Morgunblaðið - 21.08.2002, Qupperneq 22
ERLENT
22 MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Borgarstjórinn í La Paz á suðurhluta Kaliforn-
íuskaga, Victor Guluarte, styður hugmyndina um
spilavíti. Hann sér fyrir sér að spilavíti muni
verða hluti af miklum framkvæmdum þar sem
reist verði hótel, veitingastaðir og skemmtibáta-
höfn. „Spilavíti myndi ekki leysa öll okkar vanda-
mál en yrði frábær viðbót. Það væri eins og súr-
efnisgjöf,“ segir hann.
Kannanir sérfræðinga á vegum stjórnvalda í
Mexíkóborg benda til þess að tekjur landsmanna
gætu aukist um þrjá milljarða dollara á ári, yfir
250 milljarða króna, og störfum fjölgað um
100.000 ef spilavíti yrðu leyfð á ný. Skatttekj-
RÁÐAMENN í Mexíkó íhuga nú að leyfa starfsemi
spilavíta í landinu til að auka þjóðartekjurnar og
styrkja valtan efnahag. Er jafnvel búist við að
þingið samþykki lög þess efnis fyrir árslok, þrátt
fyrir mikla andstöðu kaþólsku kirkjunnar og
margra embættismanna í réttarkerfinu, að sögn
dagblaðsins The Washington Post.
Er vínbann ríkti í Bandaríkjunum í nokkra ára-
tugi á fyrri hluta 20. aldar voru spilavítin handan
landamæranna í Mexíkó eftirlætisleikvellir
glæpaforingja á borð við Al Capone. Þar gátu þeir
keypt með löglegum hætti ódýrt áfengi, verslað
við hórur og stundað fjárhættuspil. En árið 1938
voru Mexíkóar búnir að fá sig fullsadda og gefin
var út forsetatilskipun um bann við rekstri spila-
víta.
Hagnaðurinn af rekstrinum getur verið mikill
og núverandi forseti, Vicente Fox, er jarðbundinn
kaupsýslumaður að upplagi. Hann er sagður hafa
hug á að efla ferðaþjónustuna með því að leyfa
spilavítin á ný og eigendur ferðamiðstöðva í Can-
cun og fleiri borgum hvetja hann ákaft til dáða.
urnar yrðu miklar og er talið að margir þingmenn
geti átt erfitt með að berjast gegn tillögunni þeg-
ar bent verður á að féð verði notað til að byggja
skóla, leggja vegi og efla heilsugæslu í landi þar
sem helmingur þjóðarinnar lifir undir fátæktar-
mörkum.
En andstæðingarnir benda á að böggull fylgi
skammrifi. Fíkniefnabarónar leiti stöðugt að
tækifærum til svonefnds peningaþvættis, þ.e. leið-
um til að koma illa fengnu fé í umferð og spilavíti
verði kjörið tækifæri fyrir þá. Kirkjan segir að
spilavítin séu siðlaust fyrirbæri sem virki eins og
segull á þá sem stundi vændi og noti ólögleg fíkni-
efni.
Löng hefð fjármálaspillingar
Kirkjuleiðtogar benda einnig á að löng hefð er
fyrir því að mexíkóskir kaupsýslumenn og emb-
ættismenn séu óheiðarlegir í viðskiptum. Spilavít-
in yrðu uppspretta spillingar og mútugreiðslna
sem embættismenn myndu unnvörpum falla fyrir.
Yfirmenn lögreglumála segja að fíkniefnasalar
hafi um áratuga skeið getað mútað liðsmönnum
lögreglu, dómstóla og þings að vild.
Rafael Macedo de la Concha ríkissaksóknari
sagði í viðtali að hann hefði varað Fox forseta við
því að „skipulögð glæpasamtök væru stöðugt að
leita leiða til að þvo skítuga peninga“. Borgar-
stjórinn í Mexíkóborg, Andres Manuel Lopez
Obrador, er andvígur spilavítunum og segir að
þau muni ýta undir afbrot. „Við viljum hagvöxt en
ekki hvað sem hann kostar,“ sagði Obrador.
Mexíkóar
íhuga að leyfa
spilavíti á ný
Kevin Sullivan/The Washington Post
Irma Gonzalez, yfirmaður efnahagsþróunar í
La Paz á vesturströnd Mexíkó, við sendið eiði
þar sem yfirvöld vilja að reist verði spilavíti.
duls Rashid Dostum, en hann var
meðal leiðtoga Norðurbandalagsins.
Fjöldagröf fannst í maí
Umfjöllun Newsweek kemur í
kjölfar frétta í maí um að bandarísku
mannréttindasamtökin Læknar í
þágu Mannréttinda (PHR) hefðu
fundið fjöldagrafir nálægt Sheberg-
han. Fóru samtökin einmitt fram á
það nú um helgina að Öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna léti rannsaka
eina fjöldagrafanna.
