Morgunblaðið - 03.09.2002, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2002 B 7
SIGRÍÐUR Fanney Pálsdóttir stóð á
milli stanganna hjá KR á laugardag-
nn, en hún var kölluð inn í KR-liðið
eftir að Þóra Helgadóttir, landsliðs-
markvörður, fór utan til Bandaríkj-
anna til háskólanáms. Þetta er í ann-
að sinn í sumar sem Sigríður stendur
marki KR-liðsins en eftir fyrri leik-
nn var nokkuð öruggt að hún væri
orðin Íslandsmeistari og eftir þann
síðari hampaði hún bikar, þ.e. eftir
bikarúrslitaleikinn við Val á laug-
ardaginn. Ekki nóg með það því hún
spilaði einnig einn leik með liði á
Ermarsundseyjunni Jersey í sumar
og hampaði eftir það bikarmeist-
aratitli.
„Vanda hafði samband við mig í
vor eftir að ég hafði spilað með liði á
eyjunni Jersey á Ermarsundinu,
reyndar bikarúrslitaleik sem við
unnum og það var mjög gaman að
koma aftur,“ sagði Sigríður Fanney
en eins og kunnugt er lék hún árum
saman í marki KR-liðsins.. „Hóp-
urinn er mjög góður, samstilltur og
iðsandinn virkilega góður enda er
Vanda góður þjálfari og ekki hægt
að koma við betri aðstæður. Það ger-
st varla betra. Mér fannst við eiga
eikinn því til dæmis í fyrri hálfleik
komust Valsstúlkur einu sinni inn
fyrir vörnina og áttu eitt skot
framhjá svo að ég þurfti ekkert að
gera,“ sagði Sigríður Fanney eftir
eikinn á laugardaginn en er ekki
viss með framhaldið. „Ég tognaði í
kálfa og veit ekki hvort ég verð með
– ætli ég fari ekki þetta með gömlu
hörkunni. Ég sé til hvort ég fari á
fullt, ætli ég verði ekki að láta lík-
amann ráða því það er hann sem
ræður,“ sagði Sigríður Fanney Páls-
dóttir, markvörður KR-inga eftir
bikarúrslitaleikinn.
Þrír leikir
og þrír
bikarar
Ég sagði við þær að það væri umtvennt að velja: gefast upp eða
fara og vinna síðari hálfeikinn og
það kusu stelpurnar að gera. Við
settum okkur markmið að vinna
síðari hálfleik og náðum því og það
hefði verið slæmt að tapa stórt í
bikarúrslitaleik. Ég hrósa liðinu
fyrir að halda áfram allan leikinn og
þjálfari er auðvitað ánægður með
hann því einhver lið hefðu brotnað í
stöðunni eins og hún var í leikhléi.
Það sýnir að það þarf að hafa trú og
ég tel okkur ekki með mikið slakara
lið en auðvitað er KR með reynslu-
mikla máttarstólpa. Ég hefði viljað
hafa leikinn aðeins lengri og er viss
um að við hefðum skorað. Að vísu
var KR-liðið svo til hætt í lokin en
það getur verið dýrt og ég hefði
viljað bæta við tíu mínútum.“
Þriðja markið
næstum banabiti
„Við vorum alveg inni í leiknum
en brá nokkuð við fyrsta markið og
svo kemur strax annað og við vor-
um nokkurn tíma að átta okkur á
stöðunni en það var síðan næstum
banabiti að fá á sig þriðja markið,“
sagði Rósa Júlía Steinþórsdóttir,
fyrirliði Vals, eftir leikinn. „Við töp-
uðum þessu með því að fá á okkur
þrjú mörk á stuttum tíma en við
vorum staðráðnar inni í klefa að
láta ekki jarða okkur og reyna að
sýna styrk okkar. Við ætluðum að
skora þrjú mörk og gerðum það en
fengum á okkur eitt aulalegt mark.
Við hleyptum þó spennu í leikinn og
um þrjár mínútur til viðbótar hefðu
dugað til að jafna en við áttum að
vera löngu búnar að komast í gang.
