Morgunblaðið - 20.10.2002, Page 29

Morgunblaðið - 20.10.2002, Page 29
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 2002 29 Barnadjasstónleikar verða í Há- sölum í Hafnarfirði kl. 16. Þar flytja Anna Pálína og félagar henn- ar lög af geislaplötunum Berrössuð á tánum og Bullutröll en und- anfarin tvö ár hafa þau heimsótt leikskóla og grunnskóla víðsvegar um landið. Flytjendur ásamt Önnu Pálínu eru þeir Gunnar Gunnarsson píanóleik- ari, Gunnar Hrafnsson sem leikur á bassa og Pétur Grétarsson slag- verksleikari. Aðgangseyrir er 800 kr. en frítt fyrir fullorðna. Tómas R. Einarsson kontrabassa- leikari kynnir nýjan geisladisk sinn, Kúbanska, í sal FÍH, Rauðagerði 27 kl. 20.30. Með honum leika Ey- þór Gunnarsson píanó, slagverk, Hilmar Jensson gítar, Matthías M.D. Hemstock trommur, slagverk, Pétur Grétarsson slagverk, Samúel J. Samúelsson básúna og Kjartan Hákonarson trompet. Félag íslenskra hljómlistarmanna styrkti þessa tónleika í tilefni af 70. afmælisári sínu. Aðgangur er ókeypis. Hjallakirkja Sigrún Magna Þór- steinsdóttir, organisti Breiðholts- kirkju, leikur í orgelandaktinni kl. 17. Flutt eru verk eftir tvö barokk- tónskáld. Eftir Francois Couperin (1668–1733) leikur Sigrún 5 þætti, nr. 6–10, úr „Messu fyrir söfnuðinn eða Messe pour Les Paroisses. Þrjú verk eftir J.S. Bach: Tvo sálm- forleiki úr safni 6 orgelkórala sem kallast Schübler kóralar. Sá fyrri er yfir sálmalagið Gleð þig, Guðs son- ar brúð og síðari yfir Vakna, Síons verðir kalla og loks leikur Sigrún Toccötu, adagio og fúgu í C dúr. Bíósalur MÍR, Vatnsstíg 10 Rússneska kvikmyndin Bernska Gorkís „Detsvo Gorkogo“ verður sýnd kl. 15. Myndin var gerð árið 1938 og byggð á fyrsta bindi sjálfs- ævisögu Gorkís og er fyrsta mynd- in af þremur. Bókin kom út í ís- lenskri þýðingu Kjartans Ólafssonar um miðja síðustu öld. Leikstjóri er Mark Donskoj einn af kunnustu kvikmyndagerð- armönnum Sovétríkjanna á sínum tíma. Enskur texti er með myndinni en aðgangur er ókeypis. Í DAG  Sjá einnig Staður og stund á mbl.is Þórey Tómasdóttir frá Akureyri opnar sýningu í Eden í Hvera- gerði. Þar sýnir hún portret- og vatns- litamyndir og eru þær allar til sölu. Þetta er önnur einkasýning Þór- eyjar, sem er sjálfmenntuð. Sýn- ingunni lýkur 3. nóvember. Kaffileikhúsið Sænsk pólifónísk þjóðlagatónlist, verður flutt kl. 20.30. Það eru sænsku söngkon- urnar Susanne Rosenberg, Eva Åstrsöm-Rune og Sofia Sandén sem flytja hjarðsöngva, ballöður og glaðleg danskvæði. Þær syngja ým- ist einar og sér, eða allar saman. Þær eru allar kunnar söngkonur í heimalandi sínu. Verð á tónleikana er 1.000 kr. Keðjusöngur í hádeginu verður í sal Tónskóla Sigursveins D. Krist- inssonar, Engjateigi 1, kl. 12.30. Sungið verður lag eftir Henry Purcell, Under this stone. Í lagi sínu syrgir Purcell látinn vin sinn, Gabriel John. Nótur er hægt að nálgast á skrifstofu skólans. Stjórnandi er Símon H. Ívarsson. Á MORGUN ÞORSTEINN