Skv. fréttasíðu BBC fundu út-
sendarar PHR margar fjöldagrafir
FULLTRÚAR bandarískra stjórn-
valda sögðu í gær að þeir hygðust
láta rannsaka ásakanir þess efnis að
hermenn Norðurbandalagsins hefðu
myrt hundruð talibana eftir að þeir
síðarnefndu létu í minni pokann í
bardögum í norðurhluta Afganistans
í nóvember sl. Sagði Philip Reeker,
talsmaður utanríkisráðuneytisins, að
refsa bæri þeim sem hugsanlega
hefðu gerst sekir um mannréttinda-
brot og stríðsglæpi.
Ekki er um að ræða ásakanir á
hendur bandarískum hermönnum
um að þeir hafi tekið þátt í fjölda-
morði á talibönum, sem gefist höfðu
upp eftir harða bardaga við liðsmenn
Norðurbandalagsins. Norðurbanda-
lagið naut hins vegar stuðnings
Bandaríkjanna í átökunum við talib-
ana sl. haust.
Bandaríska tímaritið Newsweek
hélt því fram um helgina að talib-
anarnir hefðu kafnað í gámum sem
notaðir voru til að flytja þá frá borg-
inni Kunduz, sem áður var þeirra
helsta vígi í Norður-Afganistan, til
Sheberghan-fangelsis, sem er stað-
sett vestur af borginni Mazar-e-Sha-
rif. Hafði allt of mörgum mönnum
verið troðið í gámana, með fyrr-
greindum afleiðingum.
Fylgir sögunni að fangarnir hafi
verið í umsjá sveita Úzbekans Ab-
þegar þeir voru á ferð í Norður-Afg-
anistan snemma á þessu ári. Flestar
þeirra munu hafa verið fjögurra til
fimm ára gamlar en á þeim tíma fóru
fram harðir bardagar á þessum slóð-
um og skiptust stríðandi fylkingar í
Afganistan á um að ráða yfir Mazar-
e-Sharif. Er talið að flestar grafanna
hafi að geyma lík Hazara sem talib-
anar myrtu í bardögum þá.
Fulltrúar PHR sögðust hins vegar
einnig hafa fundið merki um að fleiri
líkum hefði nýverið verið bætt ofan í
eina af eldri fjöldagröfunum nærri
Mazar og að ýmislegt benti til að ná-
lægt Sheberghan væri nýja fjölda-
gröf að finna. Munu íbúar á svæðinu
hafa sagt að þeir hefðu séð gámabíla
afferma fjölda líka á þessum slóðum.
Reuters
Liðsmenn talibana og al-Qaeda í alræmdu fangelsi í borginni Sheberg-
han í norðurhluta Afganistans í vikunni. Aðstæður hafa batnað mjög í
fangelsinu á árinu vegna afskipta Rauða krossins.
Fjöldagrafir í Afgan-
istan verði kannaðar
Washington. AP, AFP.
Herir Norðurbandalagsins sagðir hafa
myrt hundruð talibana í nóvember sl.
ÍTALSKA lögreglan handtók í
fyrradag fjóra Marokkómenn
og einn Ítala í kirkju í Bologna
og hafa þeir verið ákærðir fyrir
að ráðgera hryðjuverk. Fékk
lögreglan veður af því, sem til
stóð, fyrir nokkru og síðustu tvo
mánuði héldu óeinkennisklædd-
ir lögreglumenn sig ávallt í
kirkjunni. Dagblaðið Corriere
della Sera í Mílanó sagði, að fyr-
irhugað hefði verið að ráðast á
kirkjuna vegna þess, að þar er
gömul mynd, freska, sem sýnir
ára vítis vera að éta Múhameð
spámann. Voru mennirnir tekn-
ir þegar þeir voru að taka mynd-
ir af freskunni og höfðu þau orð
um, að eyðileggja ætti kristin
helgitákn.
Boðaði heilagt
stríð
NOKKRUM vikum fyrir
hryðjuverkaárásirnar á banda-
rísku sendiráðin í Kenýa og
Tansaníu árið 1998 gaf Osama
bin Laden í skyn, að fyrir dyrum
stæði hryðjuverk með það fyrir
augum „að losa okkur við
Bandaríkjamenn“. Kom þetta
fram á CNN í
gær en stöðin
hefur komist yfir
allmikið af
myndböndum
frá hryðjuverka-
samtökum bin
Ladens, al-
Qaeda. Á einu bandinu boðar
hann heilagt stríð gegn kross-
förunum og gyðingum en með
krossförunum er átt við vest-
ræna, kristna menn.
