Morgunblaðið - 21.08.2002, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 21.08.2002, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2002 43 DAGBÓK Milljónaútdráttur Þar sem einvörðungu er dregið úr seldum miðum þarf miðaeigendi bæði að hafa rétt númer og bókstaf til að hljóta vinning í þessum útdrætti. Birt með fyrirvara um prentvillur. 8. flokkur, 20. ágúst 2002 Kr. 1.000.000,- 1811G 6608H 8516F 10527B 26748E 33742G 35249B 39683F 43855B 56027B Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Heimsferðir bjóða nú ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til Mallorka, 29. ágúst, í 1 viku. Þú bókar 2 sæti, en greiðir aðeins fyrir 1, og tryggir þér sæti til þessarar perlu Miðjarðarhafsins á ótrúlegum kjörum. Val um úrvalsgististaði á Playa de Palma, og í hinum fagra Paguera strandbæ. Aðeins 27 sæti í boði 2 fyrir 1 til Mallorca 29. ágúst frá kr. 24.300 Verð kr. 24.300 Flugsæti á mann, m.v. 2 fyrir 1. 41.900/2 = 20.050 kr. Almennt verð. Skattar fullorðinna kr. 3.350 og barna kr. 2.575 Verðdæmi á gistingu: Promenade - vika – 9.500 kr. á mann, 4 í íbúð Ekki innifalið: Ferðir til og frá flugvelli á Mallorka, kr. 1.800 Forfallagjald kr. 1.800 valkvætt Ragnar Bjarnason Dr. Med. Sérgrein: Almennar barnalækningar, hormóna- og efnaskifta sjúkdómar barna. Hefur opnað stofu í Læknasetrinu, Þönglabakka 1, 109 Reykjavík. Tímapantanir í síma 535 7700 alla virka daga kl. 9-17. STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake LJÓN Afmælisbörn dagsins: Þú vinnur oft best í einrúmi. Þú sækist ekki eftir athygli en vekur þó oft athygli. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Dagurinn í dag er heppilegur til að reyna að skilja tilfinn- ingar þínar og hvernig þær hafa áhrif á samband þitt við aðra. Þú getur bætt það sam- band ef þú þekkir styrk til- finninga þinna. Naut (20. apríl - 20. maí)  Vilji þinn til að aðstoða sam- starfsmann getur breytt sam- bandi þínu við þennan sam- starfsmann. Í dag getur þú gert óvildarmann þinn að vini þínum. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Einhver ykkar kynnu að hefja innilegt samband í dag, sam- band sem örlögin hafa gert óhjákvæmilegt. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Reyndu hvað þú getur að bæta sambandið við fjöl- skyldumeðlim í dag. Ákveðir þú að gera þetta getur það aukið verulega á traust milli ykkar. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Jafnvel yfirborðskenndustu samræður í dag gætu hugsan- lega breytt lífi þínu. Þú skalt því hlusta sérstaklega grannt eftir því sem aðrir segja. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Peningum sem þú eyðir í dag til að fegra heimilið er vel var- ið. Gerðu við þar sem þarf eða endurnýjaðu hluti sem eru að verða ónýtir. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú kannt að fá merkilegar upplýsingar sem gætu á end- anum haft breytingar í för með sér. Hlustaðu á ráð og til- lögur annarra þótt sumar þeirra kunni að virðast an- kannalegar í fyrstu. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Einhver vill lána þér fé eða hjálpa þér á annan hátt. Þú skalt alltaf þiggja boð um að- stoð svo hinn aðilinn fái tæki- færi til að sýna örlæti sitt. