Morgunblaðið - 21.08.2002, Síða 31

Morgunblaðið - 21.08.2002, Síða 31
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2002 31 ÞRÁTT fyrir leng- ingu fæðingarorlofs og aukið framboð leik- skólarýma er áfram þörf fyrir daggæslu barna í heimahúsum. Daggæslan brúar fyrst og fremst bilið frá því fæðingarorlofi lýkur þar til barn fer á leikskóla. Auk þess getur dvöl hjá dag- móður komið til móts við sérstakar þarfir barna og fjölskyldna þeirra. Greið og skýr sam- skipti foreldra og dag- móður eru ein af for- sendum þess að daggæsla barns í heimahúsi verði farsæl. Ýmislegt annað skiptir máli en hér verður sérstakur gaumur gefinn að sam- skiptum foreldra og dagmæðra. Virkasta eftirlitið með aðbúnaði barna hjá dagmæðrum er í hönd- um foreldranna sjálfra, en ákvörð- un um vistun barns hjá dagmóður er ætíð á ábyrgð foreldra. Um sl. áramót voru 2.350 börn í daggæslu í heimahúsum hér á landi, sem er ríflega 10% allra 0-5 ára barna. Hlutfallslega eru flest börn í gæslu á höfuðborgarsvæðinu og er meginþorri þeirra á aldrinum eins til tveggja ára. Dagmæðurnar eru alls 460 og starfar ríflega fimmtungur þeirra tvær saman. Í þessari stuttu grein er hugtakið dagmóðir notað enda eru 99% þeirra sem annast daggæslu barna í heimahúsum konur. Reglugerð um dag- gæslu barna í heima- húsum myndar hina formlegu umgjörð um starfsemi dagmæðra. Fjórir aðilar koma einkum að þessari starfsemi: foreldrarn- ir, dagmæðurnar, sveitarfélögin og fé- lagsmálaráðuneytið, auk barnanna sem skipta að sjálfsögðu mestu máli. Í afar grófum dráttum má lýsa þessu þannig að foreldrar/foreldri gera samning við dagmóður um að taka barn þeirra í gæslu, en sveitarfé- lagið veitir dagmæðrum leyfi til starfseminnar að uppfylltum fjöl- mörgum skilyrðum, sem kveðið er á um í reglugerð. Félagsmálaráðu- neytið setur reglugerð um starf- semina og leggur til námsgögn og samræmda námsskrá fyrir dag- mæðranámskeið, en eftirlit með starfseminni er í höndum sveitarfé- lagsins. Flestar dagmæður vinna einar á heimilum sínum, en nokkrar vinna tvær saman eða um 22% þeirra eins og áður er getið. Einkaheim- ilin eru því starfsvettvangur dag- mæðra, en það setur starfsemina í nokkra sérstöðu. Þessi sérstaða má ekki leiða til þess að dregið sé úr eftirliti með starfseminni, en taka þarf sérstakt tillit til hennar. Í reglugerð er lögð áhersla á að eft- irlitið sé einkum í formi stuðnings, fræðslu og ráðgjafar. Felst það m.a. í heimsóknum, fræðslufundum og fundum með foreldrum og dag- móður. Dagmæður eru áhugasam- ar um fræðslu og vilja margar þiggja aukinn stuðning, fræðslu og ráðgjöf. Það er hins vegar ljóst að þrátt fyrir reglubundið og vel skipulagt eftirlit sveitarfélagsins og áhuga dagmæðra fyrir ráðgjöf og fræðslu geta samskipti foreldra og dag- mæðra ráðið úrslitum um að dag- gæslan gangi vel. Til að svo megi verða þurfa samskiptin að vera hreinskilin, óþvinguð og virk. Börn dvelja að meðaltali sex klukku- stundir á dag hjá dagmæðrum og um helmingur þeirra er í gæslu all- an daginn. Umönnun og uppeldi dagmóðurinnar skiptir því miklu máli varðandi velferð barns á þessu viðkvæma þroskaskeiði sem fyrstu árin óneitanlega eru. Þess vegna er nauðsynlegt að foreldrar og dagmóðir ræði reglulega saman um barnið, þarfir þess og þroska. Við upphaf gæslu er nauðsynlegt að dagmóðir viti af öllu sem máli skiptir í daglegu lífi barns, svo sem um sérþarfir þess ef einhverjar eru, ef barn á við veikindi að stríða og um svefnvenjur. Foreldrar verða að gefa sér góðan tíma með barni í aðlögun hjá dagmóður. Þetta gefur dagmóður tækifæri til að kynnast barni í rólegheitum og foreldrum tækifæri til að kynnast dagmóður og aðstæðum á heimili hennar. Það er t.d. eðlilegt að for- eldrar sjái hvar