Morgunblaðið - 20.10.2002, Side 8

Morgunblaðið - 20.10.2002, Side 8
FRÉTTIR 8 SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Viðtölin eru í Austurstræti 8–10. Tímapantanir í síma 563 0450. Dagana 21.–25. október, frá kl. 10:30 til 12:00. Fastir vikulegir viðtalstímar eftir það á föstudögum frá kl. 10:30 til 12:00 eða eftir samkomulagi. Ásta Möller 19. þingmaður Reykvíkinga. Hún á sæti í heilbrigðis- og trygginganefnd, allsherjarnefnd, umhverfisnefnd og fjárlaganefnd. Ásta er til viðtals í kjördæmaviku þingmanna: Kjördæmavika þingmanna í Reykjavík astam@althingi.is Vegurinn 20 ára Uppruninn í Bandaríkjunum UM ÞESSAR mund-ir er fríkirkjanVegurinn tuttugu ára á Íslandi og telur for- stöðumaður hennar Högni Valsson hana vera að vaxa og dafna í góðri grennd við aðrar fríkirkjur og þjóð- kirkjuna. Hann svaraði nokkrum spurningum Morgunblaðsins á þessum tímamótum Vegarins. Segðu okkur fyrst eitt- hvað um tilurð Vegarins? „Í 12. kafla Korintu- bréfsins er talað um gáfur andans, sem gefnar eru af heilögum anda. Þetta varð fyrst áberandi á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar og tengdist nokkuð hippatímabilinu. Hefur stundum verið kallað Jes- úsvakningin, en margar stórar kirkjur í Bandaríkjunum spruttu upp úr þessum áherslum og breiddust á fáum árum út um all- an heim. Hingað til lands barst hreyfing- in uppúr 1970 og má segja að for- sagan hafi verið mikið hvíta- sunnufyllerí íslenskra ungmenna eitt árið sem leiddi af sér að stjórnvöld gengust fyrir miklu tónleikahaldi í Laugardalshöll á næstu hvítasunnu. Eitt númerið á þeim tónleikum var hópur sænskra tónlistarmanna sem var á þessum nótum. Svíarnir hittu síðan fólk og spjölluðu við það, lýstu skoðunum sínum og áherslum og uppúr því tók sig til hópur fólks frá KFUM og K og stofnaði hreyfinguna Ungt fólk með hlutverk, sem hafði að fyr- irmynd sambærilega hópa erlend- is, t.d. Youth with a mission í Bandaríkjunum. Ungt fólk með hlutverk starfaði fyrst innan vé- banda Þjóðkirkjunnar en okkur þótti við ekki fá nægan hljóm- grunn þar til að tjá okkur og boða fagnaðarerindið á þann hátt sem við töldum best henta. Því var það í október 1982, að hópur af ungu fólki úr þessum röðum stofnaði kirkju sem í fyrstu hét Vegurinn – kristið samfélag, en varð síðar Fríkirkjan Vegurinn. Síðan hefur Vegurinn starfað óslitið til þessa dags, en löggildinguna sem lög- legt trúfélag fengum við árið 1985 og gekk greiðlega að öllum skil- yrðum uppfylltum.“ Hvað er það sem skilur á milli ykkar og annarra kirkna og krist- inna trúarhópa? „Það er hvernig við komum fagnaðarerindinu á framfæri. Við ræktum vissulega venjulegt kirkjustarf, en Jesú vill lækna og heilmargir hafa hlotið lausnir í gegnum okkar starf. Við reynum á ýmsan hátt að mæta þörfum ein- staklinga, en afar margir eiga erf- itt og ganga með ýmis sár á sálinni sem eiga jafnvel rætur að rekja til barna- og unglingsáranna. Við er- um með sálgæslu, lækningadaga þar sem fyrirbænir eru m.a. stundaðar og fólk úr okkar röðum lýsir reynslu sinni af heilögum anda. Þá má nefna að við erum með Alfanám- skeið og námskeið sem hjálpa fólki að sættast við fortíðina.“ Þú nefndir venjulegt kirkjustarf, á það sama við t.d. um fermingar? „Við giftum og jörðum, en ferm- ing er staðfesting á skírn og þar sem við erum með niðurdýfingar í stað þeirra skírna sem menn þekkja, þá fermum við ekki á sama hátt og menn þekkja. Við er- um hins vegar með unglingabless- un á fjórtánda árinu. Þar fer fram fræðsla sem er mjög á svipuðum nótum og fermingarfræðslan.