera viðvart um
strandið gekk maðurinn a.m.k. 10
km leið til Selárdals við Ásfjall
sem er innar í Súgandafirði, en
þar komst hann í síma í sumar-
húsi. Ekkert neyðarkall barst frá
bátnum, hvorki í gegnum síma, tal-
stöð né sjálfvirka tilkynninga-
skyldu.
Í gærmorgun fór björgunar-
sveitin Björg frá Suðureyri á
strandstað og skoðaði aðstæður
þar sem reynt var að meta ástand
bátsins og hvort möguleiki væri á
að draga hann á flot. Björgunar-
menn tóku flest verðmæti úr Lax-
inum í gær, s.s. rafmagnstæki og
veiðarfærarúllur. Talið er að bát-
urinn hafi farið yfir skerjagarð í
firðinum á flóðinu í gærmorgun.
Bátur náðist á
flot eftir strand
í Súgandafirði
Ljósmynd/J. Bæring Pálmason
Báturinn dreginn til hafnar á Ísafirði af björgunarskipi Ísfirðinga.
GUÐRÚN Ebba Ólafsdóttir,
borgarráðfulltrúi Sjálfstæðisflokks,
sem jafnframt á sæti í fræðsluráði,
segir framgang borgaryfirvalda
vegna byggingar Klébergsskóla ekki
samræmast fullyrðingum R-lista um
að Reykjavíkurborg sé í fararbroddi
í skólamálum.
Guðrún Ebba segist hafa séð
myndband sem kennarar við skólann
sýndu á fundi í Fræðslumiðstöð síð-
astliðinn föstudag þar sem sýnd voru
myndbrot frá aðstöðunni í Klébergs-
skóla. Í gær heimsótti hún skólann
og segir hún aðstöðuna þar verri en
hún gerði sér í hugarlund. Gluggar í
nýrri stjórnunarálmu, sem ráðgert
sé að taka í notkun, leki allir og mik-
ill raki sé innandyra.
„Ég get ekki ímyndað mér að
skólastarf eigi að hefjast þarna eftir
viku, hálfan mánuð,“ segir Guðrún
Ebba. Hún bendir á að kennarar séu
enn ekki mættir til starfa í skólann
en um það hafi verið samið sérstak-
lega við gerð síðustu kjarasamninga
að undirbúningsdögum kennara í
ágúst yrði fjölgað.
„Það er engin afsökun að reyna að
kenna embættismönnum eða verk-
tökum um. Mér finnst ábyrgð kjör-
inna fulltrúa vera langmest og sam-
kvæmt grunnskólalögum ber
sveitarstjórn ábyrgð á skólahaldi.“
Guðrún Ebba bendir á að við blasi að
nemendur við skólann muni ekki fá
kennslu á við jafnaldra þeirra í
Reykjavíkurborg. Hún minnir á að
skólastjóri Klébergsskóla hafi sagt
að hægt hefði verið að grípa inn í í
mars eða apríl og jafnvel í maí og
skipta um verktaka.
„Þá spyr ég, af hverju var það ekki
gert? Ég held að það sé óþægilegt
fyrir meirihlutann að svara því en
augljóslega var það af því að kosn-
ingar voru 25. maí,“ segir Guðrún
Ebba.
Ráðstafanir gerðar til
að ljúka framkvæmdum
Á fundi borgarráðs í gær óskaði
D-listi bókunar um að hin pólitíska
forysta R-lista hefði brugðist skól-
anum, ekki aðeins að þessu sinni
heldur einnig áður.
Fram kemur í bókun R-lista að sú
töf sem orðið hefur á verkfram-
kvæmdum við skólann stafi af van-
efndum verktaka. Pólitísk forysta R-
listans hafi þegar gert ráðstafanir til
þess að ljúka þeim framkvæmdum
sem fyrirhugaðar voru í ár með
samningi við annan verktaka og hafi
þær verið samþykktar í borgarráði
13. ágúst sl.
Ábyrgð kjör-
inna fulltrúa
langmest
Morgunblaðið/Kristinn
Sigþór Magnússon skólastjóri sýnir Mörtu Guðjónsdóttur, Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur og Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur Klébergsskóla.
FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA
kynnti í gær í ríkisstjórn greinar-
gerð sem íslenska ríkið mun leggja
fram hjá Alþjóðavinnumálastofnun-
inni (ILO), vegna kæru ASÍ og Far-
manna- og fiskimannasambandsins
(FFSÍ) á hendur íslenskum stjórn-
völdum vegna lagasetningar á verk-
fall sjómanna í maí í fyrra.
ASÍ og FFSÍ sendu kæruna til
félagafrelsisnefndar ILO 22. janúar
síðastliðinn. Þar kærðu samtökin
ríkisstjórn Íslands fyrir meint brot
á 88. og 97. samþykkt Alþjóða-
vinnumálastofnunarinnar, með því
að hafa sett lög sem stöðvuðu verk-
fall sjómanna og lögðu bann við
verkföllum þeirra til 31. desember
2003.
„Við vísum þessu að sjálfsögðu á
bug og rökstyðjum það hvers vegna
við neyddumst til að gera þetta,“
sagði Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra um efni kærunnar og grein-
argerð þá sem ríkið mun nú senda
Alþjóðavinnumálastofnuninni vegna
málsins.
Á von á niðurstöðu fljótlega
„Málið er í meðferð hjá félags-
frelsisnefndinni. Við höfum skilað
þeim gögnum sem við höfum ætlað
okkur og ríkisstjórnin hefur fengið
frest til þess að tjá sig og er von-
andi verið að leggja lokahönd á það
í ríkisstjórninni,“ sagði Magnús
Norðdahl, lögfræðingur ASÍ.
