Morgunblaðið - 20.10.2002, Qupperneq 1
EINVÍGI Vladimírs Kramník,
heimsmeistara í skák, við Deep
Fritz, öflugustu skáktölvu í
heimi, lyktaði með jafntefli í úr-
slitaskákinni, sem tefld var í
Manama í Barein í gær.
Þessari áttundu og síðustu
viðureign í einvígi manns og vél-
ar lauk eftir 21 leik, er Kramník
bauð Fritz jafntefli, sem stjórn-
endur tölvunnar þáðu. Þótt
heimsmeistarinn, sem hafði
hvítt, hefði byrjað skákina
þokkalega virtist hann tauga-
veiklaður og ekki í sínu bezta
formi. Áhugasömum áhorfend-
um til vonbrigða lauk úrslita-
skákinni þannig á innan við
tveimur tímum.
Með þessum úrslitum, fjórum
vinningum gegn fjórum, vann
Kramník sér inn 800.000 Banda-
ríkjadali, andvirði 71 milljónar
króna. Með sigri í einvíginu
hefði hann fengið eina milljón
dala, tæplega 89 milljónir króna.
AP
HÉR sést hluti þeirra þúsunda
manna sem lögðust á götur borg-
arinnar Mouans Sartoux í Suð-
vestur-Frakklandi í gær í því skyni
að vekja athygli á því hve margt
fólk léti lífið í umferðarslysum í
landinu, en fjöldi þeirra sem lögð-
ust í götuna samsvaraði fjöldanum
sem ferst í umferðinni í Frakklandi
á ári hverju.
Athygli vakin á
umferðaröryggi
MORGUNBLAÐIÐ 20. OKTÓBER 2002
246. TBL. 90. ÁRG. SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
Morgunblaðið/Golli
Úlfurinn
bjó í
Kreml
Braggarnir í Hvalfirði eru hvítskúraðir og
engu líkara en íbúarnir hafi rétt brugðið
sér af bæ. Þarna hefur þó enginn hval-
skurðarmaður verið í 13 ár, en starfsmenn
Hvals hf. halda eignunum við og bíða. Nú
hefur opnast sá möguleiki að Íslendingar
hefji hvalveiðar í vísindaskyni, en veiðar í
atvinnuskyni gætu ekki hafist fyrr en
2006. Ef af veiðum verður er líklegt að
mikið kapphlaup hefjist í Hvalfirðinum
að koma öllum tólum og tækjum í gang á
ný. Ragnhildur Sverrisdóttir fór upp í
Hvalfjörð og talaði m.a. við Halldór Blön-
dal, sem á hvalskurðarárum sínum var
kallaður Úlfurinn. Anna Gunnhildur
Ólafsdóttir fór hins vegar um borð í hval-
bátana í Reykjavíkurhöfn / 14
ferðalögKrydd og kossar bílarPorsche 911 börnDraugagangur bíóFiennes-fjölskyldan
Sælkerar á sunnudegi
Snætt í matarborginni París
Sigurður
Demetz
Fransson fór
af Scala
í íslensku
rigninguna
Prentsmiðja
Morgunblaðsins
Sunnudagur
20. október 2002
B
10
Geri
mjög
miklar
kröfur til
sjálfrar
mín
Ætlum að lækka mat-
vöruverð á Íslandi 16
Mogg-
inn fer
í lax
22
GEORGE W. Bush Bandaríkjafor-
seti hefur lagt blessun sína yfir áætl-
un sem kveður á um að þjálfa skuli
íraska stjórnarandstæðinga í her-
mennsku. Gert er ráð fyrir því að
þjálfunin hefjist í næsta mánuði og að
um 5.000 manns taki þátt á fyrstu
stigum hennar.
Ónefndir bandarískir embættis-
menn sögðu að samþykkt hefði verið
92 milljóna dala fjárveiting í þessu
skyni en sú upphæð svarar til rúm-
lega átta þúsund milljóna króna.
Þjálfunin miðast að því að andstæð-
ingar Saddams Husseins geti aðstoð-
að bandarískt herlið fari svo að blásið
verði til herfarar gegn valdhöfum í
Írak. Munu mennirnir fá þjálfun í al-
mennri hermennsku en einkum er þó
horft til þess að þeir veiti Bandaríkja-
mönnum ráðgjöf þegar til Íraks er
komið, túlki og haldi uppi njósnum.
Ágreiningi eytt um hlutverk
íraskra stjórnarandstæðinga
Í áætlunum þessum er gert ráð fyr-
ir að alls hljóti um 10.000 íraskir
stjórnarandstæðingar slíka þjálfun.
Hluti liðsaflans verður nýttur til að
merkja skotmörk í Írak sem síðan
verður ráðist gegn með leysistýrðum
sprengjum. Þá munu menn þessir
gegna hlutverki herlögreglu í fanga-
búðum sem ráðgert er að setja á stofn
í Írak, verði af herförinni.
