Morgunblaðið - 03.09.2002, Síða 2
KNATTSPYRNA
2 B ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
LEIKMENN Þórs léku með sorg-
arbönd í gær gegn Fylki vegna and-
láts Áskels Egilssonar, föður Hall-
dórs aðstoðarþjálfara Þórs og
fyrrverandi landsliðsmanns.
ORRI Freyr Hjaltalín kom inn á
sem varamaður snemma í seinni
hálfleik þegar Tromsö vann Hödd,
3:0, í norsku 1. deildinni. Tromsö er
í öðru sæti, stigi á eftir efsta liðinu,
Sandefjord.
JÓHANNES Karl Guðjónsson
var ekki í leikmannahópi Betis sem
vann óvæntan og góðan sigur á De-
portivo La Coruna á útivelli, 4:2, í
fyrstu umferð spænsku 1. deildar-
innar á sunnudag.
FJÓRIR ungir KA-menn skrifuðu
undir nýja þriggja ára samninga við
knattspyrnudeild félagsins um
helgina. Þetta voru þeir Elmar Dan
Sigþórsson, Jóhann Helgason, Sig-
urður Skúli Eyjólfsson og Örn
Kató Hauksson.
CHRISTIAN Ziege, þýski knatt-
spyrnumaðurinn hjá Tottenham,
hefur dregið sig út úr þýska lands-
liðshópnum fyrir leik liðsins gegn
Litháen í Evrópukeppni landsliða
um næstu helgi. Móðir Zieges lést
skyndilega á laugardag og hann fór
beint heim til Þýskalands og lék því
ekki með Tottenham gegn South-
ampton. Ziege kvaðst ekki geta
hugsað sér að spila landsleikinn við
þessar aðstæður.
DEPORTIVO keypti hinsvegar
sóknarmanninn Albert Luque frá
Mallorca um helgina og samdi við
hann til átta ára. Luque er 24 ára
gamall og var í hópi Spánverja á
HM í sumar, og kvaðst vera kominn
til síns uppáhaldsfélags. Mallorca
fékk 1,3 milljarða króna fyrir hann
og að auki sóknarmennina Turu
Flores og Walter Pandiani.
HANNOVER 96, nýliðarnir í
þýsku Bundesligunni í knattspyrnu,
hafa fengið liðsstyrk en liðið hefur
tapað öllum þremur leikjum sínum í
deildinni. Framherjinn Fredi Bobic
er kominn til félagsins sem láns-
maður frá Dortmund en hann lék
undir lok síðasta tímabils með Bolt-
on. Þá hefur liðið fengið varnar-
manninn Kostas Konstantinidis frá
Herthu Berlin auk þriggja leik-
manna frá Deportivo, Jose Manuel,
Juan Acuna og Jaime Fernando.
CHELSEA samdi við þrjá unga
leikmenn á lokadegi félagaskipt-
anna. Þeir eru Frakkinn Jean Yves
Avis, sem fæddur er á Fílabeins-
ströndinni. Hann er 21 árs gamall
bakvörður sem verið hefur á mála
hjá Rennes. Portúgalinn Mauro
Oscar Coelho Da Silva, 18 ára gam-
all miðvörður, sem kom frá Porto,
og Mbark Boussoufa, 18 ára gamall
hollenskur framherji, sem kom frá
Ajax.
FÓLK
Theódór Óskarsson skaut Fylki átoppinn með eina marki leiksins
og var hann í sannkallaðri sigurvímu
að leik loknum.
„Þetta var tvísýnn
leikur en að mínu
mati var þetta
öruggt hjá okkur.
Nú erum við komnir þar sem við vilj-
um vera og getum klárað dæmið í
næsta deildarleik gegn KR. Annars
einbeitum við okkur að bikarnum því
við eigum KA næst og ætlum okkur
að standa okkur gegn þeim og kom-
ast alla leið í úrslitaleikinn. Við reyn-
um að útiloka allt tal um hina svo-
kölluðu septemberlægð Fylkis og
höldum okkar striki. Í markinu kom
þessi fíni skalli innfyrir vörnina frá
Finni og ég og Sævar áttum greiða
leið að markinu. Hann var búinn að
klúðra tvisvar svo ég sagðist taka
boltann og klára þetta. Það var
greinilega rétt ákvörðun.“
Allt undir í leiknum
Óðinn Árnason, varnarmaður
Þórsara, lék mjög vel í leiknum en
hann var að vonum nokkuð svekktur
en bar þó höfuðið hátt í leikslok. „Nú
erum við komnir með bakið upp að
veggnum og verðum að vinna báða
leikina sem eftir eru til að halda okk-
ur í deildinni. Við höfum verið að
vinna í því að byggja upp spilið og
það gekk ágætlega en þeir voru
heppnari en við í dag. Við reyndum
okkar besta en því miður gekk það
bara ekki. Nú skiptir öllu að vinna
næsta leik, gegn Grindavík. Við unn-
um þá nokkuð sannfærandi fyrr í
sumar og ætlum að endurtaka það.
Svo verður gaman að spila lokaleik-
inn í Frostaskjóli.
Andstæðingarnir skipta ekki máli
í þessum leikjum. Við verðum bara
að berjast, vera einbeittir og gefa allt
sem við eigum. Við höfum náttúrlega
misst Orra og Ashley frá okkur en
Ingi Hrannar og Santos hafa komið
inn í staðinn. Við erum með breiðan
hóp og fullt af ungum strákum svo
allt tal um að liðið sé að veikjast er
ekki rétt,“ sagði Óðinn.
