Morgunblaðið - 21.08.2002, Blaðsíða 49
Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10. Vit 415
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. Vit 422 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Bi. 12. Vit 420
Sýnd kl. 3.45. Ísl tal. Vit nr. 410.
Sýnd kl. 10.10. Bi. 16. Vit 400
SK Radíó X
DV
MBL
SK Radíó X
Sýnd kl. 4 og 6. Ísl. tal. Vit 418
27.000
kjarnorkusprengjur
Einnar er saknað
Sýnd kl 4 og 6. Vit 398
Sýnd kl. 6, 8 og 10.30. Vit 422 Sýnd kl. 8 og 10. Vit 422
Sýnd kl. 8 og 10. Vit 420 Sýnd kl. 10. Bi. 14.
Sýnd kl. 8. Vit 417Sýnd kl. 6. Vit 415
Einnig sýnd í lúxussal VIP Sýnd í lúxus kl. 4, 6, 8 og 10.10.B. i. 16. Vit 423
Sýnd kl. 8. Vit 406 Sýnd kl. 8 og 10.10. Bi. 14. Vit 417
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.com
SG. DV
SV Mbl
SK Radíó X
DV
MBL
SK Radíó X
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.is
þegar hann
fetar fyrst inn
á þessa háska-
legu braut.
„Ég segi við son minn, komdu
og reyktu hass með pabba! Ég vil
ekki að hann fari að reykja ein-
hvern óþverra sem hann kaupir á
götunni,“ sagði uppeldisfrömuður-
inn Busta Rhymes af þessu tilefni.
RAPPARINN Busta Rhymes
kemst trúlega seint á lista yfir
góðar fyrirmyndir en hann lýsti
því yfir á dögunum að hann hygð-
ist reykja kannabisefni með níu
ára gömlum syni sínum. Hans
kenning er nefnilega sú að öll
börn eigi eftir að kynnast kanna-
bisefnum fyrr eða síðar og hann
vill hafa umsjón með syninum
Vill reykja með
syninum
Rapparinn Busta Rhymes tjáir sig
Lantana
(Lantana)
Spennudrama
Ástralía/Þýskaland, 2001. Myndform
VHS. (120 mín.) Bönnuð innan 16 ára.
Leikstjórn: Ray Lawrence. Aðalhlutverk:
Anthony LaPaglia, Kerry Armstrong,
Geoffrey Rush og Barbara Hershey.
ÞESSI ástralska spennumynd er
að sönnu ein af þeim óvæntu perlum
sem stöku sinnum birtast á mynd-
bandamarkaðnum án þess að hafa átt
viðdvöl í kvikmyndahúsi. Segir hér
frá nokkrum persónum sem allar
tengjast á einhvern hátt, enda þótt
þær sjálfar séu í
sumum tilfellum
ómeðvitaðar um
tengslin (og svipar
myndinni að þessu
leyti nokkuð til Alt-
man-mynda á borð
við Short Cuts). Það
er hvarf miðaldra
konu sem hrindir
atburðarásinni af stað en í miðju
hennar stendur lögreglumaðurinn
Zak (LaPaglia) sem gengur í gegnum
kreppu í eigin hjónabandi um sömu
mundir og hann rannsakar hvarf og
hugsanlegt morð konunnar. Þegar
vísbending kemur fram um hver kann
að hafa verið valdur að hvarfi kon-
unnar snertast sögur hinna ólíku ein-
staklinga á afar áhrifaríkan og minn-
isstæðan hátt. Reyndar er ómögulegt
að gera grein fyrir öllum hinum fjöl-
mörgu og vandlega úthugsuðu þráð-
um myndarinnar og skal látið nægja
að segja að hér er á ferðinni meist-
arastykki í handritssmíðum. Þá eru
leikarar með eindæmum sterkir og
Geoffrey Rush sannar enn einn gang-
inn að ekki er til það hlutverk sem
ekki er hæfileikum hans vaxið. Þessa
mynd skyldi enginn áhugamaður um
kvikmyndir láta fram hjá sér fara.
Myndbönd
Meistara-
stykki
Heiða Jóhannsdóttir
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 2002 49
Einfarinn
(Lone Hero)
Spennumynd
Bandaríkin, 2002. Skífan VHS. (91 mín.)
Bönnuð innan 16 ára. Leikstjórn: Ken
Sanzel. Aðalhlutverk: Lou Diamond Phil-
ips, Sean Patrick Flanery og Robert
Forster.
