Morgunblaðið - 03.09.2002, Qupperneq 8
KNATTSPYRNA
8 B ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK
SVEN Göran Eriksson, landsliðs-
einvaldur Englendinga, valdi í gær
20 manna landsliðshóp fyrir vináttu-
leik gegn Portúgölum um næstu
helgi. Það sem mesta athygli vakti í
vali Svíans var að David Seaman,
markvörður Arsenal, var ekki valinn
í hópinn og þá voru Leeds-leikmenn-
irnir Lee Bowyer og Jonathan
Woodgate valdir í hópinn í fyrsta sinn
frá því réttarhöldunum yfir þeim lauk
fyrr á þessu ári.
DAVID James, West Ham, og Paul
Robinson, Leeds, skipa markvarðar-
stöðurnar og varnarmenn í hópnum
eru: Danny Mills, Leeds, Rio Ferdin-
and, Man.Utd., Ashley Cole, Arsenal,
Gareth Southgate, Middlesbr., Jon-
athan Woodgate, Leeds og Wayne
Bridges, Southampton.
MIÐJUMENN í liðinu eru: Owen
Hargreaves, B. München, David
Beckham, Man.Utd., Steven Gerr-
ard, Liverpool, Danny Murphy, Liv-
erpool, Trevor Sinclair, West Ham,
Nicky Butt, Man.Utd., Kieron Dyer,
Newcastle og Joe Cole, West Ham.
FRAMHERJARNIR eru aðeins
þrír en þeir eru Emile Heskey og
Michael Owen, Liverpool, og Alan
Smith, Leeds.
LEEDS fékk sænska varnarmann-
inn Teddy Lucic lánaðan frá AIK í
Svíþjóð á laugardaginn og verður
hann hjá enska félaginu út tímabilið.
Lucic er 29 ára miðvörður og lék alla
leiki Svía í heimsmeistarakeppninni í
sumar. Hann á 47 landsleiki að baki
og hefur leikið með Gautaborg og
Bologna.
LUCIC lék með AIK gegn ÍBV í
UEFA-bikarnum á Hásteinsvelli á
fimmtudaginn og var firnasterkur í
vörn liðsins. Það reyndist kveðjuleik-
ur hans með sænska félaginu að sinni.
TOTTENHAM keypti írska lands-
liðsmanninn Robbie Keane frá Leeds
fyrir rúmar 900 milljónir króna á
laugardaginn. Keane, sem er 22 ára
sóknarmaður, samdi við Tottenham
til fjögurra ára en hann var ósáttur
við að hefja tímabilið á varamanna-
bekknum hjá Leeds.
ÍVAR Ingimarsson skoraði
sitt fyrsta mark fyrir Wolves í
1. deild ensku knattspyrn-
unnar á laugardaginn. Hann
gerði þá fyrra mark liðsins
þegar það tapaði, 3:2, fyrir
Wimbledon á útivelli, með
skalla eftir hornspyrnu. Ívar
var tvívegis í viðbót nálægt
því að skora með firnaföstum
langskotum.
Dave Jones, knatt-
spyrnustjóri Wolves, var fox-
illur í garð sinna manna eftir
tapið og sagði að þeir hefðu
leikið illa, allir sem einn, nema
varamarkvörðurinn sem spil-
aði sinn fyrsta leik.
Stoke var yfirspilað af
Derby og tapaði 2:0, en hélt
þó í horfinu þar til 8 mínútur
voru eftir. Þá skoraði Mal-
colm Christie tvö mörk á
þremur mínútum fyrir Derby.
Brynjar Björn Gunnarsson
lék allan leikinn með Stoke og
Bjarni Guðjónsson síðustu 6
mínúturnar en Pétur Mar-
teinsson sat á varamannabekk
liðsins allan leikinn.
Hermann Hreiðarsson var í
vörn Ipswich sem gerði jafn-
tefli, 0:0, við Preston á útivelli.
Heiðar Helguson er enn frá
vegna meiðsla og lék ekki
með Watford sem tapaði fyrir
Norwich, 4:0.
Ívar skoraði
en Wolves
tapaði
Fyrsta
markið hjá
Helga fyrir
Kärnten
HELGI Kolviðsson skoraði
sitt fyrsta deildarmark fyr-
ir austurríska félagið
Kärnten á sunnudaginn
þegar það beið lægri hlut
fyrir Bregenz í úrvalsdeild-
inni, 2:1. Helgi jafnaði met-
in með föstu skoti úr víta-
teig Bregenz í upphafi
síðari hálfleiks en heimalið-
ið knúði fram sigur með
marki um miðjan síðari
hálfleik.