Kvaðst hann eiga von á niðurstöðu
Alþjóðavinnumálastofnunarinnar
fljótlega.
Ráðherra sendir
ILO greinargerð
vegna kærunnar
Kæra ASÍ vegna laga á verkfall
sjómanna til meðferðar hjá ILO
ERLENDIR ferðamenn eru al-
mennt mjög ánægðir með Reykja-
vík sem áfangastað og njóta sund-
laugar borgarinnar mestrar hylli
af þeim þáttum sem spurt var um
í árlegri viðhorfskönnun Ferða-
málaráðs Íslands. Könnunin var
gerð meðal erlendra ferðamanna
sem fóru úr landi á tímabilinu
september 2001 til maí 2002.
Í könnuninni var sérstaklega
spurt um viðhorf til Reykjavíkur í
heild, sundlauga í borginni,
ferðaupplýsingaefnis, veitinga-
staða, næturlífs, verslunar og
safna í Reykjavík.
Alls sögðu 79% aðspurðra upp-
lifun sína af Reykjavík góða en
4% að borgin væri í heild slæm.
Þá kváðust 78% ánægð með
sundlaugar borgarinnar og 72%
voru ánægð með gæði og framboð
af ferðaupplýsingaefni. 61%
þeirra sem svöruðu var ánægt
með næturlíf í Reykjavík og 64%
töldu veitingastaði góða.
Skiptar skoðanir um söfnin
Af þeim þáttum sem spurt var
um hlutu verslanir og söfn lægsta
einkunn. Þannig sögðust 47%
telja söfn í Reykjavík góð en 39%
í meðallagi. Fjörutíu og fimm
prósent töldu verslun í Reykjavík
góða, 39% gáfu henni meðal-
einkunn en 16% töldu hana
slæma.
Alls tóku 2.408 manns þátt í
könnuninni en úrvinnsla gagna
var í höndum IMG Gallup.
Sundlaugarnar vinsæl-
astar meðal erlendra
ferðamanna i Reykjavík
VERÐ hlutabréfa í deCODE genetics
lækkaði um 12,41% á Nasdaq-hluta-
bréfamarkaðinum í New York í gær.
Lokaverð dagsins var 2,33 dollarar en
á mánudag fór verðið í 2,66 dollara og
hafði þá aldrei verið lægra.
Lægst fór verðið í viðskiptum gær-
dagsins í 2,25 dollara. Markaðsvirði
félagsins er samkvæmt þessu 125
milljón dollarar eða rúmir 10,7 millj-
arðar króna.
Verð bréfa í
deCODE lækk-
ar um 12,4%
FRANCOIS Scheefer, franskur
ríkisborgari, sem deilt hefur um for-
ræði yfir tæplega þriggja ára gam-
alli dóttur sinni við franska móður
hennar, hefur sent frá sér tilkynn-
ingu þar sem fram kemur að hann
hefur hafið hungurverkfall í
tengslum við baráttu sína fyrir for-
ræði yfir barni þeirra. Samkvæmt
úrskurði íslenskra dómstóla hefur
móðirin, sem búsett er með barnið
hér á landi, bráðabirgðaforræði yfir
telpunni.
Í tilkynningu frá föðurnum segir
að hungurverkfallið hafi hafist á mið-
nætti 19. ágúst og muni standa um
óákveðinn tíma.
Í hungur-
verkfall um
óákveðinn tíma
FLUGLEIÐIR sjá ekki fram á að
11. september verði frábrugðinn
öðrum dögum fyrir þá farþega fé-
lagsins sem kjósa að fljúga þann dag,
að sögn Guðjóns Arngrímssonar,
upplýsingafulltrúa Flugleiða.
Fram hefur komið í fréttum að
stór evrópsk flugfélög hafa ákveðið
að aflýsa mörgum ferðum 11. sept-
ember næstkomandi þar eð mörg
þúsund farþegar hafa ákveðið að
ferðast ekki flugleiðis þann dag, en
þá verður eitt ár liðið frá hryðjuverk-
unum í Bandaríkjunum.
„Við höfum séð merkjanlegan
mun á bókunum hjá okkur til Banda-
ríkjanna þennan dag, en þær eru
færri en dagana í kring. Munurinn er
hins vegar ekki þess eðlis að tilefni
sé til að fella niður flug þennan dag
og engar ákvarðanir hafa verið tekn-
ar um það. Við verðum með fjórar
ferðir til Bandaríkjanna hinn 11.
september og enn sem komið er eru
ekki áætlanir um neitt annað en að
fara þær ferðir. Reyndar er það nú
svo að af þessum fjórum ferðum til
Bandaríkjanna er bókunarstaðan
einna best á flugið til New York,“
segir Guðjón.
Hann segir ekkert benda til þess
að farþegar verði fyrir óþægindum
af nokkru tagi þótt þeir fljúgi hinn
11. september.
Flugleiðir
halda
áætlun 11.
september
FLUTNINGABÍLSTJÓRAR frá
Flytjanda hyggja á hópferð suður yf-
ir Kjöl næstkomandi laugardag m.a.
til að „heiðra minningu frumkvöðl-
anna í flutningum og reyna að upp-
lifa ferðamáta þeirra hér áður fyrr“,
eins og segir í leiðabók um ferðina.
Um 20 bílstjórar Flytjanda víða af
landinu hafa tilkynnt þátttöku og
mega þeir hafa farþega með sér í
flutningabílunum. Útbúin verður
stutt heimildarmynd um ferðina á
myndbandi.
Flytjandi í hóp-
ferð yfir Kjöl
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