Morgunblaðið - 21.08.2002, Side 40

Morgunblaðið - 21.08.2002, Side 40
40 MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. ÉG VAR að lesa í Morgunblaðinu grein um heiðursskot, þ.e. reglur um hversu mörg heiðursskot þessi og hinn fær, hjá sjóherjum þessa heims, eftir tignarstöðum. Ég verða að viðurkenna að mér finnst þetta afskaplega skondið og … ja, dálítið hallærislegt. Fyrir utan að manneskjan er að mínu áliti grimmasta og miskunn- arlausasta dýrið í heiminum þá er- um við líka afskaplega hégóma- gjörn. Á sama tíma og menn keppast við að tala um að allir menn hafi jafnan rétt, og þetta sé bundið í stjórnarskrá í flestum vestrænum ríkjum alla vega, þá kappkosta menn að gera allt til að mismuna hver öðrum. Það eru kóngar, prinsar, lordar og lávarðar, forset- ar og allskonar fyrirmenn. Þessir menn eru svo klæddir upp í alls- konar grínfatnað, eins og t.d. lög- menn og dómarar í Bretlandi, þessar hlægilegu hárkollur. Líf- varðabúningar með fjaðraskúfum sem myndu sóma sér vel í teikni- myndakómedíu, svo ég tali nú ekki um þann fáránlega gæsagang sem hermenn eru látnir ganga á hátíð- arstundum sem minnir oft á dýr merkurinnar í árásarhug. Af hverju þurfum við á öllu þessu yf- irslekti og skrautsýningum að halda? Veit það einhver, hefur ein- hver t.d. spáð í af hverju við þurf- um embætti eins og forseta? Eða allt þetta prjál í kringum alla hluti, t.d. í kringum heimsóknir annarra valdhafa. Allt til að halda virðingu. Þetta er einskonar gerviveröld, sem venjulegt fólk hefur ekki glóru um til hvers er eiginlega. Það er bara af því að einu sinni var. Við erum sennilega svona vanþróaður stofn að það er ekki hægt að halda þjóðfélag nema hafa þessa gerviglamour-veröld í kring- um allt og alla. Og ég held svei mér þá að þetta versni með hverju ári. En svo er nú staðreyndin sú og það ætti þetta glamour-fólk að vita, að það öðlast engin virðingu með því að klæðast einhverjum flíkum, eða hafa einhvern titil. Ef fólk stendur sig ekki í stykkinu, þá hlýtur það ekki virðingu samborg- ara sinna. Það fær auðvitað smjað- ur og undirlægjuhátt sem nóg er af í heiminum, og það er nú svo með smjaðrið að það er einungis viðhaft framan í viðkomandi, en oft er stutt í rýtinginn í bakið. Hin eina virðing annarra fæst einungis með því að vera sannur og trúr því sem maður gerir. Fólk sem lifir í þessum gerviheimi fjar- lægist mjög okkar venjulega heim, uns það gleymir hvernig daglegt líf borgarans er, og fer að líta á sjálft sig sem æðri veru. Þetta gerist líka á Íslandi. Þetta sama fólk fer svo í kirkjur og samkomur og talar í fallegum ræðum um að allir séu jafnir fyrir Guði og mönn- um. Enda hefur kirkjan staðið dyggan vörð um þetta misrétti gegnum tíðina með því að hafa ósnertanlega embættismenn. Er t.d. ekki skylda að ávarpa yfir- mann kirkjunnar með „Herra Biskup“? Páfinn er líka ágætt dæmi um mann sem hefur verið hafinn upp til skýjanna. Hann er þó bara venjulegur maður getinn af karli og konu, held ég, étur, drekkur og gerir þarfir sínar rétt eins og aðrir. Ég er ekki að pirra mig á þessu ef menn halda það, mér finnst þetta einungis eins og áður sagði hallærislegt og jafnvel fyndið. Ég verð að viðurkenna að ég ber ekki nokkra virðingu fyrir fólki sem ber einhvern svona titil eða er upphaf- ið af fólki ef sá hinn sami stendur ekki undir þeirri virðingu með lífi sínu og atferli. Það er sennilega eitthvað í sál- arvitund okkar sem gerir okkur að því sem við erum, hjarðdýr sem þurfa að hafa yfirvöld á öllum svið- um til að segja til um hvernig á að lifa í veröldinni. En svo eru alltaf einhverjir sem ekki vilja dansa með, og aðrir sem vilja líka ráða, og þess vegna eru háð blóðug stríð. ÁSTHILDUR CESIL ÞÓRÐARDÓTTIR, Seljalandsvegi 100, 400 Ísafirði. Og barnið sagði mamma sjáðu! Frá Ásthildi Cesil Þórðardóttur: Brúðargjafir Mörkinni 3, s: 588 0640 Opið mánudag-föstudags 11-18. Lokað á laugardögum í sumar Salsaskálar frá Fullkomnaðu verkið með þakrennukerfi þakrennukerfi BLIKKÁS EHF. SKEMMUVEGUR 36 200 KÓPAVOGUR SÍMI 557 2000 - FAX 557 4111 Fagm enns ka í fyrir rúmi Söluaðilar um land allt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.