Morgunblaðið - 21.08.2002, Síða 16
AKUREYRI
16 MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BERJADAGAR voru haldnir í
Ólafsfirði um helgina en það er ár-
legur viðburður þar sem klassískri
tónlist er gert hátt undir höfði. Örn
Magnússon á veg og vanda að þess-
ari hátíð, sem hófst með tónleikum í
Ólafsfjarðarkirkju kl. 14 á laugar-
dag. Að þeim tónleikum loknum var
keramiksýning við Ólafsfjarðar-
tjörn en Hólmfríður Arngríms-
dóttir leirlistakona hannaði nokkur
verk sérstaklega fyrir þessa sýn-
ingu.
Um kvöldið voru tónleikar fyrir
fiðlu og píanó í kirkjunni. Á
sunnudag voru tvennir tónleikar,
þeir fyrri í Kvíabekkjarkirkju, þar
sem kvæði og lög voru sungin, sum
ættuð úr sveitinni, og þeir seinni í
félagsheimilinu Tjarnarborg og
nefndust þeir Berjablátt.
Listamennirnir sem fram komu á
Berjadögum að þessu sinni voru:
Einar Jóhannesson klarinettleikari,
Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari,
Céline Dutilly píanóleikari, Marta
Guðrún Halldórsdóttir söngkona,
Sigrún Valgerður Gestsdóttir söng-
kona, Sigursveinn Magnússon tón-
listarmaður, Hólmfríður Arngríms-
dóttir leirlistarkona og Örn
Magnússon píanóleikari.
Klassísk
tónlist og
myndlist á
Berjadögum
Ólafsfjörður
Morgunblaðið/Helgi Jónsson
Hólmfríður Arngrímsdóttir við listaverk sín í Ólafsfjarðartjörn.
SIGURÐI Þór Salvarssyni, deild-
arstjóra Ríkisútvarpsins á Akur-
eyri, var sagt upp störfum sl.
mánudag og hefur hann þegar
látið af störfum. Sigurður Þór er
mjög ósáttur við þessa niðurstöðu
og hyggst halda áfram að kanna
stöðu sína innan stéttarfélags síns.
Eins og fram hefur komið var
Jóhann Hauksson ráðinn
dagskrárstjóri Rásar 2 sl. vor, með
aðsetur á Akureyri og var hann
jafnframt ráðinn deildarstjóri RÚ-
VAK og yfirmaður svæðis-
útsendinga útvarpsins. Sigurður
Þór var á meðal umsækjenda um
stöðuna.
Bjarni Guðmundsson, settur út-
varpsstjóri, vildi ekki tjá sig um
málið í gær, sagðist ekki ræða per-
sónuleg mál starfsmanna Ríkisút-
varpsins vegna trúnaðar milli
starfsmanna og stofnunarinnar.
Sigurður Þór sagði að það hefði
greinilega ekki verið áhugi fyrir
því að hann starfaði áfram innan
Útvarpsins. „Það var reyndar búið
að bjóða mér stöðu fréttamanns –
sem þýðir bæði stöðu- og launa-
lækkun – og ég tel mig ekki hafa
unnið fyrir því. Þannig að annar
flötur fannst ekki á málinu og sett-
ur útvarpsstjóri boðaði mig til
fundar í Reykjavík í gær, (mánu-
dag) og afhenti mér uppsagnar-
bréf.“
Sigurður Þór sagði að þessi nið-
urstaða hefði blasað við sér frá því
í vor. Sigurður Þór var í fimm
mánaða leyfi og dvaldi erlendis en
kom aftur til starfa í byrjun síð-
ustu viku. Hann sagði að það starf
sem hann var í hefði verið lagt nið-
ur og verkefnin færst á hendur
hins nýja dagskrárstjóra.
Deildarstjóra RUVAK
sagt upp störfum
MEIRIHLUTI íþrótta- og tóm-
stundaráðs Akureyrarbæjar sam-
þykkti á fundi sínum í gær að ráða
heimamanninn Kristin Svanbergs-
son í stöðu deildarstjóra íþrótta- og
tómstundadeildar. Kristinn var val-
inn úr hópi 34 umsækjenda. Íþrótta-
og tómstundaráð klofnaði við af-
greiðslu málsins. Kristinn fékk at-
kvæði fulltrúa Framsóknarflokks og
tveggja fulltrúa Sjálfstæðisflokks í
ráðinu.
Fulltrúar Samfylkingar og L-lista
fólksins lögðu fram bókun við upphaf
fundar, þar sem þeir gerðu það m.a.
að tillögu sinni að Soffía Gísladóttir
frá Húsavík yrði ráðin í stöðuna.
Ennfremur kemur fram í bókuninni
að eftir skoðun á greinargerð Mann-
afls um hæfi umsækjenda í starfið,
að teknu tilliti til krafna sem settar
voru fram í auglýsingu um starfið og
með hliðsjón af jafnréttisáætlun Ak-
ureyrarbæjar, sé það mat þeirra að
Soffía sé hæfust umsækjenda.
Eiríkur B. Björgvinsson, sem
gegnt hefur stöðunni síðustu ár, hef-
ur verið ráðinn bæjarstjóri á Austur-
Héraði. Hann tekur við því starfi 1.
september næstkomandi.
Deildarstjóri íþrótta-
og tómstundadeildar
Kristinn
Svanbergsson
ráðinn
LANDSMÓT hagyrðinga eru hald-
in árlega, til skiptis í landsfjórð-
ungunum og í landnámi Ingólfs.
