Morgunblaðið - 20.10.2002, Side 25

Morgunblaðið - 20.10.2002, Side 25
fólk hvar sem hann kom. Í ljósi alls þessa er ekki að ófyrirsynju sem hann hefur verið kallaður ævintýraprins ís- lenskrar myndlistar.“ Elfar Logi bætir við að ytri um- gjörð lífshlaupsins hafi ekki síður ver- ið spennandi. „Muggur var af efna- fólki, sonur Péturs Thorsteinsson sem kallaður var Bíldudalskóngur- inn, og hafði það því fram yfir marga aðra unga listamenn að þurfa ekki að hafa áhyggjur af fjármálum. Hann fæddist á Bíldudal árið 1891 og bjó þar fyrstu árin, fluttist svo til Dan- merkur með fjölskyldu sinni þar sem móðir hans vildi að börnin fengju bestu menntun sem völ var á. Hún sendi jafnvel dæturnar til mennta sem þótti merkilegt á sínum tíma. Konur koma í raun mikið við sögu hans sem áhrifavaldar, án þess reyndar að Muggur hafi nokkurn tíma orðið alvarlega ástfanginn. Í þessu samhengi ber helst að nefna móður hans, Ásthildi, en einnig gamla konu frá Bíldudal sem við látum fylgja honum í gegnum allt leikverkið eins og svip. Þessi kona var á launum hjá Pétri Thorsteinsson við að segja börnunum sögur og þangað má án efa rekja áhuga Muggs á þjóðsögunum. Svo var hann á sífelldu flakki, fór til New York á stríðstímum og heillaðist af lífinu þar, var í Noregi og á Ítalíu og á hverjum stað drakk hann í sig áhrif sem skiluðu sér inn í list hans. Hann var að mínu viti dæmigerður bóhem, lifði hratt og var dáður og elskaður.“ Erindi við samtímann Þegar hér er komið sögu eru leikari og leikstjóri bæði orðin upptendruð og kæmi síst á óvart þótt Elfar Logi stykki á fætur og dytti inn í eitthvert af samtölum Muggs. En hann heldur ró sinni. Í staðinn er það Vigdís sem rýkur á fætur og kemur að vörmu spori til baka með bókina sem var að sögn helsti stökkpallur handritsins. „Þessi bók hans Björns Th. Björns- sonar um ævi og feril Muggs hefur verið okkar stóri brunnur við skrifin,“ segir hún og blaðar í gripnum. „En þótt bókin hafi verið mikill vegvísir, er verkið þó alls ekki leikgerð upp úr henni. Markmiðið var alltaf að hefja okkur til flugs frá heimildunum og búa til okkar eigin Mugg – þetta leik- rit sýnir hvað Muggur stendur fyrir í okkar augum.“ Elfar Logi kinkar kolli og efast ekki um að Bílddælingar eigi eftir að taka vel á móti jafn kunnuglegum en um leið nýstárlegum gesti. „Við höf- um fundið fyrir miklum áhuga á verk- efninu hvar sem við höfum farið og margir hafa nú þegar lagt hönd á plóg til að gera það að veruleika. Það er mjög mikilvægt fyrir lítið draumóra- leikhús og við þökkum þeim fjöl- mörgu sem hafa rétt okkur hjálpar- hönd.“ Muggur verður frumsýndur í fé- lagsheimilinu Baldurshaga á Bíldudal fimmtudaginn 24. október. Ennfrem- ur verður sýnt 27. og 30. október í tónleikasalnum Hömrum í Tónlistar- skólanum á Ísafirði. Í nóvember er svo áætlað að sýningin komi suður til Reykjavíkur. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 2002 25 M AÐUR er kannski svolítið kreisí …“ byrjar Elfar Logi Hannesson þegar hann er fenginn til þess að rekja í fáum orðum draumsýn sína um atvinnuleikhús á Vestfjörðum „… en málið er þannig vaxið að ég stofnaði Kóm- edíuleikhúsið ásamt félaga mínum fyrir nokkrum árum. Það heitir þessu nafni án þess að hafa færst mikið í fang ennþá – og án þess að eiga annað þak yfir höf- uðið en þakið á íbúð- arhúsinu mínu. Félagi minn flutti síðar aftur til Danmerkur en Kómedíuleikhúsið varð eftir hjá mér og er nú loks að setja upp leikverkið Mugg. Það er einleikur, fjár- magnaður með styrkj- um frá yfirvöldum og fyrirtækjum, en sýn- ingin sjálf er lítil og hreyfanleg og í raun ágætis sýnidæmi í málinu. Draumur minn er sem