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Eitthvað gerist í dag sem ger- ir það að verkum að þú metur enn meir en áður vináttu við einhvern. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Taktu þér tíma frá önnum dagsins til að sýna þér eldri manni virðingu, yfirmanni eða foreldri. Þetta fólk á skilið að þú sýnir þakklæti fyrir þá leið- sögn sem það hefur veitt þér. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú hefur þörf til að kafa í mál- in í leit að sannleikanum í dag. Þú sættir þig ekki við yfir- borðskennd svör. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Ef þú ferð rétt að kannt þú að komast að raun um að einhver mikilvægur vill aðstoða þig. Þessi greiði kann að hafa upp- byggileg áhrif til langs tíma á líf þitt. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. LJÓÐABROT ALLT EINS OG BLÓMSTRIÐ EINA Allt eins og blómstrið eina upp vex á sléttri grund fagurt með frjóvgun hreina fyrst um dags morgunstund, á snöggu augabragði af skorið verður fljótt, lit og blöð niður lagði, líf mannlegt endar skjótt. Svo hleypur æskan unga óvissa dauðans leið sem aldur og ellin þunga; allt rennur sama skeið. Innsigli öngvir fengu upp á lífsstunda bið, en þann kost undir gengu allir að skilja við. Dauðinn má svo með sanni samlíkjast, þykir mér, slyngum þeim sláttumanni, er slær allt hvað fyrir er; grösin og jurtir grænar, glóandi blómstrið frítt, reyr, stör sem rósir vænar reiknar hann jafn-fánýtt. Hallgrímur Pétursson Árnað heilla 75 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 21. ágúst, er sjötíu og fimm ára Ingólfur Pálsson rafvirkja- meistari, Heiðmörk 3, Hveragerði. Eiginkona hans er Steinunn Runólfs- dóttir. Þau eru að heiman í dag. 50 ÁRA afmæli. Í dagmiðvikudaginn 21. ágúst er fimmtug Jóhanna Sigríður Eyjólfsdóttir, Maríubakka 28, Reykja- vík, skrifstofustjóri Vél- stjórafélags Íslands. Jó- hanna tekur á móti gestum í dag milli kl. 18 og 21 í sal Flugvirkjafélagsins, Borg- artúni 22, Reykjavík. 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. f3 e6 7. Be3 b5 8. g4 Rfd7 9. Dd2 Bb7 10. 0-0-0 Rb6 11. Rb3 R8d7 12. Ra5 Dc7 13. Kb1 Be7 14. h4 0-0 15. Bg5 f6 16. Be3 Re5 17. Df2 Rbc4 18. Rxb7 Dxb7 19. Bd4 Hac8 20. Re2 Rc6 21. Be3 Rxe3 22. Dxe3 Da7 23. Db3 d5 24. exd5 Ra5 25. Dd3 Rc4 26. Rf4 Re3 27. Rxe6 Rxd1 28. Dxd1 Hfe8 29. Bd3 Df2 30. f4 Bd6 31. g5 Hxe6 32. dxe6 Dxf4 33. Hf1 De5 34. He1 Dc5 35. gxf6 gxf6 36. Dg4+ Kh8 37. Hg1 Dc7 Staðan kom upp í atskákein- vígi Viswanathan Anands (2.755) og Ruslans Ponomarjovs (2.743) sem lauk fyrir skömmu í Mainz í Þýskalandi. Indverjinn snöggi hafði hvítt og lauk skákinni á snyrtilegan hátt. 38. e7! og svartur gafst upp enda fátt til varnar. Indverj- inn bar sigurorð af heims- meistaranum 4½–3½ v. 2. umferð Skákþing Íslands, landsliðsflokki, hefst í dag 21. ágúst kl. 17.00 í íþrótta- húsinu á Seltjarnanesi. