Morgunblaðið - 03.09.2002, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 03.09.2002, Blaðsíða 11
ÚRSLIT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2002 B 11 Sjalla/Greifamótið Hraðmót í karlaflokki, leikið á Akureyri föstudag og laugardag: KA – Þór................................................ 19:20 Afturelding – HK ................................. 17:17 Fram – Selfoss........................................ 20:7 KA – HK................................................ 16:16 Þór – Fram............................................ 16:19 Selfoss – Afturelding............................ 13:21 KA – Afturelding.................................. 15:15 Þór – Selfoss ......................................... 17:12 HK – Fram.............................................. 17:9 KA – Selfoss.......................................... 17:15 HK – Þór ............................................... 21:12 Fram – Afturelding.............................. 14:14 Selfoss – HK ......................................... 13:20 Þór – Afturelding ................................. 19:22 KA – Fram ............................................ 14:21 Lokastaðan: HK 5 3 2 0 91:67 8 Fram 5 3 1 1 83:68 7 Afturelding 5 2 3 0 89:78 7 KA 5 1 2 2 81:87 4 Þór 5 2 0 3 84:93 4 Selfoss 5 0 0 5 60:95 9 KNATTSPYRNA Efsta deild kvenna, Símadeild: Hásteinsvöllur: ÍBV - KR..........................18 Hlíðarendi: Valur - Grindavík ...................18 Kaplakrikavöllur: FH - Breiðablik...........18 3. deild karla, úrslit, síðari leikir: Helgafellsvöllur: KFS - Leiknir F............17 Eskifj.völlur: Fjarðabyggð - Fjölnir ...17.30 Í KVÖLD Opna Hole in one mótið: GKG, punktakeppni: Karlar: Ingi Hrafn Jónsson, GB.........................40 Jón Karl Björnsson, GK ........................39 Sigurður Olsen, GKG .............................38 Konur: Kristín Hilmarsdóttir, GKG ..................39 Gullveig Sæmundsdóttir, GKG..............36 Birna J. Hannesdóttir, GKG .................33 Hótel Stykkishólmur mótið Stykkishólmur, par 70: Karlar án forgjafar: Guðmundur Þ. Svanbergsson, GKj.......80 Hafsteinn E. Hafsteinsson, GMS..........82 Skarphéðinn Ómarsson, GO ..................84 Karlar með forgjöf: Þorvaldur M. Sigurðsson, GVG.............67 Stefán Vagnsson, GKB ..........................71 Rafn J. Rafnsson, GMS .........................71 Konur án forgjafar: María M. Guðnadóttir, GKG .................83 Hrafnhildur Sigurðardóttir, GL............89 Karín Herta Hafsteinsdóttir, GMS.......94 Konur með forgjöf: Hrafnhildur Sigurðardóttir, GL............73 María M. Guðnadóttir, GKG .................74 Erna Thorstensen, GR...........................75 Úrvals-Útsýnar mótin: Mistök voru gerð er úrslit úr Úrvals- Útsýnar mótunum tveimur voru birt á þriðjudaginn var. Rétt voru úrslitin þannig: Úrval-Útsýn 1 Öndverðarnes – Kiðjaberg, punkta- keppni. Karlar, 0–9,4 í forgjöf: Guðmundur Ö. Guðmundsson, GÖ........39 Haraldur M. Stefánsson, GKB..............36 Kristvin Bjarnason, GL .........................36 Karlar frá 9,5 í forgjöf: Róbert Sigurvaldason, GR.....................41 Árni Sveinbjörnsson, GKG ....................39 Jökull Kristjánsson, GR.........................39 Ingi J. Sigurvaldason, GR .....................39 Konur: Hanna Lára Köhler, GR ........................36 Björk Ingvarsdóttir, GK........................35 María