Við erum sáttar við að skora þrjú
mörk eftir hlé en maður er samt
aldrei sáttur við að tapa bikarúr-
slitaleik, það er hundfúlt. Ljósi
punkturinn er að minnka muninn
en við tókum líka áhættu með því
að fækka í vörninni og fjölga í
frammi enda urðum við að gera
eitthvað til að skora.“
Gefast upp
eða
að vinna
„VIÐ byrjuðum vel því við vildum ekki fá á okkur mark fyrstu fimm-
tán mínúturnar,“ sagði Helena Ólafsdóttir, þjálfari Valsstúlkna, eftir
leikinn. „Við héldum út í hálftíma og þá fengum við á okkur mark
eins og við var að búast en við vorum þá búnar að fá fín færi sem við
náðum ekki að skora úr, eins og hefur háð okkur í síðustu leikjum.
Reyndar bognuðum við um tíma eftir fyrsta mark þeirra og að fara
með þrjú mörk á bakinu í leikhlé er mikið,“ bætti þjálfarinn við en
var ánægður með síðari hálfleikinn.
Liðin tóku sér fyrstu fimmtánmínúturnar til að halda sjó því
KR-stúlkur urðu að halda ró sinni
og Valsstúlkur
máttu eiga von á
miklum sóknar-
þunga og marki frá
Vesturbæjarstúlk-
unum í byrjun, sem þannig hafa oft
slegið mótherja sína út af laginu í
sumar. Um það bil sem KR var að
ná tökum á leiknum geystist Valur í
sókn og minnstu munaði að Ásgerð-
ur H. Ingibergsdóttir kæmi Val í
forystu eftir snarpa sókn og góða
sendingu Dóru Maríu Lárusdóttur
á 16. mínútu en Sigríður Fanney
Pálsdóttir í marki KR kom í veg
fyrir það. Þetta var nóg fyrir KR-
stúlkur, þær settu allt á fullt í sókn-
inni og Ásthildur Helgadóttir og
Olga Færseth áttu sitt færið hvor
áður en Dóra Stefánsdóttir náði að
svara fyrir Val, þegar aukaspyrna
hennar fór rétt yfir mark KR. Rétt
á eftir small boltinn í stöng Vals
eftir skot Hólmfríðar Magnúsdótt-
ur og á 34. mínútunni í slánni eftir
skot Olgu en Hrefna Jóhannesdótt-
ir fylgdi vel á eftir og kom KR í 1:0.
Það braut ísinn fyrir KR og níu
mínútum síðar átti Hrefna góða
sendingu inn fyrir vörn Vals á Olgu,
sem lék á markvörð Vals og skoraði
örugglega. Á síðustu mínútu gaf
síðan Olga fyrir mark Vals á Hólm-
fríði, sem kom KR í 3:0 og það var
þung byrði fyrir Valsstúlkur til að
bera til búningsherbergja í leikhléi.
Eftir hlé lagði Valur meiri
áherslu á sóknarleik og náði að
færa baráttusvæðið nær vítateig
KR en þar við sat því færin létu á
sér standa. Það skapaði hins vegar
hættu hinum megin á vellinum
enda náði Ásthildur boltanum á
eigin vallarhelmingi og sendi fram
völlinn á Olgu, sem skoraði af ör-
yggi og kom KR í fjögurra marka
forystu þegar hálftími var eftir.
Það braut ekki niður baráttuvilja
Valsstúlkna heldur spýttu þær í lóf-
ana og þremur mínútum síðar
skallaði Dóra í slá KR en mínútu
síðar gerði hún betur og skoraði
með skalla. Það raskaði ekki ró
Vesturbæjarstúlknanna og áfram
sótti Valur en það var ekki fyrr en
tveimur mínútum fyrir leikslok að
þær uppskáru gott færi og þá
minnkaði Ásgerður muninn í 4:2
með góðu skallamarki. Enn hélt
KR-liðið ró sinni en hrökk heldur
betur við þegar Dóra María minnk-
aði muninn í 4:3. Hins vegar var of
stutt til leiksloka til að þeim tækist
að jafna.