Pálsson sendiherra opnar höggmyndasýningu Svanhild- ar Sigurðardóttur í Coningsby gall- ery í miðri London (Tottenham street við Tottenham Court Road) á mánudag. Svanhildur sýnir 30 bronz- verk og tvö verk í stein, annað í marmara og hitt í alabastur. Marm- araverkið er 300 kg að þyngd og kallast Engill hafsins. Svanhildur rekur vinnustofu í Ás- garði í Forest Row í East Sussex í Englandi þar sem hún hefur búið undanfarin 10 ár. Að undangengnu námi í Myndlista- og handíðaskóla Íslands, textíldeild, og Myndlistaskóla Reykjavíkur út- skrifaðist Svanhildur eftir fjögurra ára nám frá höggmyndadeild Emer- son-listaháskólanum í East Sussex á Englandi árið 1995. Hún hefur að- allega unnið með bronz og stein í verkum sínum, innblásin af landslagi Íslands. Hún hefur haldið einka- og vinnu- stofusýningar í Bretlandi og tekið þátt í samsýningum. Verk eftir hana eru til í opinberri eigu hér á landi, m.a. hjá Eimskipafélagi Íslands, Ís- landsbanka og Flugleiðum. Sýningunni lýkur 1. nóvember. Frekari upplýsingar um sýninguna má fá á heimasíðu Svanhildar á slóð- inni: www.swanhildur.btinternet.co- .uk og www.coningsbygallery.com.Ein höggmynda Svanhildar Sigurðardóttur. Íslendingur sýnir högg- myndir í London ÞJÓÐMINJASAFN Íslands, Nes- stofusafn og Félag áhugamanna um sögu læknisfræðinnar vilja heiðra minningu dr. Jóns Steffensen með því að veita styrk að upphæð kr. 200.000 til háskólanema sem hyggst vinna lokaverkefni tengt sögu heil- brigðismála. Styrknum verður út- hlutað í annað sinn. Þriggja manna nefnd skipuð af styrkveitendum sér um úthlutun. Umsóknir um styrk þennan skulu berast Þjóðminjasafni Íslands, Lyngási 7, 210 Garðabæ fyr- ir 4. nóvember í umslagi merktu „styrkumsókn“. Umsókninni skal fylgja greinargerð um verkefni og umsögn umsjónarkennara. Styrkur til rannsókna á sögu heilbrigð- ismála Í SAFNAHÚSINU á Sauðárkróki stendur nú yfir sýning Önnu Hrefnu- dóttur myndlistarkonu. Þar eru til sýnis akrílverk og ljóð. Verkin hefur Anna málað á sl. ári og tengjast mörg þeirra efnislega bernskustöðv- um Önnu á Berufjarðarströnd. Sum- um myndanna fylgja ljóð sem mynd- irnar hafa kallað fram. Einnig eru á sýningunni ljóð án mynda. Anna er með heimasíðu á slóðinni: http://www.ismennt.is/not/annahref. Sýningunni lýkur í dag og er opin frá kl. 12 til 17. Myndir og ljóð í Safnahúsinu NÚ stendur yfir sýning á myndum Sigrúnar Huldar Hrafnsdóttur í sal Félagsþjónustunnar á Vesturgötu 7. Þetta er önnur einkasýning Sigrúnar en hún hefur tekið þátt í nokkrum samsýningum heima og erlendis und- anfarin ár. Sýningin stendur til 8. nóvember og er opin virka daga kl. 9–16.30. Myndlistarsýning á Vesturgötu 7 ♦ ♦ ♦ betri innheimtuárangur               !  "  #  $ %  &%  '  ( % # !# ! #)*+                  & !#  ,# )    # - $ #)*+  .% !  !# ./ #      !  ) /  $ %   0 # / # -+ )/    #*#    !!% #)*+   )/  .%  .$ +#  # # /# .!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.