S. Magnúsdóttir, GR...................34 Úrval-Útsýn 2 Kiðjaberg – Öndverðarnes, punkta- keppni: Karlar, 0–9,4 í forgjöf: Kim Magnús Nielsen, GK......................37 Brynjar Jóhannesson, GSE...................32 Sefán Örn Unnarsson, GR.....................31 Karlar frá 9,5 í forgjöf: Vilhjálmur Bergs, GKG .........................41 Jón F. Magnússon, GK ..........................38 Vignir Þ. Hlöðversson, GKG .................36 Konur: Kolbrún Stefánsdóttir, GR ....................36 Hafdís Ævarsdóttir, GS.........................33 Rósa P. Sigtryggsdóttir, GO .................33 ÍÞRÓTTIR Schumacher var í algerum sér-flokki á uppáhaldsbraut sinni og hélt forystu frá upp- hafi til enda; af sínum fyrsta ráspól sem hann vinnur í Spa. Og lengst af var forystan allt að rúmlega 20 sek. en undir lokin hægði hann ferðina til að spara mót- orinn í bílnum; tók ekki sömu áhættu og fjöldi annarra ökuþóra að þenja bíl sinn óþarflega áfram en mótorar margra sprungu vegna álags. Sigurinn er sá sjötti sem Schumac- her vinnur í Spa og hefur enginn hrósað sigri þar oftar, en í brautinni keppti hann í fyrsta sinn í Formúlu-1, árið 1991, og árið eftir vann hann þar sinn fyrsta mótssigur á ferlinum, en þeir eru nú orðnir alls 63, sem er met. Aldrei var spurning um efstu sætin en lengst af spenna um hver hreppti þriðja sætið. Kimi Räikkönen hjá McLaren féll úr öðru sæti í það þriðja í ræsingunni og missti fljótlega fram úr sér Juan Pablo Montoya hjá BMW.Williams, sem átti fyrirtaks ræsingu. Stóð barátta milli þeirra fram að fyrsta stoppi en þá skildi leið- ir. David Coulthard, félagi Räikkön- ens, vann sig upp í fjórða sætið eftir sitt fyrra þjónustustopp og sótti undir lokin að Montoya, sem stóðst atlögur hans og tókst að verja stöðu sína og þriðja sætið. Hafði hann gert nokkrar breytingar á uppsetningu bílsins eftir að komið var út á rásmarkið og þakk- aði hann það að hafa unnið sig úr fimmta sæti á rásmarki í það þriðja. Jagúarliðið fékk uppreisn æru og uppskar árangur af gífurlegum til- raunum sínum undanfarið til að end- urbæta keppnisbílinn er Eddie Irvine kom sjötti á mark. Fagnaði hann mjög í lokin en þetta er fyrsta stiga- sæti hans frá því í upphafsmóti árs- ins. Kemur árangurinn sér vel fyrir Jagúar og mun eflaust létta brúnina á yfirstjórnendum Ford-verksmiðj- anna sem ákveðið hafa að hittast í vik- unni í Detroit og ræða framtíð liðsins. Ökuþórar Toyota stóðu sig vel í Spa-brautinni þar sem þeir voru að aka í fyrsta sinn en Mika Salo varð sjöundi, aðeins 0,4 sekúndum frá síð- asta stigasætinu, og Allan McNish ní- undi. Japanski mótorsmiðurinn Honda vill líklega gleyma kappakstr- inum sem fyrst því hvorki fleiri né færri en sjö mótorar sprungu í Spa kappaksturshelgina, Jordan-þórarnir Giancarlo Fisichella og Takuma Sato fóru með fimm og Olivier Panis hjá BAR tvo. Lokamótorinn sem brást Fisichella sprakk með miklum eld- blossa og kvaðst ökuþórinn hafa verið logandi hræddur uns hanns hafði stöðvað bílinn utan brautar og stokk- ið upp úr honum. Með sigrinum er Schumacher kom- inn með 122 stig í keppni ökuþóra og stefnir hraðbyri á nýtt stigamet því enn eru þrjú mót eftir. Barrichello (51) styrkti stöðu sína í öðru sætinu en er þó ekki sloppinn frá Montoya (44), Ralf Schumacher (42) og Coult- hard (37). Þá hefur Ferrariliðið unnið 173 stig í keppni bílsmiða og vantar aðeins 13 til að vera með hundraðinu meira en BMW.Williams sem er með 