Morgunblaðið - 03.09.2002, Síða 6
KNATTSPYRNA
6 B ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Bæði lið fengu ágæt færi í upp-hafi leiksins. Hjörtur Hjartar-
son fékk kjörin færi til að skora fyr-
ir heimamenn í
tvígang og hinum
megin á vellinum
var það Bjarni H.
Aðalsteinsson sem
þrumaði í stöngina á 4. mínútu, fyrir
Fram. Segja má að á þessum kafla
hafi Hjörtur annars vegar og lið
Fram sýnt þverskurð af tímabilinu
til þessa þar sem fátt gengur upp
fyrir framan mark andstæðinga.
Skagamenn léku gegn vindinum í
fyrri hálfleik og var Ellert Jón
Björnsson mjög duglegur á hægri
væng Skagamanna. Eftir góða byrj-
un fengu Skagamenn ekki mörg
marktækifæri í fyrri hálfleik og
sama má segja um Framara sem
náðu ekki að hemja knöttinn er þeir
léku undan vindinum.
Í síðari hálfleik bætti heldur í
vindinn og auk þess fór að rigna.
Hafi Ólafur Þór Gunnarsson, mark-
vörður Skagamanna, átt í vandræð-
um með að koma knettinum í leik í
fyrri hálfleik var enn erfiðara fyrir
Gunnar Sigurðsson, Framara, að
sparka knettinum frá marki í þeim
síðari.
Ólafur Ragnarsson, dómari leiks-
ins, þurfti í tvígang að taka stórar
ákvarðanir í leiknum. Í fyrra skiptið
slapp Hálfdán Gíslason einn í gegn-
um vörn Fram á 52. mínútu. Ingvar
Ólason reyndi að brjóta á Hálfdáni
utan teigs en tókst ekki að fella
hann. Ingvari tókst það hins vegar
inni í vítateignum og dæmdi Ólafur í
fyrstu vítaspyrnu en færði síðan
brotið út fyrir teig eftir að hafa ráð-
fært sig við Garðar Örn Hinriksson
aðstoðardómara. Að margra mati
hagnaðist Framliðið á þessum
ákvörðunum Ólafs og að auki var
Ingvar greinilega aftasti maður í
vörn Fram og hefðu margir vísað
honum af velli fyrir brotið.
Tíu mínútum síðar gerði Gunn-
laugur Jónsson sig sekan um slæm
mistök er honum mistókst að senda
knöttinn á Ólaf, markvörð ÍA.
Kristján Brooks var fljótur að átta
sig og „stal“ knettinum en Gunn-
laugur elti hann uppi en dæmd var
vítaspyrna á Gunnlaug og honum
var vísað af velli. Erfitt var að sjá
hvort Gunnlaugur hefði fellt Krist-
ján en af sjónvarpsmyndum virðist
Gunnlaugur hafa nokkuð til síns
máls en hann sagði eftir leikinn að
hann hefði aðeins tekið knöttinn af
Kristjáni.
„Það hefði nánast verið hægt að
ganga inn í miðhringinn og kasta
upp á úrslitin,“ sagði Kristinn R.
Jónsson, þjálfari Framara, í leiks-
lok. „Veðrið var skelfilegt og þrátt
fyrir að við værum manni fleiri í um
hálftíma sá varla högg á vatni þar
sem við sóttum gegn vindinum.
Gunnar markvörður okkar kom
varla knettinum út fyrir vítateig í
útspörkum sínum. Þetta verður því
sama strögglið í næstu tveimur
leikjum gegn FH á heimavelli og
gegn KA á Akureyri. Við verðum að
vinna þessa leiki ef við ætlum okkur
að leika í efstu deild að ári,“ sagði
Kristinn.