“ Hvað eru Vegsfélagar margir? „Það eru skráðir 730 félagar í Veginum og eru þeir á aldrinum 0 til 83 ára, en stærsti hópurinn er líklega 30 til 40 ára gamalt fjöl- skyldufólk. Starfið er gróskumik- ið og það eru alltaf 200 manns á vikulegum samkomum hjá okkur. Þegar vel er mætt þá er vel pakk- að hjá okkur á Smiðjuveginum.“ Hvernig er svona kirkja rekin? „Þar sem við erum skráð trú- félag þá fáum við hluta af sókn- argjöldum hvers meðlims og síðan erum við með frjáls framlög. Þá erum við með fjáraflanir, matar- og skemmtikvöld og þess háttar. Okkur tekst að ná endum saman. Við erum tvö í fullu starfi, auk mín er rekstrarstjóri og með okkur starfar öldungaráð sem tekur með okkur allar andlegar og veraldleg- ar ákvarðanir.“ Hvað ætlið þið að gera í tilefni afmælisins? „Október er okkar opinberi af- mælismánuður. Um síðustu helgi vorum við með samverustund þar sem barnastarfið var í hávegum haft og þessa helgi verðum við með afmælishátíð, matar- og skemmtikvöld og á sunnudaginn klukkan 4.30 verður afmælissam- koma með tónlist og predikunum. Auk þessa höfum við í tilefni af af- mælinu gefið út tvöfaldan geisla- disk með tónlist Vegarins frá ár- unum 1991–95. Það er tónlist sem er ýmist eftir okkar fólk og/eða notuð af okkur. Þessi tónlist hefur verið eftirsótt en nánast ófáanleg, en nú er bætt úr því.“ Hvað er svo framundan hjá Veginum? „Við höldum áfram okkar boð- unarstarfi. Það var ekki bara að við segðum já við Honum og gerð- um hann þar með að herra okkar og leiðtoga, heldur sagði hann líka já við okkur. Hann vildi verða leið- togi okkar og það er það sem gef- ur lífinu tilgang, enda er svörin öll að finna í Biblíunni.“ Högni Valsson  Högni Valsson er fæddur 20. september 1951. Eftir gagn- fræðapróf menntaði hann sig í símvirkjun og síðan raf- eindavirkjun. Vann síðan sinn starfsaldur hjá Símanum þar til fyrir tveimur og hálfu ári að hann réðst sem forstöðumaður tilfríkirkjunnar Vegarins, en hafði áður gegnt þar aðstoð- arforstöðumannsstarfi. Hafði numið í nokkra mánuði við The Impact Bible School í Bandaríkj- unum árið 1996. Eiginkona Högna er Lilja Ástvaldsdóttir og börnin þeirra þrjú eru Guðrún Helga, Viðar Daði og Högni Val- ur. Okkur tekst að ná endum saman FYRIR skemmstu heimsótti fjórði flokkur drengja í knattspyrnufélag- inu Þrótti félaga sína í knattspyrnu- liðinu UMFB Geislum í A-Húna- vatnssýslu og höfðu þeir meðferðis 20 knattspyrnubúninga sem þeir færðu liðinu að gjöf. Forsaga málsins er sú að sl. sum- ar tóku Geislar þátt í í knatt- spyrnumótinu VISA REY CUP og hlutu að launum verðlaun fyrir að vera háttvísasta og skemmtilegasta liðið. Á mótinu tóku þátt hátt á fimmtahundrað manns, m.a. ung- lingalið ensku liðanna Bolton og Stoke City. Ekki er ástæða til að rekja gengi liðsins hér en þess skal getið að það mætti búningalaust og óæft til leiks. Þróttarar og mótshaldarar ákváðu fyrir skemmstu að launa lið- inu úr A-Húnavatnssýslu leikgleð- ina sem það sýndi á mótinu í sumar og heimsækja liðsmenn og færa þeim búninga að gjöf. Að sögn Helga Gunnlaugssonar, foreldris eins af Reykjavík- urdrengjunum, var hópnum tekið með kostum og kynjum af heima- mönnum og