29 stiga forskot á McLaren fyrir síð- asta fimmtung vertíðarinnar. MICHAEL Schumacher bætti enn einu metinu í Formúlu-1 í safnið er hann vann fyrirhafn- arlausan sigur í belgíska kapp- akstrinum í Spa-Francor- champs í Ardennafjöllum á sunnudag. Er það 10. mótssigur hans á árinu, en fyrra metið, níu mótssigra á sömu vertíð, átti Bretinn Nigel Mansell frá 1992 en það jafnaði Schumacher í þýska kappakstrinum í Hocken- heim fyrir rúmum mánuði. Þá var mótið í Spa og sögulegt fyrir þær sakir að þar átti Ferrari mann á verðlaunapalli 50. mót- ið í röð, sem er einstakt, eða í öllum mótum eftir Evrópukapp- aksturinn í Nürburgring 1999. Reuters Michael Schumacher glaðbeittur eftir sigurinn í Belgíu-kappakstrinum á sunnudaginn. Ágúst Ásgeirsson skrifar Schumacher- sýning Þróttarar fengu óskabyrjun á 7.mínútu þegar Brynjar Sverris- son skoraði framhjá Hajrudin Card- aklija. Skot Brynjars fór í varnarmann Sindra og breytti að- eins um stefnu sem var nóg til þess að Cardaklija reyndi ekki við boltann. Eftir markið stjórnaði Þróttur leikn- um en fátt marktækt gerðist þar til á 43. mínútu þegar Brynjar skoraði annað mark sitt. Hann fékk þá góða sendingu inn fyrir vörn gestanna frá fyrirliðanum Páli Einarssyni og af- greiddi boltann snyrtilega í markið. Aðeins tveimur mínútum síðar var komið að Páli Einarssyni að skora en hann fékk boltann óvaldaður í teign- um og vippaði knettinum yfir Card- aklija. Í síðari hálfleik héldu Þrótt- arar áfram að stjórna leiknum og spurningin var aðeins með hve mörg- um mörkum þeir myndu sigra. Á 66. mínútu skoraði Halldór Hilmisson fjórða markið eftir að Cardaklija hafði ekki náð að halda boltanum. Á 83. mínútu varði Cardaklija glæsi- lega skot Sigurðar Hallvarðssonar sem hafði komið inn á sem varamað- ur skömmu áður. Þremur mínútum síðar kom fimmta markið þegar Hans Sævarsson skoraði með föstu skoti eftir góða sókn heimamanna. Flestir leikmanna Þróttar komust vel frá leiknum en ekki er hægt að segja það sama um Sindramenn. Þeir náðu sér engan vegin á strik og áttu ekkert erindi í Þróttara. Hjá Þrótt- urum var Páll Einarsson bestur ásamt Brynjari Sverrissyni en eng- inn stóð upp úr í liði gestanna. Maður leiksins: Páll Einarsson, Þrótti. Vonbrigði hjá ÍR og Aftureldingu Úrslitin í leik ÍR-inga og Aftureld-ingar voru báðum liðum mikil vonbrigði þegar þau áttust við í rign- ingu og strekkings- vindi á ÍR-vellinum í Mjódd. Bæði lið þurftu sárlega á öll- um stigunum að halda – ÍR-ingar til að safna stigum í botnbaráttunni þar sem þeir eru í fallsæti og Mosfellingar til að eygja möguleika á að ná öðru sætinu og komast þar með upp í úrvalsdeildina. Stigið dugði þó ÍR-ingum til að komast upp úr botnsætinu í fyrsta sinn í langan tíma en þar sem Sindri og Leiftur/Dalvík biðu bæði lægri hlut í leikjum sínum eiga Breiðhylt- ingar enn möguleika á að bjarga sér frá falli. Nýliðar Aftureldingar töp- uðu hins vegar dýrmætum stigum í toppbaráttunni og möguleikar þeirra á að fara upp verða að teljast frekar litlir eftir jafntefli í tveimur síðustu leikjum sínum. Leikurinn einkenndist af baráttu og færin sem liðin sköpuðu sér voru af skornum skammti. Mosfellingar voru sterkari framan af fyrri hálfleik og þeir Boban Ristic og Þorvaldur Már Guðmundsson áttu ágæt skot sem fóru forgörðum. ÍR-ingar börð- ust vel en þegar á síðasta þriðjung vallarins kom runnu sóknir þeirra út í sandinn. Baráttan var allsráðandi