Reynir Leósson, varnarmaður
ÍA, sagði veðrið hafa verið álíka
slæmt og gegn Breiðabliki í fyrra en
ekki eins slæmt og gegn Fylki er
leikurinn var blásinn af. Reynir var
ekki sáttur við dómgæsluna og taldi
á lið sitt hallað í þeim efnum. „Það
hefði mátt dæma víti á Framarana í
seinni hálfleik og ég skil ekki hvern-
ig hægt er að færa brotið út fyrir
teig. Ingvar braut á Hálfdáni fyrst
fyrir utan teig en náði ekki að fella
hann fyrr en í teignum. Annars var
þetta leikur sem ekki var við neitt
ráðið vegna veðurs og ég held að
flestir hafi verið fegnir að komast í
heita sturtu í leikslok,“ sagði Reyn-
ir.
Kári í aðal-
hlutverki
á Akranesi
ÞAÐ var drungalegt veður á Skipaskaga á laugardag er ÍA tók á móti
Fram og má segja að veðrið hafi sett sinn svip á leikinn. Framarar
voru fyrir leikinn með 13 stig og í fallsætinu ásamt Þór frá Akureyri,
en Skagamenn með 19 stig og enn að hrista af sér falldrauginn.
Bæði lið skoruðu eitt mark í leiknum og þar við sat og þrátt fyrir
ágæt tilþrif af og til voru veðurguðirnir í þannig skapi að lítið varð
við ráðið. Jafntefli liðanna setur Fram í erfiða stöðu fyrir loka-
umferðirnar tvær en Skagamenn geta andað örlítið léttar.
Sigurður Elvar
Þórólfsson
skrifar
* 4*
+,
);) )2
/ :
( +# 4
#;#
/ 0
2-
2 :
11
4 5+
3* . ?3* .
+
8
#
+ 3
7=
+A4
7
)* .
3 3
!'
<%&
/ 8
'3
* 4*
+,
2*7
#
!+ +
$&
9
. ,
#
7,.
:;< .4
=
( #A?&%''%
> :
)
) 7
1 ) (4
+4,
?.
D
&
!&1
. / !
/ /
7
*.
#
;< ;
%
+
7
7>=+ 3
-
=
/ 74*
? + .
.*
!0#2
%1&
'3
( +# 4
B + 3
7
>
!5C3
7=
<E&
0L
!2 3*
'
<E&
+ 3 3 / 0
&<3,%5
; E3%45
; ;3,%5
!$&
1
;
!1&
9 D
&3+A5
:
&<3*,5
/" :
&<34*5
Við vorum með leikinn í okkarhöndum allan leikinn,“ sagði
Olga Færseth, sem skoraði tvö af
mörkum KR og skapaði oft usla uppi
við mark Vals. „Við höfum í sumar
farið í alla leiki með það í huga að
setja strax mark á mótherjana og
það var engin breyting á því í dag.
Það var gott að fara með þriggja
marka forskot til leikhlés en síðan
gerðist eins og svo oft áður að þær
bættu í sóknina og við bökkuðum aft-
ar á völlinn. Það var því ekkert óeðli-
legt að við bættum þá við mörkum.
Allir bikarúrslitaleikir eru erfiðir
eins og sýndi sig, til dæmis þegar við
vorum með fjögurra marka forskot
en samt varð spenna í lokin. Það fór
ekki mikið um mig því það var svo lít-
ið eftir. Vanda sagði við okkur í
morgun að henni þætti við nokkuð
afslappaðar og ég held að það hafi
einmitt verið svo. Við vissum alveg
út í hvað við vorum að fara og það
þýðir ekkert að æsa sig, þetta er eins
og hver annar leikur þó að hann heiti
bikarúrslitaleikur og við ákváðum að
gera eins og við höfum gert í allt
sumar,“ bætti Olga við og ætlar sér
ekki að láta staðar numið. „Við náð-
um okkar markmiði að vinna tvöfalt
og það er alltaf gaman að ná mark-
miðum. Við ætlum ekki að vinna Ís-
landsmótið á markahlutfalli, heldur
stigum og vantar ennþá eitt. Við ætl-
um að ljúka mótinu með sæmd.“
Með leikinn í höndunum
Morgunblaðið/Jim Smart
KR-ingarnir Hrefna Jóhannesdóttir og Olga Færseth berjast um boltann við Rósu Júlíu Stein-
þórsdóttur. Olga var á skotskónum í leiknum, skoraði tvö marka bikarmeistaranna.
