Morgunblaðið - 21.08.2002, Side 34

Morgunblaðið - 21.08.2002, Side 34
MINNINGAR 34 MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Ragnar GísliGuðmundsson var fæddur á Brekku á Ingjalds- sandi 25. septem- ber 1920. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Landakoti 13. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hans voru Guðrún Magnúsdóttir, f. 2.7. 1877 á Eyri í Flókadal, d. 9.5. 1967, og Guð- mundur Einarsson, bóndi og refa- skytta, f. 19.7. 1873 á Heggsstöð- um í Andakíl, d. 22.7. 1964. Þau bjuggu lengstan sinn búskap á Brekku á Ingjaldssandi í Önund- arfirði. Ragnar átti fjögur hálf- systkini. Móðir þeirra var Katrín Gunnarsdóttir, f. 20.5. 1865, d. 8.8. 1944. Þau voru: Einar, f. 30.9. 1892, d. 16.7. 1966, Sigríður, f. 1.7. 1894, d. 17.9. 1992, Gunnar, f. 30.5. 1898, d. 24.10. 1987, og Her- dís, f. 30.5. 1898, d. 8.1. 1990. Al- systkini Ragnars eru sextán: Helgi, f. 22.10. 1899, d. 16.3.1986, Halldóra, f. 20.11. 1900, d. 18.3. 1991, Þóra, f. 18.8. 1903, d. 6.7.1991, Magnúsína, f. 2.5. 1905, d. 14.2. 1916, Guðmundur Óskar, f. 30.7. 1906, d. 13.7. 1986, Sigríð- ur, f. 17.1. 1909, d. 22.2. 1909, Guðrún, f. 16.5. 1910, d. 2.10. 1999, Guðríður, f. 31.7. 1911, d. 11.8. 1911, Helga, f. 31.7. 1911, d. 7.8. 1911, Guðríður, f. 12.8. 1912, Jón Halldór, f. 3.12. 1913, d. 20.6. 1991, Sigríður, f. 16.6. 1915, d. 12.9. 1917, Magnúsína, f. 20.9. 1916, Kristján, f. 27.9. 1918, d. 28.3. 1988, Guðdís Jóna, f. 1.1. 1924, og Guðmunda Jónína, f. 10.6. 1926. Hinn 21.4. 1949 kvæntist Ragn- ar Áróru Bryndísi Oddsdóttur frá Álfadal, f. 23.10. 1927 á Flateyri. Þau slitu samvistir. Hún var dótt- ir hjónanna Vilhelmínu Jónsdótt- ur, f. 28.5. 1902 á Auðkúlu í Arn- arfirði, d. 5.7. 1979, og Odds Valgeirs Guðmundssonar, vél- stjóra, f. 9.1. 1902 í Stapadal í Jóhanni Bridde, framkv.stj. f. 10.9. 1973. Börn þeirra eru: Alex- andra Ýr, f. 21.9. 1996, Eysteinn Aron, f. 14.3. 1999, og Álfheiður Björk, f. 27.1. 2001. b) Elfa Björk, framkv.stj., f. 16.4. 1978. c) Íris Dröfn, háskólanemi, f. 23.5. 1979, sambýlism. Haukur Hilmar Þór- arinsson, hönnuður, f. 26.10. 1975. Synir þeirra eru; Kristján Ari, f. 23.4. 1999 og Júlíus Hrafn, f. 23.12. 2001. 4) Vilhjálmur, vél- virkjameistari, búsettur í Reykja- vík, f. 28.8. 1956, kvæntur Stef- aníu Örnu Marinósdóttur, húsmóður, f. 19.6. 1958 og eiga þau þrjú börn. Þau eru: a) Ragn- ar, rafeindavirki, f. 21.5. 1978, sambýlisk. Bjarnrún Jónsdóttir, f. 21.2. 1981. b) Inga Rós, förðun- arfr., f. 22.7. 1980, hennar barn Arnar, f. 11.2. 1999, faðir Jóhann Magnússon, f. 8.3. 1981. c) Mar- inó, nemi, f. 30.10. 1986. Ragnar ólst upp á Brekku í fjölmennum systkinahópi, var þar í farskóla og stundaði síðan nám við Núpsskóla í Dýrafirði. Hóf bú- skap á Brekku í félagi við Krist- ján bróður sinn frá 1947 til 1954, bjó í Lambadal í Dýrafirði og síð- ast í Valþjófsdal í Önundarfirði. Til Flateyrar flytur fjölskyldan 1957 og býr þar til ársins 1965 er þau flytja til Reykjavikur. Á bú- skaparárunum sinnti hann ýms- um félagsstörfum í sinni sveit eins og almennt var meðal bænda þar. Við smíðar vann hann á mörgum bæjum bæði í Dýrafirði og Önundarfirði. Á Flateyri starf- aði hann