áfram í síðari hálfleik en ÍR-ingar, sem léku undan vindinum, voru hættulegri í sínum sóknaraðgerðum og í tvígang björguðu markstangirn- ar Mosfellingum. Á 65. mínútu prjón- aði Gunnar Hilmar Kristinsson sig í gegnum vörn Aftureldingar og átti fast skot sem small í stönginni. Fimm mínútum fyrir leikslok sluppu Mos- fellingar aftur með skrekkinn en þá skaut varamaðurinn Einar Þór Sig- urðsson í stöngina af stuttu færi. Leikmönnum Aftureldingar tókst ekki að ógna marki ÍR-inga að neinu ráði en herslumuninn vantaði hjá Mosfellingum að brjóta vörn ÍR-inga á bak aftur. Kristján Halldórsson og Höskuld- ur Eiríksson voru sterkir fyrir í vörn ÍR-inga og markvörðurinn Kristinn Geir Guðmundsson var mjög örugg- ur í sínum aðgerðum. Greinileg bata- merki hafa verið á leik ÍR-inga með tilkomu Ólafs Jóhannessonar í þjálf- arastarfið en hvort það dugi til að ÍR- ingar haldi sæti sínu í deildinni skal ósagt látið. Vörnin með Albert Ásvaldsson sem besta mann var sterkasti hlutinn í liði Aftureldingar sem án efa hefur verið spútnikliðið í deildinni. Boban Ristic gerði marga góða hluti en allan brodd vantaði í sóknina og máttu Mosfellingar í heildina séð teljast lukkulegir að sleppa burt úr Breið- holtinu með eitt stig. Maður leiksins: Kristján Halldórs- son, ÍR. Stjarnan enn með í baráttunni Mikill baráttuleikur fór fram áDalvík á laugardag þar sem Stjarnan lagði Leiftur/Dalvík. Fátt var um fína drætti og lítið um færi en Stjarnan skoraði eina markið skömmu eftir að hafa misst mann útaf með rautt spjald. Fyrri hálfleikur einkenndist af baráttu enda mikið í húfi fyrir bæði lið. Stjarnan var sterkari aðilinn en miðjumoð var allsráðandi. Nokkur harka var í leiknum og fór gula spjaldið átta sinnum á loft. Fyrsta færið kom eftir kortér en þá skaut Ingólfur Ingólfsson framhjá marki norðanliðsins. Stjarnan fékk þrjú færi í viðbót, öll eftir hornspyrnu. Það hættulegasta kom rétt fyrir hlé en þá björguðu heimamenn skalla Garðars Jóhannssonar á línu. Nokkru áður hafði Þorleifur Árna- son stungið sér gegnum Stjörnu- vörnina en skot hans úr utanverðum vítateignum fór í varnarmann. Síðari hálfleikur var svipaður en nú voru heimamenn betri. Þeir áttu í erfiðleikum með að skapa sér færi enda var Stjörnuvörnin firnasterk. Á 65. mínútu var Sveinn Magnússon rekinn af velli og efldust Stjörnu- menn við það. Skömmu síðar skoruðu þeir úr eina færi sínu í hálfleiknum. Ólafur Páll Snorrason slapp einn í gegn og renndi boltanum framhjá Sævari Ey- steinssyni sem nýkominn var í mark norðanliðsins. Í næstu sókn þess fékk Jón Örvar Eiríksson gott færi en Bjarki Freyr Guðmundsson Stjörnu- markvörður varði hörkuskalla hans. Ekkert gekk hjá heimamönnum og Stjarnan fagnaði að leikslokum enda liðið í hörkubaráttu um sæti í Síma- deildinni og þrjú stig því nauðsynleg. Maður leiksins: Valdimar Krist- ófersson, Stjörnunni. Þróttur og Stjarn- an fylgjast að ÞRÓTTUR úr Reykjavík sigraði Sindra, 5:0, á Valbjarnarvelli, síðast- liðinn laugardag. Þróttarar gerðu út um leikinn undir lok fyrri hálf- leiks þegar þeir skoruðu tvívegis. Þróttarar eru í öðru sæti 1.deildar ásamt Stjörnunni og berjast liðin um að fylgja Valsmönnum upp í efstu deild. Útlitið hjá Sindra er slæmt en liðið er í neðsta sæti þeg- ar aðeins tvær umferðir eru eftir. Atli Sævarsson skrifar Guðmundur Hilmarsson skrifar Einar Sigtryggsson skrifar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.