Morgunblaðið - 21.08.2002, Side 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2002 25
Heimsferðir kynna nú glæsilega vetraráætlun sína
með spennandi ferðatilboðum í vetur og allt að
10% verðlækkun á ferðum frá því í fyrra.
Beint vikulegt flug alla fimmtudaga í allan vetur
frá 19. desember. Þú getur valið um þá ferðalengd
sem þér best hentar, 1, 2, 3, 4 vikur eða lengur, og
nýtur þjónustu okkar reyndu fararstjóra meðan á
dvölinni stendur. Heimsferðir bjóða nú meira úrval
gististaða á Kanarí en nokkru sinni fyrr, hvort sem
þú vilt íbúðir á Ensku ströndinni eða glæsihótel í
Maspalomas. Beint flug með glæsilegum vélum
Iberworld flugfélagsins án millilendingar.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Verðtrygging Heimsferða
Ef þú færð sömu ferð annars staðar á lægra verði,
endurgreiðum við þér mismuninn*
Kanarí-
veisla
Heimsferða
í vetur
frá kr. 45.365
Við tryggjum þér
lægsta verðið
Verð frá 45.365
7 nætur, 9. janúar, m.v. hjón með
tvö börn .
Verð kr. 49.765
14 nætur, 9. janúar, m.v. hjón með
tvö börn
Verð kr. 58.550
7 nætur, 2. janúar, Tanife, m.v. tvo
í íbúð
Brottfarardagar
Vikuleg flug alla
fimmtudaga
Einn vinsælasti gististaðurinn Paraiso Maspalomas
Verðtrygging
Heimsferðir tryggja þér lægsta verðið á Íslandi til Kanaríeyja.
Ef þú færð sömu ferð annars staðar, m.v. sömu dagsetningar,
ferðalengd og gististaði, endurgreiðum við þér mismuninn.
Gildir ekki um sértilboð.
Mesta úrvalið af
gistingu á Kanarí
Í TENGSLUM við nútímadanshá-
tíðina CODA, sem fram fer í Osló í
fyrsta sinn í haust, mun hinn
heimsfrægi dansari og danshöf-
undur Merce Cunningham og dans-
flokkur hans halda sýningu í Borg-
arleikhúsinu þann 24. september
næstkomandi. Cunningham fagnar
um þessar mundir 50 ára starfs-
afmæli sínu, en þetta er í fyrsta
sinn sem hópur hans sækir Ísland
heim. Cunningham er talinn einn
stærsti áhrifavaldur í dansheimi
nútímans.
50 ára starfsafmæli
Susanne Svenseid er fram-
kvæmdastjóri CODA og segir tæki-
færið ómetanlegt. „Merce Cunn-
ingham er 83 ára gamall í dag og
lifandi goðsögn í nútímadansheim-
inum,“ segir hún í samtali við
Morgunblaðið. „Hann hefur haft
áhrif á dansflokka alls staðar í
heiminum, en í ár fagnar dans-
flokkur hans sjálfs 50 ára starfs-
afmæli. Hann hefur sjálfur dansað
síðan hann var barn.“
Svenseid segir það mikla gæfu
fyrir Norðmenn og Íslendinga að
fá að upplifa sýningu Cunn-
inghams. „Þetta er svona einu-
sinni-á-ævinni atburður. Það er
óhætt að segja að Cunningham sé
mikill listamaður. Hann hefur unn-
ið náið með ýmsum stórum lista-
mönnum, til dæmis John Cage og
Andy Warhol. Ég tel því að margir
listunnendur úr ýmsum geirum
öðrum en nútímadansi muni hafa
gaman af sýningu hans,“ segir
hún. Bandarísku sendiráðin á Ís-
landi og í Noregi hafa stutt mikið
við bakið á CODA-hátíðinni um að
fá Cunningham til
landanna. Lands-
bankinn er einn
stærsti stuðningsaðil-
inn, ásamt fleiri fyr-
irtækjum. „Við erum
öllum þeim sem
styrkja þetta afar
þakklát,“ segir Sven-
seid.
Styrkir stöðu
nútímadans
Þetta er í fyrsta
sinn sem CODA-
hátíðin er haldin í
Noregi, en hún fer
fram dagana 24. sept-
ember–4. október.
Meginmarkmið hennar segir Sven-
seid vera að styrkja stöðu nútíma-
dans í Noregi og sýna þar hið besta
úr dansheiminum á hverjum tíma,
en hún segir hátíðina einnig hafa
áhuga á norrænu samstarfi.
„Þannig kom hugmyndin upp að
láta Cunningham-dansflokkinn
hafa viðkomu á Íslandi. Í tilefni af
50 ára starfsafmælinu er flokk-
urinn í stórri sýningarferð um
heiminn, og var laus einmitt á þess-
um tíma í september. Við njótum
því góðs af því,“ segir hún. Mörg
önnur stærri nöfn innan dans-
heimsins munu einnig sækja CODA
heim. Má þar nefna Siobhan Davies
Dance Company frá Bretlandi og
Michèle Anne De Mey frá Belgíu.