Þau eru opin öllum sem gaman
hafa af kveðskap og annarri þjóð-
legri skemmtan. Í ár verður mótið
haldið á Akureyri laugardags-
kvöldið 24. ágúst í Lóni, félags-
heimili Karlakórs Akureyrar-
Geysis, Hrísalundi 1a. Húsið verð-
ur opnað kl. 19:00 og mótið sett kl.
20:00. Fram verða borin veisluföng
að hætti veitingahússins Bautans
og skemmtiefni verður í sönnum
landsmótsanda.
Að loknum snæðingi kveða þátt-
takendur áður en dansinn fer að
duna allt fram um óttuskeið. Fyrir
dansi leikur Afabandið.
Miðaverð á landsmótið allt er
kr. 3.800 á mann, eftir mat, frá kl.
22.00 kr. 1.500 og á dansleikinn,
eftir kl. 23.00 kr. 1.000. Tilkynna
þarf þátttöku í mat fyrir kl. 19.00
á morgun fimmtudag til Bautans á
bautinn@islandia.is eða Stefáns
Vilhjálmssonar á stefan@bugar-
dur.is.
Þátttakendur, sem vilja kynna
sig með 1–2 vísum, eru hvattir til
þess. En áhersla hefur jafnan ver-
ið lögð á að fara með nýortan
kveðskap.
Sérstök stökuefni mótsins verða:
Helgi magri og Þórunn hyrna –
af hverju fengu þau viðurnefni sín?
Hefðu þau orðið önnur á nútíma-
máli?
Landsmót
hagyrðinga
haldið í Lóni
UNNIÐ er að því að stofna nýtt
hlutfafélag um rekstur Skinnaiðn-
aðar á Akureyri. Að væntanlegu fé-
lagi standa starfsmenn innan fyr-
irtækisins, Landsbankinn og
Akureyrarbær. Að sögn Ormars
Örlygssonar, framkvæmdastjóra
Skinnaiðnaðar, er stefnt að því að
stofnhlutafé félagsins verði um 75
milljónir króna. Ormarr sagðist
vonast til að málið yrði frágengið
upp úr næstu mánaðamótum en
eignaskiptingin liggur ekki endan-
lega fyrir. Við gjaldþrot Skinnaiðn-
aðar sl. haust leysti Landsbankinn
til sín eignir þrotabúsins og í kjöl-
farið tók félag á vegum bankans við
rekstrinum.
Ormarr sagði markaðshorfur
góðar og að jafnvægi væri komið á
markaðinn eftir gríðarlegt hrun
1997–1998. „Við teljum að félagið
eigi góða möguleika, eins og það
hefur reyndar alltaf átt en við get-
um ekki séð fyrir hrun frekar enn
aðrar iðngreinar.“ Í síðasta mánuði
voru starfsmenn Skinnaiðnaðar
tæplega 90 en Ormarr sagði að þeg-
ar skólakrakkarnir færu aftur í
skólana yrðu starfsmenn fyrirtæk-
isins í kringum 60 til að byrja með.
„Við förum hægt af stað, enda að
fara inn í rólegustu mánuðina.
Helsta sölutímabil okkar á mokka-
flíkum er yfir sumarið.“ Stærsti
markaður fyrirtækisins er á Ítalíu
en einnig hefur verið selt til Banda-
ríkjanna, Bretlands og Þýskalands í
ár. Ormarr sagði að hráefnisöflun
hefði gengið alveg þolanlega þetta
árið. Sala á gærum erlendis hefði þó
heldur verið að aukast og því væri
ekki langt að bíða að sá þáttur yrði
erfiðari.
Skinnaiðnaður
Akureyri
Unnið að
stofnun
hluta-
félags um
reksturinn
FYRR í sumar var reist myndarlegt
tjald til fuglaskoðunar á Belgjar-
báru við Stekkjarnes. Það er Nátt-
úruvernd ríkisins sem reisir tjaldið
í tilraunaskyni. Á tjaldinu eru smá-
gluggar þar sem menn geta brugð-
ið upp sjónauka eða myndavél án
þess að fuglinn ókyrrist. Öllum er
velkomið að notfæra sér aðstöðuna
til að fylgjast með fugli á vatninu en
ætla þarf sér til þess nokkurn tíma,
sem lítið er nú af hjá mörgum
manni. Að þessu er nokkur ný-
lunda, þó hefur á tjaldstæði Eldár
verið fuglaskoðunartjald nokkur
sumur fyrir tjaldgesti. Afkoma and-
fugla á Mývatni er annars almennt
góð þetta sumarið, miklir flotar af
fugli víða og gaman að fylgjast með
öndunum.
Gæsaveiðitíminn er að hefjast og
virðist að mikið sé af gæs ef marka
má þá miklu flota sem voru hér í
vor og urpu víða um sveitir í sumar.
Ætti hún að þola vel álag vaskra
skotveiðimanna. Það er heldur ann-
að en segja má um rjúpuna en ekki
verður annað séð en hún sé nánast
útdauð hér um slóðir. Þetta sjá
heimamenn en umhverfisyfirvöld
og náttúrufræðingar virðast ónæm-
ir fyrir því enda rjúpan íslenskur
staðfugl og réttdræp hvar sem til
hennar næst, eða hvað?
Morgunblaðið/BFH
Fuglaskoðun á Belgjarbáru
Mývatnssveit
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