Morgunblaðið - 21.08.2002, Síða 39

Morgunblaðið - 21.08.2002, Síða 39
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2002 39 UMHVERFISRÁÐUNEYTIÐ hefur falið Ams- um-vöktunarhópnum að útbúa rannsóknaráætlun um orsakir og umfang kadmínmengunar í Arn- arfirði. Að sögn Einars Sveinbjörnssonar, aðstoð- armanns umhverfisráðherra, sýndi greining á sýnum sem komu úr hörpudiski, veiddum í Arnarfirði, að innihald þungmálmsins kadmíns væri of hátt miðað við viðmiðanir í reglugerð um aðskotaefni í matvælum. Í kjölfarið bannaði Fiskistofa veiðar og vinnslu á hörpudiski í Arn- arfirði. Eftir að óskir bárust um frekari rannsóknir var Amsum-hópnum falið að huga að rannsóknum á þessari mengun í Arnarfirðinum. „Menn gera sér ekki grein fyrir hver er ástæða hærra gildis í hörpudiski úr Arnarfirði en á öðrum svæðum við Ísland, því það voru líka tekin sýni úr Breiðafirði og Hvalfirði og þau reyndust innan hættumarka,“ segir Einar og bendir á að ýjað hafi verið að því að hugsanlegt sé að botn Arnarfjarðar sé söfn- unarstaður fyrir lífræn efni og snefilefni en þung- málmar eru snefilefni. Ástæða þess sé sú að Arn- arfjörður er svokallaður þröskuldsfjörður, það er þröskuldur við mynni fjarðarins. Kostnaðurinn hleypur á milljónum Helgi Jensson, formaður Amsum-hópsins og forstöðumaður mengunarvarnasviðs hjá Holl- ustuvernd ríkisins, segir að skipulagning rann- sóknarinnar hefjist nú á haustdögum. Hann legg- ur áherslu á að svona viðamikil rannsókn verði ekki framkvæmd nema mikil skipulagning hafi farið fram á undan. „Kostnaðurinn hleypur á milljónum ef það á að gera þetta og þess vegna er nauðsynlegt að menn setjist niður og skipuleggi mjög vel hvar þeir ætla að mæla og hvar þeir ætla að taka sýni áður en farið er af stað. Ég vil líka taka það fram að það er ekki umhverfisráðuneyt- isins að fylgjast með styrk þessara efna í mat- vælum. Það er í raun skylda framleiðenda að upp- lýsa neytendur um hvað er í framleiðslunni. Þótt magnið sé hátt þarna og fari yfir einhver mörk þá teljum við að þetta sé ekki mengun heldur nátt- úrulegt ástand í firðinum,“ segir Helgi. Hann undirstrikar því að það liggi fyrir að það eigi að gera áætlun um það hvernig menn geta rannsakað þetta og hvað rannsóknin kostar. Hann bendir á að kostnaðurinn sé mikill og því þurfi jafnvel að fá fjármögnunaraðila, til dæmis þá sem hafa hagsmuna að gæta á þessum stað. „Það verður reynt að sjá hverjir hafa áhuga á því að standa að þessum rannsóknum og leggja þá í púkk til að gera þær mögulegar,“ bætir hann við. Að sögn Helga sitja í Amsum-hópnum fulltrúar frá Hafrannsóknastofnun og Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins. Hann á fastlega von á að einhverj- ir þaðan komi að þessari skipulagningu. „Það er velþekkt að kadmín í lífríki sjávar í umhverfi Ís- lands er hærra en gerist á mörgum öðrum stöð- um. Við teljum að það sé vegna þess að þetta er tengt náttúru landsins en þetta gerir sjávarfang- ið ekki eitrað eða hættulegt. Þótt það sé í þorsk- holdi og ýmsu þá er það langt undir viðmiðunar- mörkum,“ segir hann og bendir á að viðmiðunar- mörk í vöru sem sett er á markað þurfi ekki endilega að vera nákvæmlega þau sömu og út frá heilbrigðissjónarmiði. Ekki leyfilegt að veiða hörpudisk í Arnarfirði Halldór Zoëga, forstöðumaður gæðastjórnun- arsviðs Fiskistofu, segir að kadmínmegnun í Arn- arfirði hafi komið í ljós við reglubundið eftirlit fyrir um ári en Fiskistofa bannaði hörpudisks- veiðar í Arnarfirði í desember 2001. Hann segir að reglubundin vöktun geri ráð fyrir rannsóknum á tveggja ára fresti og telur að það sé