Helgi lék allan leikinn
með Kärnten sem er í sjötta
sæti deildarinnar með 9
stig eftir 8 umferðir.
Stefán Gíslason var ekki í
leikmannahópi Grazer AK
sem tapaði, 1:0, fyrir Ried
og er næstneðst í deildinni.
Jeremy Peace, stjórnarformaðurWBA, segir á heimasíðu félags-
ins að allt hafi verið lagt undir til að
krækja í Hermann, sem hefði orðið
dýrasti leikmaðurinn í sögu félagsins.
„Umboðsmaður Hermanns sagði
við mig á fimmtudagsmorguninn að
ekkert yrði af samningum, en síðdeg-
is hafði hann samband og sagði að
Hermann hefði áhuga á að koma.
Samningaviðræður stóðu yfir alla
nóttina og fram á föstudag, en um
kvöldið sagði umboðsmaðurinn að
Hermann kæmi ekki. Við reyndum
aftur á laugardagsmorgni, en allt
kom fyrir ekki. Þetta eru gífurleg
vonbrigði, við gerðum allt sem í okk-
ar valdi stóð. Hermann hefði ekki
tapað á þessum skiptum og hefði ver-
ið í úrvalsdeildinni á ný,“ segir Peace.
WBA hafði samþykkt að greiða
rúmar 400 milljónir króna fyrir Her-
mann en þetta var önnur tilraun fé-
lagsins til að fá Eyjamanninn til sín.
Hann hafnaði fyrra boði félagsins
fyrir þremur vikum.
Blaðið Express & Star segir að
Gary Megson, knattspyrnustjóri
WBA, hafi haft augastað á Hermanni
í marga mánuði og ekki gefist upp þó
hann fengi Íslendinginn ekki til sín í
fyrstu tilraun.
„Hjá mér er allt óbreytt. Það er
mikill heiður að Megson skuli hafa
svona mikið álit á mér en ég vil leika
áfram með Ipswich. Ég tel að við get-
um unnið okkur aftur upp í úrvals-
deildina og vil taka þátt í því. Stuðn-
ingsmenn félagsins hafa reynst mér
frábærlega, sem er mér mikils virði.
Fjölskyldan hefur komið sér þægi-
lega fyrir og við erum ánægð með líf-
ið í Suffolk,“ er haft eftir Hermanni í
Express & Star.
Hermann var hvíldur í Evrópuleik
Ipswich gegn Avenir Beggen frá
Lúxemborg á fimmtudagskvöldið,
vegna viðræðnanna við WBA, en
hann var á nýjan leik í byrjunarliði
Ipswich á sunnudaginn. Lið hans
gerði þá markalaust jafntefli við
Preston á útivelli.
WBA lagði allt undir
til að fá Hermann
FORRÁÐAMENN enska knattspyrnufélagsins West Bromwich Alb-
ion eru í sárum eftir að hafa misst af því að fá Hermann Hreiðarsson
til liðs við sig fyrir helgina. WBA gerði Hermanni nýtt tilboð sem
hann hafnaði á föstudagskvöldið og leikur því áfram með Ipswich í
1. deildinni, til áramóta í það minnsta, því félagaskiptamarkaðurinn
á Englandi er lokaður frá og með síðasta laugardegi.
Bobby Robson, knattspyrnustjóriNewcastle, skipti þremur leik-
mönnum inná er hálftími var eftir af
leiknum gegn Liverpool og heppnað-
ist herbragðið vel hjá hinum aldna
Robson. Laurent Robert, Craig Bell-
amy og Jermaine Jenas hresstu uppá
liðið og undir lokin fengu bæði lið
tækifæri til þess að bæta við mörkum.
í stöðunni 2:2.
Eiður Smári Guðjohnsen lék allan
leikinn þegar Chelsea tók á móti
Englandsmeisturum Arsenal. Eiður
átti fínan leik í fyrri hálfleik en minna
fór fyrir honum eftir hlé. Þegar Zola
skoraði mark heimamanna úr auka-
spyrnu af vinstri vængnum stökk
Eiður upp á markteignum til að
skalla og Seaman virtist búast við að
Eiður næði til knattarins, sem hann
gerði ekki. Þess í stað fór boltinn í
hornið hjá meisturunum. Mistök hjá
Seaman, sem verður 39 ára síðar í
mánuðinum, en vel gert hjá leik-
mönnum Chelsea.
Arsenal varð að halda uppi merk-
inu og þrátt fyrir að Vieira væri rek-
inn af velli snemma í síðari hálfleik
tókst þeim að jafna og fá eitt stig,
enda hefur liðið ekki tapað á „Brúnni“
síðan í september 1995. Það var hinn
21 árs gamli piltur frá Fílabeins-
ströndinni, Kolo Toure, sem skoraði.