Engin septemberlægð í ár
Einar
Sigtryggsson
skrifar
Leikurinn var afskaplega fjörugurog skemmtilegur. Bæði liðin
mættu með því hugarfari að sækja
enda mikið í húfi; Þór
að berjast fyrir til-
veru sinni í deildinni
en Fylkir með bjarm-
ann af bikar Íslands-
meistaranna í augunum. Á Akureyr-
arvelli var hins vegar jafnræði með
liðunum framan af. Theódór Óskars-
son skaut fram hjá marki Þórs úr
góðu færi á 2. mínútu og tónninn var
gefinn. Boðið var upp á snarpar sókn-
ir á báða bóga. Jóhann Þórhallsson
tók kunnuglega rispu á 18. mínútu en
skot hans var varið. Skömmu síðar
átti Óðinn Árnason bylmingsskot í
þverslá Fylkismarksins eftir vel út-
færða aukaspyrnu.
Áfram komu færin. Hlynur Eiríks-
son var í dauðafæri á markteig á 28.
mín. en Kjartan Sturluson varði vel.
Atli Már Rúnarsson varði síðan stór-
vel skot frá Finni Kolbeinssyni á 30.
mín. og aftur frá Sævari Gíslasyni
skömmu síðar. Alexandre Santos átti
síðasta skot hálfleiksins en Kjartan
varði það. Staðan því markalaus í
leikhléi eftir fjörugan fyrri hálfleik.
Fyrsti stundarfjórðungurinn í
seinni hálfleik var tíðindalítill. Hið
netta spil hvarf um stund og í staðinn
kom barningur og heldur grófari leik-
ur. Völlurinn var líka orðinn nokkuð
blautur. Hlynur Eiríksson fékk fyrsta
færið þegar hann skaut fram hjá
marki Fylkis á 60. mínútu og var
þetta upphafið að mikilli pressu Þórs-
ara. Þeir léku mjög hratt og skemmti-
lega á milli sín og sköpuðu sér mörg
færi næstu 10 mínúturnar en markið
sem lá í loftinu kom aldrei. Lánið var
einfaldlega ekki með Þórsurum.
Nú fóru Fylkismenn að hressast og
leikurinn snerist við. Atli Már varði
margsinnis frábærlega og Fylkir
fékk ótal færi næstu tíu mínúturnar.
Svo virtist sem Þórsarar ætluðu að
halda hreinu og ná jafntefli en á 82.
mín. stakk Theódór Óskarsson vörn
Þórs af og lyfti boltanum yfir Atla og í
netið. Sorglegt fyrir Atla Má sem
hafði átt stórleik en að sama skapi
gleðilegt fyrir Fylkismenn að pressa
þeirra skyldi bera árangur.
Leikurinn opnaðist mikið síðustu
mínúturnar. Þórsarar reyndu að
jafna og voru fáliðaðir í vörninni. Í
lokin fóru Fylkismenn síðan að halda
boltanum en þeir tilburðir fóru mjög í
taugarnar á Þórsurum og varð ágæt-
ur dómari leiksins, Bragi V. Berg-
mann, að sýna röggsemi til að halda
mönnum í skefjum. Fylkir hélt sínum
hlut og fögnuðu liðsmenn að vonum
innilega en Þórsarar gengu hnípnir af
velli. Þeir sýndu engu að síður mjög
góðan leik og af þeim sökum voru úr-
slitin mikil vonbrigði fyrir þá. Atli
Már var frábær í markinu, Hlynur
Birgisson sterkur í vörninni og fé-
lagar hans líka lengst af, Kristján
Örnólfsson drífandi á miðjunni og Jó-
hann Þórhallsson að vanda duglegur
frammi. Hjá Fylki átti Kjartan
Sturluson góðan dag, vörnin var
traust á köflum og Theódór Óskars-
son og félagar framsæknir þegar á
þurfti að halda.
Morgunblaðið/Kristján
Theódór Óskarsson, markaskorari Fylkismanna, og Óðinn Árnason, varnarmaður Þórs, berjast um boltann á Akureyrarvelli.
Fylkir á toppinn
SKILIN á milli heppni og óheppni reyndust æði glögg þegar Þórs-
arar fengu Fylki í heimsókn í gær. Heimamenn voru ívið betri lengst
af í skemmtilegum leik en lánið var ekki með þeim og knötturinn
vildi ekki í netið þrátt fyrir mörg færi. Pressa Fylkis undir lokin bar
hins vegar árangur og liðið skaust á topp deildarinnar með marki á
82. mínútu en þetta sama mark geirnegldi Þórsara við botninn.
Reyndar geta Þórsarar enn bjargað sér en ansi er þó farið að
hausta mikið í herbúðum þeirra.
Stefán Þór
Sæmundsson
skrifar
!"##
!" #
$%&
#
'
(
)* +,
-
.
#
/,
!0#+
$1&
2 3*
"
4
5
6
7
!+
2
*
%%&
8
5
9
. ,
#
7,.
:;< .4
#=
$ #%
&%''%
> (&
) * (4
+',
?.
--&
. +
. / # !0
0)
1
7
*.
#
;@ ;<
%
1
11
23
7
+
5)A
5 ?
8
.B .
'3 =
B 3* .
0
2 C
7=7=
B 0
+,
7>=5+,
'3
B( C3
!7
,. 8
<D&
-2 1.
2
&3452
+ 3 3
26
&37%5& E ;34%5
!@&
D
!@&