ekki voru viðtökurnar síðri þegar Reykjavíkurliðið dró upp úr pússi sínu knattspyrnubún- ingana, 20 treyjur, buxur og sokka- pör. Þróttarar og Geislar gistu svo í Húnavallaskóla yfir helgina og gerðu margt sér til gamans og fóru m.a. í stóðréttir, á hestbak og skoð- uðu Blönduvirkjun. Að sögn Helga skemmtu bæði borgarbörn og bændasynir sér kon- unglega. Hann segir að Geislar hafi haft á orði að nú komi þeir reglu- lega saman til að æfa fótbolta. Það verður því aldrei að vita nema Geislar láti að sér kveða í knatt- spyrnunni í framtíðinni, nú þegar þeir hafa eignast búning. Ljósmynd/Ingvi Sveinsson Knattspyrnuliðið UMFB Geislar í búningunum sem Þróttarar komu með færandi hendi. Þróttarar heimsóttu knattspyrnuliðið Geisla í A-Húnavatnssýslu Færðu liðinu búninga Á ÞINGI Lögfræðingafélags Ís- lands sem haldið var í Svartsengi á föstudag undir yfirskriftinni: För yf- ir landamæri – mannréttindi eða for- réttindi, flutti Jóhann R. Benedikts- son, sýslumaður á Keflavíkurflug- velli, m.a. erindi þar sem hann fjallaði um að með nýjum lögum um útlendinga væri verið að þrengja að heimildum lögreglu til að vísa fólki frá á landamærunum. Að sögn Jóhanns er með lögunum hert á sönnunarmati í tengslum við að vísa fólki frá landi ef grunur leik- ur á að það hyggist starfa ólöglega hér á landi. Jóhann gagnrýndi að- allega í erindi sínu að í ríkjum á borð við Svíþjóð og Danmörku hefði lög- regla leyfi til að halda fólki í 72 klukkustundir á landamærum með- an mál viðkomandi einstaklinga væru í rannsókn. Í nýju lögunum sé ekki að finna heimild lögreglu til að gera slíkar ráðstafanir hér á landi. Hann segir það gagnrýnivert að um leið og verið sé að leggja meiri vinnu á lögreglu við að herða sönnunarmat sé henni ekki veittur meiri tími til að afla sönnunargagna. Í lögunum er að finna ákvæði um að fólk sem stöðvað sé á landamær- um eigi skilyrðislausan rétt á að fá túlk og lögmann. Jóhann nefnir sem dæmi að ef 250 þýskum fótboltabullum sé vísað úr landi eigi þær allar rétt á að fá túlk og að ríkið greiði þann kostnað en kostnað við lögmann verði viðkom- andi að greiða sjálfur. Jóhann segir að mannréttindavernd, sem sé mjög af hinu góða, sé í þessu tilfelli teygð full langt og bæði sé verið að gera vinnu lögreglu flóknari og kostnaður ríkisins geti aukist óþarflega við að- gerðir af þessu tagi. Reynt að koma til móts við báða aðila Stefán Eiríksson, skrifstofustjóri dómsmála- og löggæsluskrifstofu dómsmálaráðuneytisins, segir að með nýju lögunum sé verið að skýra til aukinna muna hverjar heimildir lögreglu séu á landamærum. Á sama tíma sé verið að takmarka að ákveðnu marki þann rétt sem lög- regla hefur haft til að taka ákvarð- anir á landamærunum, frá því sem nú er. Hann segir að mannréttinda- samtök hafi gagnrýnt að ekki væri gengið nægjanlega langt með nýju lögunum en lögregluyfirvöld gagn- rýndu að verið væri að þrengja um of að heimildum þeirra. Hann segir eðlilegt að vakin sé athygli á því hvað breytingarnar feli í sér og vísar þar í gagnrýni Jóhanns. Stefán segir að niðurstaða Alþing- is í málinu sé engu að síður sú að fara hinn gullna meðalveg þar sem reynt sé að koma til móts við báða aðila og umfram allt tryggja hraða og örugga málsmeðferð þeirra sem eiga í hlut. Þrengt að heimildum til að vísa fólki úr landi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.