Rauða spjaldið sem Vieira fékk er
45. spjaldið sem leikmenn Arsenal fá
síðan í september 1996 þegar Wen-
ger tók við liðinu. Vieira fær vænt-
anlega bara einn leik í bann þar sem
rétt rúmt ár er liðið síðan hann var
síðast rekinn af velli.
„Bæði spjöldin voru nokkuð harka-
leg fannst mér,“ sagði Vieira og von-
ast til að dómarinn endurskoði af-
stöðu sína þegar hann hefur horft á
leikinn. Honum varð ekki að ósk sinni
því á mánudagsmorgun tilkynni
enska knattspyrnusambandið að
dómnum yrði ekki breytt, Viera yrði
að bíta í það súra epli að sætta sig við
spjöldin.
Þrátt fyrir að vera manni færri
mestallan síðari hálfleikinn voru
meistararnir heldur hættulegri upp
við mark andstæðinganna. Liðið lék
án Thierry Henry sem er meiddur á
ökkla og missir líklega af vináttu-
landsleik við Kýpur á laugardaginn.
Þetta var í áttunda sinn sem Vieira
er rekinn af leikvelli, en annar leik-
maður var einnig rekinn af velli um
helgina og það í tíunda sinn; sá heitir
Roy Keane og leikur með Manchest-
er United.
Keane var rekinn af velli fyrir að
gefa félaga sínum í írska landsliðinu,
Jason McAteer, olnbogaskot í leik
United og Sunderland sem lauk með
jafntefli. Keane á jafnvel von á nokk-
uð löngu banni vegna umsagna í bók
hans um sjálfan sig og ekki hjálpar
olnbogaskot helgarinnar honum.
Sir Alex Ferguson, stjóri United,
varði þó fyrirliða sinn eftir leikinn en
á mánudagsmorgunin dró Ferguson í
land og sagði það hafa verið mistök
hjá sér að taka upp hanskann fyrir
Keane. Dómarinn hafi alls ekki átt
annars úrskosta í stöðunni en að vísa
Keane af leikvelli.
Guðni Bergsson stóð vaktina bæri-
lega í vörn Bolton sem lagði Aston
Villa með marki úr vítaspyrnu. Ann-
ars voru það finnsku markverðir lið-
anna sem voru í aðalhlutverki, sér-
staklega átti Jussi Jaaskelainen í
marki Bolton góðan dag.
Lárus Orri Sigurðsson var ekki í
leikmannahópi WBA þegar liðið vann
fulham 1:0, Lárus er meiddur og gat
því ekki leikið.
Nicolas Anelka gerði þrjú mörk
fyrir Manchester City þegar liðið
vann Everton 3:1. Anelka skoraði tvö
mörk á fyrsta stundarfjórðungnum
en gestirnir minnkuðu muninn á 29.
mínútu úr vítaspyrnu og heimamenn
misstu mann útaf og voru einum
færri frá þeirri stundu. Lærisveinar
Keegans létu það ekki á sig fá og
Anelka fullkomnaði þrennuna fimm
mínútum fyrir leikslok.
Tottenham menn gerðu öll þrjú
mörkin þegar þeir unnu Southamp-
ton 2:1. Ferdinand skoraði snemma
leiks og Taricco jafnaði með sjálfs-
marki í fyrri hálfleik og þar við sat
þar til Sheringham gerði sigurmarkið
úr vítaspyrnu á síðustu mínútunum.
Alan Shearer
samur við sig
Reuters
Michael Owen kom Liverpool í 2:0 gegn Newcastle og fagnar hér marki sínu ásamt félögum sín-
um, Steven Gerrard og El Hadji Diouf. Gleði þeirra varð hins vegar skammvinn.
ALAN Shearer sá til þess að Liv-
erpool komst ekki á topp ensku
úrvalsdeildarinnar í gær, en
Shearer skoraði annað mark
Newcastle á 88. mínútu á An-
field og jafnaði þar með leikinn,
2:2. Heimamenn höfðu tveggja
marka forskot er stundarfjórð-
ungur lifði af leiknum og voru til
alls líklegir eftir mörk frá Ham-
ann og Owen, sem skoraði úr
vítaspyrnu. Tottenham er í efsta
sæti deildarinnar og er enn án
taps eftir fjóra leiki, með tíu
stig. Í kvöld eigast við Man-
chester United og Middles-
brough á Old Trafford en mikið
fjör var á enskum knatt-
spyrnuvöllum um helgina þar
sem rauð spjöld og falleg mörk
litu dagsins ljós.