Lifandi
goðsögn
í dans-
heiminum
Merce
Cunningham
Susanne
Svenseid
Dansflokkur Merce Cunningham væntanlegur
SÖNGHÁTÍÐIN ,,Blómlegt sönglíf í
Borgarfirði“ var haldin í þriðja sinn
dagana 1.–16. ágúst og lauk með
lokatónleikum í Borgarneskirkju
síðastliðinn föstudag. Hátíðin er á
vegum Dagrúnar Hjartardóttur
söngkennara og fékk hún til liðs við
sig sem fyrr Clive Pollard píanóleik-
ara og Maríu Teresu Uribe óperu-
söngkonu. Í ár bættist Paul Farr-
ington tenórsöngvari og raddþjálfari
frá Bretlandi í hópinn en hann
kenndi Masterklass-nemendunum,
sem eru starfandi söngvarar. Frétta-
ritari leit inn á æfingu þar sem Paul
var að störfum og átti síðan tal við
hann.
Hver er Paul Farrington?
,,Ég er raddráðgjafi og söngkenn-
ari. Ég kenni söng við Covent Gard-
en, Royal Opera House, Welsh Nat-
ional Opera og English National
Opera og starfa að auki við sjúkra-
hús í Birmingham við raddráðgjöf.
Ég leiðbeini og þjálfa fólk sem er
með skemmd raddbönd eða þarf tal-
þjálfun svona eins og talmeinafræð-
ingar gera. Ég lærði raddþjálfun í
Bandaríkjunum.“
Hversvegna komstu til Íslands?
,,Ég kom fyrst fyrir þrem fjórum
árum, þá boðið af Agli Ólafssyni, en
þannig var að ég var með námskeið í
London sem Egill og Tinna konan
hans rákust inn á. Tæknin sem ég
kenni heitir Estill Voice Craft og Eg-
ill bað mig að koma til Íslands og
kynna hana. Það má segja að tæknin
snúist um listina að beita röddinni.
En í sömu ferð fór ég til Siglufjarðar,
þar sem kvennakórar landsins hitt-
ust, og leiðbeindi ég þar á vegum
Margrétar Bóasdóttur. Fyrir tveim-
ur og hálfu ári kom Dagrún Hjart-
ardóttir, sem stendur fyrir þessum
söngskóla hér, út til Bretlands og
lærði hjá mér, ári síðar kom ég og
leiðbeindi í Söngskólanum í Reykja-
vík. Þetta er í því í þriðja sinn sem ég
er hér og nú til að kenna Master-
klass-söngvurum.“
Hvað finnst þér um íslenska
söngvara? ,,Þeir eru frábærir, hvergi
í heiminum eru eins dásamlegar
raddir eins og hér. Masterklass-
nemendurnir hér eru yfirleitt ekki
fólk sem syngur fyrir peninga en
hefur raddir á heimsmælikvarða,
eins og til dæmis einn bóndi héðan
ofan úr sveit sem hefur tenór á
heimsmælikvarða og ég er viss um
að ef hann hefði snúið sér alfarið að
söng en ekki búskap væri hann að
syngja í stærstu óperuhúsum heims-
ins. Árangurinn hér á námskeiðinu
er einnig alveg stórkostlegur því
þátttakendur hafa verið opnir og
tilbúinir að læra og ná árangri.“
Ætlar þú að koma aftur til Ís-
lands?
,,Ef mér verður boðið! Annars
elska ég landið, ég fór á Langjökul í
gær og það var einstök upplifun.
Þegar við vorum að koma til baka
var sólarlagið svo fallegt að ég mátti
vart mæla, ég held við ferðafélagarn-
ir höfum ábyggilega þagað í klukku-
tíma. Hins vegar er Bláa lónið minn
uppáhaldsstaður, en því miður
kemst ég ekkert þangað í þessari
ferð.“
Hvað tekur nú við hjá þér?
,,Ég er auðvitað mjög spenntur að
heyra og sjá lokatónleikana í kirkj-
unni, en svo flýg ég heim snemma á
laugardaginn og til Verona á sunnu-
daginn til að leiðbeina. Síðan þarf ég
að fara til Norður-Írlands en ætla
svo í frí til Tyrklands í tvær vikur.
Ég vil koma því á framfæri að ég hef
virkilega notið dvalarinnar hér og
sönghátíðin í Borgarfirði er frábært
framlag til menningar utan Reykja-
víkur.“
Borgarnesi. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Erla Berglind Einarsdóttir nýt-
ur leiðsagnar Pauls Farringtons
á námskeiðinu í Borgarnesi.
Stórkostlegur árangur
á námskeiðinu
STOPPLEIKHÓPURINN er nú að hefja æfingar á
nýju íslensku leikriti. Það nefnist: „Í gegnum eld-
inn“ og er eftir Valgeir Skagfjörð.Verkið er leik-
gerð sem byggð er á bók eftir Ísak Harðarson og
Thollý Rósmundsdóttur og fjallar um tvö ungmenni,
strák og stelpu sem segja frá dvöl sinni og angist í
heimi fíkniefna.
Leikstjóri er Valgeir Skagfjörð.Tónlist er í hönd-
um Tryggva Hübner. Leikarar eru Brynja Valdís
Gísladóttir og Eggert Kaaber.Leikritið er ferðasýn-
ing ætlað unglingum í efstu bekkjum grunnskólans.
Þetta er 10. verkefni Stoppleikhópsins en frum-
sýning er áætluð í lok september.
Morgunblaðið/Þorkell
Brynja Valdís Gísladóttir, Valgeir Skagfjörð og
Eggert Kaaber.
Í gegnum eldinn