Morgunblaðið - 20.10.2002, Síða 4
FRÉTTIR
4 SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FIMM starfsmenn Hafrann-
sóknastofnunar hafa að und-
anförnu verið um borð í jafn-
mörgum japönskum túnfisk-
veiðiskipum sem hafa verið á
tilraunaveiðum á túnfiski innan
landhelginnar suður af landinu í
samvinnu við stofnunina. Tvö
skipanna eru komin í land og á
öðru þeirra var Agnes Eydal, líf-
fræðingur og rannsóknamaður
hjá Hafrannsóknastofnun. Agnes
sagði við Morgunblaðið að ferðin,
sem tók tæpar fjórar vikur, hefði
verið einkar fróðleg en jafnframt
erfið.
Starfsmenn Hafró hafa verið
um borð í túnfiskskipunum á
hverju hausti frá því að sam-
starfsverkefnið hófst árið 1996.
Tilgangurinn er að fylgjast með
veiðunum, afla upplýsinga um
veiðanleika túnfisksins og taka
margs konar sýni úr honum, m.a.
til að kanna úr hvaða hrygning-
arstofni hann kemur. Agnes sagð-
ist ekki áður hafa farið í svona
rannsóknaferð en í ár hefði veið-
in verið mun betri en undanfarin
tvö ár. Endanlegar niðurstöður
væru þó ekki komnar þar sem
þrjú skip ættu eftir að koma til
hafnar í Reykjavík.
Tilraunir hafa verið gerðar í
túnfiskveiðum á einu skipi frá
Vestmannaeyjum en Agnes segir
þær ekki hafa gengið sem skyldi,
enda sé ákveðin kúnst að veiða
túnfisk. Hún hafi sannfærst um
það í ferðinni með því að verða
vitni að veiðunum.
„Veiðiskapurinn er mjög sér-
stakur. Veitt er á um 130 kíló-
metra langa línu og á mínu skipi
voru önglar um þrjú þúsund tals-
ins á hverri línu. Einkum er beitt
með smokkfiski og að meðaltali
var verið að veiða fjóra eða fimm
fiska á hverri lögn,“ sagði Agnes
en stærstu fiskarnir voru allt að
tveir og hálfur metri á lengd og
þyngdin eftir því.
Hún sagði mikið ganga á þegar
línan væri dregin inn, skutlum
væri beitt á fiskana þegar þeir
væru komnir að skipssíðu og síð-
an tæki við sérstök aðgerð á
dekki. Kviðurinn væri skorinn
upp endilangur en innyflin dregin
út um tálknaopin. Síðan tæki
langan tíma að ganga frá veið-
arfærunum fyrir næstu lögn.
Um 25 manns eru í áhöfn hvers
skips. Yfirmenn eru oftast jap-
anskir, að sögn Agnesar, en há-
setar frá Indónesíu. Hún sagði þá
vera mjög flinka verkmenn og
færa í veiðiskapnum. Aflinn er
frystur um borð og öðru hverju
koma birgðaskip með kost og til
að flytja fiskinn á markaði í Jap-
an. Að sögn Agnesar eru þau
skip sem starfsmenn Hafró fóru á
með bækistöðvar á Kanaríeyjum,
útgerðin japönsk en skipin kæmu
sjaldnast til síns heimalands.
Helstu túnfiskmiðin væru á
N-Atlantshafi.
Stykkjum slengt
beint á heita hellu
Aðspurð hvort hún hefði ekki
fengið að kynnast mismunandi
matseld á túnfiski sagði Agnes
svo vera.
Athyglisverðastur hefði henni
þótt morgunverðurinn. Oftast
hefði það verið hrár túnfiskur,
snæddur með majónesi og fersk-
um sítrónusafa. Hún sagði áhöfn-
ina gjarnan hafa boðið sér steikt-
an túnfisk á meðan staðið var í
aðgerð á dekki. Fiskstykkjum
hefði þá verið slengt á heita hellu
sem hásetarnir höfðu sér við hlið,
aðallega þó til að kveikja í sígar-
ettum sem þeir reyktu mikið af
við dagleg störf.
„Þetta var vissulega ákveðin
upplifun. Ég var að sjálfsögðu
eina konan um borð og það var í
raun visst vandamál. Aðbúnaður-
inn um borð var þannig. Þeir eru
vanir öðrum aðstæðum en við og
gera aðrar kröfur. Maturinn,
hreinlætið og aðstæður voru
öðruvísi en maður á að venjast.
Tungumálaerfiðleikar voru einn-
ig töluverðir en áhöfnin talaði
nánast enga ensku. Mér fannst
það athyglisvert í ljósi þess að nú
sigla skipin um alþjóðleg haf-
svæði,“ sagði Agnes.
Agnes Eydal, líffræðingur hjá Hafró, var í tæpar fjórar vikur um borð í japönsku túnfiskveiðiskipi
Hrár túnfiskur
með majónesi
flesta morgna
Morgunblaðið/Kristinn
„Þetta var vissulega ákveðin upplifun. Ég var að sjálfsögðu eina konan um
borð og það var í raun visst vandamál,“ segir Agnes Eydal m.a. um ferð
sína með japönsku túnfiskveiðiskipi langt suður af landinu í haust.
DROPLAUG Ólafsdóttir, sér-
fræðingur á nytjastofnasviði
Hafrannsóknastofnunar, hefur
haft umsjón með samstarfinu
við japönsku útgerðirnar und-
anfarin ár. Hún segir túnfisk-
veiðarnar jafnt og þétt hafa
minnkað, þannig hafi veiðin í
fyrra verið sú minnsta frá því
að samstarfið hófst fyrir sex ár-
um. Frumniðurstöður úr veiði-
ferðunum þetta haustið bendi
þó til betri veiði en allra síðustu
ár.