Ákvörðun Bandaríkjaforseta er
talin mikilvægur liður í þeim undir-
búningi sem nú fer fram, telji George
Bush nauðsynlegt að koma Saddam
Hussein frá með hervaldi. Þá þykir
hún til marks um að ágreiningi innan
Bandaríkjastjórnar um hlut íraskra
stjórnarandstæðinga í slíkri herför
hafi verið eytt.
Bandaríkjamenn treystu á aðstoð
andstæðinga talibanastjórnarinnar í
herförinni í Afganistan. Efasemdir
hafa verið uppi um að slíkt muni reyn-
ast gerlegt verði látið til skarar skríða
gegn Saddam Hussein enda er íraska
stjórnarandstaðan sundruð og leið-
togar hennar allir landflótta. Nú þyk-
ir ljóst að áætlanir Bandaríkjamanna
geri ráð fyrir liðveislu þeirra afla.
Íraksstefna Bandaríkjamanna
Stjórnarand-
stæðingar fá
herþjálfun
Washington. The Washington Post.
ÞEGAR Jim Bristoe tjáði eig-
inkonu sinni að hann hefði sett
sér það markmið í lífinu að smíða
byssu sem skotið gæti graskeri
minnst 1.600 metra taldi hún full-
sýnt að nú væri hann endanlega
genginn af göflunum.
En honum tókst að ljúka þessu
ætlunarverki sínu og nú er hann
stoltur eigandi níu metra langrar
„fallbyssu“. Vopnið er knúið lofti
og líkist einna helst færanlegri
loftvarnabyssu.
Jim Bristoe er 42 ára og verk-
fræðingur að mennt. Og byssan er
að sönnu öflug. Hún vegur um tvö
tonn og með henni má skjóta
graskeri, sem vegur 4,5 kíló, af
ógnarkrafti meira en 1.600 metra.
Graskerið þeytist út um hlaupið á
rúmlega 1.400 kílómetra hraða á
klukkustund og hefur Jim meðal
annars afrekað að eyðileggja
fólksbíl með vopninu.
Almenningi gafst í gær, laug-
ardag, tækifæri til að kynna sér
þetta nýja öfluga vopn en þá tók
Jim þátt í heldur óvenjulegri
keppni sem efnt var til í bænum
Noblesville í Indiana-ríki í Banda-
ríkjunum. Þar var keppt í „gras-
kers-vörpun“ og ýmsum hugvits-
samlegum tækjum beitt í því
skyni.
AP
Graskers-byssa
HVORT Evrópusambandið getur
staðið við að taka tíu ný ríki inn í sín-
ar raðir á árinu 2004, eins og að er
stefnt, var í gær í höndum írskra
kjósenda, sem gengu að kjörborðinu
til að segja öðru sinni hug sinn til
svokallaðs Nizza-sáttmála, nýjustu
uppfærslu stofnsáttmála ESB sem
þegar hefur verið fullgiltur í öllum
hinum aðildarríkjunum fjórtán.
Var þess vænzt í gær að kjörsókn
yrði að þessu sinni meiri en í fyrri at-
kvæðagreiðslunni, sem fram fór í
júní í fyrra. Þá mætti aðeins þriðj-
ungur kjósenda á kjörstað, en meiri-
hluti þeirra lýsti þá andstöðu sinni
við að Írland fullgilti sáttmálann.
Var reiknað með að eftir því sem
kjörsókn yrði meiri, þeim mun meiri
líkur yrðu á því að sáttmálinn yrði
samþykktur. Síðustu skoðanakann-
anir fyrir helgina sýndu að 42% Íra
væru hlynnt staðfestingunni, 29% á
móti og 19% óákveðin.
Boðið upp á viðbótarskilyrði
Auk þess að greiða atkvæði um
samþykki eða synjun við sáttmálan-
um öllum var kjósendum að þessu
sinni gefinn kostur á því að segja hug
sinn til viðbótarákvæða, sem eiga að
tryggja að þátttaka Írlands í þeim
áföngum í átt að frekari pólitískum
samruna sem í sáttmálanum felst
muni ekki skerða hefðbundið hlut-
leysi landsins.
„Úrslitin eru komin undir kjör-
sókninni,“ sagði Ben Tonra, Evrópu-
stjórnmálafræðingur við University
College í Dyflinni. „Atriði eins og
það hvort það rignir eða er sólskin
gæti gert útslagið.“ Spáð var björtu
en köldu veðri á Írlandi í gær.
Írar greiða atkvæði um
Nizza-sáttmála ESB
Líkur
taldar á
samþykki
Dyflinni. Associated Press.
Jafntefli
í Barein
Manama í Barein. AP.
AP
Kramník þótti ekki sýna fullan
baráttuvilja í lokaviðureign-
inni við Deep Fritz í gær.