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. LESANDINN er í suður og opnar á 15–17 punkta grandi. Makker yfirfærir í hjarta og skömmu síðar spil- ar vestur út lauftíu gegn fjórum hjörtum: Suður gefur; allir á hættu. Norður ♠ ÁG ♥ D7653 ♦ 97 ♣Á654 Suður ♠ 754 ♥ Á92 ♦ ÁD53 ♣KD2 Vestur Norður Austur Suður – – – 1 grand Pass 2 tíglar * Pass 2 hjörtu Pass 3 grönd Pass 4 hjörtu Pass Pass Pass Hvernig er best að haga úrspilinu? Spilið er frá EM ung- menna í síðasta mánuði og í fréttablaði mótsins er rakið hvernig Grikkinn Alexis Dialynas bar sig að. Hann tók fyrsta slaginn heima og spilaði strax hjartaás og meira hjarta á drottn- inguna. Trompið lá 3–2, sem var gott, en austur átti þrí- litinn með kóngnum, sem var vont: Norður ♠ ÁG ♥ D7653 ♦ 97 ♣Á654 Vestur Austur ♠ K63 ♠ D10982 ♥ 108 ♥ KG4 ♦ 10864 ♦ KG2 ♣10973 ♣G8 Suður ♠ 754 ♥ Á92 ♦ ÁD53 ♣KD2 Austur tók þriðja hjarta- slaginn og skipti yfir í tíg- ultvist. Alexis sýndi nú góð tilþrif. Hann lét lítinn tígul heima og vestur fékk slag- inn á tíuna. Og spilaði spaða. Alexis tók með ás og spilaði öllum trompunum. Vestur gat ekki varið báða láglitina og henti frá tíglinum. Eftir vel heppnaða tígulsvíningu varð tígulfimman tíundi slagurinn. Þetta var vel gert, þótt fleiri leiðir hefðu leitt til sömu niðurstöðu. En kannski var einfaldast að spila strax í upphafi litlu hjarta að heiman frá ásnum þriðja. Taka svo trompás- inn, spila laufi og trompa það fjórða heima. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson. Dregið í fjórðu umferð bikarkeppninnar Dregið hefir verið í fjórðu umferð bikarkeppninnar og spila eftirtaldar sveitir saman: Skeljungur – Guðmundur Sveinn Hermannsson Ragnheiður Nielsen – SUBARU Sparisjóðurinn í Keflavík – Orku- veita Reykjavíkur Þórólfur Jónasson – Kristján Ö. Kristjánsson Síðasti spiladagur er 15. septem- ber BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Félag eldri borgara í Hafnarfirði Eldri borgarar í Hafnarfirði spila brids, tvímenning í Hraunseli Flata- hrauni 3 tvisvar í viku á þriðjudögum og föstudögum. Það vantar fleira fólk í brids. Mæting kl. 13.30 Spilað var 13. ágúst. þá urðu úrslit þessi: Hera Guðjónsdóttir – Sófus Berthelsen 61 Jón Ó. Bjarnason – Jón R. Guðmundsson 53 Árni Bjarnason – Sigurlína Ágústsdóttir 52 Jón Pálmason – Ólafur Ingimundarson 52 16. ágúst Sigurlína Ágústsd. – Guðm. Guðmundss. 88 Sófus Berthels. – Ólafur Kr. Guðmundss. 75 Sveinn Jensson – Jóna Kristinsdóttir 63 Árni Bjarnason – Þorvarður Guðmundss. 62 Félag eldri borgara í Kópavogi Það var fámennt en góðmennt í Gjábakkanum sl. föstudag en vænt- anlega undanfari meiri og betri þátt- töku nú í sumarlok. Hæsta skor í N/S: Rafn Kristjánss. – Oliver Kristófss. 257 Ólafur Ingvarss. – Þórarinn Árnason 205 Hæsta skor í A/V: Eysteinn Einarss. – Viggó Norðquist 202 Auðunn Guðmss. – Bragi Björnsson 197 Meðalskor 168. Keppnisstjóri bridsdeildar FEBK er Ólafur Lár- usson. Þessar duglegu stúlkur söfnuðu 5.619 kr. til styrktar Rauða krossi Íslands. Þær heita Júlía Grétarsdóttir og Klara Grét- arsdóttir. Hlutavelta Ljósmynd/ Mynd Hafnarfirði BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 22. júní sl. í Dóm- kirkjunni í Reykjavík af sr. Valgarði Ástráðssyni þau Ágústa Amalía Friðriks- dóttir og Svanur Þór Eð- valdsson. Þau eru til heim- ilis í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.