hjá trésmíðafélaginu Hefli bæði á Flateyri og víðar um Vestfirði. Hjá Flateyrarkirkju sinnti hann trúnaðarstörfum um árabil. Einnig vann hann við lög- gæslustörf. Síðast starfaði hann vestra sem verkstjóri hjá Kaup- félagi Önfirðinga. Í Reykjavík starfaði hann um árabil hjá Fast- eignamati ríkisins auk ýmissa starfa. Hjá Áhaldahúsi Reykjavík- urborgar starfaði hann lengst af syðra við trésmíðar og sá m.a. um viðhald í skólum, leikskólum og öðrum byggingum borgarinnar. Á sjötugsaldri aflaði hann sér réttinda sem trésmiður. Kveðjuathöfn um Ragnar verð- ur í Fossvogskirkju í dag og hefst klukkan 15. Útför hans verður gerð frá Sæbólskirkju á Ingjalds- sandi laugardaginn 24. ágúst og hefst athöfnin klukkan 14. Tálknafirði, d. 7. 3. 1964. Ragnar og Áróra hófu búskap á Brekku 1947 og bjuggu fyrir vestan til 1965, lengst af á Flateyri við Önund- arfjörð og síðan í Reykjavík. Þau eign- uðust fjögur börn. Þau eru: 1) Sveinfríður, skrifstofum., búsett í Reykjavík, f. 17.1. 1949, sambýlism. Ás- geir Guðnason, raf- eindavirkjameistari, f. 6.6. 1940. Fyrri maður, Guðjón Guðmundsson, f. 8.8. 1949. Dætur Sveinfríðar eru Kristín (kjördóttir Guðjóns), skrifstofum. búsett í Kópavogi, f. 19.4. 1965, gift Gísla Stefáni Sveinssyni, vélstjóra, f. 19.5. 1955, og Hildur, nemi, f. 27.9. 1982, búsett á Hólmavík, sam- býlism. Arnar Snæberg Jónsson, skristofum. f. 5.8. 1977. 2) Ásgeir Guðmundur, eftirlitsm., búsettur á Selfossi, f. 19.9. 1950, kvæntur Halldóru Þórisdóttur, starfsm. v/ umönnun aldraðra, f. 28.8. 1952, og eiga þau fjögur börn: a) Mar- grét Lilja Björnsdóttir, sjúkraliði, f. 17. 9. 1969, faðir Björn Gríms- son, f. 27.7. 1950, stjúpdóttir Ás- geirs, hennar barn Helga Dóra Kristjánsdóttir, f. 31.12. 1996, faðir Kristján Ástvaldsson, sjó- maður, f. 13.7. 1967. b) Áróra Bryndís, stúdent, f. 1.12. 1972, sambýlism. Benedikt Karlsson, f. 4.12. 1962, hennar barn Ásgeir Karl, f. 19.11. 1996, faðir Valdi- mar Árnason, trésmíðameistari, f. 28.3. 1969. c) Áslaug, rekstrarfr., f. 29.7. 1974, sambýlism. Jósteinn Þorgrímsson, rekstrarfr. f. 17.2. 1963, hennar barn Helga Guðrún, f. 6.7. 1996, faðir Guðmundur Jónsson, trésmiður, f. 30.12. 1968. d) Guðmundur, nemi, f. 14.12. 1981. 3) Borghildur, hjúkrunarfr., búsett í Mosfellsbæ, f. 15.11 1952, gift Kristjáni Helga Greipssyni, véltæknifr., f. 17. 2. 1948. Þau eiga þrjár dætur: a) Agla Þyri, f. 16.12. 1973, gjaldkeri, gift Karli Það var alveg nýtt fyrir okkur systkinin að hann pabbi legðist í rúmið vegna lasleika. En það gerð- ist nú í vor. Þá greindist hann með ólæknandi sjúkdóm sem dró hann til dauða á skömmum tíma. Eflaust hefur hann fengið umrenning um tíðina eins og annað fólk, en að leggjast í rúmið út af slíku var ekki hans máti. Ekki beitti hann aðra eða okkur systkinin slíkri hörku, öðru nær. Hann pabbi var alla tíð heilsuhraustur og bindindismaður var hann bæði á vín og tóbak. Ef honum var boðið slíkt sagði hann gjarnan: „Ekki núna en kannski seinna.“ Að predika yfir öðrum var honum fjarri skapi. Þau voru ófá dagsverkin sem hann lagði til okkar systkinanna við byggingar og fleira í okkar búskap. Fyrir það erum við honum ákaflega þakklát. Það var viðkvæðið hjá honum, þegar einhver var þreyttur eða slappur eftir dagsverk: „Farðu nú að hvíla þig, þetta er eiginlega að klárast.