KR er vel að sigrinum komið,
spilaði af miklu öryggi og yfirvegað
lengi vel og uppskar samkvæmt
því. Ásdís Þorgilsdóttir og Guðrún
Jóna Kristjánsdóttir voru traustar
í vörninni og Ásthildur á miðjunni
en í sókninni voru stúlkurnar skæð-
ar með Hólmfríði, Olgu og Hrefnu
snöggar. Reyndar gáfu þær heldur
mikið eftir með góða forystu og þó
að það gerist oft er ekki hægt að
telja það sjálfsagt. Ljóst er að
Vanda Sigurgeirsdóttir hefur
byggt upp öflugt lið með gott sjálfs-
traust enda tóku ungar stúlkur við
með sóma þegar reyndar stúlkur
fóru utan til náms.
Valsstúlkur fá mikið hrós fyrir
baráttu allan leikinn en þeim tókst
samt heldur illa upp með síðasta
spölinn að marki KR. Fyrir hlé
voru þær yfirspilaðar á miðjunni en
eftir hlé þegar þær hófu að sækja af
krafti mæddi því meira á vörninni
og þar stóðu Rósa Júlía Steinþórs-
dóttir, Málfríður Erna Sigurðar-
dóttir og Íris Andrésdóttir sig með
mikilli prýði. Dóra var drjúg á
miðjunni og Dóra María og Ásgerð-
ur oft góðar frammi en það dugði
ekki til.
Morgunblaðið/Jim Smart
öð frá vinstri: Olga Andrea Færseth, Anna Berglind Jónsdóttir, Sólveig Þórarinsdóttir, Hrefna Jóhann-
unn Helga Jónsdóttir, Hólmfríður Magnúsdóttir og Guðrún Jóna Kristjánsdóttir. Efri röð frá vinstri: Rauða
r Helgadóttir, Ólafía Kristín Sigurgeirsdóttir, Ásdís Þorgilsdóttir, Anna Rún Sveinsdóttir, Guðný Ein-
r Fanney Pálsdóttir með Þórunni Ástu Árnadóttur dóttur sína og Halldóra Sigurðardóttir aðstoðarþjálfari.
21 sekúnda var
ekki nóg fyrir Val
og KR tók bikarinn
HELDUR rættist úr spennunni í bikarúrslitaleik kvenna í Laug-
ardalnum á laugardaginn. KR náði fjögurra marka forystu, sem ætti
að vera nóg til að brjóta á bak aftur hvert lið en Valsstúlkur neituðu
að gefast upp og minnkuðu muninn í 4:3 þegar 21 sekúnda var til
leiksloka. Lengra komust þær ekki og KR-stúlkur fögnuðu verð-
skulduðum bikarmeistaratitli en líkurnar á að þær hampi ekki Ís-
landsmeistaratitli eru eingöngu tæknilegar.
Stefán
Stefánsson
skrifar
KNATTSPYRNA
FÓLK
VALGERÐUR Sverrisdóttir iðn-
aðar- og viðskiptaráðherra var heið-
ursgestur á bikarúrslitaleik KR og
Vals á Laugardalsvelli á laugardag-
inn. Hún heilsaði upp á leikmenn og
dómara í fylgd Halldórs B. Jónsson-
ar, varaformanns KSÍ, og formanns
dómara- og mótanefndar.
FJÓRIR leikmenn voru kallaðir í
lyfjapróf eftir bikarúrslitaleikinn á
laugardaginn. Dregin voru út nöfn
Guðrúnar Jónu Kristjánsdóttur og
Hrefnu Jóhannesdóttur úr KR og
Valsaranna Írisar Andrésdóttur og
Laufeyjar Jóhannsdóttur.
ÁSGERÐUR H. Ingibergsdóttir
og Dóra María Lárusdóttir skoruðu
fyrir Val í öðrum úrslitaleiknum í
röð. Þær gerðu mörk Vals þegar lið-
ið vann Breiðablik 2:0 í úrslitaleikn-
um í fyrra.
ÞETTA var í sjötta sinn sem KR-
liðið lék til úrslita í bikarkeppninni
en aðeins í annað sinn sem það
stendur uppi sem sigurvegari. Valur
hefur leikið þrettán sinnum til úr-
slita og þar af unnið bikarinn í átta
skipti.