Veiðin innan landhelginnar í
fyrra var að meðaltali 1,5 fiskar
á hverri lögn og meðalaflinn á
dag um 162 kíló. Til saman-
burðar var veiðin mest haustið
1997 þegar 9,5 fiskar voru að
meðaltali á hverri lögn og aflinn
vó að jafnaði rúmt tonn á dag.
Túnfiskurinn, sem jafnan
veiðist hér innan landhelginn-
ar, hrygnir í Miðjarðarhafinu á
vorin og gengur út í Atlantshaf
á sumrin og fram á haust.
Dæmi eru um að nokkrir fiskar
þvælist alla leið til Norður-
Noregs.
Meðalafli á
dag frá 162 kg
að einu tonni
GAMLA varðskipið Þór, sem flestir muna eftir í hefð-
bundnum gráum lit, hefur heldur betur tekið stakka-
skiptum. Búið er að mála skipið í gylltum lit og er það
á leið til Bretlands þar sem það mun m.a. verða notað
undir skemmtistað.
Eigendaskipti urðu á því fyrir nokkru en undanfarin
ár hefur verið starfræktur veitingastaður í skipinu auk
þess sem sett var upp sögusýning um Landhelgisgæsl-
una og þorskastríðin um borð í því fyrir nokkrum ár-
um. Varðskipið Þór þjónaði Landhelgisgæslunni til
margra ára og var í sviðsljósinu í tengslum við útfærslu
landhelginnar á sínum tíma. Þá var skipið einnig um
tíma notað af Björgunarskóla sjómanna og hét þá Sæ-
björg.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gylltur Þór á leið til útlanda
VILHJÁLMUR Þ. Vilhjálmsson,
borgarfulltrúi og varaþingmaður
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík,
hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér
í prófkjöri flokksins vegna alþingis-
kosninganna í vor.
Vilhjálmur staðfesti þetta í sam-
tali við Morgunblaðið í gær. Kvaðst
hann hafa tekið þessa ákvörðun eftir
vandlega íhugun.
Prófkjör D-lista
í Reykjavík
Gefur ekki
kost á sér
FRAMSÓKNARMENN í Norðaust-
urkjördæmi halda kjördæmisþing á
Egilsstöðum um þessa helgi.
Á þinginu tilkynntu tveir ráðherrar
flokksins, þau Jón Kristjánsson og
Valgerður Sverrisdóttir, að þau hygð-
ust bjóða sig fram í þingkosningunum
næsta vor. Þá tilkynnti Þórarinn E.
Sveinsson á Akureyri að hann byði
sig fram í 3. sæti lista flokksins. Loks
tilkynnti Birkir Jónsson frá Siglufirði,
aðstoðarmaður félagsmálaráðherra,
að hann byði sig fram í 4. sæti.
Á þinginu verður ákveðið hvort
stillt verði upp á lista flokksins eða
kosið milli frambjóðenda á kjördæm-
isþingi, sem haldið verður á Akureyri
í janúar nk.
Framsókn í Norðausturkjördæmi
Fjórir tilkynna
framboð sitt
HÁLKA er nú víða á fjallvegum
fyrir norðan og austan og að sögn
lögreglu ástæða til að aka þar var-
lega um. Í Morgunblaðinu í gær var
haft eftir lögreglunni á Blönduósi
að ekki hefði náðst í vegagerða-
menn til að uppfæra heimasíðu
Vegagerðarinnar en þar voru vegir
í Húnaþingi sagðir greiðfærir í
gær.
Að sögn Þorvalds Böðvarssonar,
rekstrarstjóra Vegagagerðarinnar á
Hvammstanga, hefjast kvöld- og
helgarvaktir hjá Vegagerðinni á
Norðurlandi ekki fyrr en 1. desem-
ber nk. Starfsmenn Vegagerðarinn-
ar eru hins vegar á bakvakt og
hægt að ná í þá í farsíma utan hefð-
bundins skrifstofutíma. Að sögn
Þorvalds er vefur Vegagerðarinnar
uppfærður á virkum dögum frá við-
komandi starfsstöð en um helgar
frá umdæmisskrifstofunni á Ísafirði
og í Reykjavík. Þorvaldur segir að
sú hætta sé ávallt fyrir hendi að
ekki sé hægt að ná í vaktmenn und-
ireins þegar ekki sé um hefðbundn-
ar vaktir að ræða.
Vegagerðin á Norðurlandi
Kvöld- og helgarvakt-
ir frá 1. desember
BILUN varð í öryggiskerfi verslun-
armiðstöðvarinnar Smáralindar
laust fyrir klukkan 13 í gær. Að sögn
konu sem stödd var í Hagkaupum
vissu viðskiptavinir ekki hvaðan á sig
stóð veðrið þegar rödd byrjaði að
endurtaka í sífellu: „Það er engin
hætta á ferðum, það er engin hætta
lengur á ferðum.“
Skilaboðin voru spiluð af bandi og
voru endurtekin á ensku.
Að sögn öryggisvarðar í Smára-
lind voru hér á ferðinni „smá tækni-
legir örðugleikar“ en hann vildi ekki
greina frá því hvað olli biluninni.
Smáralind
Bilun í ör-
yggiskerfi
♦ ♦ ♦