Eiturefna-
skrekkur í
Hollandi
HLUTI hollenska bæjarins
Amersfoort var girtur af í gær
er vart varð við leka úr eitur-
efnageymi í lest. Í honum voru
50.000 lítrar af akrílnítríl en
mjög hættulegt er að komast í
snertingu við það eða anda því
að sér. Lestin fór frá Rotterdam
í gærmorgun og var á leið til
Hamborgar. Við venjubundið
eftirlit kom í ljós, að eiturefnið
vætlaði út um lekan loka. Var
svæðið í kringum járnbrautar-
stöðina girt af og bæjarbúum
sagt að loka gluggum og dyrum.
Slökkviliðsstjórinn í Amersfoort
sagði, að efnið hefði verið fram-
leitt í Bandaríkjunum og flutt
þaðan til Hollands. Væri það
gallað að því leyti, að í það vant-
aði mikilvægt efni, sem gerir
það stöðugra.
Hvetja til
landtöku
RÍKISSTJÓRN Zimbabve
hvatti í gær svarta íbúa landsins
til að leggja undir sig búgarða,
sem eru í eigu hvítra bænda,
þrátt fyrir vaxandi fjölda mál-
sókna á hendur ríkisvaldinu
vegna þeirrar stefnu Roberts
Mugabes forseta að hrekja hvíta
bændur af jörðum sínum.
Lögregla segir að 207 hvítir
bændur hafi verið handteknir
frá því á fimmtudag fyrir að
hunsa fyrirskipanir stjórnvalda
um að yfirgefa jarðir sínar svo
að svartir landnemar gætu tekið
við þeim.
Stjórn Mugabes skipaði um
2.900 hvítum bændum að yfir-
gefa jarðir sínar fyrir 8. ágúst
en um 60% bændanna hunsuðu
þær fyrirskipanir.
Hryðjuverki
afstýrt
STUTT
Bin Laden
JAFNAÐARMENN, sem halda um
stjórnartaumana í Svíþjóð, og
Hægriflokkurinn, stærsti stjórnar-
andstöðuflokkurinn, birtu á mánu-
dag stefnuskrá sína fyrir kosning-
arnar 15. september. Leggja þeir
báðir áherslu á mennta- og heil-
brigðismál og á aukna aðlögun inn-
flytjenda að sænsku samfélagi en
boða dálítið ólíkar leiðir að markinu.
Jafnaðarmenn með Göran Pers-
son forsætisráðherra í broddi fylk-
ingar vilja viðhalda háum sköttum
og mikilli félagslegri aðstoð en
hægrimenn boða skattalækkanir og
aukna einkavæðingu opinberra
stofnana.
Persson og flokkur hans, sem hef-
ur mikið forskot á andstæðinga sína
samkvæmt skoðanakönnunum, lofa
meðal annars að hækka barnabætur,
að fjölga í lögreglunni um 4.000
manns og að útlán bókasafna verði
ókeypis. Þá stefna þeir að því að
byggja 20.000 nýjar íbúðir fyrir
námsmenn, þeir vilja auka framlög
til skóla almennt og taka harðar á
eiturlyfjabrotum. Kostnaðurinn við
kosningaloforð jafnaðarmanna er
áætlaður 136 milljarðar íslenskra
króna en þau eru með þeim fyrir-
vara, að afgangur á fjárlögum rík-
isins verði áfram 2% og árlegur hag-
vöxtur einnig 2%.
Lofa miklum
skattalækkunum
Bo Lundgren, leiðtogi Hægri-
flokksins, segist vilja nota fjárlaga-
afganginn til að lækka skatta um
nær 1.200 milljarða ísl. kr. og afnema
fjármagnstekju- og fasteignaskatta.
Flestir Svíar greiða nú um 30% í
tekjuskatt en virðisaukaskattur,
fjármagnstekju- og fasteignaskattar
eru með því hæsta sem gerist.
Vel þykir hafa árað í sænsku efna-
hagslífi að undanförnu þrátt fyrir
sviptingarnar í heimsbúskapnum en
Lundgren segir, að hagvöxtur hafi
minnkað og Svíþjóð sé nú eftirbátur
annarra Evrópuríkja.
Hægrimenn vilja flytja inn erlent
vinnuafl til að vega upp á móti ætl-
uðum vinnuaflsskorti á næstu árum
en jafnaðarmenn og verkalýðssam-
böndin, sem þá styðja, eru því and-
víg. Segjast jafnaðarmenn óttast, að
það verði til að þrýsta niður laun-
unum og benda á, að nær sé að draga
úr atvinnuleysinu meðal þeirra inn-
flytjenda, sem fyrir eru í landinu.
Stóru flokkarnir í Svíþjóð leggja
fram kosningastefnuskrár
Greinir á
um leiðir
Stokkhólmi. AP.