sagt að koma á fót atvinnuleikhúsi á Ísa- firði, sem mér þykir fullkomlega raunhæft markmið. Ísafjörður hef- ur áður sýnt aðdáunarvert þor í menningarmálum, til dæmis með því að hlusta á og virkja þá atorkusömu og listhneigðu ung- linga sem þar eru, og nú finnst mér tímabært að skapaður verði grundvöllur fyrir litlu atvinnuleik- húsi. Ég er ekki að tala um neitt risavaxið, þetta yrði ég sjálfur og þeir sem leikstýra, ásamt þeim sem tengjast hverri uppsetningu en það getur verið á annan tug fólks í hvert sinn. Ég sé fyrir mér að þetta yrði eins konar leikhús á hjólum. Það hefði aðsetur á Ísafirði, sem er jú mikill menningarbær og státar ennfremur af sívaxandi aðsókn ferðamanna. Starfsemi svona leik- húss færi vel við það sem kallað er menningartengd ferðaþjónusta og við höfum þegar reynt með góðum árangri. Ég hef að und- anförnu stýrt unglingaleikhúsinu Morranum, sem er rekið sem deild í unglingavinnunni á sumrin, og meðal annars höfum við lífgað upp á Sjóminjasafnið með leiknum atriðum. Á Vestfjörðum er einnig, sem kunnugt er, kraumandi sagnabrunnur sem er tilvalinn til lifandi útfærslu – ég nefni bara sem dæmi þjóðsögurnar, Jón for- seta og Gísla Súrsson. Skemmtiferðaskipin koma mikið þarna á sumrin og eitthvað verð- ur að bjóða fólki upp á svo það njóti dvalarinnar sem best. Nú þegar hefur verið afráðið að við sýnum Mugg í Skíðavikunni á Ísa- firði og jafnvel aftur yfir sum- artímann – einmitt á þeim nótum hef ég hugsað þetta. Svo gæti leikhúsið ferðast til annarra staða á landinu með sýningar og jafnvel námskeiðshald. Ég hef útfært þessa hugmynd og sent inn sem styrkumsókn til fjárlaganefndar og nú er bara að bíða og sjá. Leikhús kostar pen- inga en það skilar líka ýmsu til baka til samfélagsins. Í öllum könnunum um viðhorf fólks til bú- setu kemur fram að þrennt virðist skipta íbúana mestu máli; atvinna, skóli og afþreying. Mikilvægi af- þreyingar skyldi ekki vanmetið og mér sýnist það sannast vel á Ísa- firði þar sem fara saman öflugt menningarlíf og blómlegt mannlíf. Sjálfur tek ég fámennið fyrir vest- an fram yfir borgarlífið og þess vegna er ég nú að vonast til þess að hugmyndin um atvinnuleikhús úti á landi hljóti hljómgrunn á réttum stöðum,“ segir Elfar Logi. Dreymir um atvinnuleikhús á Ísafirði Morgunblaðið/Golli Elfar Logi Hannesson leikari og Vigdís Jak- obsdóttir, leikstjóri Muggs. Hár leikarans er litað grátt vegna hlutverksins, en Muggur eltist um aldur fram sökum berkla. Leikhús á hjólum ENSKA ER OKKAR MÁL Talnámskeið  7 vikur, tvisvar í viku, 30./31. okt. - 16./17. des.  Kennt á mismunandi stigum, frá grunni til framhaldsstigs  Sérmenntaðir enskukennarar  Námskeiðin metin hjá flestum stéttarfélögum Þú finnur örugglega eitthvað við þitt hæfi Julie Ingham Sandra Eaton John O’ Neill Graeme Sanderson John Boyce Susan Taverner Hringdu í síma 588 0303 FAXAFENI 8 www.enskuskolinn.is enskuskolinn@isholf.is EINSTAKT TÆKIFÆRI Í GLÆSILEGRI JÓLA- FERÐ TIL THAILANDS 11.-28. DES. ALLAR FERÐIR UPPSELDAR - en við eigum 10 sæti! Flug Flugleiða og British Airways beint til Bangkok. Nýtt hótel HEIMSKLÚBBSINS - Radisson í Bangkok - óviðjafnanlega fallegt, vandað hótel með frábærri fimm stjörnu þjónustu á áður óþekktum kjörum 4 n. + 12 n. yndisleg dvöl á Hótel Pálmaströnd, Jomtien, alls 17 daga ferð á ótrúlegum kjörum. TRYGGIÐ SÆTI STRAX Glæsilegt 5* RADISSON Bangkok Yndisleg stranddvöl JOMITIEN Pálmaströnd Nýtt í Thailandi - JÓL! Austurstræti 17, 4. hæð, 101 Reykjavík, sími 562 0400, fax 562 6564, netfang: prima@heimsklubbur.is, heimasíða: http://www.heimsklubbur.isSími 56 20 400

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.