Morgunblaðið - 20.10.2002, Síða 26

Morgunblaðið - 20.10.2002, Síða 26
26 SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ENGINN mun geta borið ossá brýn að vér rekum þettamál af ósanngirni. Vérleggjum það til, er vér telj-um rétt, að íslenskt þjóð- menningarsafn geymi og njóti hinna íslensku þjóðminja, sem fyrir alveg sérstakar ástæður höfnuðu í Dan- mörku, en verða þó ekki danskari að heldur, hversu lengi sem þær dveljast þar,“ skrifar Kristján Eldjárn, þáver- andi þjóðminjavörður, í Stúdenta- blaðið hinn 1. desember árið 1951 þar sem hann í hugvekju rekur sögu forn- gripamálsins og rökstyður málstað Íslendinga. Síðan eða í ríflega hálfa öld hefur að heita má ríkt þögn um forngripa- málið þar til nýlega að Tómas Ingi Ol- rich menntamálaráðherra reifaði þá hugmynd við Dani að komið verði á fót íslensk-danskri menningarstofn- un með aðsetur á Íslandi þar sem m.a. verði varðveittir allir íslenskir forn- gripir, sem enn eru í vörslu Dana. Ís- lenski menntamálaráðherrann lagði fram hugmynd um þessa nýju stofn- un eftir að Danir höfðu síðsumars al- farið hafnað óskum Íslendinga um að teknar yrðu upp viðræður um frekari afhendingu íslenskra forngripa, sem enn eru í Danmörku. Dönsk stjórn- völd munu vera að íhuga málið, en að mati ráðherra ber að skoða sáttmála, sem gerður var milli ríkjanna árið 1965 vegna flutnings íslenskra hand- rita hingað til lands, í ljósi breyttra aðstæðna og viðhorfa. Í sjöttu grein sáttmálans segir að þar með sé full- komlega og endanlega útkljáð „um allar óskir af íslenskri hálfu varðandi afhendingu hvers konar íslenskra þjóðlegra minja sem í Danmörku eru. Samkvæmt því skal af hálfu íslenska ríkisins eigi unnt í framtíðinni að hefja né styðja kröfur eða óskir um afhendingu slíkra minja úr dönskum skjalasöfnum eða söfnum, opinberum jafnt sem í einkaeign. „Það kom í hlut Gunnars Thoroddsen, þáverandi sendiherra Íslands í Danmörku, að undirrita sáttmálann í forsætisráð- herratíð Bjarna Benediktssonar af Íslands hálfu. Fyrir hönd Dana skrif- ar Per Hækkerup, þáverandi utanrík- isráðherra Dana, undir sáttmálann. Helmingnum skilað 1930 Í lok júnímánaðar árið 1930 minnt- ust Íslendingar þess með hátíðahöld- um á Þingvöllum að þúsund ár töldust liðin frá stofnun Alþingis. Af þessu til- efni afhenti Thorvald Stauning, for- sætisráðherra Danmerkur, Tryggva Þórhallssyni, hinum íslenska starfs- bróður sínum, helming íslenskra gripa úr Þjóðminjasafni Danmerkur. Þar á meðal var sjálf Valþjófsstaðar- hurðin, annar tveggja Grundarstóla og hökull Jóns Arasonar, að sögn Önnu Þorbjargar Þorgrímsdóttur, sagnfræðings sem nú stundar MA- nám í safnfræði við Gautaborgarhá- skóla og rannsakar m.a. sögu ís- lenskra forngripa í Kaupmannahöfn. Hún segir að safnið í Kaupmanna- höfn, sem stofnað var árið 1807, hafi eignast flesta sína íslensku gripi á 19. öld, oftast fyrir tilstilli einstaklinga. Mikið munaði þó um að Den Konge- lige Oldsagskommissionen eða Forn- leifanefndin hóf skipulega söfnun á forngripum á Íslandi árið 1817. Sams konar söfnun fór einnig fram innan Danmerkur og í Noregi og Færeyj- um. Með stofnun Þjóðminjasafns Ís- lands árið 1863 tók að mestu fyrir það að gripir væru fluttir beint frá Íslandi í söfn erlendis. Forsaga þess að Danir gáfu Íslend- ingum forngripina árið 1930 var að fimm árum áður, 1925, hafði verið samþykkt á Alþingi ályktun um að skora á stjórnina að krefjast þess af