barnið leggur sig á daginn o.s.frv. Fjölmörg atriði þurfa að liggja ljós fyrir þegar ákvörðun um dag- gæslu barns í heimahúsi er tekin. Eitt er dvalartími barnsins í dag- gæslu, annað hvernig dagmóðir skipuleggur daginn í grófum drátt- um og þriðja hvernig matseðillinn er í meginatriðum. Þá er mikilvægt að foreldrum sé kunnugt um ef til stendur að barnið fari á gæsluvöll meðan það er í umsjá dagmóður. Sjálfsagt og eðlilegt er að foreldrar viti hve mörg börn eru alls í dag- gæslunni, aldur þeirra og á hvaða tímum þau eru hjá dagmóður hvert um sig. Einfaldast er að foreldrar fái nafnalista yfir hin börnin og foreldra þeirra. Um þessi atriði og ýmis fleiri þurfa foreldrar og dagmóðir að ræða eftir því sem við á hverju sinni. Samskipti foreldra og dagmæðra Ingibjörg Broddadóttir Daggæsla Virkasta eftirlitið með aðbúnaði barna hjá dagmæðrum, segir Ingibjörg Brodda- dóttir, er í höndum foreldranna sjálfra. Höfundur er deildarstjóri í félagsmálaráðuneytinu. áætla framleiðslukostnað forgangs- orku hennar 34–45 mill/kWh eða 2,9- 3,9 kr/kWh, háð nýtingu virkjunar- innar. Samkeppnihæfnina má auka mjög með því að selja einnig ótryggða orku frá virkjuninni á verði, sem spannar einvörðungu rekstrar- kostnaðinn, þ.e.a.s. talsvert innan við 10 mill/kWh eða 80 aur/kWh. Ef jafn- framt er markaður fyrir allt heitt vatn, sem gufuvirkjunin getur í té lát- ið, er unnt að fimmfalda orkunýtni hennar. Dugir þá að verðleggja heita vatnið á 55 kr/t (krónur á tonnið) til að unnt sé að helminga raforkuverðið frá henni án þess að skerða arðsem- ina hið minnsta. Vatnsaflsvirkjanir Engir tæknilegir örðugleikar eru á að reisa vatnsaflsvirkjun í einum áfanga, og slíkt ásamt fullri nýtingu frá upphafi og allan sólarhringinn ár- ið um kring er forsenda hámarks arð- semi hennar. Þennan kost getur álver boðið upp á, ef stærð þess og áfanga- skipting er sniðin að stærð viðkom- andi virkjunar. Í miðlungsvirkjunum, 100–200 MW, er ekki fjarri lagi, að heildarstofnkostnaður nemi 1,9 MUSD/MW, og fæst þá kostnaðar- verð forgangsorku frá nýrri meðal- stórri vatnsaflsvirkjun til stóriðju 21 mill/kWh eða 1,8 kr/kWh. Samantekt Eðli háhitasvæða og fallvatna gagnvart orkubeizlun er ólíkt, en með réttri samþættingu fæst umhverfis- vænsta og hagkvæmasta raforku- kerfi, sem völ er á. Jarðgufuvirkjanir geta af tækni- legum ástæðum ekki keppt við vatns- aflsvirkjanir um stórsölu forgang- sorku til iðnaðar, nema iðnaðurinn hagi uppbyggingu sinni með tiltekn- um hætti eða virkjað verði víða í einu. Öll rök hníga til þess, að íslenzkar orkulindir séu hagkvæmur fjárfest- ingarkostur til langs tíma litið, en rétt sé að haga verkaskiptingu á milli jarðvarma- og vatnsaflsvirkjana eftir eðli orkueftirspurnarinnar. Höfundur er rafmagnsverkfræð- ingur. heimtustjóra sem sækir þetta mál af persónulegri heift, enda bréfa- skriftir hans í okkar garð varla hægt að hafa eftir, slíkur er ósóm- inn og mannfyrirlitningin. Þó þetta hafi allt byrjað á Bach og Beethoven af því ég var að spara pening, þá er þetta komið miklu lengra, af því það hefur komið í ljós að grundvöllur STEFS til gjaldtöku á ljósvakamiðla er byggður á hreinni óskhyggju, hótunum og blekkingum. Hvað varðar tónlistar- flutning á sjónvarpsstöðinni Stöð 1 boða ég hér með tónlistarfólk til beinna samninga um flutningsrétt á verkum sínum. Það hlýtur að vera skárri kostur en að bíða eftir þeim 11 krónum sem sumir af okkar vin- sælustu tónlistarmönnum fengu greidd í stefgjöld á síðasta ári. Ég býð alla vega beina samninga, og lofa betri kjörum en 11 krónum í hlut tónlistarfólks. Það þarf því varla að taka fram að efni sem nýt- ur verndar/samningsréttar á þeirra vegum mun ekki leikið opinberlega á okkar miðlum. Opinber