“ Síðan vann hann áfram, gekk frá og undirbjó næsta dag. Næsta morgun kom hann minnst hálftíma fyrir umtalaðan tíma og fór að undirbúa verkin. Sagðist ekkert byrjaður að vinna, heldur að athuga hvort að allt væri klárt og að ekkert vantaði. Þetta þekkjum við systkinin og eflaust fleiri sem hann þekktu. Vinnulag hans var ákveðið, fum- laust og undirbúningur allur góður. Vinnuhraði jafn og sígandi, pásur engar og neyslutímar stuttir. Úr- ræðagóður og ósérhlífinn og voru vandamál leyst á staðnum og taldi óþarfa að leita annað nema þegar allt um þraut. Verkfæri öll á sínum stað og voru ávallt tiltæk. Yrði manni á að grípa til verkfæra hans, þá kom hann með annað samskonar og færði manni og sagði: „Þetta hentar þér betur.“ Þetta gilti sér- staklega um hamarinn. Ekki var ónotunum fyrir að fara. Þrjóskur og sérvitur gat hann stundum verið en enginn leið fyrir það. Illt umtal og um ófarir ann- arra hafði hann ekki hátt, heldur dró úr og benti á málsbætur. Hann komst oft skemmtilega að orði og gat séð spaugilegar hliðar á mönn- um og málefnum. Pabbi hafði ekki hátt um sín verk, hvorki fyrr né síðar, þó oft hafi verið ærin ástæða til þess. Undir það síðasta var hann að því spurður hvar hann vildi hvíla að leiðarlokum. Eftir góða umhugsun svaraði hann: „Á Ingjaldssandi“. En spurði hvort ekki væri fullmikið fyrir því haft. Þetta svar hans kom okkur systkinunum og eflaust fleir- um sem hann þekktu ekki á óvart. Hann bar tilfinningar sínar ekki á torg. Við systkinin höfum alla tíð fundið að í brjósti hans bærðist við- kvæmt og umhyggjusamt föður- hjarta sem sumum okkar fannst erfitt að nálgast. Fjölskyldum okk- ar systkinanna var hann bæði kær og umhyggjusamur. Þegar verið var að útskýra það fyrir langafa- börnunum að nú kæmi afi ekki oft- ar í heimsókn, þá sagði ein lítil hnáta: „Nú er afi orðinn engill.“ Alltaf er nú barnstrúin hrein og tær. Þær hafa sagt okkur það systur hans, að hann hafi verið hændur að móður sinni í æsku og var með pela til fimm ára aldurs og setti þá gjarnan á hann sjálfur fyrir hátt- inn. Oft hefur verið líf og fjör á Brekkuheimilinu á hans uppvaxt- arárum í þessum stóra systkina- hópi og barnmargt var einnig á öðrum bæjum á Sandi í þá daga. Þegar hann var ungur maður á Brekku var hann oft fenginn til að sækja meðul, lækni eða ljósmóður þegar svo bar undir. Torfarin og hættuleg er leiðin um Fjörur frá Sandi í kaupstað til Flateyrar sér- staklega um vetur. Núpsprestum fylgdi hann oft yfir Sandsheiði þeg- ar þeir messuðu í Sæbólskirkju. Var hann viljugur til farar í slíkar ferðir bæði fyrir sitt fólk og aðra. Þegar hann var átján ára var hann aleinn hálfan vetur á útmánuðum sem fjármaður á Skaga og voru vistir fluttar til hans hálfsmánaðar- lega. Allt þetta þekkti samtímafólk hans fyrir vestan. Meðan fjölskylda okkar bjó á Flateyri og raunar síðar, fórum við systkinin í sveit á sumrin til skemmri eða lengri dvalar til frændfólks okkar eða vinafólks for- eldra okkar bæði á Sandi og í Daln- um. Allar þessar verðir voru hinar ánægjulegustu og bætandi. Á efri árum hafði