Dönum, að þeir skiluðu „öllum þeim munum íslenskum úr söfnum sínum er eigi verður sannað um, að þeir sjeu þangað komnir með réttum eignar- heimildum. Næstu ár fóru fram samningaviðræður um málið í dansk- íslenskri stjórnlaganefnd. Þrátt fyrir miklar umræður innan nefndarinnar, í undirnefndum hennar og á milli safnstjóra Þjóðminjasafna beggja landanna fannst engin lausn á mál- inu,“ að sögn Önnu. „Deiluaðilar voru sammála um að skil ættu að fara fram en ekki náðist samkomulag um hvaða gripum ætti að skila eða hversu mörgum. Lausnin varð að lokum sú að Danir gáfu Íslendingum helming gripanna í tilefni Alþingishátíðarinn- ar. Með því að gefa gripina leystu Dan- ir tvö vandamál. Þeir gátu sjálfir valið hvaða gripir færu til Íslands og sköp- uðu ekki fordæmi, sem auðveldaði kröfur frá öðrum löndum. Ókosturinn var hins vegar sá að Danir gátu ein- ungis vonast til að málinu væri þar með lokið. Sú von rættist ekki. Á Ís- landi var eingöngu litið á gjöfina sem fyrsta áfanga að því marki að fá heim til Íslands alla gripi úr dönskum söfn- um. Frá þeirri stefnu var ekki hnikað fyrr en við lausn handritamálsins árið 1965,“ segir Anna Þorbjörg. Íslendingar ítrekuðu við Dani eftir lýðveldisstofnunina að krafan um endurheimt íslenskra handrita og forngripa stæði óhögguð. Setti þá danska stjórnin á laggirnar nefnd sérfræðinga til að vega og meta þessa kröfu. Í áliti nefndarinnar, sem kunn- gjört var í desember 1951, vildi meiri- hluti nefndarmanna koma að ein- hverju leyti til móts við óskirnar um skil handritanna en einhuga var nefndin um að hafna forngripakröf- unni enda hafi það mál fengið end- anlega niðurstöðu árið 1930. Eftir að sérfræðinganefndin kvað upp dóm sinn, bendir margt til þess að íslensk stjórnvöld hafi, án formlegrar sam- þykktar, ákveðið að halda forngripa- málinu og handritamálinu aðskildum og aðhafast ekkert í forngripamálinu fyrr en handritamálið væri til lykta leitt, en þess má geta að Íslendingar fengu fyrstu skinnbækurnar, Flateyj- arbók og Konungsbók Eddukvæða, afhentar árið 1971. Fágætir og einstakir gripir Erfitt er að segja til um nákvæman fjölda íslenskra forngripa, sem geymdir eru á danska Þjóðminjasafn- inu, bæði vegna þess að þar geta leynst gripir, sem ekki hafa verið greindir sem íslenskir og hins vegar geta verið fleiri gripir á bak við eitt safnnúmer. Því fer betur að tala í þessu samhengi um fjölda safnnúm- era. „Með þeim fyrirvara má gróflega ætla að í danska Þjóðminjasafninu séu nú um það bil eitt hundrað safn- númer, flest í miðaldadeildinni. Þar að auki á Þjóðminjasafn Dana gott safn gripa frá 18. og 19. öld sem Ís- lendingar hafa aldrei gert kröfu á að Danir skili,“ segir Anna Þorbjörg. „Á meðal þessara um það bil eitt hundrað númera, eru nokkrir fágætir gripir og sumir raunar einstakir í sinni röð, en einnig eru margir smærri hlutir og algengari, eins og til dæmis beltisspennur, silfurhnappar og lyklahringir. Meðal þekktari forn- gripa má nefna biskupshúfu frá Skál- holti, smelt bókarspjöld frá Grund í Eyjafirði, helgiskrínið frá Keldum og annan tveggja Grundarstóla auk um það bil níu drykkjarhorna, brúðar- skarts, kvensilfurs og ljósahjálma. Einnig eru nælur úr nokkrum kuml- um, elsta íslenska alabasturtaflan og nokkurt magn textíla, m.a. höklar og altarisklæði,“ segir Anna Þorbjörg og bætir við að mikil þörf sé á að rann- saka þessa gripi nánar, gera yfir þá nákvæma skrá og