Morgunblaðið - 21.08.2002, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 21.08.2002, Qupperneq 44
FÓLK Í FRÉTTUM 44 MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ                                                           5 %  "2 " %  2  8 % !  " !% 6   8 5         %   /4 ) 9  '2     /  /  8    :      & 5   & %  8 " '  /)   4 ) 9  '2 ;  0 (     2   6 8         %  %   +     " 8        Eva³ %   !  " !%   6  " 1 %  "  "           !" !# Vesturgötu 2 sími 551 8900 Hádegisverðartilboð Kvöldverðarhlaðborð kr. 990 frá kl. 11.30-14.30 kr. 1.990 frá kl. 18-22 RÚSSNESKA geimferðastofnunin hefur gefið poppsöngvaranum Lance Bass fimm sólarhringa til að greiða farmiðann fyrir væntanlega ferð til alþjóðlegu geimstöðv- arinnar, ella fái hann ekki að fara. Konstantin Kreidenko, tals- maður rússnesku geimferðastofn- unarinnar, sagði að ef greiðslan hefði ekki borist fyrir föstudag fengi Bass, sem er söngvari Ń Sync, ekki að fara með í ferðina sem fara á 22. október. Verðið fyrir farmið- ann er um 20 milljónir dala eða um 1,7 milljarðar króna. Bass, sem vonast til að verða þriðji ferðamaðurinn sem fær að fara til geimstöðvarinnar, hefur verið við þjálfun undanfarnar vikur í þjálfunarstöð utan við Moskvu. Bass, sem er 23 ára, yrði jafnframt sá yngsti sem farið hefur út í geim- inn. Stuðningsmenn Bass kenna skrif- finnsku um að greiðsla hefur ekki borist. David Krieff, bandarískur sjónvarpsþáttaframleiðandi sem ætlar að gera sjónvarpsþætti um ferð Bass, segist hafa fengið þrjá aðila sem vilji greiða 5–15 milljónir dala hver. Ekkert bólar á greiðslu fyrir geimfarmiða Lance Bass.  GAUKUR Á STÖNG: Stefnu- mót. Örkuml, Vý- nill og AmPop. Hús opnað 21 og er að- gangseyrir 500 kr.  STÚDENTA- KJALLARINN: Hljómsveitin Wumblmbid leikur djass í Stúd- entakjallaranum við Hringbraut. Á efnisskránni eru lög eftir t.d. Bill Frisell og Kenny Wheeler auk frumsamina verka. Hljómsveitina skipa Sigurður Rögnvaldsson og Ragnar Emilsson á gítara, Eiríkur Ólafsson á tromp- et, Jóhann Ás- mundsson á bassa og Helgi Sv. Helgason á tromm- ur. Tónleikar hefjast kl. 21.30.  Sjá einnig Staður og stund á mbl.is Í DAG Örkuml leikur á Stefnu- móti í kvöld. The Curse of Singapore Sling er fyrsta plata hljómsveitarinnar Singapore Sling og er verulega fersk frumraun sem drífur mann með sér á 100 km hraða. Þetta er ofursvalt vegarokk með grípandi laglínum og góðum skammti af feit- um gítarstefjum, fídbakki og raf- mögnuðu væli. Ekki er hægt að horfa framhjá skyldleikanum við Jesus and Mary Chain, tónlist þeirra var oft líkt við blöndu af Beach boys-laglínum drekkt í Vel- vet Underground-bjögun og demp- uðum trommum og að vissu leyti fara Singapore Sling þennan sama þjóðveg. Þeir eru þó heldur mein- lausari í hávaðanum og teygja ekki eins á lögunum. Tónbilið er þröngt og laglínurnar einfaldar, þær fara ekki í neinar beygjur og króka held- ur þenjast út og magnast upp og eru hrærðar út í lokin með bjögun og margföldum gítarvegg. Hristur eru óspart notaðar og röddin syng- ur yfir, fáleg og töffaraleg og laum- ar út um annað munnvikið svölum frösum á borð við „the road is my home“ eða „pretty baby, drive me wild“ – ekki beinlínis lagt á djúpið þar en hæfir fullkomlega veðraðri leðuráferðinni. Eins og J&MC eru Singapore-menn mikið í því að „krúsa“ eftir veginum í krómuðu farartæki – eitthvað virðist vera óendanlega svalt – og amerískt – við það að aka án takmarks eftir veginum, helst svartklæddur í leður og sama um allt. Myndin á umslag- inu enduspeglar þennan anda, veg- urinn sem hverfur í fjarlægðina er tónlistin sjálf filmuklædd. En virkar