hann gaman af að ferðast um landið og fór þá gjarnan einn á bílnum sínum með tjald. Ekki rak hann tjaldhælana niður á tjaldsvæðum eða á stöðum sem vænta mætti ónæðis eða mik- illa mannaferða, heldur í kyrrð náttúrunnar hjá búsmalanum og með sýn yfir sveit og til fjalla. Mik- ið safn mynda á hann úr þessum ferðum. Til dæmis á hann myndir af allflestum kirkjum landsins og ber það vott um trúfestu hans. Aldrei vann hann á helgustu dögum kirkjunnar. En um trúmál ræddi hann lítið, hafði þau fyrir sig. Vandlátur var hann á presta, það fundum við systkinin. Pabbi tók mikið af myndum af fjölskyldunni við ýmis tækifæri og færði okkur og munu þær skilja eftir mikið af góðum minningum. Í veikindunum var pabbi afskap- lega þakklátur fyrir þá góðu umönnun og hjartahlýju sem hann fékk. Fyrir hönd fjölskyldunnar þökkum við systkinin starfsfólki taugalækningadeildar Grensáss og líknardeildar Landspítala Landa- koti fyrir sérstaklega góða umönn- un og hlýhug. Með þessum orðum viljum við systkinin minnast pabba. Hvíli hann í friði. Börnin. Alparós, alparós árgeislar blóm þitt lauga, hrein og skær, hvít sem snær hlærðu sindrandi auga. Blómið mitt blítt, ó, þú blómgist frítt, blómgist alla daga. Alparós, alparós aldrei ljúkist þín saga. (Baldur Pálmason.) Þegar ég hugsa til hans Ragnars afa þá kemur þessi texti oft upp í kollinn á mér. Þegar ég var lítil þótti mér mjög spennandi og gam- an að fá að gista ásamt Gumma frænda mínum hjá honum Ragnari afa og þá spilaði hann þetta lag oft fyrir okkur á hljómborðið sitt. Ef ég loka augunum og hugsa til baka sé ég afa fyrir mér í dökk- bláum vinnugalla, gráum skóm með stáltá, með gleraugun á nefinu og svona afahatt, keyrandi um á rauðri Lödu með stiga á toppnum. Ladan hans afa var alltaf full af verkfærum: Hamar, hallamál, sög, fullt af nöglum og alls kyns skrúfum sem hann geymdi í barna- pelum. Hann Ragnar afi var alltaf tilbúinn með réttu verkfærin til þess að laga hvað sem var og ef hann vissi af einhverju hálfkláruðu eða í ólagi, þá gat hann sko ekki setið kyrr. Gjarnan renndi hann fingrunum eftir hurðum, gluggum og húsgögnum og bankaði í veggina til þess að ganga úr skugga um hvort hann gæti nú ekki lagað eitt- hvað fyrir okkur og ég held svei mér þá að hann hafi hjálpað allri fjölskyldu sinni, öllum kunningjum, vinum og ættingjum fjölskyldumeð- limanna, já og bara öllum sem hann gat hjálpað við eitthvað. Afi virtist vera dálítill einfari, en hann var duglegur að heimsækja okkur heim á Hofteig og virtist vera tryggur vinur vina sinna. Ég fann alltaf hlýju og öryggi nálægt afa og mér þótti ólýsanlega vænt um hann. Það var ótrúlega erfitt að fá að gera eitthvað fyrir hann Ragnar afa, hann vildi nánast aldr- ei þiggja neitt og það mátti aldrei hafa neitt fyrir honum, en ég vona svo heitt og innilega að honum hafi samt liðið vel. Það var alltaf gaman að kynna afa fyrir vinum og vinkonum, líka öllu nýju fólki því hann sýndi því alltaf mikinn áhuga, enda virtist hann þekkja alls konar fólk úti um allt land. Hann var duglegur að ferðast á Lödunni sinni og það var gaman hvað hann hélt mikilli tryggð við Vestfirðina. Mér þykir erfitt að kveðja afa og kem til með að sakna