nægjanlegt þar sem magn þungmálms breytist afskaplega hægt. „Veiðarnar voru bannaðar vegna þess að þessi sýni sýndu kadmín hærra en var leyfilegt samkvæmt reglugerð um aðskotaefni í matvælum en hámarksstyrkur kadmíns í matvælum er 0,5 ppm,“ segir hann. Hann bendir jafnframt á að á fiskveiðiárinu 2001–2002 hafi hvort sem er ekki verið leyfilegt að veiða hörpudisk í Arnarfirði. „Samkvæmt ráð- leggingum Hafrannsóknastofnunar á næsta fisk- veiðiári sem er að hefjast núna 1. september er heldur engin úthlutun þannig að það er ekkert að gerast í þessum málum,“ leggur hann áherslu á. Hörpudiskur í Arnarfirði inniheldur hátt hlutfall þungmálmsins kadmíns Ekki mengun heldur náttúrulegt ástand KJÖRDÆMAFÉLAG Samfylking- arinnar í Reykjavík efnir til stuttrar gönguferðar laugardaginn 24. ágúst nk. kl 14.00. Gengið verður um svæði suður af Hafnarfirði. Þátttakendur safnast saman við Kaldársel (nálægt vatns- bóli Hafnfirðinga) og þaðan verður gengið á Helgafell. Um er að ræða létta síðdegisgöngu sem áætlað er að taki u.þ.b. 3 tíma með „kaffitíma“. Leiðsögumenn verða Olga Lísa Garðarsdóttir, íþróttakennari og fé- lagsfræðingur, og Sjöfn Kristjáns- dóttir bókasafnsfræðingur. Laugardagsganga Samfylkingarinn- ar í Reykjavík LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eft- ir vitnum að umferðaróhappi er varð í Sóltúni, gegnt húsi nr. 3, mánudag- inn 19. ágúst milli kl. 12.15 og 14.05. Ekið var utan í Renault Laguna fólksbifreið, vínrauða að lit, sem stóð þar mannlaus í bifreiðastæði og fór tjónvaldur af vettvangi. Talið er að um hópbifreið sé að ræða og mun vera nokkuð hátt undir bifreiðina. Þeir sem upplýsingar geta veitt um málið eru vinsamlega beðnir um að hafa samband við lögregluna í Reykjavík. Lýst eftir vitnum GOLFSAMTÖK fatlaðra á Íslandi héldu hinn 7. ágúst námskeið ætlað þeim sem eingöngu geta leikið golf með annarri hendi. Kennari á þessu námskeiði var John Garner. Mjög góð aðsókn var að þessu námskeiði og vegna fjölda áskorana verður násmkeiðið endurtekið mið- vikudaginn 21. ágúst kl. 18 á æfinga- svæði Golfklúbbsins Odds fyrir sunnan Vífilfell. Allir fatlaðir og aðstandendur fatl- aðra eru velkomnir og námskeiðið er þeim að kostnaðarlausu. Golfnámskeið fyrir fatlaða HÓTEL Flúðir halda sitt árlega Hreppakvöld sem er söngur og mat- arveisla að kvöldi föstudagsins 23. ágúst í Félagsheimilinu á Flúðum. Boðið verður upp á ítalskt hlaðborð og tónleika. Örn Árnason, leikari og skemmtikraftur, verður kynnir og tekur lagið. Söngvararnir Páll Rósin- krans og Jóhann Friðgeir Valdimars- son syngja við undirleik Jónasar Þór- is. Það er Stína Daníeló kokkur sem sér um hlaðborðið. Meðal annars góð- gætis má nefna ítalska osta sem nú eru að koma á markaðinn hérlendis. Húsið verður opnað kl. 19 en matur hefst stundvíslega kl. 19.30. Miða- pantanir eru á hótelinu. Eftir tón- leikana spilar á píanó og syngur Lis Gammon á Veitingahúsinu Útlagan- um. Hreppakvöld á Flúðum GÆSAVEIÐITÍMABILIÐ hófst í gær, 20. ágúst. Sigmar B. Hauks- son, formaður Skotveiðifélags Ís- lands, segir að höfuðáherslan verði lögð á veiðar á heiðagæs í fyrstu þar sem veiðitími hennar er tiltölulega stuttur. „Hún heldur sig á fjöllum uppi og um leið og það verður kalt og hálendið hulið snjó fer hún til Bretlands þannig að menn þurfa að grípa tækifærið á meðan það gefst ef svo má segja. Það fer mjög eftir tíðarfari en menn eru að stunda veiðar á heiðagæs eitthvað fram í septembermánuð,“ bætir hann við. Sigmar leggur áherslu á að Skot- veiðifélagið hafi beint þeim tilmæl- um til manna að snúa sér frekar að heiðagæsinni. Hann