Morgunblaðið - 03.09.2002, Side 3
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2002 B 3
Þróttur vann 1. deildina
ÞRÓTTUR úr Reykjavík vann sér sæti í úrvalsdeild kvenna í
knattspyrnu á laugardaginn með því að sigra Hauka, 2:0, í úr-
slitaleik 1. deildar á Ásvöllum í Hafnarfirði. Anna Björg
Björnsdóttir, sem skoraði 39 mörk fyrir Þrótt á tímabilinu,
gerði fyrra markið og þjálfarinn, Íris Björk Eysteinsdóttir,
það síðara, beint úr aukaspyrnu. Þróttarkonur unnu þar með
1. deildina annað árið í röð en þær óskuðu eftir því að leika
áfram í 1. deild á þessu tímabili þrátt fyrir sigurinn í fyrra.
Haukastúlkur fá annað tækifæri til að komast upp því þær
mæta næstneðsta liði úrvalsdeildar, líklega FH, í aukaleikjum
um sæti þar.
WILLUM Þór Þórsson þjálfari KR
var að vonum ekki ánægður með eitt
stig. „Við ætluðum okkur þrjú stig
en Eyjamenn börðust eins og ljón
og náðu sér í eitt stig. Þeir spiluðu
mjög fast og það er ekki um annað
að ræða en mæta því en það tók
okkur nokkurn tíma að svara því.
Við bættum aðeins sóknina og
breyttum nokkuðskipulaginu en það
er alltaf mjög tvíeggjað því um leið
og skipulaginu er breytt koma ein-
hvers staðar upp dauðir punktar.
Eyjamenn gefa fá færi á sér í vörn-
inni og hafa gert í sumar. Þeirra
veikleiki er helst að sækja fram á
við en þeir fengu mark í gjafaum-
búðum,“ sagði Willum Þór en hann
fer með lið sitt á Fylkisvöllinn í
næsta leik. „Nú er tekin fyrir næsta
æfing og síðan næsti leikur. Við
vinnum samkvæmt því og því verður
ekki breytt.“
Vel barist fyrir stiginu
„Ég er ánægður með stigið þó að
þrjú hefði verið betra því það eru
ekki margir sem sækja stig hingað á
KR-völlinn en við ætluðum að fá
þrjú,“ sagði Heimir Hallgrímsson
þjálfari Eyjamanna eftir leikinn.
„Strákarnir eiga heiður skilinn fyrir
að leggja sig vel fram, ég held að all-
ir hafi séð að það var vel barist fyrir
þessu stigi. Við ætluðum að setja á
þá pressu en sáum fljótlega að þeir
unnu miðjuna svo að við færðum
okkur aftar hægt og sígandi og það
gekk upp. Auðvitað var mikil fórn í
leiknum. Bjarnólfur og Atli fara í
leikbann en barátta kostar alltaf
eitthvað og þetta er ekkert of mikil
fórn fyrir eitt stig hérna.“
Leikurinn var sá fyrsti hjá Heimi
eftir að Njáll Eiðsson var látinn
taka pokann sinn. „Það er ekki
uppáhaldsbyrjun fyrir þjálfara í
þessari stöðu að koma hingað á KR-
völlinn en maður verður að byrja
einhvers staðar og að sjálfsögðu var
maður með mikinn fiðring í mag-
anum fyrir leikinn,“ sagði Heimir og
leist vel á framhaldið. „Það er hægt
að leggjast í eymd og volæði eða líta
jákvætt á stöðuna. Við eigum tvo
leiki eftir í deildinni og fáum há-
marksstigafjölda úr þeim sem skilar
okkur í ágætt sæti. Auk þess erum
við í undanúrslitum í bikarkeppninni
svo það getur endað með því að
sumarið verði gott fyrir ÍBV.“
Menn hrukku í gang strax áfyrstu mínútu þegar minnstu
munaði að Tómas Ingi Tómasson
skoraði fyrir ÍBV.
Síðan hófst baráttan
um miðjuna og um
það bil sem Vest-
urbæingar voru að
ná þar völdum skoraði Gunnar Heið-
ar fyrir gestina. KR-ingar héldu
samt áfram að pressa gesti sína aft-
ar í vörnina og náðu undirtökunum
en það var ekki fyrr eftir hálftíma
leik að kom að fyrsta umtalsverða
færi þeirra. Þá sendi Arnar Jón Sig-
urgeirsson góða sendingu innfyrir
vörn ÍBV á Sigurð Ragnar Eyjólfs-
son en Birkir Kristinsson kom vel út
á móti og varði í horn. Þrátt fyrir góð
tök á miðjunni þurftu heimamenn að
gæta sín í vörninni á góðum sprett-
um Gunnars Heiðars og sendingum
Tómasar Inga, sem sjálfur komst í
ágætt færi á 32. mínútu en skaut
framhjá. Það virtist herða á KR-ing-
um því nokkrum mínútum síðar
small aukaspyrna Sigurvins Ólafs-
sonar í þverslá Eyjamanna og mín-
útu síðar uppskáru þeir mark Einars
Þórs.
Atli fékk rautt spjald
Í síðari hálfleik fór ekki mikið fyr-
ir færum en því meira var um brot.