hans mikið en ég veit að honum líður vel núna og ég er mjög þakklát fyrir þann tíma sem ég hef átt með honum og að hann hafi ekki þurft kveljast mikið og vera lengi rúmliggjandi því það var mjög ólíkt honum að liggja að- gerðarlaus. Sofðu rótt, elsku afi minn, ég mun aldrei gleyma þér. Hildur Guðjónsdóttir. Elsku afi, nú er komið að kveðju- stund. Ég tel mig mjög heppna að hafa fengið að búa með mömmu hjá þér fyrstu æviár mín. Margar ferð- irnar voru farnar á Þingvöll, Laug- arvatn, Gullfoss og Geysi. Þú sýnd- ir mér herminjarnar í Hvalfirði og Öskjuhlíð, einnig Þjóðminja- og Sædýrasafnið. Ósjaldan enduðu þessar ferðir í ísbúðinni, því ég spurði: „Afi, eigum við kannski að kaupa ís?“ Fyrir ein jólin gerðir þú nokkur dúkkuhús fyrir okkur frænkurnar, tvær hæðir og ris, með heimasmíðuðum húsgögnum. Húsin voru máluð og veggfóðruð og amma saumaði gardínur. Ég var al- sæl með húsið og lék mér að því í mörg ár. Ein vinkona mín var mjög hrifin af því og fékk þig til að smíða eitt fyrir dætur sínar. Þú varst mikill hagleikssmiður og ófá handtök þín liggja víða. Fyrir fjórum árum keyptum við Gísli íbúð sem þurfti að gera ým- islegt fyrir. Þar nutum við leið- sagnar og hjálpar þinnar sem er okkur ómetanleg, hvort sem var verið að færa veggi, leggja og laga parket, skipta um gler eða þak- rennur. Ekkert virtist þér ófært í þessum efnum og alltaf varstu mættur fyrstur á staðinn. Stundum hafði ég miklar áhyggjur af þér uppi á þaki eða í háum stiga, því þú varst þá nærri áttræður en ald- urinn virtist ekki há þér. Þú varst mikið á ferðinni á Lödunni þinni, oft með stiga á toppnum, og alltaf voru verkfærin við höndina. Þótt ekki færir þú hratt yfir komst þú þó allt sem þú ætlaðir þér um land- ið. Eitt af áhugamálunum var lestur góðra bóka og ljósmyndun. Áttir þú meðal annars myndir af nær öllum kirkjum landsins. Í vetur var ákveðið að skoða skipið hans Gísla á sjómannadag- inn. Síðan komu veikindi þín upp en þú ætlaðir þér um borð og gerð- ir það þó við þyrftum að styðja þig og hafðir þú mikið gaman af. Það átti ekki við þigað liggja svona í rúminu því alltaf hafðir þú verið heilsuhraustur. Ef þú varst með klút um hálsinn varstu kannski kvefaður eða með pest en lengra náði það ekki. Í mínum vinahópi kölluðu margir þig „Ragnar afa“ og er þín sárt saknað en nú ert þú á leið í sveitina þína með hamarinn þinn. Meðan veðrið er stætt berðu höfuðið hátt og hræðstu eigi skugga á leið. Bak við dimmasta él glitrar lævirkjans ljóð upp við ljóshvolfin björt og heið þó steypist í gegn þér stormur og regn og þó byrðin sé þung sem þú berð þá stattu fast og vit fyrir víst þú ert aldrei einn á ferð. (Þorsteinn Vald.) Kannski tökum við upp þráðinn einhvern tímann aftur og ég fæ að njóta samvista þinna og þíns hlýja og góða hjartalags aftur, en á með- an, sofðu rótt. Þín Kristín. RAGNAR GÍSLI GUÐMUNDSSON MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi. Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak- markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar grein- ar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Birting afmælis- og minningargreina

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.