segir að veiði- álagið á grágæsina sé líklegast of mikið og þeim finnist að ungarnir megi verða pattaralegri. Því sé mælst til að grágæsaveiðar hefjist ekki af alvöru fyrr en upp úr mán- aðamótum. Hann segir grágæsarstofninn vera á niðurleið en að erfitt sé að leita skýringa þess. „Við vitum ekki hvort það er veiðiálag. Það gæti líka verið að það stofnlíkan sem unnið er eftir sé ekki rétt. Það er að segja þegar grágæsir eru taldar í Bret- landi þá sé ennþá eitthvað af gæsum eftir hér á Íslandi eða í Orkneyjum eða jafnvel á Írlandi eða í Noregi. Þannig að við vitum ekki nákvæm- lega ástæðuna fyrir því,“ leggur hann áherslu á. Um 3.000 gæsaveiðimenn Aðspurður segir hann það fara al- gerlega eftir veðri hversu lengi veiðitímabilið stendur en menn stundi veiðar á grágæs langt fram í október. Hann segir um 3.000 gæsa- veiðimenn hér á landi. Hann telur að aðeins fáar konur stundi gæsa- veiðar og segir þær fremur leggja stund á rjúpnaveiðar og veiðar á önd. „Yfirleitt fara gæsaveiðar þannig fram að menn liggja fyrir þeim á flugleiðum þeirra og hafa oft tál- fugla sem þær fljúga yfir og jafnvel flautur til þess að tæla þær neðar. Síðan eru þær skotnar á flugi með haglabyssum. Á rjúpnaveiðum eru menn á göngu allan daginn og reyna að finna rjúpurnar og skjóta þær þegar þær fljúga upp eða eru að færa sig. Þar eru gerðar meiri kröf- ur um atgervi og orku,“ lýsir Sig- mar. Hann segir helstu veiðistaðina vera á hálendinu og nefnir sem dæmi öræfin austanlands og Auð- kúluheiði fyrir norðan. Sigmar bendir á að ákveðinn hópur manna fari af stað um leið og veiðitímabilið hefst enda séu skotveiðimenn búnir að bíða lengi. „Við höfum ekki getað stundað neinar veiðar yfir sumarið eins og gefur að skilja. En nú eru góðir tímar framundan fyrir skot- veiðimenn og gæsirnar virðast koma vel undan sumri. Ungarnir eru þroskaðir og í góðu ásigkomu- lagi,“ segir hann að lokum. Morgunblaðið/Ingó Gæsaveiðimenn landsins flykkjast nú til fjalla til að skjóta heiðagæsina eða sitja fyrir grágæsum á túnum. Gæsaveiðar máttu hefjast í gær Menn snúi sér frek- ar að heiðagæsinni TAFLFÉLAGIÐ Hellir, Halló! og ICC standa sameiginlega að 10 móta röð á skákþjóninum ICC sem kallast Bikarsyrpa Halló! á ICC. Sjötta mót- ið fer fram 25. ágúst en það síðasta verður haldið 24. nóvember en það verður jafnframt Íslandsmótið í net- skák. Þeir sem hafa teflt í fimm fyrstu mótunum þurfa ekki að skrá sig held- ur er nægilegt að mæta fyrir 20:00. Aðrir þurfa að skrá sig á www.hellir.is Tefldar eru níu umferðir. Umhugsun- artími er fjórar mínútur á skák auk tveggja viðbótarsekúndna á leik. Fyr- irhuguð dagskrá getur breyst, en hún er sem hér segir: 25. ágúst, 15. sept- ember, 13. október, 3. nóvember og 24. nóvember (Íslandsmótið). Ávallt verður teflt í einum flokki þar sem eingöngu íslenskir skákmenn hafa keppnisrétt nema á sjálfu Ís- landsmótinu, þar verður teflt í tveim- ur flokkum, segir í fréttatilkynningu. Bikarsyrpa skákmanna STÚDENTARÁÐ Háskóla Íslands, Bóksala stúdenta og kassi.is hafa skrifað undir samning um samstarf um rekstur skiptibókamarkaðar á Netinu. Stúdentum gefst kostur á því að senda inn auglýsingar um bækur til sölu og með aðgengileg- um hætti nálgast þessar auglýs- ingar á heimasíðunni. Öll notkun skiptibókamarkaðar- ins er gjaldfrjáls og í fréttatilkynn- ingu hvetur Stúdentaráð stúdenta til að nýta sér þessa þjónustu. Þjónustuna má nálgast í gegn um heimasíðu bóksölunar www.bok- sala.is eða á heimasíðu kassa.is, www.kassi.is Stofna skipti- bókamarkað á Netinu ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.