líka svolítið eins og varúðarauglýs- ing frá Umferðarráði. Diskurinn hefst á „Overdriver“, þéttu og grípandi rokki með öfl- ugum gítarstefjum og dásamlegu gítarvæli í lokin, en úr allt annarri átt er „Summer garden“, tyggjó- popp með hristum og gamaldags skemmtarahljómi í orgeli og vantar bara bakraddasöngkonur með tú- berað hár til að fullkomna myndina – og lagið fær maður á heilann um leið. Transkenndum áhrifum er náð með bergmáli og endurtekningum á sömu gítarstefjunum í „Nuthin’ ain’t bad“ og ekki er „Roadkill“ síðra, ekkert sungið þar heldur keyrslan rekin áfram jafnt og þétt með ákveðinni gítarlínu sem flúrað er í kringum með væli og ýlfri. Snilldin nær hámarki í „Listen“ og hef ég ekki heyrt töffaralegra lag lengi, magnaður taktur og óstöðv- andi keyrsla og röddin læðir út úr sér „Listen“ og „come on“ með bergmálseffektum á réttum augna- blikum – frábært lag. Diskurinn dalar nokkuð undir lokin, þá taka við hægari og mildari lög sem fá ekki stuðning af gít- armögnun og hafa ekki heldur nógu sterkar laglínur, og falla í skuggann af heildarkeyrslunni. En það er bara ein lítil hraðahindrun á ferða- laginu, þetta er þétt og mögnuð plata sem, þrátt fyrir augljósa skuld við fyrri ökumenn rokksins, kemur fersk og ný inn í íslenskt tónlistarlíf og gerir sveitina að einni þeirra áhugaverðustu um þessar mundir. Þetta er nákvæmlega rétta tónlistin til að hafa á þegar „krúsað“ er um hringveginn en menn ættu að hafa varann á – þetta er svo svalt að það er örugglega ísing á veginum. Tónlist Áfram veginn Singapore Sling The Curse of Singapore Sling Hitt Records Singapore Sling eru Henrik Björnsson, gítarleikari og söngvari og einnig höf- undur laga og texta, Einar Þór Krist- jánsson á gítar, Helgi Örn Pétursson gít- ar, Þorgeir Guðmundsson bassi og Bjarni Friðrik Jóhannsson, trommur. Upptökur: Orri. Hljóðblöndun Birgir Örn Thoroddsen og Henrik Björnsson. Steinunn Haraldsdóttir Singapore Sling. LEIKARINN Robert De Niro býður sko ekki hverjum sem er í afmælið sitt, allavega ekki ljósmyndurum. Hann hefur nú höfðað mál gegn Celebrity Vibe fyrir birtingu á mynd af honum og vini sín- um Sean Penn vera að blása á kertin á afmælisköku sinni í fyrra. Leikararnir tveir eiga afmæli sam- dægurs, hinn 17. ágúst, og var blásið til heljarinnar veislu á þaki íbúðar De Niros í Manhattan þar sem Penn fagnaði 41. afmælisdegi sínum en De Niro þeim 58. Mynd náðist af þeim félögum blása á kerti af- mælistertu sinnar eins og afmælis- barna er siður og myndin barst í al- menna dreifingu við dræmar undir- tektir eldra afmæl- isbarnsins. Hann hefur nú farið fram á tæpar 90 milljón- ir íslenskra króna í miskabætur. Talsmenn Celebrity Vibe eru þó hreint ekki á sama máli og segja ljós- myndara sínum hafa verið boðið til veislunnar og því hafi umrædd mynd ekki verið tekin í óþökk afmælis- barnsins. „Þú þarna, ljósmynd- ari, þér er sko ekki boðið í afmælið mitt!“ De Niro höfðar mál gegn bandarísku tímariti Æfur yfir afmælis- myndum LEIKARAHJÓNIN Uma Thurman og Ethan Hawke hafa fest kaup á eyju út af ströndum Nova Scotia í Kanada. Eyjan er 3,6 hektarar að stærð og kostaði hún litlar 110 milljónir króna. Tvö hús eru á eyjunni, sem er tengd við meg- inlandið með 60 metra langri brú. Þau hefur dreymt um að kaupa þessa fallegu eyju síðustu fjögur ár og voru því að vonum ánægð þegar eigandinn, Marie Kelly, féllst loks á að selja þeim landið fyrr á þessu ári. Fjárfestu í eyju Stoltir eigendur kanad- ísku eyjunnar, Ethan Hawke og Uma Thurman. Leikarahjónin Ethan Hawke og Uma Thurman

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.