flutningur er samnings- atriði milli höfundar og þess sem flytur verkið opinberlega. Sé í gildi samningur um slíkt sem tekur af allan vafa um réttmæti opinbers flutnings, eru gjaldtökur og kröfur STEFS marklausar, enda óraun- hæft að greiða mörgum aðilum fyrir sama flutningsréttinn. Vegna þessa hef ég ákveðið að kæra STEF fyrir úrskurðarnefnd menntamálaráðu- neytisins og hef jafnframt beðið lög- mann félagsins að leita réttar okkar fyrir dómstólum og senda erindi til Samkeppnisstofnunar vegna þessa. Fyrir áhugamenn um lögbanns- aðgerðir STEFS gegn Stöð 1 fyrir tónflutning Bachs og Beethoven get ég upplýst áhugasama um að fyr- irtöku var frestað fram á haust, STEFI varla til mikillar gleði, enda tapa þeir nú hverju málinu á fætur öðru fyrir dómstólum. Höfundur er stjórnarformaður Stöðvar 1. Í ÞÆTTINUM „Ís- land í bítið“ á Stöð 2 15. ágúst sl. var viðtal við Pétur Blöndal al- þingismann þar sem hann lét sér um munn fara ótrúleg ummæli um ferðaþjónustuna sem sýna vel bæði van- þekkingu og fordóma alþingismannsins. Hann sagði m.a. fólk hafa mikla oftrú á ferðaþjónustunni, hún væri mjög mengandi atvinnugrein, byði ein- göngu upp á láglauna- störf, hún hefði aldrei gefið neitt af sér, þetta héngi allt á horriminni með endalausum gjald- þrotum. – Svo mörg voru þau orð al- þingismannsins, sem ásamt öðrum alþingismönnum ber ábyrgð á því að þessi unga atvinnugrein býr að mörgu leyti við lakari starfsskilyrði en margar aðrar atvinnugreinar. Lifibrauð þjóðar Það er mikilvægasta mál hverrar þjóðar á hverju þegnarnir ætla að lifa og eru trúlega allir sammála um að eggin megi ekki öll vera í sömu körfunni, þ.e. það þarf að hlúa að mörgum ólíkum atvinnugreinum svo ekki fari illa í þjóðarbúskapnum. Ferðaþjónusta er stærsti atvinnu- vegur í heimi og leggja allar þjóðir mikla áherslu á að efla hana. Fyrir því eru margar ástæður. Hún er gríðarlega mannaflafrek, hún hefur mikil margföldunaráhrif, hún er byggðavæn þar sem víða er hægt að reka ferðaþjónustu í fámennum sveitum, hún stóreykur þjónustu við heimamenn, t.d. eru veitingahús fleiri og tíðni samganga, t.d. flugs, er mikil vegna erlendra ferðamanna og á það sérstaklega við hér á Ís- landi. Án erlendra ferðamanna væru mun færri flugferðir til Íslands og frá. Til viðbótar hafa margar grein- ar innan ferðaþjónustunnar hátt hlutfall innlendrar verðmætasköpunar, en það er þáttur sem sjaldan er rætt um. Þá má nefna að ferðaþjónustan er ein af þeim greinum sem hafa lagt hvað mest til þess hagvaxtarskeiðs sem verið hefur hér á landi síðustu 5–6 árin þar sem vöxtur hennar var 8% á meðan hag- kerfið í heild óx um innan við 5%. Hlutfall ferðaþjónustu í vergri landsframleiðslu var árið 1999 (síðustu til- tækar tölur) 4,5% á meðan hlutfall fiskveiða var 7,5% og ál- og kísil- járnframleiðsla um 1,5%. Verðmætasköpun Ýmislegt er tiltekið þegar rök- ræður eiga sér stað um hagrænt gildi ýmissa atvinnugreina. Þrátt fyrir þörfina fyrir fjölbreyttar at- vinnugreinar, ekki síst útflutnings- greinar, er nauðsynlegt að menn geri sér grein fyrir kostum og göll- um hverrar greinar og hvernig megi bæta úr. Þá er gjarnan rætt um gjaldeyristekjur sem greinarnar skapa en ferðaþjónustan aflar tæp- lega 40 milljarða króna í erlendum gjaldeyri, sem er u.