S
m
in
e
m
a
a
í
in
o
s
b
a
s
E
o
a
v
e
r
u
k
e
s
u
li
V
a
is
le
k
f
f
g
le
v
k
–
h
f
a
r
d
b
VALSSTÚLKUR fóru hægt inn í
leikinn og ætluðu ekki að láta okkur
skora í byrjun eins og við gerum svo
oft því það brýtur oft ísinn og þá get-
um við spilað afslappaðri saman og
fleiri mörk fylgja í kjölfarið,“ sagði
Ásthildur Helgadóttir úr KR eftir
leikinn en hún stóð sig mjög vel.
Við vorum alveg tilbúnar í þennan
leik og tel að við höfum sýnt það
með því að skora þessi fjögur mörk.
Eftir það lékum við mjög vel og unn-
um boltann úti á vellinum en þegar
við náðum meiri forystu bökkuðum
við ósjálfrátt. Það fór aðeins um mig
í lokin en ég spurði dómarann eftir
þriðja markið hvað væri mikið eftir
og þegar hann sagði tuttugu og ein
sekúnda taldi ég að allt yrði í lagi.
Við gerðum því út um leikinn með
þessum fjórum mörkum því eftir
þau bökkuðum við og fórum ósjálf-
rátt að slaka á. Það var ekki líklegt
að Val tækist að skora fjögur mörk
eftir það en það var samt óþarfa-
spenna fyrir þjálfara og áhorf-
endur,“ bætti Ásthildur við ánægð
með uppskeruna í sumar. „Sumarið
hefur verið frábært og það sýnir
styrk okkar þegar við missum fjóra
sterka leikmenn til útlanda og náum
samt að sigra.“
Vorum ekki yfirspenntar
„Við vorum ekkert endilega að
leggja upp með skora í byrjun, held-
ur að vinna leikinn en við fengum
samt nokkur dauðafæri áður en við
skoruðum fyrsta markið,“ sagði
Vanda Sigurgeirsdóttir, þjálfari KR,
eftir sigurinn á laugardaginn. „Við
vorum mjög einbeittar fyrir leikinn
og alls ekkert með vanmat á Valslið-
inu en það var samt ákveðin ró yfir
liði mínu, sem mér finnst mjög
ánægjulegt því þá voru þær ekki yf-
irspenntar, sem getur gerst í svona
leikjum og hefur slæm áhrif. Ég var
samt aldrei róleg í leiknum, reyndar
aðeins þegar staðan var 4:0 en í lok-
in var ég farin að hafa áhyggjur.
Reyndar var svo lítið eftir að leikn-
um eftir síðasta mark Vals að ég
trúði ekki að mínar stelpur myndu
klikka enda gerðu þær það ekki.
Einhvern tímann var ég kölluð
Vanda varkára því ég er ekki örugg
fyrir leikurinn er búinn.“
Vanda gerði samning um eitt ár.
„Ég samdi um eitt ár með jákvæðu
hugarfari um framhald og við eig-
um bara eftir að setjast niður til að
ræða málin. Nú förum við til Vest-
mannaeyja í næsta leik og vonandi
ljúkum við að vinna Íslandsmótið
þar en við settum okkur að mark-
miði að vinna alla titlana í sumar.
Mér finnst styrkur í liðinu að þegar
við missum fjóra stelpur sýna hinar
hvað þær eru góðar.“
Fór aðeins
um mig
í lokin
KR – Bikarmeistarar 2002. Neðri rö
esdóttir, Embla S. Grétarsdóttir, Þóru
ljónið, Pálína Bragadóttir, Ásthildu
arsdóttir, Tinna Hauksdóttir, Sigríðu