Besta færið og í raun eina, sem var
eitthvað var varið í, kom strax á 48.
mínútu en þá fór skallabolti Einars
Þórs beint í hendur Birkis í markinu.
Baráttusvæðið færðist hægt og bít-
andi aftur yfir á vallarhelming gest-
anna og nokkrum sinnum skapaðist
þvaga inni í markteig þeirra, ekki
síst eftir að Veigar Páll Gunnarsson
sýndi skemmtilega takta þegar hann
prjónaði sig í gegnum vörn Eyja-
manna, en þar vantaði á lokahnykk-
inn. Á 63. mínútu lenti Tómas Ingi í
miklu samstuði og varð að yfirgefa
völlinn svo mesta bitið fór úr sókn-
arleik ÍBV og tíu mínútum síðar var
Atli Jóhannsson rekinn af velli með
verðskuldað rautt spjald. KR-ingum
tókst hinsvegar ekki að nýta sér það
og gekk illa síðasta spölinn að marki
gestanna, sem börðust með kjafti og
klóm í vörn fyrir stiginu sínu. Undir
lokin fikruðu Eyjamenn sig framar á
völlinn og fengu tvær hornspyrnur á
síðustu mínútum á meðan stuðnings-
menn KR í stúkunni héldu niðri í sér
andanum en allt kom fyrir ekki.
KR-ingar höfðu ágæt tök á vörn-
inni og á miðjunni tóku þeir öll völd
en lögðu ekki eins mikla áherslu á
sóknarleikinn. Nokkuð virtist harka
gestanna slá þá út af laginu en þeir
mega vita að þá verður að spýta enn
meira í lófana. Þeir virtust ekki eiga
neitt svar við því hve gestir þeirra
færðu sig aftarlega og ekki heldur
hart var tekið á þeim.
Sigurvin Ólafsson, leikmaður KR
og fyrrverandi leikmaður ÍBV,
meiddist og varð að fara af leikvelli
þegar 20 mínútur voru eftir og er
óvíst um frekari þátttöku hans á Ís-
landsmótinu.
Eyjamenn fá ekki hrós fyrir góða
knattspyrnu. Leikmenn virtust
hugsa meira um hörkuna og láta
finna fyrir sér en spila knattspyrnu.
Hinsvegar er eins og venjulega að-
eins spurt að leikslokum og eitt stig
er góð uppskera. Harkan kostaði
hinsvegar sitt og líklega verða Atli
og Bjarnólfur Lárusson úrskurðaðir
í leikbann eftir þennan leik.
Morgunblaðið/Þorkell
Kjartan Antonsson stóð fyrir sínu í vörn ÍBV þegar liðið gerði 1:1 jafntefli við KR í Vesturbænum í gær. Hér nær hann boltanum af Ein-
ari Þór Daníelssyni, sem átti á tíðum erfitt uppdráttar, og Hjalti Jóhannesson, félagi Kjartans, fylgist grannt með framvindu mála.
Stig fyrir hörkuna
EYJAMENN mættu grimmir KR-ingum í Vesturbæ Reykjavíkur í
gærkvöldi og uppskáru þannig eitt stig í hörkuleik, sem helst verð-
ur minnst fyrir mörg glóru- og tilefnislaus brot svo spjöldin fóru átta
sinnum á loft. Eyjamenn geta vel við 1:1 jafntefli og eitt stig unað en
KR-ingar máttu varla við því, eru nú einu stigi á eftir efsta liðinu,
Fylki, þegar tvær umferðir eru eftir.
Stefán
Stefánsson
skrifar
8
# 9:
); )
# +
5=
) 0:
82); -
/
5?
,
)
" <-1
D;
B F
7
+,
+
/
!# ='3
$&
5. /
8
-/ , C
87
7 =
4
!2
4
<@&
B )* +
5
8
/
5?
,
!+ .
'
$E&
7 /#3 4
9
. ,
#
7,.
:;< .4 0
3 =
$ #%
&%''%
> = # &
>2
) 4 & 1 ; (4
?*74
?.
/
0)
&
@A
. B2 :
82 .
7
*.
#
@ <
D
'
2
'3
+B
#
74*
23
3 8
!G '? D<&
-
7
'3
4 *
4
!3 8
$&
8
. -
.
!H
. 4
<1&
+
5=
0)
&<-13,5& -2 (
&<-13A?5& #&
2
&<-13C+5& :
/
& 3+'5& -2/1
&<-13,A5& #D
&<-13*+5& 8E
& 3*+5& + 3 3 0)
&<-13*%5
2#
E ;3?A5
; ;3A,5
!1&
%
E
!1&
Mark í
gjafa-
umbúð-
um
Kristinn
dæmir í
Bolton
KRISTINN Jakobsson, milli-
ríkjadómari, dæmir vin-
áttulandsleik 21-árs landsliða
Englands og Júgóslavíu sem
fram fer á Reebok Stadium,
heimavelli Bolton Wander-
ers, á föstudagskvöldið. Að-
stoðardómarar verða Pjetur
Sigurðsson og Eyjólfur
Finnsson. Enska knatt-
spyrnusambandið óskaði eft-
ir því að fá Kristin á þennan
leik en hann dæmdi leik Eng-
lands og Hollands í þessum
aldursflokki í fyrra og þótti
standa sig vel.