skrifa sögu hvers grips fyrir sig en einnig sameiginlega sögu allra gripanna í Þjóðminjasafni Dana. „Ég hef einmitt hugsað mér að verja næstu árum í slíkar rannsókn- ir,“ segir hún. Stríðir gegn safnapólitík Lilja Árnadóttir, deildarstjóri munadeildar Þjóðminjasafnsins og formaður Íslandsdeildar ICOM, segir að í danska Þjóðminjasafninu í Kaup- mannahöfn séu varðveittir margir merkir íslenskir munir og munir af erlendum uppruna sem á sinni tíð voru í eigu Íslendinga. „Munir þessir eru frá ýmsum skeiðum íslenskrar menningarsögu. Þeir eru einhver hundruð og eru til skrár yfir þá, bæði hér og ytra. Meðal þeirra gripa sem um ræðir má nefna ýmsa jarðfundna hluti, textíla, kirkjugripi, fatnað og út- skorna muni af ýmsu tagi. Ófaglegt er að meta slíka hluti til fjár. Aftur á móti skiptir það mestu máli að grip- irnir séu vel varðveittir og að menn geti bæði skoðað þá og rannsakað þegar á þarf að halda. Það getum við gert hvenær sem er,“ segir Lilja og bætir við að í Þjóðminjasafni Íslands séu fjölmargir munir sem líka spanni alla íslensku menningarsöguna. Þeim merkustu, sem jafnframt hafa mesta þýðingu fyrir íslenska menningar- sögu, verður komið fyrir og þeir kynntir á nýjum grunnsýningum safnsins sem opnaðar verða eftir að endurbótum safnhússins lýkur. Þegar Lilja er innt eftir áliti sínu á óskum hérlendra stjórnvalda við dönsk stjórnvöld varðandi flutning ís- lenskra fornmuna til Íslands, segist hún líta svo á að ráðherrann hafi farið nokkuð geyst í málinu. „Ósk ráð- herrans stríðir nokkuð gegn fagleg- um sjónarmiðum í safnapólitík enda myndu stærstu söfnin í Evrópu verða mun fátæklegri ef óskir um endur- heimt menningarverðmæta af söfn- um úti í heimi yrðu uppfylltar,“ segir Lilja. „Gripir þeir, sem hér um ræðir, voru flestir fluttir til varðveislu frá Ís- landi til Danmerkur á 19. öldinni þeg- ar engin söfn voru til á Íslandi. Stór hluti þeirra íslensku safngripa sem voru í Þjóðminjasafni Dana var af- hentur Íslendingum á Alþingishátíð- inni árið 1930 eftir að samningaferli hafði staðið í nokkur ár. Þeir eru allir varðveittir í Þjóðminjasafni Íslands Skiptar skoðanir eru um réttmæti þess að Íslend- ingar ásælist á ný þá fjölmörgu íslensku forngripi, sem enn eru í vörslu Dana, en eins og alkunna er hefur Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra tekið málið upp við dönsk stjórnvöld. Jóhanna Ingv- arsdóttir rýndi í söguna, ræddi við danska og ís- lenska fræðimenn og komst að því að mikil þögn hefur ríkt um íslensku forngripina í ríflega hálfa öld. Altarisklæði úr Reykjahlíðarkirkju. Ljósmynd/Danska Þjóðminjasafnið Annar tveggja kirkjustóla frá Grund í Eyjafirði sem varð- veist hafa og sendir voru danska Þjóðminjasafninu ár- ið 1843. Íslendingar fengu annan stólinn til baka árið 1930 ásamt mörgum öðrum íslenskum fornminjum sem hafnað höfðu í Danmörku. Fjölmargir aðrir forngripir eru enn í Danmörku og skipta þeir líklega hundruð- um, en á myndunum gefur að líta smá sýnishorn. Ljósmynd/Jóhanna Ólafsdóttir Kaleikur og patína frá Eiðum. Altaristafla frá Munkaþverá sem heitir Maríubrík. Ljósmynd/Danska Þjóðminjasafnið Skírnarfat frá Hofi í Álftafirði. Ljósmynd/Danska Þjóðminjasafnið Skálatjald frá Kirkjubæ í Hróars- tungu. Ljósmynd/Danska Þjóðminjasafnið Helgiskrín frá Keldum á Rang- árvöllum. Silfurhringur úr Skagafirði. Fjársjóður forngripanna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.