ÞEGAR vélhjólatöffarar fremja
hrottalegan glæp í smábæ einum í
Arizona-eyðimörkinni umturnast
bæjarlífið. Glæpamennirnir telja sig
örugga í skjóli ótta bæjarbúa við
hefnd skyldi einhverjum detta í hug
að ljóstra upp um þá, ályktun sem
hefði verið hárrétt ef
ekki væri fyrir John
Gray (Flanery), ung-
an leikara í vestra-
sýningu bæjarins
sem þrátt fyrir þá
augljósu hættu sem
honum stafar af vél-
hljólaklíkunni kemur
ofbeldismönnunum á
bak við lás og slá. Þetta er þó aðeins
byrjunin, því skömmu síðar kemur
öll klíkan í bæinn til að frelsa félaga
sína og hefna ófara þeirra. Hér er að
mörgu leyti unnið haganlega með
minnið úr hinum sígilda vestra, High
Noon, um manninn sem freistar þess
einn síns liðs að verja smábæ fullan
af skræfum. Við þetta er síðan bætt
þáttum úr vélhjólakvikmynd Mar-
lons Brandos, The Wild One, sem
einmitt fjallaði um smábæ sem má
sín lítils gegn vélhjólaklíku, og und-
arlega nokk reynist samblandan
skemmtileg. Ræður þar miklu
skemmtileg návist aðalleikaranna og
sérstaklega Philips í hlutverki for-
ingja vélhjólaklíkunnar. Hér er ekki
á ferðinni úrvalsmynd en hún ber þó
höfuð og herðar yfir þann aragrúa
hasarmynda sem rata beint hingað á
myndbandaleigurnar. Heiða Jóhannsdóttir
Einn gegn
ofurefli
MEÐLEIKARAR strandvarðadrottningarinnar
Pamelu Anderson eru að sögn ævareiðir út í hana
sem slær víst um sig með stælum kenndum við
stjörnur.
Nú stendur nefnilega til að koma öllu rauðklædda
íturvaxna genginu saman í sérstakan hátíðarþátt.
Launakröfur Pamelu eru þó svo háar að skerða verð-
ur laun mótleikaranna til að koma til móts við hana.
Þau Carmen Electra, Donna D’Errico og Jeremy
Jackson eru afar ósátt við að laun þeirra verði skorin
niður um rúma milljón íslenskra króna vegna þess að
Pamela neitar að koma fram á sundbolnum fræga
fyrir minna en rúma fjóra milljarða íslenskra króna
og það einungis fyrir þriggja daga vinnu. Ekki nóg
með að Pamela skuli krefjast hárra launa, heldur vill
hún einnig verða sótt á einkaþotu og fá að hvílast í
sérútbúinni svítu á meðan á dvölinni stendur.
Framleiðandi þáttanna, David Hasselhoff, er þó
staðráðinn í að fá Pamelu í þáttinn sama hvað það
kostar. Hann segir hana ómissandi þar sem hún eigi
hvað stærstan hlut í að gera þáttinn að því sem hann
er.
„Ef Pam mætir ekki í rauða sundbolnum verður
enginn þáttur,“ sagði Hasselhoff. „Við borgum henni
það sem þarf eða hættum við allt saman.“
Strandverðir aftur saman á skjáinn
Pamela með stjörnustæla
Það þarf mikið til að Pamela klæðist sundbolnum aftur.
HLJÓMSVEITIN Ash komst í hann
krappan á dögunum þegar rúta
sveitarinnar lenti í hörðum árekstri
á tónleikaferðalagi um Bandaríkin.
Enginn liðsmanna sveitarinnar
slasaðist þó alvarlega en tromm-
arinn Rick McMurray braut þó rif-
bein. Því er nú óvíst um áframhald
tónleikaferðarinnar vegna slyssins.
Umboðsmaður Ash, Stephen
Taverner, sagði slysið hafa átt sér
stað snemma um morgun er sveitin
var á leið til Detroit til að halda
tónleika. Rútan var að taka fram úr
flutningabifreið er hjólbarði á veg-
inum varð til þess að bílstjórinn
missti stjórn á bifreiðinni með áð-
urnefndum afleiðingum.
Ash kom fyrst fram á sjón-
arsviðið á miðjum tíunda áratugn-
um með laginu Girl From Mars.
Fjórmenningarnir, sem reyndar þá
voru tríó, léku fyrir Íslendinga í
Laugardalshöllinni árið 1995 en
voru þá lítt þekktir.
Ash í bílslysi
Trommar-
inn rifbeins-
brotinn
Borubrött þrátt fyrir bílslysið.
ÞESSIR hressilegu sendlar á
ónefndri bensínstöð í Bangkok
hafa eins og sjá má klætt sig upp
sem njósnarinn kynþokkafulli
Austin Powers. Þetta uppátæki á
rætur að rekja til þess að nýjasta
myndin um Powers, Goldmember,
verður frumsýnd í Taílandi á
næstunni.
Þetta er þó ekki í fyrsta sinn
sem starfsmenn stöðvarinnar
klæða sig upp sem hetjur hvíta
tjaldsins því nýverið þurftu þeir að
leggja Köngulóarmanns-búningum
sínum vegna hættu á lögsókn um
brot á höfundarétti.
Þá var ekkert annað í stöðunni
en að finna sér nýja hetju og varð
Austin Powers fyrir valinu, með
þessum líka fína árangri.
Powers í Taílandi
Reuters
Frumsýning Goldmember hefur áhrif um allt