þ.b. 13% gjald- eyristekna landsmanna, en það er ekki nægilegt að líta á þær tölur ein- ar og sér. Það sem skiptir máli er sá virðisauki sem skapast í landinu, þ.e. hreinar gjaldeyristekjur, en þá er búið að draga frá gjaldeyris- tekjum kostnað vegna innfluttra að- fanga. Hlutfall innlendrar verð- mætasköpunar í framleiðsluvirði helstu útflutningsgreina er mjög mishátt. Hlutfall hótela er 50, flug- rekstrar 47, veitingahúsa 41 en hlut- fallið í ál- og kísiljárnframleiðslu er 27. Hvað halda menn að rúmlega 300 þúsund ferðamenn borði mikið af innlendri landbúnaðarframleiðslu? Hafa menn velt því fyrir sér að er- lendir ferðamenn greiða með gjald- eyri einhvern hæsta virðisaukaskatt í heimi af vörum og þjónustu á með- an útflutningurinn er allur frjáls af þeim skatti? Vita menn að atvinnu- tæki í ferðaþjónustu, s.s. jeppar og vélsleðar, bera sömu vörugjöld og væru þau í eigu almennings? Vita menn að á Íslandi greiðum við vel á fimmta hundrað krónur í áfengis- skatt af hverri vínflösku en sam- keppnislönd niðri í Evrópu greiða engan slíkan skatt? Vita menn að al- þjóðlegir skyndibitastaðir á Íslandi greiða tvisvar til þrisvar sinnum hærra verð fyrir hráefnið, t.d. nautahakk og ost, vegna ofurtolla og aðflutningshindrana? Ef til vill ætti þingmaðurinn að skoða þetta þegar honum gefst tími og aðstoða okkur við að fá betra rekstrarumhverfi en koma ekki fyrir sjónir almennings eins og hann gerði með fordómum og vanþekkingu af verstu tegund. Atvinnusköpun Sem fyrr segir er ferðaþjónustan mannaflafrek atvinnugrein og skap- ar störf um land allt. Síðustu tölur Þjóðhagsstofnunar eru frá árinu 1998 en þá starfaði 761 starfsmaður í ál- og orkuverum en í flugrekstri, hótelrekstri og á ferðaskrifstofum voru á sama ári 2.848 starfsmenn. Samkvæmt skilgreiningu Þjóðhags- stofnunar á ferðaþjónustu er gert ráð fyrir u.þ.b. 5.300 ársstörfum en leiða má líkur að því að a.m.k. 12–13 þúsund manns hafi af henni tekjur. Pétur Blöndal sagði að það væru einungis láglaunastörf í ferðaþjón- ustu og tiltók að hvergi í heiminum væru borguð há laun fyrir að elda mat og búa um rúm. Heldur lítur þingmaðurinn nú þröngt á sviðið. Það eru víða láglaunastörf í ferða- þjónustu eins og í mörgum öðrum greinum en langt frá öllum sanni að eingöngu sé um láglaunastörf að ræða. Flugrekstur, sem telur 22% af ársverkum í ferðaþjónustu, greiðir t.d. tvöfalt hærri laun en ál- og kís- iljárnframleiðsla. Þetta eiga þing- menn að vita! Þróun ferðaþjónustunnar hefur verið mjög hröð á síðustu 20 árum, meðalfjölgun erlendra ferðamanna hefur verið rúmlega 8% á þeim tíma, tvöfalt hærri en meðalaukning í ferðaþjónustu í heiminum. Árið 1980 komu hingað til lands 65 þúsund er- lendir ferðamenn. Árið 2000 voru þeir orðnir 303 þúsund. Svo ör þró- un skapar vaxtarverki sem atvinnu- greinin sjálf og stjórnvöld þurfa að mæta. Rótgrónari atvinnugreinar hafa tekið miklar sveiflur í gegnum tíðina og fengið mikinn stuðning rík- isins – og fá enn. Ferðaþjónustan hefur aftur á móti sprottið upp án umtalsverðra styrkja og án viðun- andi lánakjara. Ónóg arðsemi, sem því miður er víða, á sér margar skýringar. Á landsbyggðinni eru árssveiflur of miklar en á Reykja- víkursvæðinu hefur náðst viðunandi nýting fjárfestinga mestallan vetur- inn og má þakka það m.a. auknu funda- og ráðstefnuhaldi og góðri markaðssetningu ýmiss konar borg- arferða yfir veturinn. Ljóst er að stjórnendur í svo ungri atvinnugrein þurfa margir að taka til hendinni varðandi fagleg vinnubrögð en Sam- tök ferðaþjónustunnar hafa margoft krafist þess að ferðaþjónustunni séu sköpuð samkeppnishæf starfsskil- yrði á alþjóðamarkaði og tryggt sé að atvinnugreinin njóti jafnræðis við aðrar atvinnugreinar. Í tilefni af þessum ómaklegu ummælum þing- mannsins er rétt að benda honum á að hann, sem og aðrir þingmenn, er ætíð velkominn til Samtaka ferða- þjónustunnar til þess að afla sér réttra upplýsinga um greinina þann- ig að þeir geti skapað henni betra starfsumhverfi en raun ber vitni. Hvers virði er ferðaþjónustan? Erna Hauksdóttir Viðskipti Það sem skiptir máli, segir Erna Hauksdóttir, er sá virðisauki sem skapast í landinu. Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.